Morgunblaðið - 24.05.2006, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Pétur SnærPétursson, til
heimilis að Vallar-
götu 42 í Sand-
gerði, fæddist 21.
október 1992. Hann
lést miðvikudaginn
17. maí síðastliðinn.
Foreldrar hans eru
Snæfríður Karls-
dóttir, f. 26. maí
1956, og Pétur Guð-
laugsson, f. 9. apríl
1953. Foreldrar
Snæfríðar eru
Greta Frederiksen,
f. 28. júlí 1938, og Karl Einars-
son, f. 8. júlí 1936. Foreldrar Pét-
urs voru Guðrún Pétursdóttir, f.
27. júní 1922, d. 4. ágúst 1994, og
Guðlaugur Sigurjónsson, f. 7.
maí 1919, d. 20. júlí 1968. Pétur
Snær var næstyngstur af sjö
systkinum, hin eru: 1) Ari Gylfa-
son, f. 25. janúar 1974, maki
María G. Pálsdóttir, börn þeirra
Róbert Páll og Kara Petra, 2)
Hrannar Már Pétursson, f. 13.
september 1976, börn hans
Hulda Björg og
Jakob Máni. 3) Guð-
rún Pétursdóttir, f.
5. júní 1981, maki
Bjarni Ragnarsson,
börn þeirra Snæ-
fríður Una og Birg-
itta Sól. 4) Helgi
Pétursson, f. 1. júní
1984. 5) Helena
Sirrý Pétursdóttir,
f. 18. mars 1986. 6)
Arna Siv Péturs-
dóttir, f. 29. sept-
ember 1994.
Pétur Snær gekk
í skóla í Grunnskóla Sandgerðis.
Hann sótti sunnudagaskóla í
Baptistakirkjunni í Njarðvík.
Honum voru engin félagsstörf
óviðkomandi, hann hafði nú ný-
verið tekið við viðurkenningu
fyrir að hafna í 2. sæti í billj-
ardkeppni félagsmiðstöðva Sam-
fés.
Pétur Snær verður jarðsung-
inn frá Safnaðarheimilinu í
Sandgerði í dag og hefst athöfn-
in klukkan 14.
Elsku hjartans drengurinn.
Við erum algjörlega máttvana og
harmi slegin yfir þessu mikla áfalli
sem við höfum orðið fyrir. Nú verð-
um við að vera dugleg og halda vel
utan um mömmu, pabba og systkini
þín og gefa þeim allan þann styrk
sem þau þurfa.
Við vitum að Helgi frændi tekur
þér opnum örmum og passar þig vel
fyrir okkur.
Guð, þú einn veist og þekkir það sem á
hjarta okkar hvílir.
Þú þekkir sorg okkar, eirðarleysi, ugg og
spurningar allar.
Við biðjum um styrk til að þiggja hvern
dag úr hendi þinni.
Við biðjum ekki um svör við öllum
spurningum okkar – aðeins um styrk
til að komast í gegnum þetta.
Þakka þér allt gott og alla gleði, sem þú
gafst í Pétri Snæ sem nú er horfinn.
Hjálpa okkur að halda fast í góðu
minningarnar, og virða þann látna með
því að lifa í kærleika.
Þú sem gafst son þinn í dauðann á krossi,
í krossinum sé ég þá umhyggju og ást
sem leiðir gegnum dauða til lífs.
(Caroline Krook)
Guð geymi þig, elsku Pétur Snær.
Kveðja,
amma og afi.
Þá ertu farinn elsku yndislegi
drengur. Oo hvað lífið getur verið
grimmt. Og við skilin eftir í þessari
óbærilegu sorg að hafa misst þig,
elsku Pétur Snær.
En áfram lifir minning þín, sem er
svo falleg elsku barn. Og við munum
varðveita hana vel í hjörtum okkar.
Við reynum að vera ekki reið held-
ur þökkum fyrir árin sem Guð gaf
okkur með þér. Tilhugsunin ein að
finna ekki framar gustinn þinn, sjá
brosið þitt og horfa í fallegu grænu
augun þín er óbærileg.
