Morgunblaðið - 24.05.2006, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 2006 53
DAGBÓK
Hreyfiland býður í sumar upp á hreyf-inámskeið fyrir börn á aldrinum 3 til 6ára. Krisztina Agueda er fram-kvæmdastjóri og stofnandi Hreyf-
ilands:
„Hvern dag námskeiðsins er skipulögð dagskrá
fyrir börnin. Við byrjum alltaf með leik, og því næst
stundum við sérstaka íþróttakennslu þar sem börn-
in fá grunnþjálfun í hreyfingu og læra til dæmis að
fara í góðan kollhnís,“ segir Krisztina. „Þá fer ein
klukkustund í listsköpun þegar börnin fá að skapa
með höndunum, og svo förum við aftur að leika. Að
auki heimsækir tannlæknir hvern hóp og kennir
börnunum um mikilvægi þess að hugsa vel um
tennurnar.“
Haldin eru fimm námskeið yfir sumarið og hægt
að velja um námskeið fyrri og seinni part dagsins,
frá 10 til 14 annars vegar og 13 til 17 hins vegar.
„Ekki er margt í boði fyrir börn á þessum aldri
yfir sumartímann og oft að foreldrar eiga í vand-
ræðum með að finna skemmtilega afþreyingu fyrir
börnin sín meðan leikskólar eru lokaðir yfir sum-
artímann,“ segir Krisztina.
Hreyfiland var stofnað 2003. „Ég hafði verið með
samskonar starfsemi í Ungverjalandi og mikið
fengist við kennslu lítilla barna og mæðra þeirra.
Ég sá að á Íslandi vantaði þjónustu fyrir þennan
hóp og setti því Hreyfiland á laggirnar.“
Krisztina segir Hreyfiland alls ekki vera leik-
skóla: „Það færi nær að kalla Hreyfiland fjöl-
skylduvæna líkamsræktarstöð fyrir lítil börn og
foreldra þeirra. Við bjóðum upp á heilsurækt af
ýmsu tagi: Bumbufimi fyrir barnshafandi konur,
sem miðar bæði að bættri heilsu barns og móður og
æfingarnar sérstaklega sniðnar til að minnka álag á
baki; mæðrafimi fyrir mæður og börn þeirra frá sex
vikna til 18 mánaða aldurs, þar sem mæður æfa sig
á áhrifaríkan hátt eftir meðgöngu og æfa með barni
sínu undir leiðsögn um hvernig megi best örva
þroska og heilbrigði barnsins,“ segir Krisztina.
„Þá bjóðum við upp á snillingafimi fyrir börn frá
þriggja til 11 mánaða aldurs sem sérstaklega er
beint að þjálfun þeirra greindarþátta sem barnið
fær í vöggugjöf samhliða leiðbeiningum til foreldra
og skemmtilegri þjálfun; grunnþjálfunarfimi fyrir
börn þriggja til fimm ára þar sem börnin fá skipu-
lagða þjálfun líkamshluta, samhæfing er bætt og
skilningarvit örvuð.
Loks býður Hreyfiland upp á dansleikfimi fyrir
konur, sem samanstendur af dansi, styrktaræf-
ingum og teygjum, og meðgöngujóga til slökunar í
amstri dagsins,“ segir Krisztina.
Við Hreyfiland starfa faglærðir og reyndir leið-
beinendur í jóga og dansi, þroskaþjálfi og íþrótta-
þjálfari. Hreyfiland er til húsa í Stangarhyl 7 í 500
fermetra húsnæði.
Nánar má lesa um starfsemi Hreyfilands,
stundatöflu námskeiða og verð á slóðinni
www.hreyfiland.is. Leikjanámskeið Hreyfilands
hefjast 19. júní.
