Morgunblaðið - 24.05.2006, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LÝÐRÆÐISSINNAR í Egypta-
landi efast nú um að Hosni Mubarak
forseti ætli að standa við loforð sín
fyrir ári um að koma á auknu lýð-
ræði. Vissulega var reglum breytt og
Mubarak þurfti að keppa við nokkra
keppinauta í forsetakosningunum sl.
haust og í þingkosningunum
skömmu síðar margfaldaðist tala
stjórnarandstæðinga á þingi.
Bræðralag múslíma vann 88 sæti af
alls 454 en samtökin máttu ekki
bjóða fram undir eigin nafni, þing-
mannsefnin buðu fram sem óháð.
Fullyrt er að Mubarak, sem er 77
ára og hefur verið við völd í ald-
arfjórðung, sé staðráðinn í að
tryggja að sonurinn Gamal Mub-
arak, sem er 43 ára, verði arftakinn
og annað hafi aldrei komið til mála.
Lýðræðistalið hafi verið sjónarspil.
Fordæmin eru mörg í arabaheim-
inum fyrir því að sonur taki við af
föðurnum þótt ríkið sé að nafninu til
lýðveldi.
„Verið að þurrka út
lýðræðisvorið“
„Það er ekki eins og umbótum
miði einfaldlega mjög hægt, það er
verið að framkvæma eins konar af-
töku á öllum lýðræðiskröfum, það er
verið að þurrka út lýðræðisvorið sem
var að byrja,“ segir þekktur dálka-
höfundur, Salama Ahmed Salama.
Margir liðsmenn Bræðralags
múslíma, sem starfar í mörgum ríkj-
um íslams, eru trúarofstækismenn
og ljóst er að Mubarak notfærir sér
ótta margra við trúarofstæki og
hryðjuverk til að verja afturhvarfið
frá stefnu lýðræðisumbóta. Ekki
bætir úr skák að Hamas-samtökin,
sem einnig boða stranga túlkun á ísl-
am, unnu óvæntan sigur í þingkosn-
ingum Palestínumanna. Mörgum
óar við þeirri tilhugsun að svipað
ástand og nú ríkir í Palestínu verði í
Egyptalandi, fjölmennasta ríki
arabaheimsins. En þá er spurt á
móti hvort slíkur ótti réttlæti að lýð-
ræðiskröfur séu hundsaðar.
Bandaríkjamenn ýttu um hríð
mjög undir umbætur í Egyptalandi
og Condoleezza Rice utanrík-
isráðherra gagnrýndi hart hand-
tökur á stjórnarandstæðingum í ferð
sinni um Mið-Austurlönd í júní í
fyrra. Var gagnrýnin undirstrikuð
með því að fresta viðræðum um frí-
verslunarsamning milli ríkjanna
tveggja. Þess má geta að Egyptar fá
meiri fjárhagsaðstoð frá Bandaríkj-
unum en nokkur önnur þjóð að Ísr-
aelum undanskildum.
Nú hefur Rice dregið mjög úr
gagnrýni sinni á flokkseinræðið og
mannréttindabrotin. Þegar hún sótti
Egypta heim í febrúar, eftir sigur
Hamas, viðurkenndi Rice að ým-
islegt hefði valdið vonbrigðum
í stefnu Mubaraks en kallaði hann
samt sem áður „gáfaðan mann“ og
hrósaði honum fyrir að leyfa nokkr-
um frambjóðendum að keppa við sig
um forsetaembættið. Margir lýð-
ræðissinnar í Mið-Austurlöndum
saka nú Bandaríkjamenn um
hræsni, segja að ljóst sé að þeir vilji
aðeins lýðræði ef úrslit kosninga séu
þeim að skapi.
Mubarak lætur ekki duga að berj-
ast gegn íslamistum. Einn þekktasti
lýðræðissinninn meðal stjórnarand-
stæðinga, Ayman al-Nour, sem er
veraldlega þenkjandi, var í desem-
ber sl. dæmdur í fimm ára fangelsi
fyrir brot sem almennt eru talin til-
búningur.
Dómarar gegn flokkseinræðinu
Harkan gagnvart stjórnarand-
stæðingum er mikil. Tveir umbóta-
sinnaðir dómarar, Hesham Bastaw-
issi og Mahmoud Mekki, tóku þá
djarflegu ákvörðun eftir þingkosn-
ingarnar að saka yfirvöld um að hafa
falsað niðurstöðurnar. Viðbrögðin
voru ekki að láta rannsaka hvað væri
hæft í þessum ásökunum heldur var
mönnunum sagt að öryggislögreglan
þyrfti að yfirheyra þá. Síðar voru
þeir ákærðir fyrir að hafa svert heið-
ur nokkurra kollega sinna sem lögðu
blessun sína yfir svindlið.