Það var alltaf svo mikið að gera
hjá þér, þú stoppaðir aldrei. En hafð-
ir alltaf tíma fyrir aðra, svo kurteis
og hjálpsamur.
Börnin dýrkuðu þig, alltaf komstu
þeim til að hlæja. Róbert Páll var nú
ekki gamall, kannski sex mánaða,
þegar hann lá í hláturskasti á meðan
þú varst að leika við hann í göngu-
grindinni. Fyrsta hláturskastið
hans. Og þú hefur verið hans uppá-
hald síðan, alltaf gaman í kringum
þig. Þú varst svo mikill barnakall,
alltaf fljótur að hlaupa til þegar Kara
Petra birtist og kitla hana og knúsa.
Já við eigum eftir að sakna þín al-
veg óbærilega mikið en huggum okk-
ur við það að hjá Guði verður tekið
vel á móti þér og vonum að einhver
tilgangur hafi verið með því að þú
varst hrifinn í burtu frá okkur. Við
elskum þig af öllu okkar hjarta og þú
munt ávallt fylgja okkur, hvert sem
er.
Þú ert fallegasti engillinn á himn-
um, elsku yndislega barn.
Og hversu hart sem frostið verður
og svart vetrarmyrkrið.
Er sál þín aldrei ísilögð
og aldrei hverfur þú mér alveg.
(Nína Björk Árnadóttir.)
Ari bróðir og María mágkona.
Elsku hjartans bróðir minn.
Hvað á ég að segja, það var svo
skyndilegt þegar þú fórst frá okkur
að ég hef varla áttað mig á þessu
ennþá, ég er bara hálfdofin en ég veit
það að þú kemur ekki aftur. Það er
nokkuð sem verður erfitt að sætta
sig við en ég veit það og hugga mig
við það að þú ert á mun betri stað
núna og núna líður þér vel, elsku
hjartað mitt.
Þú varst svo yndislegur, góðhjart-
aður, fyndinn, skemmtilegur og bara
allt sem hægt er að óska sér í bróður.
Þú varst svo uppfullur af ást að ég er
alveg viss um að hjarta þitt var úr
gulli, en þú varst mikið veikur ástin
mín og við vissum það ekki og þess
vegna gátum við ekki gert líf þitt
bærilegra. Það var alltaf sagt bara
að þú værir með mígreni en það var
bara ekki rétt ástin mín og þess
vegna gerðist þessi hræðilegi at-
burður. Við eigum þó minningar,
myndir og upptökur af þér engillinn
minn og við hlýjum okkur við þær og
þær gefa okkur styrk til að komast
fram úr á morgnana.
Ég veit að Snæfríður Una og Birg-
itta Sól voru þitt líf og yndi og ég veit
það að hún Snæfríður Una mun aldr-
ei gleyma þér en Birgitta Sól er það
lítil ennþá en ég passa upp á það að
hún viti alveg hvers konar strákur
þú varst og minna hana á að í hvert
skipti sem þú labbaðir inn heima hjá
okkur sagðir þú alltaf: „Heeeellllú-
úú,“ með svona fallega skerandi
hljóði og hún brosti út að eyrum
vegna þess að hún vissi að þetta var
uppáhaldsfrændi hennar. Þú komst
alltaf á hverjum einasta degi. Þú átt-
ir nú heima hjá mér í 2–3 vikur eftir
ferminguna þína vegna þess að þú
fékkst tölvu í fermingargjöf en pabbi
var ekki búinn að tengja netið í þína
tölvu svo þú komst með alla tölvuna
þína og tengdir hana við minn ráder
og þar varst þú allan daginn ef þú
varst ekki í skólanum. Og alveg er ég
viss um það að þú ert að spila á gítar
fyrir hina englana og skemmtir þeim
konunglega og öruggleg að rúlla
þeim upp í billjard. Þeir eru örugg-
lega allir bara núbbakúla er það
ekki? Ég á eftir að sakna þín svo
óendanlega mikið, ég meina hver á
að koma yfir og fá að hringja eða
sníkja pening fyrir krapís eða bara
til að segja: „Hæ, hvar er Birgitta
Sól, má ég vekja hana?“ eða bara til
þess að kíkja á stóru systur og knúsa
hana. Það er stórt skarð í hjartanu
mínu núna sem ég næ aldrei að fylla
upp í enda átt þú það pláss og það
fær það enginn. En mundu það bara
að þetta er ekki kveðjustund, ég ætla
ekki að kveðja þig, bara segja góða
nótt, vegna þess að við hittumst aft-
ur. Við hittumst aftur þegar að því
kemur og ég veit að þar verður þú
fremstur til að taka á móti mér. „I
love you longtime,“ er það ekki Pét-
ur Snær, var það ekki sagt svona. Ég
elska þig ástin mín og hvíl í friði eng-
illinn minn. „Rock on,“ elskan, „rock
on!“
Frost er úti fuglinn minn,
ég finn hvað þér er kalt.
