Morgunblaðið - 24.05.2006, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 24.05.2006, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MESSUR Á MORGUN | KIRKJUSTARF BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Guðmundur Sigurðsson. Allir velkomnir. Pálmi Matthíasson. Eftir guðs- þjónustuna verður sýning á munum úr starfi aldraðra í vetur. Veisluborð verður framreitt og öldruðum boðið upp á veit- ingar. DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl. 14 á degi aldraðra. Sr. Hjálmar Jónsson pré- dikar. Dómkórinn syngur og Marteinn Friðriksson leikur á orgel. Að lokinni guðsþjónustunni er kirkjugestum boðið í kaffi í Iðnó. Þar munu Hjörleifur Valsson og Marteinn Friðriksson leika fyrir gesti. GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11 á degi aldraðra. Erla Svafarsdóttir og Ína Friðriksdóttir lesa ritningarlestra. Kirkju- kór Grensáskirkju syngur. Organisti Bjarni Jónatansson. Samskot til Hjálp- arstarfs kirkjunnar. Málsverður að lokinni guðsþjónustu. Sr. Hans Markús Haf- steinsson. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar. Félagar úr Mótettukór syngja. Organisti Hörður Ás- kelsson. Safnaðarferð eldri borgara strax að lokinni messu. Aðalfundur Listvina- félags Hallgrímskirkju verður haldinn að lokinni messu um kl. 12.30. HÁTEIGSKIRKJA: Dagur aldraðra. Messa kl. 11. Gerðubergskórinn syngur við messuna, stjórnandi Kári Friðriksson. Veitingar eftir messu. Sr. Tómas Sveins- son. HRAFNISTA í Reykjavík: Guðsþjónusta klukkan 16 í samkomusalnum Helgafelli. Organisti Kári Þormar, félagar úr kirkjukór Áskirkju og kór Hrafnistu munu leiða safnaðarsöng. Sr. Karl Matthíasson pré- dikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Svan- hildi Blöndal. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Guðsþjónusta kl. 14. – Ath. tím- ann. Danskur kvennakór, Crescendo, syngur við guðsþjónustuna og einnig á eftir. Eldri borgarar sérstaklega boðnir velkomnir til þátttöku í guðsþjónustunni og þeir annast lestra og bænagjörð. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Org- anisti Jón Stefánsson. Kaffiveitingar eftir guðsþjónustuna og einnig verður handa- vinnusýning frá starfi eldri borgara í Lang- holtskirkju í vetur. Allir velkomnir. LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 14 á degi aldraðra. Sóknarprestur og með- hjálpari kirkjunnar þjóna ásamt fulltrúum þjónustuhóps kirkjunnar. Kór Laugarnes- kirkju syngur við stjórn Gunnars Gunn- arssonar. Að messu lokinni býður Gunn- hildur Einarsdóttir kirkjuvörður og sóknarnefnd í tertukaffi í safnaðarheim- ilinu. Gospelkvöld kl. 20 í Hátúni 10, 9. hæð. Guðrún K. Þórsdóttir djákni og Þor- valdur Halldórsson söngvari leiða stund- ina. Ýmsir stíga á svið með gamanmál og Bjarni Karlsson prestur flytur Guðsorð og bæn. NESKIRKJA: Messa kl. 14.Litli kórinn, kór eldri borgara í Neskirkju, syngur. Stjórnandi Inga J. Backman. Organisti Reynir Jónasson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Sig- urði Árna Þórðarsyni. Veislukaffi í safn- aðarheimilinu eftir messu. SELTJARNARNESKIRKJA: Helgistund kl. 11. Selkórinn flytur fallega tónlist. Sr. Sigurður Grétar Helgason leiðir stundina. Minnum á Skálholtsferð eldri borgara. Lagt verður af stað frá kirkjunni kl. 12. Messa í Skálholtsdómkirkju kl. 14. Stað- ar- og söguskoðun í Skálholti og kaffi í Skálholtsskóla á eftir. Verið hjartanlega velkomin. Prestar og sóknarnefnd Sel- tjarnarneskirkju. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Kl. 11 ferming- arguðsþjónusta. Fermd verður Ásta Sól Ólafsdóttir. Anna Sigga og Carl Möller leiða almennan safnaðarsöng, en Hjörtur Magni Jóhannsson, safnaðarprestur, þjónar. Kl. 14 er árleg guðsþjónusta eldri borgara. Guðrún Ásmundsdóttir leikari prédikar. Anna Sigga og Carl Möller leiða almennan safnaðarsöng ásamt Fríkirkju- kórnum. Eldri borgarar lesa lestra dags- ins og Ása Björk Ólafsdóttir þjónar. Kven- félagskonur sjá um messukaffi í Safnaðarheimili Fríkirkjunnar við Lauf- ásveg 13. Allir velkomnir. ÁRBÆJARKIRKJA: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14 (ath. breyttur messutími). Sr. Guð- mundur Þorsteinsson fyrrverandi sókn- arprestur og dómprófastur prédikar. Prestar kirkjunnar þjóna fyrir altari. Hjör- leifur Valsson fiðluleikari spilar. Aldraðir lesa ritningarlestra og flytja almenna kirkjubæn. Hátíðarkaffi í boði Soroptim- istakvenna í safnaðarheimili kirkjunnar á eftir. DIGRANESKIRKJA: Kirkjudagur aldraðra. Sameiginleg messa Digranes-, Hjalla- og Lindasókna í Hjallakirkju kl. 14. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Hátíðarguðs- þjónusta kl. 14. Sr. Frank M. Halldórsson predikar. Sr. Hreinn Hjartarsson, sr. Guð- mundur Karl Ágústsson, sr. Svavar Stef- ánsson og Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni þjóna. Kaffi og meðlæti eftir guðs- þjónustuna í umsjá Soroptimista. GRAFARHOLTSSÓKN: Kirkjudagur eldri borgara. Messa í Þórðarsveig 3 kl. 11, séra Tómas Guðmundsson fyrrverandi prófastur og prestur í Hveragerði prédik- ar, séra Sigríður Guðmarsdóttir þjónar fyrir altari. Tónlist í umsjá Þorvaldar Hall- dórssonar. Boðið verður upp á léttan há- degismat og skemmtiatriði eftir messu. Eldri borgarar í Grafarholti kynna fé- lagsstarf sitt. GRAFARVOGSKIRKJA: Dagur eldri borg- ara. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14, ath. breyttan messutíma. Séra Ólafur Skúla- son biskup prédikar, séra Vigfús Þór Árnason, séra Lena Rós Matthíasdóttir og séra Elínborg Gísladóttir þjóna fyrir alt- ari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Org- anisti: Hörður Bragason. Opnuð verður sýning á handavinnu eldri borgara. Um- sjón í vetur höfðu þær Unnur Malmquist, Edda Jónsdóttir og Jónína Jóhannsdóttir. Kaffi og veitingar á vegum safn- aðarfélagsins og sóknarnefndarinnar. HJALLAKIRKJA: Sameiginleg guðsþjón- usta safnaðanna í austurbæ Kópavogs kl. 14. Dagur aldraðra. Prestar safn- aðanna þjóna. sr. Ingólfur Guðmundsson prédikar. Félagar úr Kór Hjallakirkju syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kaffiveitingar í safnaðarsal að guðsþjónustu lokinni (sjá einnig á www.hjallakirkja.is). KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Kirkjudagur aldraðra. Sóknarprestur predikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safn- aðarsöng. Organisti Þóra Vigdís Guð- mundsdóttir. Kaffi í safnaðarheimilinu Borgum eftir guðsþjónustu. LINDASÓKN í Kópavogi: Kirkjudagur aldr- aðra. Sameiginleg messa Digranes-, Hjalla- og Lindasókna í Hjallakirkju kl. 14. SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta er kl. 14. Eldri borgurum boðið sérstaklega til kirkj- unnar. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédik- ar. Sr. Valgeir Ástráðsson þjónar fyrir alt- ari. Organisti er Jón Bjarnason. Kirkjukórinn syngur. Að lokinni guðsþjón- ustu er boðið til kaffidrykkju í safn- aðarsölum. LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 14 Guðsþjónusta á degi aldraðra í þjóð- kirkjunni. Fólk í Félagi eldri borgara les úr Ritningunni og annast lokabæn. Kven- félag Landakirkju býður eldri borgurum og öllum öðrum kirkjugestum í kaffi í safnaðarheimilinu eftir messu. Allir hjart- anlega velkomnir. Sr. Kristján Björnsson, sóknarprestur. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14, ath. tímann. Eldri borgurum og ættingjum þeirra boðið sérstaklega í kirkju. Prestar: Sr. Gunnþór Þ. Ingason og sr. Þórhallur Heimisson. Kór Neskirkju á Austurey í Færeyjum syngur auk Kórs Hafnarfjarðarkirkju. Veisla í Hásölum, Strandbergi, eftir Guðsþjónustuna þar sem færeyski kórinn mun syngja. Erna Fríða Berg, skrifstofustjóri, les þar vor-og sumarljóð. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Guðs- þjónusta sérstaklega tileinkuð eldri borg- urum á uppstigningardag kl. 14. Prestur sr. Bragi J. Ingibergsson. Gaflarakórinn, kór Félags eldri borgara, syngur undir stjórn Kristjönu Þ. Ásgeirsdóttur. Org- anisti Úlrik Ólason. Kaffiveitingar í safn- aðarheimilinu eftir messu. Rúta fer frá Hjallabraut 33 kl. 13.40 og frá Hrafnistu kl. 13.50. Allir velkomnir. NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík): Guðsþjónusta á uppstigningardag fimmtudaginn 25. maí kl. 11. árd. Eldey, kór eldri borgara, syngur. Undirleikari er Natalía Chow Hewlett. Meðhjálpari Krist- jana Gísladóttir. Kaffi og kleinur í boði sóknarnefndar í safnaðarheimilinu að at- höfn lokinni. KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta á uppstigningardag kl. 14. Prestur sr. Sig- fús B. Ingvason. Kór eldri borgara leiðir söng. Meðhjálpari Guðmundur Hjaltason. BORGARKIRKJA: Messa kl 14. Sókn- arprestur. GLERÁRKIRKJA: Messa kl. 14 á degi aldraðara. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Karlakór Akureyrar Geysir leiðir söng. Stjórnandi er Michael Jón Clarke. Organisti er Hjörtur Steinbergsson. Kaffi- veitingar í boði sóknarinnar, eldri borg- arar fjölmennið, allir velkomnir eins og ævinlega. Bíll fer frá Lindasíðu kl. 13.45. AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Dagur aldraðra. Haukur Ágústsson predikar. Sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir þjónar fyrir altari. Kór eldri borgara syng- ur undir stjórn Arnórs B. Vilbergssonar. Kaffiveitingar í boði sóknarnefndar eftir guðsþjónustuna. NORÐFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Dagur eldriborgara í kirkjunni. Allir velkomnir en eldri borgarar sérstaklega boðnir velkomnir. Séra Hólmgrímur E. Bragason prédikar og þjónar ásamt sókn- arpresti. Hjúkrunarheimilið Hjallatún í Vík: Helgi- stund verður á Hjallatúni í Vík á uppstign- ingardag, 25. maí nk. kl. 15. Organisti er Kristín Waage. Kór Víkurkirkju syngur. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa á upp- stigningardag 25. maí kl. 14. Sókn- arprestur. SELFOSSKIRKJA: Messa á uppstigning- ardag kl. 11. Léttur hádegisverður í safn- aðarheimilinu á eftir. Kirkjukór Selfoss syngur undir stjórn organistans, Glúms Gylfasonar. Sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Sr. Gunnar Björnsson. Uppstigningardagur. Dagur aldraðra. Kirkjudagur aldraðra EINS og undanfarin ár er uppstign- ingardagur kirkjudagur aldraðra í kirkjum landsins. Þá er eldri borg- urum og fjölskyldum þeirra boðið sérstaklega til guðsþjónustu. Aldraðir taka virkan þátt í guðs- þjónustunni með söng og upplestri. Þarna gefst fjölskyldum tækifæri á að eiga hátíðarstund saman í kirkj- unni sinni og á eftir er boðið upp á gómsætar veitingar. Í nokkrum kirkjum eru sýningar á verkum sem eldri borgarar hafa unnið í vetrarstarfinu. Útvarpsguðsþjón- usta þennan dag verður frá Grens- áskirkju. Ellimálanefnd Þjóðkirkjunnar hvetur