Börn | Hreyfiland býður upp á ný íþróttamiðuð sumarnámskeið fyrir börn 3–6 ára
Sumaríþróttir fyrir yngstu börnin
Krisztina G. Agueda
fæddist í Ungverjalandi
1972. Hún lauk
menntaskólanámi 1991,
nam við Íþróttaháskól-
ann í Ungverjalandi og
útskrifaðist 2002 sem
eróbík- og fitnessþjálf-
ari. Að auki hefur
Krisztina ýmsa þjálfun
á sviði íþróttakennslu,
s.s. á sviðum áhalda-
leikfimi, fitballþjálfunar og hreyfiþjálfunar
barna. Krisztina er fulltrúi IFF, International
Fitness Federation, á Íslandi. Maki Krisztinu
er Juan Jose Agueda-Moreno og á hún þrjú
börn, Cristinu Isabel, Maximo og Gabriel.
80 ÁRA afmæli. Í dag, 24. maí,verður áttræð Sigríður Vigfús-
dóttir frá Neskaupstað, nú til heimilis
á Boðagranda 7 í Reykjavík. Eig-
inmaður Sigríðar var Óskar Jónsson
kaupmaður, en hann lést árið 1999.
Sigríður verður í faðmi fjölskyldunnar
á afmælisdaginn.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Rottneros.
Norður
♠KG53
♥ÁDG2 N/Allir
♦3
♣10764
Vestur Austur
♠Á9742 ♠1086
♥1075 ♥K9643
♦Á865 ♦G
♣D ♣ÁG93
Suður
♠D
♥8
♦KD109742
♣K852
Sælla er að gefa en þiggja. Færeyski
víkingurinn Hedin Mouritsen var í
jólaskapi í leiknum við Dani á Rottn-
eros, en hann varð sagnhafi í fjórum
tíglum í suður eftir upplýsandi sagnir.
Schaltz-hjónin, Dorthe og Peter, voru í
AV, en í norður var Johannes Mourit-
sen, eldri bróðir Hedins:
Vestur Norður Austur Suður
Dorthe Joannes Peter Hedin
– 1 lauf Pass 1 tígull
1 spaði Pass 3 tíglar * Dobl
Pass Pass 3 hjörtu 4 tíglar
Pass Pass Pass
Stökk Peters í þrjá tígla sýnir geim-
áhuga í spaða með stuttum tígli og þrjú
hjörtu í framhaldinu er eðlileg sögn og
frekari geimáskorun. En hjónin gerðu
vel í því að gefa samninginn eftir, því
fjórir spaðar fara minnst tvo niður.
Frú Schaltz kom út með laufdrottn-
ingu og herra Schaltz freistaðist til að
láta smátt lauf í von um að fá 2–3 slagi
á litinn síðar. En það fór sannarlega á
annan veg – vörnin fékk ENGAN slag
á lauf þegar upp var staðið!
Lítum á. Hedin átti fyrsta slaginn á
laufkóng og spilaði strax spaðadrottn-
ingu. Dorthe varðist vel með því að
dúkka, því ella fara tvö lauf heima nið-
ur í feðgana í spaða (kóng og gosa).
Hedin sneri sér næst að trompinu, spil-
aði tígulkóng, sem átti slaginn, og aftur
hátígli. Dorthe drap og skipti yfir í
hjarta. Það var tekið með ás og hjarta-
drottningu spilað – kóngur og tromp-
að. Hedin tók þriðja trompið og … spil-
aði svo TVISTINUM í tígli og gaf
Dorthe á áttuna!
Framhaldið segir sig sjálft: Dorthe
spilaði hjarta og gosi blinds átti þann
slag. Hedin spilaði svo spaðakóng og
henti laufi. Dorthe fékk á ásinn, en
varð að spila spaða um hæl og þá fór
síðasta laufið heima niður í spaðagos-
ann.