Í liðinni viku kom til mótmæla á
götum Kaíró vegna réttarhaldanna
og á fimmtudag réðst lögreglan á
fólkið, beitti óspart kylfunum og elti
fólk uppi í húsasundum, margir
særðust. Um 200 voru handteknir,
hugsanlega mun fleiri og jafnframt
var ákveðið að fréttamenn fengju
ekki að vera viðstaddir réttarhöldin,
að sögn egypska vikuritsins Al-
Ahram. Voru sakborningar sagðir
hafa móðgað Mubarak forseta auk
þess að hafa truflað umferð og voru
dæmdir í 15 daga varðhald. En
stuðningurinn við dómarana virðist
fremur hafa aukist meðal almenn-
ings og félag dómara hótaði verk-
falli.
Dómararnir tveir hafa hvatt al-
menning til að styðja sig í baráttunni
gegn stjórninni og bent á að sam-
kvæmt lögum frá því snemma á tí-
unda áratugnum eigi sjálfstæði dóm-
ara að vera tryggt. Fréttamenn
efndu til táknræns setuverkfalls í að-
alstöðvum samtaka sinna og ætlunin
er að efna einnig til setuverkfalls við
húsakynni hæstaréttar Egyptalands
á morgun, fimmtudag.
Lýðræðið hentar ekki Mubarak
Flest bendir til þess að stjórnvöld í Egyptalandi ætli ekki að efna fyrirheit um aukið lýðræði
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Reuters
Dómararnir tveir sem saka egypsk stjórnvöld um kosningasvindl og sæta
nú ákæru fyrir vikið, Hesham Bastawissi (t.v.) og Mahmoud Mekki.
ÍSRAELSKAR hersveitir hand-
tóku í gær Ibrahim Hamed, einn
helsta yfirmann vígahópa Hamas á
Vesturbakkanum, en hann hefur
verið eftirlýstur af Ísraelum frá
árinu 1998 fyrir að hafa skipulagt
fjölda sjálfsmorðsárása. Hamed
var skipaður leiðtogi hinnar svo-
kölluðu Ezzedin al-Qassam-her-
deildar á Vesturbakkanum í des-
ember 2003, en margsinnis hafði
verið reynt að hafa hendur í hári
hans.
„Öryggissveitir [Ísraela] hand-
tóku Ibrahim Hamed, einn helsta
yfirmann hryðjuverkastarfsemi
Hamas, sem skipulagði margar af
mannskæðustu hryðjuverkaárás-
unum gegn Ísrael á síðustu árum,“
sagði í tilkynningu Ísraelshers í
gær.
Liðsmenn Hamas töldu handtök-
una hins vegar ógn við stöðugleika
svæðisins. „Handtaka Ibrahims
Hameds er alvarleg ögrun gegn
Palestínumönnum á þeim tíma sem
þeir reyna að stuðla að stöðug-
leika,“ sagði Farhat Assad, einn af
leiðtogum Hamas á Vesturbakkan-
um, í gær. „Handtakan grefur und-
an möguleikanum á að koma á
stöðugleika á svæðinu.“
Vaxandi spenna frá sigri
Hamas í þingkosningunum
Ismail Haniya, forsætisráðherra
Palestínu, vísaði því á bug í gær að
borgarastríð væri að fara að brjót-
ast út á meðal Palestínumanna, eft-
ir vaxandi spennu á milli Hamas-
liða og Fatah-hreyfingar Mahm-
ouds Abbas forseta allt frá sigri
Handtóku hátt-
settan Hamas-liða
Reuters
Synir Khaled al-Radayda, jórdansks bílstjóra sem féll í átökum milli Ham-
as-liða og Fatah-manna á Gaza á mánudag, syrgja föður sinn þegar þeir
tóku við líki hans á flugvellinum í höfuðborg Jórdaníu, Amman, í gær.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Forsætisráðherra
Palestínu vísar því
algerlega á bug
að hætta sé á
borgarastyrjöld
Hamas í þingkosningunum í jan-
úar. „Orðið borgarastríð er ekki að
finna í orðaforða Palestínumanna,“
sagði Haniya í gær. „Ég vil full-
vissa alla Palestínumenn um að við
höfum burði til að komast yfir
þessa atburði,“ sagði hann. Stjórn
Haniya hefur upp á síðkastið þurft
að glíma við afleiðingar þess að al-
þjóðasamfélagið hefur ekki viður-
kennt stjórn Hamas.
Kenna Fatah-
hreyfingunni um
Mikil spenna hefur einkennt
samskipti hreyfinganna að undan-
förnu og á mánudag féll bílstjóri
jórdansks diplómata og níu Palest-
ínumenn særðust þegar til átaka
kom á milli nýrrar herlögreglu
Hamas og öryggissveita Hamas á
Gaza.