alla til að koma í kirkju á uppstigningardag. Þar geta þeir kynnt sér það sem er í boði fyrir eldri borgarana og notið dagsins með þeim. Uppstigningardagur í Fella- og Hólakirkju Á MORGUN, fimmtudaginn 25. maí, á uppstigningardag, verður hátíðarguðsþjónusta á degi aldr- aðra í Fella- og Hólakirkju kl 14. Sr. Frank M. Halldórsson predikar, sr. Hreinn Hjartarson, sr. Svavar Stefánsson, sr. Guðmundur Karl Ágústsson og Ragnhildur Ásgeirs- dóttir djákni þjóna fyrir altari. Kór Gerðubergs leiðir safnaðarsöng undir stjórn Kára Friðrikssonar, barnakór Fella- og Hóla syngur undir stjórn Lenku Mateovu kant- ors kirkjunnar og Þórdísar Þór- hallsdóttur. Hópur frá Þorlákshöfn kemur í heimsókn. Kaffi og meðlæti verður að lok- inni guðsþjónustu í umsjá soroptim- ista. Allir velkomnir. Eldri borgarar og færeyskur kór í Hafnarfjarðarkirkju Á UPPSTIGNINGARDEGI, 25. maí, mun eldri borgurum og ætt- ingjum þeirra svo sem endranær á þeim degi verða sérstaklega boðið til guðsþjónustu sem hefst kl. 14 í Hafnarfjarðarkirkju. Prestar verða sr. Gunnþór Þ.Ingason og sr. Þór- hallur Heimisson. Eftir guðsþjónustuna er boðið til veglegs kaffisamsætis í Hásölum Strandbergs. Kór Neskirkju á Aust- urey í Færeyjum mun ásamt Kór Hafnarfjarðarkirkju syngja í guðs- þjónustunni og einnig í kaffi- samsætinu. Erna Fríða Berg skrif- stofustjóri mun þar einnig lesa vor- og sumarljóð. Ánægjulegt væri að Færeyingar og Færeyjavinir væru auk eldri borgara meðal kirkjugesta í Hafn- arfjarðarkirkju á komanda upps- tigningardegi. Uppstigningardagur í Hjallakirkju UPPSTIGNINGARDAGUR er sá dagur í kirkjuárinu sem tileinkaður er eldri borgurum og verður af því tilefni guðsþjónusta í Hjallakirkju, Kópavogi, kl. 14. Um er að ræða sameiginlega guðsþjónustu safn- aðanna í austurbæ Kópavogs, Digranes-, Hjalla og Lindasafnaða. Prestar safnaðanna þjóna og sr. Ingólfur Guðmundsson prédikar. Félagar úr Kór kirkjunnar leiða safnaðarsönginn undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar, organista. Að guðsþjónustu lokinni er boðið til kaffisamsætis í safnaðarsal kirkjunnar. Allir velkomnir. Kvennakór, handa- vinnusýning og kaffi í Langholtskirkju Á UPPSTIGNINGARDAG, 25. maí, verður guðsþjónusta í Langholts- kirkju kl. 14 þar sem danskur kvennakór, Crescendo, syngur, og einnig syngur hann eftir stundina nokkur lög. Kaffiveitingar verða eftir stund- ina og þar verður einnig sýning á handavinnu úr starfi eldri borgara í Langholtskirkju í vetur. Allir eru velkomnir. Samkoma með léttri músík í Selfosskirkju Í DAG, miðvikudaginn 31. maí kl. 20, verður samkoma með léttri músík (poppmessa) í Selfosskirkju. Guðbjörg Arnardóttir, cand. the- ol., flytur hugleiðingu, hún var ný- lega valin til þess að gegna embætti sóknarprests í Oddaprestakalli á Rangárvöllum. Guðbjörg hefur undanfarið starfað að barna- og æskulýðsmálum á vegum Selfoss- kirkju. Þorvaldur Halldórsson leið- ir sönginn. Ég hvet sóknarbörn mín til þess að fjölmenna við samkomuna. Sr. Gunnar Björnsson. Uppstigningardagur í Grafarvogskirkju DAGUR eldri borgara verður hald- in hátíðlegur á uppstigningardegi. Í Grafarvogskirkju er guðsþjón- usta kl. 14. Séra Ólafur Skúlason biskup prédikar og þjónar fyrir alt- ari ásamt séra Vigfúsi Þór Árna- syni, séra Lenu Rós Matthíasdóttur, séra Elínborgu Gísladóttur. Kór Grafarvogskirkju syngur. Ein- söngvari er Ragnar Bjarnason. Organisti: Hörður Bragason. Safnaðarkaffi verður eftir guðs- þjónustu, einnig verður opnuð handavinnusýning á munum eldri borgara sem föndrað hafa í vetur undir leiðsögn