Nærðu engu í nefið þitt,
því nú er frosið allt.
En ef þú bíður augnablik
ég ætla að flýta mér
að biðja hana mömmu mína
um mylsnu handa þér.
(Höf. ók.)
Ég mun aldrei gleyma ástin mín
og góða nótt.
Þín systir
Guðrún.
Pétur Snær, litli engill, nú er búið
að taka þig frá mér langt fyrir þinn
tíma. Elsku litli bróðir minn, nú ertu
hjá englunum og finnur ekki lengur
til, heldur horfir niður til okkar með
bros á vör.
Allar minningarnar sem ég á um
þig, það sem við gerðum saman, þeg-
ar við bara fengum okkur að borða
og töluðum saman um stelpur og
bíla. Og eins þegar við vorum að
keyra saman og skoða bíla á toyotu-
sölunni, þegar við sáum cherokee-
jeppann með v8-vélinni og þegar við
tókum rúnt á honum, hvað þú ljóm-
aðir allur þegar ég setti hann í gang,
það var gaman. Eða þegar við vorum
á leið í Sandgerði og þú baðst mig að
fara gryfjuleiðina þegar það var
nýbúið að rigna og það var allt í drul-
lusvaði, það var gaman að keyra í
pollana saman. Elsku litli bróðir
minn, æ hvað ég sakna þín mikið.
Svo man ég líka eftir því að þú varst
að koma með alls konar drasl heim
sem var gull í þínum augum og þegar
þú varst að fikta með eina tölvuna og
settir straumbreytinn á 220 volt og
hann sprakk, hvað við hlógum mikið
að því. Svo tókst þú aðra tölvu og
gerðir það sama og hann sprakk líka.
Og svo líka þegar þú varst að koma
með hjól heim til að laga og gera þitt
hjól flott, því þú vildir alltaf free-
style-hjól til að gera listir á.
Hvað ég get sagt um þig elsku
kall? Hvað þér fannst gaman að
pirra mig og systkini þín og hvað ég
elskaði það þegar þú varst að pirra
mig, þótt ég hafi skammað þig fannst
mér þetta bara gaman. Og þú varst
alltaf að pirra systur þína, hana
Örnu Siv. Þið gátuð hvorki verið
saman né án hvort annars. Þetta var
svo furðulegt með ykkur tvö og á öll-
um þeim myndum sem ég er búinn
að skoða af ykkur eruð þið alltaf
saman en nú ertu farinn frá mér.
Hver á að bögga mig og biðja mig um
pening núna eða að kaupa fyrir sig
grab? Hver á að sitja hjá mér þegar
ég er að vinna í bílunum mínum eða
þegar ég er að gera eitthvað annað?
Æ, hvað ég á eftir að sakna þín, elsku
Pétur Snær.