Talsmenn Hamas kenndu liðs-
mönnum Fatah-hreyfingarinnar
um árásina, en aðeins nokkrum
klukkustundum áður skutu Ha-
mas-liðar Mohammed Abu Taima
til bana í bænum Abassan á Gaza,
en hann var meðlimur í Al-Aqsa-
herdeildum píslarvotta, sem er
vopnuð hreyfing tengd Fatah.
Abbas verður í forsæti ráðstefnu
um ástandið á fimmtudag, en vonir
um árangur af henni fara dvínandi.
BORÍS Tadic, forseti Serbíu, sagð-
ist í gær viðurkenna niðurstöður
þjóðaratkvæðagreiðslu í Svartfjalla-
landi sl. sunnudag þar sem Svart-
fellingar samþykktu að segja sig úr
ríkjasambandi við Serbíu og stofna
sjálfstætt ríki. „Ég var hlynntur því
að ríkjasamband yrði áfram en sem
lýðræðissinni og forseti í lýðræðis-
ríki þá viðurkenni ég úrslit sem sýna
vilja íbúa Svartfjallalands,“ sagði
Tadic.
Forsetinn hvatti til þess að ríkin
tvö, Serbía og Svartfjallaland, hefðu
mikið og náið samstarf í framtíðinni
þó að leiðir skildu nú með formleg-
um hætti. „Svartfjallaland getur
alltaf treyst á að Serbía verði traust-
ur samstarfsaðili og vinaríki. Það
munu aldrei rísa neinir múrar eða
hindranir milli Serbíu og Svart-
fjallalands,“ sagði Tadic.
Alls greiddu 230.711 kjósendur í
Svartfjallalandi atkvæði með tillögu
um að tengsl yrðu rofin við Serbíu,
þ.e. 55,5%, en 184.954 voru á móti.
Gerð hafði verið krafa af hálfu ESB
um a.m.k. 55% meirihluta fyrir sjálf-
stæði í atkvæðagreiðslunni.
Fyrr í gær höfðu fulltrúar Evr-
ópusambandsins sagt að sjálfsagt
væri að hefja viðræður við yfirvöld í
Svartfjallalandi um nánari tengsl
landsins við ESB og hugsanlega að-
ild síðar meir. „Evrópuleiðin er opin
Svartfellingum,“ sagði Olli Rehn,
sem fer með stækkunarmál í fram-
kvæmdastjórn ESB.
Lítt hrifnir af því að til
yrðu fjölmörg ný smáríki
Leiðtogar ESB hafa ávallt sagt að
þeir myndu hjálpa eftir mætti þjóð-
unum á Balkanskaga, sem áður til-
heyrðu sambandsríkinu Júgóslavíu
en bárust á banaspjót á síðasta ára-
tug. En þeir hafa að sama skapi ver-
ið mótfallnir því að til yrðu fjölmörg
smáríki á Balkanskaga, sem öll
hefðu áhuga á að ganga í ESB.
Viðræður höfðu staðið yfir milli
Serbíu-Svartfjallalands og ESB um
nánara samstarf, jafnvel ESB-aðild.
Fyrr í þessum mánuði bundu for-
ráðamenn ESB hins vegar enda á
þær viðræður, enda þykja stjórn-
völd í Belgrad ekki hafa sýnt nægi-
legan samstarfsvilja í málefnum eft-
irlýstra stríðsfanga, s.s. Ratko
Mladic, herforingja í Bosníustríðinu
1992–1995, en hann gengur enn laus.
Forseti Serbíu við-
urkennir úrslitin
„Evrópuleiðin er opin Svartfellingum,“
segir Olli Rehn, talsmaður ESB
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
Vilnius. AP. | Lögregluþjónar í
Litháen héldu fyrst að mælitækin
væru biluð þegar þeir könnuðu
áfengismagnið í blóði vörubíl-
stjóra sem á laugardag ók eftir
vegi um 100 km frá höfuðborginni
Vilnius. En nokkrar mælingar
sýndu að svo var ekki, magnið
reyndist vera 7,27 grömm í lítra af
blóði. Það segja læknar að ætti að
gera út af við flesta.
Bannað er að aka bifreið í
Litháen ef magnið er yfir 0,4
grömm. „Þessi náungi hefði átt að
vera dauður en hann var enn að
keyra. Þetta hlýtur að vera óop-
inbert landsmet,“ sagði Saulius
Skvernelis hjá lögreglunni. „Hann
var í sólskinsskapi og hló stöðugt
þegar hann var yfirheyrður.“
Maðurinn heitir Vidmantas
Sungaila og er 41 árs. Hann segist
hafa hafa fengið sér neðan í því á
föstudeginum og reynt að rétta
sig af með hálfum lítra af bjór fyr-
ir morgunverðinn.
Eftir einn og marga
í viðbót ei aki neinn