Tíu slagir.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 Rf6 4. Rc3 cxd4
5. Rxd4 a6 6. f3 e6 7. Be3 b5 8. g4 h6 9.
Dd2 b4 10. Rce2 e5 11. Rb3 Rc6 12. 0-
0-0 a5 13. Kb1 a4 14. Rbc1 Be6 15. Rg3
Da5 16. Bd3 d5 17. exd5 Rxd5 18. Be4
0-0-0 19. De2 g6 20. h4 Bg7 21. h5 Rd4
22. Bxd4 exd4 23. hxg6 d3 24. Rxd3 a3
25. Hh5 axb2 26. Bxd5 Bxd5 27. Rxb4
Dxb4 28. Hhxd5 Hhe8 29. Da6+ Kc7
Staðan kom upp á Sigeman-mótinu
sem lauk fyrir skömmu í Málmey í Sví-
þjóð. Stórmeistarinn Alexey Federov
(2.614) frá Hvíta-Rússlandi hafði hvítt
gegn sænska alþjóðlega meistaranum
Pontus Carlsson (2.433). 30. Hd7+!
Hxd7 31. Da7+ og svartur gafst upp
enda er mát óumflýjanlegt eftir 31. …
Kc6 32. Dxd7+. Aðir leikir en 31. …
Kc6 myndu hafa í för með sér mikið
liðstap fyrir svartan.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
80 ÁRA afmæli. Í dag, 24. maí,verður áttræð Elísabet Vigfús-
dóttir frá Neskaupstað, nú til heimilis
á Klapparstíg 1 á Hvammstanga. Eig-
inmaður Elísabetar var Helgi Axelsson
bóndi, en hann lést árið 1989. Elísabet
verður í faðmi fjölskyldunnar á afmæl-
isdaginn.
Sóðaskapur við
almenningsstaði
MÉR blöskrar orðið sóðaskapurinn
og ruslið allsstaðar. Ég fór í Graf-
arvogslaug og fyrir framan er beð og
runnar sem eru fullir af drasli. Ég
talaði við starfsfólkið en það sagðist
ekki vera með mannskap í að þrífa
þetta. Vil ég taka fram að starfsfólk
Grafarvogslaugar er mjög þrifalegt
og klefarnir hreinir og innandyra
allt hreint.
Ég bý í Grafarvogi og fer í versl-
unarmiðstöð hér og allt sem fýkur
frá þeim fer yfir í runnana á næstu
lóðum eða á girðinguna umhverfis
þær. Þar er húsvörður sem er t.d.
ekki látinn fara og hreinsa í kring
um verslunarmiðstöðina.
Þegar maður keyrir yfir Graf-
arvogsbrúna í Grafarvog er skæða-
drífa af rusli eftir bíla sem keyra yfir
brúna og þetta fýkur um allt. Sá ný-
lega bíl sem var að flytja spítnabrak
og það lá um allt eftir hann.
Finnst að opinberir staðir eins og
verslanamiðstöðvar, sundlaugar og
aðrir almenningsstaðir eigi að sjá til
þess að þrifalegt sé í kringum þessa
staði.
Kona í Grafarvogi.
Umhverfissóðar
NÚ í blíðunni undanfarið hef ég eins
og fleiri verið í vorverkunum í garð-
inum og viðeigandi vorhljóð væru
fuglasöngur og kvak.
En það er nú etthvað annað;
nagladekkjasinfónían ómar enn há-
stöfum og þar sem ég bý við fjöl-
farna götu mátti 17. maí heyra tugi
bíla aka um á negldum dekkjum.
Skv. frétt frá lögreglunni í Mbl. dag-
inn áður mátti lesa að á nokkurra
daga bili hefðu um 65 ökumenn verið
sektaðir fyrir að aka enn á nagla-
dekkjum. Þarna tel ég að standa
þyrfti betur að verki og láta hina
ábyrgðarlausu umhverfissóða gjalda
ríkulega, enda ekki nema smámunir
fyrir skemmdarverkin sem þeir hafa
unnið á gatnakerfi og andrúmslofti
samborgaranna.