Elsku litli bróðir minn, þú litla sál
sem gerðir líf mitt betra með þínu
öskri og brosi, æ, hvað ég elska þig
heitt, gerði það frá byrjun og alveg
til enda.
Elsku litli Pétur Snær, eða Helgi
litli, eins og þú varst kallaður líka,
hvað ég á eftir að sakna þín litla sál.
Ég hef ávallt elskað þig og geri það
enn og þú verður með mér það sem
eftir er í mínu hjarta.
Mamma og pabbi, Guð styrki okk-
ur öll á þessum erfiðum tíma. Við
munum öll sakna þín heitt, elsku
Pétur Snær.
Ég elska þig Pétur Snær og megir
þú hvíla í friði.
Þinn elskandi stóri bróðir
Helgi.
Elsku litli engillinn minn.
Ég get samt ekki sagt litli, þú ert
sex árum yngri en ég en samt varstu
að ná mér og þú varst alltaf að minna
mig á það. Þetta er svo erfitt fyrir
okkur öll að þú sért farinn, elskan
mín, en þú ert alltaf hjá mér í hjarta
mínu og í minningu. Það er svo erfitt
að fá að vita að þú hafir verið svo
veikur eftir að við misstum þig, það
var alltaf sagt að þú værir með mígr-
eni, það var bara ekki rétt, en samt
kvartaðirðu aldrei. Þú varst svo
hraustur, duglegur og allra fyndn-
asti strákur sem ég hef á ævi minni
kynnst, þú varst vinur allra.
Þú hjálpaðir mér alveg rosalega
mikið í gegnum allt, ég hefði ekki
getað gert þetta hefðir þú ekki verið
þarna og hjálpað mér að brosa og
hlæja allan daginn.
Ég gleymi því samt aldrei þegar
þú komst fram með svitaeyði og
varst að leika bíl með nítró vrrrvrrr
og sprautaðir svo og það endaði með
því að þú kláraðir hann og húsið ang-
aði af svitalyktareyði.
Ég veit að þú verður samt ánægð-
ur með að vita að Finnland vann
Evróvisjón, ég veit hvað þú varst
hrifin af þeim, þeir rústuðu þessu al-
veg.
Ég man eftir því þegar þið Arna
Siv voruð að rífast og þú prumpaðir
framan í hana og hún kom alveg
brjáluð inn í eldhús og sagði við okk-
ur að hún hefði fundið vind koma í
andlitið á sér og þetta var nú bara
eitt af því sem þú hefur gert.
Mig langar að koma með smá
handa þér.
Vísa mér veg þinn, Drottinn,
lát mig ganga í sannleika þínum.
(Sálmarnir 86:11.)
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(Sálmarnir 23.)
Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum
anda. Svo sem var í upphafi, er og
verður um aldir alda. Amen.
Vísa mér veg þinn, Drottinn,
lát mig ganga í sannleika þínum.
„Love you long time“ elskan.
Ég mun aldrei gleyma því sem við
gerðum og ég mun aldrei gleyma þér
elsku ástin mín.
Ég býð þér góða nótt og við
sjáumst aftur.
Þín systir
Helen Sirrý.
Elsku Pétur Snær, ég elska þig
mjög mikið. Við rifumst mikið en það
er allt í lagi, ég á eftir að sakna þess
að rífast við þig og pirra þig. Það var
rosalega gaman þegar við fórum að
veiða á sumrin, ég man þegar þú
varst alltaf að passa upp á mig. Við
vorum eins og tvíburar, gátum ekki
hvort án annars verið en gátum samt
eiginlega ekki verið saman, þá fórum
við að rífast og slást og pirra hvort
annað.
Ég mun alltaf elska þig og ég mun
aldrei gleyma þér og öllu því sem við
gerðum saman. Þú varst alltaf að
passa að ég dytti ekki í sjóinn þegar
við fórum að veiða. Ég man þegar við
fórum til Mallorca í ágúst í fyrra, við
fórum oft í billjard og borðhokkí og
þú vannst mig eiginlega alltaf en ég
fékk samt að vinna þig tvisvar sinn-
um. Það var rosalega gaman og ég
hefði ekki viljað eyða þessum stund-
um með neinum nema þér, ég á eftir
að sakna þín svo mikið. Ég man þeg-
ar við fórum út á sjó með pabba og
ég man hvað þú varst rosalega sjó-
veikur og ég líka, en samt ekki eins
mikið og þú. Eina sem við gerðum á
sjónum var að horfa á Cartoon Net-
work og drekka appelsín en stundum
fórum við að horfa á pabba veiða en
samt fór eiginlega allur tíminn í sjón-
varpsgláp og appelsíndrykkju. Hey,
gaur, þú ert núbbakúla.
Ég mun sakna þín mikið, elsku
bróðir minn og ég elska þig. Þín syst-
ir
Arna Siv.
Elsku hjartans drengurinn minn.
Hversu óréttlát getur lífið verið?
Maður spyr sig en fær engin svör. Þú
varst ekki nema 13 ára og hrifinn í
burtu frá okkur svona snögglega.
Þetta er ekki sanngjarnt.
Ég tók á móti þér þegar þú komst í
heiminn og fallegra barn hafði ég
aldrei séð, mér fannst ég eiga svo
mikið í þér. Það hvarflaði ekki að
mér að ég fengi ekki að njóta ævinn-
ar með þér lengur en 13 ár og auðvit-
að hvarflaði það ekki að neinum, þú
hefur alltaf átt stað í hjarta mínu og
munt alltaf eiga elsku litli snúllinn
minn. Þú varst svo góður strákur, þú
varst svo góður við mömmu þína og
pabba sem þú elskaðir svo mikið
enda algjör mömmu- og pabbaling-
ur, þú varst svo góður við ömmu og
afa, þú varst svo góður við systkini
PÉTUR SNÆR
PÉTURSSON
Elsku frændi.
Við elskum þig alltaf og við
gleymum þér aldrei.
Þú varst og verður alltaf
uppáhaldsfrændi okkar.
Sjá, nóttin er á enda,
nú árdagsgeislar senda
um löndin ljós og yl.
Í nafni náðar þinnar
ég nú til iðju minnar,
minn Guð, að nýju ganga vil.
(Helgi Hálfdánarson.)
Góða nótt elsku frændi og
hvíl í friði.
Snæfríður Una og
Birgitta Sól.
Elsku Petur Snær.
Ég sakna þín svo mikið.
Sofðu rótt kæri vinur.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Þinn frændi
Grétar.
Þú varst góður vinur og ég
vildi að ég gæti fengið meiri
tíma með þér og fengið að gera
meira með þér.
Ég þakka fyrir tímann með
þér og allt það sem þú gafst
mér. Þú varst besti vinur minn
og munt alltaf vera það, þótt þú
ert ekki hér lengur, ég sakna
þín.
Sofðu vel
Önundur Georg (Brúsi).
Þeir segja þig látna, þú lifir samt
og í ljósinu færð þú að dafna.
Því ljósi var úthlutað öllum jafnt
og engum bar þar að hafna.
Frá litlu hjarta berst lítil rós,
því lífið þú þurftir að kveðja.
Í sorg og í gleði þú senda munt ljós,
sem að mun okkur gleðja.
(Guðmundur Ingi Guðmundsson.)
Róbert Páll og Kara Petra.
Takk fyrir samveruna og
góðar minningar yndislegi, já-
kvæði og lífsglaði drengur.
Vertu sæll um alla eilífð,
elskulega góða barn.
Þó að stöðugt þig við grátum
þreytt og mædd um lífsins hjarn
eigum við í huga hrelldum
helga von og bjarta þrá
að eiga vísa endurfundi
aftur þig að mega sjá.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Elsku Fríða og Pétur, megi
góður Guð veita ykkur og fjöl-
skyldu ykkar allri styrk á þess-
um erfiðu tímum.
Fanney Dóróthe.
HINSTA KVEÐJA