Unnar Malmquist, Eddu Jónsdóttur og Jónínu Jó- hannsdóttur. Allir velkomnir. Grafarvogskirkja. Dagur aldraðra í Árbæjarkirkju Á MORGUN, fimmtudaginn 25. maí, uppstigningadag, er eins og endranær hátíðarstund í Árbæj- arkirkju. Dagurinn hefst með há- tíðarguðsþjónustu kl.14 (ath.breytt- an messutíma) – sr. Guðmundur Þorsteinsson fyrrverandi sókn- arprestur og dómprófastur prédik- ar. Prestar kirkjunnar sr. Þór Hauksson og sr. Sigrún Ósk- arsdóttir þjóna fyrir altari. Í guðs- þjonustunni mun Hjörleifur Vals- son leika á fiðlu og Davíð Ólafsson óperusöngvari syngja stólvers. Kirkjukór kirkjunnar leiðir al- mennan safnaðarsöng undir stjórn Krisztinar Kalló Szklenár org- anista og kórstjóra. Eldri borgarar lesa ritningarlestra. Eftir guðsþjónustuna býður kirkjugesta margrómað hátíð- arkaffi í boði Soroptimistakvenna í safnaðarheimili kirkjunnar. Hjör- leifur Valsson af sinni alkunnu snilld mun töfra fram fiðlutóna í samkrulli við rjúkandi heitt kaffi og meðllæti. Handavinnusýning Opna hússins, starfs eldri borgara, í söfn- uðinum. Dagur aldraðra á Hrafnistu í Reykjavík Í TILEFNI af degi aldraðra næst- komandi fimmtudag, sem jafnframt er uppstigningardagur, efna Ás- kirkja og Hrafnista til samstarfs. Þann dag mun heimilisfólk og starfsfólk á Hrafnistu í Reykjavík heimsækja Áskirkju. Rúta fer frá Hrafnistu kl. 13.25 en messað verð- ur í Áskirkju kl. 14. Sr. Svanhildur Blöndal prestur á Hrafnistu í Reykjavík mun prédika í Áskirkju og þjóna fyrir altari ásamt sr. Karli Matthíassyni presti í Áskirkju. Kl. 16 sama dag verður síðan messað í samkomusalnum Helga- felli á 4. hæð Hrafnistu í Reykjavík. Kári Þormar organisti, félagar úr kirkjukór Áskirkju og kór Hrafn- istu munu leiða safnaðarsöng. Sr. Karl Matthíasson prédikar og þjón- ar fyrir altari ásamt sr. Svanhildi. Guðrún Ásmunds- dóttir í Fríkirkjunni í Reykjavík Á UPPSTIGNINGARDAG kl. 14 verður árleg guðsþjónusta eldri borgara. Guðrún Ásmundsdóttir leikari prédikar. Anna Sigga, Carl Möller og Fríkirkjukórinn leiða safnaðarsönginn, en Ása Björk Ólafsdóttir leiðir stundina. Messu- kaffi Kvenfélags Fríkirkjunnar í Safnaðarheimilinu á eftir. Dagur aldraðra í Akraneskirkju GUÐSÞJÓNUSTA verður í Akra- neskirkju á morgun, uppstigning- ardag, kl. 14. Sr. Ingimar Ingimars- son, fyrrv. prófastur, prédikar. Hljómur, kór eldri borgara, syngur undir stjórn Laufeyjar Geirsdóttur. Organisti og undir- leikari er Sveinn Arnar Sæmunds- son. . Uppstigningardagur hefur um árabil verið helgaður öldruðum í Akraneskirkju og svo verður einn- ig nú. Að guðsþjónustu lokinni verðaboðnar kaffiveitingar í Safn- aðarheimilinu Vinaminni.Þar mun Hljómur syngja nokkur lög til við- bótar. Allir velkomnir, ungir sem aldnir! Eldri borgarar í Laugarneshverfi ÁRVISST höldum við guðsþjón- ustu á uppstigningardegi kl. 14 og köllum þá sérstaklega á eldri borgara í Laugarneshverfi ásamt öllu öðru fólki. Hópur eldri félaga hefur dvalið í Skálholti síðustu tvo sólarhringa ásamt sr. Bjarna Karlssyni og Sig- urbirni Þorkelssyni framkvæmda- stjóra safnaðarins. Mun hópurinn koma saman til kirkju og annast alla þjónustu ásamt Gunnari Gunn- arssyni organista og kór kirkj- unnar. Gunnhildur Einarsdóttir kirkjuvörður mun bera fram tertur og kaffi að messu lokinni í boði sóknarnefndar. Ástæða er til að minna á að nú er sumartíminn runninn upp í safn- aðarstarfinu og því eru kvöldmess- ur og barnasamvera alla sunnu- daga kl. 20, en morgunmessur falla niður. Eldri borgarar í Fella- og Hólakirkju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.