Þessi trassaskapur vekur spurn-
inguna um hver nauðsyn nagla-
dekkja er. Þúsundir ökumanna sýna
þá ábyrgð að aka um á vetrar-
dekkjum án nagla og þeir sem reynt
hafa snúa yfirleitt ekki aftur á nagl-
ana. Þetta sýnir að það er hægt að
vera laus við þann skaðvald sem
nagladekkin eru og til mikils er að
vinna; hundruð milljóna fara í súg-
inn vegna gatnaskemmda, auk þess
sem svifryk er skaðlegt heilsu
manna samtals vikum saman hvern
einasta vetur undanfarið.
Í ljósi þessa skora ég á umhverf-
isráðherra o.fl. ráðamenn að taka
rækilega á þessum málum, lækka
tolla á hágæða vetrardekk og banna
nagladekk, með 2–3 ára aðlögun.
Verja má síðan hluta af því fé sem
sparast til að auka þjónustu ávegum
og hálkuvarna. En lausnin er fyrst
og fremst að miða hraða við að-
stæður, það er mun vistvænna og
öruggara en að setja allt sitt traust á
heilsuspillandi úrræði eins og nagla-
dekk.
Vistvænn ökumaður.
Vítaverður akstur
TILEFNI þessa pistils er vítaverð-
ur akstur sem annar bílstjóri reyndi
ítrekað að hafa í frammi. Trúlega
var tilgangurinn sá að „hefna sín“
því hann taldi að ég hefði ekið í veg
fyrir hann og hann þurfti að hægja á
sér.
Miðvikudaginn 16. maí var ég að
koma úr vesturbænum í Kópavogi
og beygja inn á Hafnarfjarðarveg. Á
akbrautinni voru að koma tveir bílar
svo ég varð að stoppa og bíða eftir að
þeir færu hjá. Ég gaf stefnuljós og
ók út á brautina þegar þeir fóru
framhjá og sá þá í næsta bíl koma
undan brúnni. Það skiptir engum
togum að sá bílstjóri keyrði eins ná-
lægt mér og hægt var lagðist á flaut-
una og sendi mér „fuck“-merki og
reiddi upp hnefann. Þessu næst ók
hann fram úr mér flautandi og strax
inn á akreinina aftur í veg fyrir mig
og munaði engu að hann lenti á mér
svo nálægt fór hann. Þessu næst
byrjaði bílstjórinn að snarbremsa
öðru hvoru sennilega í þeim tilgangi
að minn bíll lenti aftan á hans. Þar
sem ég hafði áhyggjur af að lenda
aftan á hans bíl við þessar aðstæður
gaf ég stefnuljós og færði mig yfir á
vinstri akrein og ók fram úr honum
þeim megin. Því miður fyrir hann
var stór sendibíll þeim megin sem
kom í veg fyrir að hann gæti gert
það sama og svissað þannig milli ak-
reina í því sem sennilega átti að vera
„hefnd“.
Við þig sem ekur svona vil ég
segja þetta. Kurteisi og tillitssemi á
alls staðar við, líka í umferðinni. Af
tillitssemi við þig birti ég ekki núm-
erið á bílnum og ég fletti upp hver
ætti hann. Brostu líka í umferðinni,
það hjálpar.
Kveðja,
Kristín Sigurðardóttir.
Mia Lotta er týnd
MIA Lotta er svört og hvít með
svart skott nema endinn á rófunni er
hvítur. Hún á að vera með ól og
bjöllu. Hennar er sárt saknað. Þeir
sem vita um hana vinsamlega hafi
samband í síma 564 2899 eða
821 9229.
Kettlingar fást gefins
GULLFALLEG, vel gefin og ákaf-
lega prúð kisubörn eru að leita að
góðum framtíðarheimilum. Kassa-
vön. Nánari upplýsingar gefur
María í síma 695 7304.
Blár gári týndist
í Hafnarfirði
LÍTILL gári, blár, flaug út um
glugga í Smárahvammi 4, Hafn-
arfirði, sl. mánudag. Þeir sem vita
um fuglinn hafi samband í síma
555 1974.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Ómissandi
eftirréttur