Morgunblaðið - 24.05.2006, Blaðsíða 58
58 MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
BRUCE Willis tryllti lýðinn þegar
hann mætti til frumsýningar á
myndinni Over the Hedge á kvik-
myndahátíðinni í Cannes. Ástæðan:
gæslumönnum hans til mikillar ar-
mæðu lagði Brúsi lykkju á leið sína
þegar hann steig út úr drossíunni og
átti að spóka sig á rauða dreglinum.
Gekk hann um göturnar í dágóða
stund til að heilsa þeim þúsundum
aðdáenda sem mættu til að berja
goðið augum.
Vill bara vera fyndinn
Willis, sem einnig fer með smá-
hlutverk í myndinni Fast Food Nat-
ion sem er tilnefnd til Gullpálmans,
lék á als oddi á fundi með blaða-
mönnum fyrr um daginn. Kynnti
hann sig sem George Clooney í upp-
hafi fundar, vitnaði í Antonio Band-
eras: „Hvað sem ég geri þá má ég
ekki gráta,“ hermdi eftir ketti til að
sýna fram á að hann hefði getað leik-
ið köttinn í Shrek 2 og sagðist hreint
ekki vilja setja fram boðskap í
myndum sínum. „Ég vil bara vera
fyndinn og leika í fyndnum bíómynd-
um,“ sagði kappinn sem hefur nú
þegar bjargað heiminum sjö sinnum
í myndum sínum og er á góðri leið
með að gera það í áttunda sinn í Die
Hard 4. Enda mátti heyra kallað til
hans þegar hann gekk um ganga
hallarinnar eftir fundinn: „Bjargaðu
okkur, Bruce!“
Nick Nolte sofnaði
Aðrir sem ljá teiknimyndinni Over
the Hedge rödd sína og voru við-
staddir fundinn voru Nick Nolte,
William Shatner og Avril Lavigne.
Nick Nolte var greinilega skelfilega
illa fyrirkallaður, leit ömurlega út og
dró ýsur lengi vel. Loks steinsofnaði
hann í stól sínum og Shatner brá
glettinn á það ráð að bregða kall-
inum til að vekja hann. „William veit
að ég á í vandræðum með svefn,“
sagði Nolte með svo drafandi
dimmri röddu að heyrðist vart til
hans. Dró hann síðar á fundinum
upp munnhörpu og spilaði lagstúf í
stað þess að svara eftir að blaðamað-
ur á fundinum hafði fyrir mistök
kallað hann í tvígang Chuck Norris.
Volver og Babel
Mynd Pedros Almodóvars, Volver
með Penelope Cruz í aðalhlutverki,
hefur fram til þessa þótt hvað sig-
urstranglegust í keppninni um Gull-
pálmann í ár. Óformleg skoð-
anakönnun leiddi í ljós að skoðanir
almennings virðast skiptar. Spænski
miðaldra lögfræðingurinn taldi víst
að mynd Almodóvars gæti unnið
keppnina, ekki síst vegna þess
hversu vinsæll leikstjórinn væri í
Frakklandi. Kanadíski kynning-
arfulltrúinn taldi hins vegar að ást-
arsagan Summer Palace myndi hafa
sigur og kínverski leikstjórinn Lou
Ye því fara með Gullpálmann heim.
Einhverjir höfðu á orði að dauflegt
væri yfir þeim tilnefndu myndum
sem hefðu þegar verið sýndar og
vonuðust til að vinningsmyndina
væri að finna á sýningum næstu
daga.
Mynd hins mexíkanska Alej-
andros González Iñárritus, Babel
með Brad Pitt, Cate Blanchett og
Gael Garcia Bernal meðal leikara,
var afar vel tekið á sýningu í gær og
þykir Volver loks hafa fengið verð-
ugan keppinaut. Enn á þó eftir að
sýna átta af þeim tuttugu kvikmynd-
um sem tilnefndar eru.
Kvikmyndir | Ennþá óljóst hvaða mynd hlýtur Gullpálmann á Cannes
Willis lék á als oddi á blaðamannafundi
Eftir Soffíu Haraldsdóttur í Cannes
soffia@islandia.is
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Þýska söngkonan Jeanette Biedermann, hin franska Jenifer, Avril Lavigne
og söngkonan BoA stilltu sér upp á rauða dreglinum.
Bruce Willis og Avril Lavigne tala bæði inn á kvikmyndina Over the Hedge
sem sýnd er á Cannes-hátíðinni.
Þau Lavigne, Nick Nolte, William Shatner og Bruce Willis voru kampakát
þegar þau mættu til sýningarinnar á Over the Hedge.
The DaVinci Code B.i. 14 ára kl. 5, 8 og 10
Cry Wolf B.i. 16 ára kl. 8
Skrolla & Skelfir Á Saltkráku kl. 6 (KR 400)
Da Vinci Code kl. 4, 5, 7, 8, 10 og 11 B.i. 14 ára
Da Vinci Code LÚXUS kl. 5, 8 og 11
Cry Wolf kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Hoodwinked/Rauðhetta m. ensku tali kl. 6, 8 og 10
Rauðhetta/Hoodwinked m. íslensku tali kl. 4
Ice Age 2 m. ensku tali kl. 6
Ísöld 2 m. íslensku tali kl. 4
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Úlfur…úlfur… engin trúir
lygara þótt hann segi satt!
Þau bjuggu til
morðingja sem
snerist gegn
þeim…!
FRÁBÆR GRÍNSPENNUMYND FRÁ
SNILLINGNUM LUC BESSON
EFTIRSÓTTUSTU BANKARÆNINGJAR
VILLTA VESTURSINS ERU MÆTTIR
Salma hayekpénelope cruz
Byggð á vinsælustu skáldsögu veraldar
eee
H.J. Mbl
LEITIÐ SANNLEIKANS
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG