Morgunblaðið - 24.05.2006, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 24.05.2006, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 2006 41 MINNINGAR ✝ GunnhildurSnorradóttir fæddist á Akureyri 25. janúar 1939. Hún lést á Landspít- ala – háskólasjúkra- húsi við Hringbraut þriðjudaginn 16. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Margrét Sig- ríður Aðalsteins- dóttir og Snorri Jónsson. Seinni maður Margrétar var Sigurður Magn- ússon. Þau eru öll látin. Gunn- hildur á eina systur, Pálínu Agnesi, f. 24.1. 1937 og bróður samfeðra, Jón Steinar, f. 8.11. 1944. Dóttir Gunnhildar og Guð- mundar Þorsteinssonar er Mar- grét Sigríður, f. 16.11. 1962, maki Þórir Ingi Friðriksson, f. 18.11. 1967. Sonur þeirra er Róbert Smári, f. 28.5. 1997. Fyrir átti hún Alexöndru Sif Herleifsdótt- ur, f. 2.10. 1989. Gunnhildur giftist 18.12. 1965 Svavari Guðmundssyni, f. 26.3. 1935. Foreldrar hans voru Guð- mundur Ingvar Guðmundsson og Hrefna Magnúsdóttir, þau eru bæði látin. Börn Gunnhildar og Svavars eru: 1) Guðmundur, f. 2.3. 1966, maki Sukunya Panalap, f. 19.9. 1978. Börn þeirra eru Benjamín P., f. 2.4. 2003 og Nicole P., f. 4.11. 2004. Fyrir átti hann Gunnhildi Svövu, f. 5.5. 1994. 2) Erna Björk, f. 15.7. 1969, maki Einar Ármannsson, f. 11.8. 1964. Dætur þeirra eru Hrefna Rún og Rebekka Rán, fæddar 25.11. 1997. Fyrir átti hún Svavar Helga Ernu- son, f. 4.1. 1990. 3) María Björk, f. 30.9. 1970, börn hennar eru Daníel Kristmar Snorri Pálsson, f. 8.2. 1993 og Kolbrún Ýr Pálsdóttir, f. 3.10. 1996. Gunnhildur lauk gagnfræða- prófi frá Gagnfræðaskóla Austur- bæjar árið 1956 og hóf þá störf í bókhaldsdeild Flugfélags Íslands. Um nokkurra ára skeið vann hún á Endurskoðunarskrifstofu Sverris Más Sverrissonar. Árin 1977–1980 bjó Gunnhildur ásamt fjölskyldu sinni í Malmö í Svíþjóð og var hún þá m.a. deildarstjóri í verslunarmiðstöð hverfisins. Eft- ir heimkomuna vann hún á skrif- stofu Bifreiðastjórafélagsins Frama allt til dauðadags. Útför Gunnhildar verður gerð frá Fella- og Hólakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Drottinn blessi minningu þína. Svavar, börn, tengdabörn og barnabörn. Með miklum söknuði kveð ég kæra vinkonu, Gunnhildi Snorra- dóttur. Leiðir okkar lágu fyrst sam- an 1964 er ég hóf störf í bókhaldinu hjá Flugfélagi Íslands sem var til húsa í Bændahöllinni, hún hafði starfað þar í nokkur ár. Það tókst með okkur kær vinátta sem haldist hefur óslitið síðan. Hún var einstæð móðir, hafði eignast dótturina Margréti sem var tveggja ára. Í þá daga var ekki al- gengt að einstæðar mæður ættu bíl, þær urðu að notast við strætisvagn- inn. Því var það heilmikið ferðalag fyrir Gunnhildi að fara með Margréti í pössun á hverjum morgni. Úr strætisvagninum gekk hún frá Laugavegi upp á Njarðargötu og þaðan í vinnu vestur í Bændahöll. Þegar vinnu lauk var gengið til baka sömu leið. Hún bjó með stjúpa sínum á þessum árum, en móðir hennar var látin. Hún lést langt um aldur fram úr krabbameini þegar Gunnhildur gekk með Margréti. Pálína systir hennar bjó á Ísafirði og samgöngur voru ekki eins greiðfærar og auð- veldar og í dag. Snemma þurfti hún því að taka út þroska og axla ábyrgð. Aldrei þá, né síðar á lífsleiðinni heyrði ég hana kvarta eða vorkenna sér, það var ekki hennar háttur. Gunnhildi kynnti ég fyrir frænda mínum Svavari Guðmundssyni, en við erum bræðrabörn. Þau gengu í hjónaband í desember 1965, fóru bara til prestsins án þess að láta neinn vita. Vinkonan og frænkan var sármóðguð að hafa ekki verið látin vita. En svona fóru margir að í þá daga. Í mars fæddist sonurinn Guð- mundur og dæturnar Erna Björk og María Björk fæddust nokkrum árum seinna. Öll fjögur vel gerð og mann- vænleg, foreldrunum miklir gleði- gjafar . Nú eru barnabörnin orðin tíu sem syrgja ástríka ömmu sína. Gunnhildur og Svavar voru að mörgu leyti ólík hjón, en voru sam- taka í að helga sig algjörlega heimili, börnum og barnabörnum. Kímnigáf- an var rík hjá þeim báðum og það var mikið hlegið á heimilinu. Þar hef ég átt margar ánægjulegar stundir í gegnum árin, ég var alltaf sjálfsagð- ur gestur, eða eiginlega ein af fjöl- skyldunni þegar eitthvað var um að vera. Gunnhildur vann alltaf úti með heimilinu. Þegar börnin voru lítil og enga pössun að fá tók hún verkefnin heim og vélritaði á kvöldin og fram á nætur. Börnin uxu úr grasi og hún fór aftur út á vinnumarkaðinn. Gunnhildur starfaði lengst af hjá Bifreiðastjórafélaginu Frama. Hún vinkona mín var skapmikil og ákveðin, en hæglát og mjög yfirveg- uð. Hún var mjög orðheppin og lét engan eiga neitt hjá sér ef því var að skipta. Hún átti ríka kímnigáfu og var ákaflega hláturmild. Þessir eig- inleikar voru henni mikil hjálp þegar hún greindist með krabbamein fyrir ári og við tóku samfelldar lyfja- og geislameðferðir. Samfara því stund- aði hún vinnu nánast fram á síðasta dag. Hún tók þessu af þvílíku æðru- leysi, ræddi opinskátt um veikindin og kvartaði aldrei. Hafði það alltaf ágætt ef ég spurði um líðan hennar. Hetjulegri baráttu er lokið. Ég þakka kærri vinkonu 42 ára vináttu. Erna Steinsdóttir. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Úr vísumVatnsenda-Rósu.) Einu sinni fluttu tvær systur, Gunna og Pála, ásamt móður sinni og stjúpa frá Akureyri til Reykjavík- ur. Til allrar hamingju fyrir okkur, tvær systur í Mjóuhlíð 2, bjuggu þau sér heimili að Mjóuhlíð 8. Þær voru sex og átta ára gamlar og eins vorum við. Þá hófst sú einstaka vinátta sem staðið hefur í meira en sextíu ár. En nú er ein okkar fallin í valinn. – Þar er skarð fyrir skildi. Þær systur misstu móður sína, Margréti Aðalsteinsdóttur aðeins 47 ára gamla úr sama illvíga sjúkdómi og nú hefur lagt Gunnu að velli. En lífið er oft undarlegt. Gunna átti þá von á sínu fyrsta barni og brátt var ný Margrét komin í heiminn. Svo kynntist hún Svavari, þau giftust og eignuðust þrjú börn, Guðmund, Ernu Björk og Maríu Björk. Öll börnin eru einstaklega myndarleg og dugmiklir einstaklingar. Gunna var heilsteyptur persónu- leiki og forkur dugleg. Hún vann nær alla tíð úti, fyrst á skrifstofu Flugfélags Íslands og svo á endur- skoðunarskrifstofu við bókhald. Á tímabili flutti fjölskyldan til Gauta- borgar þar sem Gunna vann í stór- markaðinum Tempo. Eftir heim- komuna 1980 hóf Gunna störf hjá Bifreiðastjórafélaginu Frama og vann þar allt að því fram á síðasta dag. Hún var listræn, fór ung í Mynd- listarskólann, málaði á postulín og gat saumað hvað sem var, enda fól ég henni að sauma fermingarkjólinn á yngstu dóttur mína. Svo var kjóllinn glæsilegur hjá henni að stúlkan hefði getað gift sig í honum. Gunna gat allt. Við Gunna vorum jafngamlar og vorum óaðskiljanlegar alla okkar æsku, unglingsár og fram á fullorð- insár, þótt samverustundunum fækkaði þegar við höfðum stofnað okkar eigin fjölskyldu. Spaugilegt hefur verið að sjá okkur saman, hún há og glæsileg en ég eins og lítið peð við hliðina á henni. Það skipti okkur engu. Endurminningarnar hrannast upp, alltaf var líf og fjör. Helst vil ég muna hið frábæra skopskyn hennar: „Ég átti heima í Mjóuhlíð, en svo fitnaði ég svo mikið að ég varð að flytja í Breiðholtið.“ Og þegar ég skírði eitt barna minna Gunnar og annað Hildi sagði hún: „ Já, Bagga mín, ég er svo stór að þú þarft að skíra tvö börn í höfuðið á mér.“ Eflaust hefur vinátta mín við Gunnu haft þau áhrif að mér fannst þessi nöfn svo falleg. Gunnu verður sárt saknað. Hug- heilar kveðjur sendi ég Svavari, allri fjölskyldunni og ekki síst Pálu sem nú hefur misst einkasystur sína. Höfum í huga að leiðarlokum að gott er að minnast góðra stunda. Björg Sigurvinsdóttir (Bagga). Hún Gunnhildur er farin, horfin sjónum okkar í bili. Með örfáum orð- um langar okkur að minnast hennar. Í maí fyrir ári mætti Gunnhildur í síðasta saumaklúbbinn fyrir sum- arfrí, það varð líka síðasti sauma- klubburinn hennar með okkur. Gunnhildur kom inn í saumaklúbb- inn okkar fyrir um 30 árum, og small strax inn með sínu glaðværa viðmóti, hún hafði einstaklega góða nærveru, var orðheppin og hafði skemmtilega frásagnarhæfileika, það var því oft glatt á hjalla hjá okkur þótt ekki væri nú mikið prjónað síðustu árin. Við vinkonurnar viljum þakka Gunnhildi fyrir allar ánægjulegu samverustundirnar á liðnum árum. Við vottum fjölskyldu hennar samúð okkar á þessari erfiðu stundu. Blessuð sé minning hennar. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Saumaklúbbsvinkonur. Kveðja frá körfuknattleiksdeild KR Gunnhildur Snorradóttir var ein af frumkvöðlunum í körfuknattleiks- deild KR á 6. og 7. áratug síðustu aldar, skömmu eftir stofnun hennar, en deildin á einmitt 50 ára afmæli á þessu ári. Fljótlega eftir stofnun deildarinnar komu nokkrar stúlkur að máli við stjórn deildarinnar og vildu æfa körfuknattleik og var það auðsótt mál og hófust æfingar kvenna skömmu síðar. Áhugi og kraftur ungra kvenna í körfuknatt- leiksdeild KR var reyndar aðals- merki deildarinnar fyrstu árin og var Gunnhildur þar í forystu. Aðstöðuleysi háði starfseminni mikið og eitthvað var starfsemin laus í reipunum til að byrja með, en það leystist þó fljótlega og meiri festa komst á starfið undir hennar stjórn en Gunnhildur var formaður deild- arinnar 1958–1959, aðeins tvítug að aldri og er eina konan, sem gegnt hefur því embætti. Hún sat einnig í stjórn deildarinnar árið eftir undir forsæti Helga Sigurðssonar og var þá varaformaður, en segja má að þá hafi starfsemi deildarinnar verið komin á beinu brautina til þeirra af- reka sem síðar hafa unnist. Árangurinn á íþróttasviðinu lét reyndar ekki á sér standa hjá kon- unum í félaginu, því 1960 vannst fyrsti Íslandsmeistaratitill KR í körfuknattleik, er 2. flokkur kvenna sigraði á Íslandsmótinu, og strax ár- ið eftir fylgdi Íslandsmeistaratitill í meistaraflokki kvenna, þegar KR lagði Íslandsmeistara Ármanns með yfirburðum en Gunnhildur lék í liði KR og var fyrirliði. Körfuknattleiksdeild KR þakkar Gunnhildi fyrir framlag hennar til körfuknattleiks hjá KR og sendir fjölskyldu hennar innilegar samúð- arkveðjur. GUNNHILDUR SNORRADÓTTIR ✝ Sölvi Eiríkssonfæddist í Egils- seli í Fellum hinn 28. janúar 1932. Hann lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu í Neskaupstað hinn 18. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Eiríkur Pétursson frá Egilsseli og Sig- ríður Brynjólfsdótt- ir frá Ási í Fellum. Sölvi var yngstur átta systkina en hin eru Þorbjörg, Staf- felli, látin, Ragnheiður, Egilsseli, látin, Rósa, Miðdal í Kjós, Bryn- dís, Stöðulfelli í Gnúpverjahreppi, Pétur, Egilsseli, látinn, Björg- heiður, Reykjavík, og Þórey, Reykjavík. Sölvi bjó fjárbúi alla tíð í Egils- seli, fyrst með foreldrum sínum og systkinum og síð- an eftir lát foreldra sinna með Pétri bróður sínum og Ragnheiði systur sinni meðan þeirra naut við. Hann stundaði ýmsa vinnu utan heimilis, var á vertíð í Vest- mannaeyjum og vann við smíðar og byggingarvinnu í Fellum og ná- grannasveitum. Hann var um langt skeið verkstjóri í sláturhúsi Verzlunarfélags Austurlands við Lagarfljótsbrú á meðan það starf- aði, og í allmörg ár póstur í Út- fellum. Útför Sölva verður gerð frá Egilsstaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Halldór Laxness sagði eitt sinn í frægum eftirmælum að „það væri manni erfitt að gera grein fyrir vini sínum“ og átti þar við stórvin sinn, Jóhann Jónsson skáld. Við, fjöl- skyldan á Miðfelli 1 í Fellabæ, verð- um að vera ósammála nóbelsskáld- inu. Við eigum nefnilega mjög auðvelt með að gera grein fyrir vini okkar, Sölva í Egilsseli, þó tilefnið mætti vera betra. Sú vinátta sem við öll nutum hjá honum og þeim Pétri og Rænku var nefnilega óblandin og heil. Vinátta og tryggð sem ekki er auðfundin. Allt frá því er Egill bróðir var sendur þangað í sveit vorum við fjöl- skyldan viðloðandi Egilsselsheimil- ið. Við bræður vorum langt í frá einu ungmennin sem nutum einstakrar vináttu og leiðsagnar þessara öð- linga, þau voru mörg sem það gerðu og búa að því alla tíð. Það var ein- kenni á framkomu þeirra systkina, sem þó voru barnlaus, að þau kunnu að koma fram við æskufólk. Þar var ekkert kynslóðabil. Þau komu fram við börn eins og jafningja og af virð- ingu. Þar var ekki skammast eða sveiað, heldur leiðbeint um verklag og sagt fyrir þannig að maður lærði. Þess vegna datt manni ekki í hug að óhlýðnast. Og heldur fannst okkur Agli við vera orðnir menn þegar við kláruðum litla ölflösku með Pétri, á leið í Ormarsstaðarétt í rússanum hans Sölva. Sölvi og þau Egilsselssystkin máttu hins vegar þola margt brasið á okkur bræðrum og feðgum, að- allega með hesta- og skotveiðifikti. Sölvi sagði fátt um hestamennsku okkar, en ég veit að hann kunni að meta góða hesta. Við vorum auðvit- að jarðlausir þéttbýlingar. Ekki fékk Sölvi mikið fyrir ómakið, nema kannski þokkalegt koníak öðru hverju. Systkinin í Egilsseli lifðu fá- brotnu og einföldu lífi á sínu ætt- aróðali, en þó engan hátt einangr- uðu. Þar var búið við gamla lagið að hlú mest að sínu, bjargast við það sem Guð gaf og fara vel með. Að fénu frátöldu höfðu þau eina kú og hænur, þar til minkurinn drap þær. Sölvi lagaði mest sjálfur það sem bil- aði, og það dugði. Hann var laghent- ur og oft fenginn í viðhaldsvinnu hér og þar. Okkur bræðrum leiddist ekki þeg- ar við vorum ásamt Sölva og Grétari á Skipalæk að setja upp gistinguna í Fellaskóla, og þegar Guðni í Másseli bættist við hraut mörg snilldin af vörum manna. Sölvi gekk að verkum með fyrirhyggju og lagni og bölvaði ekki verkfærum sínum eins og skap- mönnum er títt, né féllust honum hendur við illeysanleg verk. Það er eitthvað öfugsnúið við það að gamall bóndi falli frá að vori. Vorverkin haf- in. Sauðburður í fullum gangi eða að ljúka. Sölvi hefur lokið sínum verk- um hér á jörð og leyst þau með sóma. En hans bíður nú hvíldin handan þessa heims, í eilífu vori. Þórður Mar Þorsteinsson, Laufey Egilsdóttir, Þorsteinn Páll Gústafsson, Bragi Hreinn Þorsteinsson. Gamall vinur minn er fallinn frá. Sölvi í Egilsseli er genginn, og fer þar það þriðja og síðasta af systk- inum þeim, sem fóstruðu mig barn og ungling fjögur sumur. Oft og tíð- um leitar hugurinn í Egilssel; ég bast staðnum og fólkinu sterkum böndum enda tóku þau mér opnum örmum, eins og svo mörgum öðrum börnum á undan mér. Ég á ótal minningar frá þessum tíma. Minningar um starfsamt fólk, íslenskan mat, póstferðir, tíðar gestakomur, hlýja baðstofu, ógrynni bóka sem þeir bræður héldu að mér og ég las í birtu sumarnátta, góðlát- legar glósur bræðra um gapandi geispa mína eftir slíkar nætur, spennandi og hávaðasama andvöku- nótt þegar Valli og Jói, sumardreng- ir á undan mér, komu í heimsókn klyfjaðir brennivíni, óteljandi bagga, göngur og réttir, veður og fréttir, sunnudagssteik, neftóbak, sætan pípureyk, filterslausan camel, harðahlaup á eftir kindum, mýr- blauta lágskó, rússajeppa fullan af fé, æinú, glaðan tón í rauli Rænku og ótalmargt annað gæti ég talið. Allt er það umvafið hlýju þeirri, sem frá þeim stafaði. Vissulega finn ég fyrir söknuði. En efst í huga mér er þakklæti fyrir allt sem Sölvi, Pétur og Rænka gáfu mér frá fyrsta degi og alla tíð síðan; vegvísi út í lífið og ævarandi vináttu. Ég á Egilssel og allt sem því fylgir; geymi það í hjarta mínu um aldur og ævi og bý að því alla mína daga, uns ég hverf enn til vina minna í Egils- seli. Egill Snær Þorsteinsson. SÖLVI EIRÍKSSON Aðstoða við gerð minningargreina Flosi Magnússon sími 561 5608 eða 896 5608 flosi@flosi.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.