Morgunblaðið - 24.05.2006, Page 43

Morgunblaðið - 24.05.2006, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 2006 43 MINNINGAR Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÉTUR GUÐLAUGSSON, Austurbrún 37, Reykjavík, lést á líknardeild LSH í Kópavogi föstudaginn 19. maí sl. Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju mánu- daginn 29. maí kl. 13.00. Halldóra E. Jónmundsdóttir, Valur Karl Pétursson, Sigríður H. Jensdóttir, Soffía Margrét Pétursdóttir, Vilhelm Jónsson, Guðrún Karólína Pétursdóttir, Jóhann Pétur Pálsson og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓHANN SÓLBERG ÞORSTEINSSON, lést föstudaginn 12. maí sl. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 13G á Landspítalanum við Hringbraut. Áslaug Ester Sigfúsdóttir, Ragnheiður S. Jóhannsdóttir, Bergþóra K. Jóhannsdóttir, Gunnar Rafn Skarphéðinsson, María Jóhannsdóttir, Páll Steinþórsson, Eggert Sólberg Jónsson, Magnús Elvar Jónsson, Jóhann Andri Gunnarsson, Davíð Þór Gunnarsson, Hafþór Gunnarsson, Ester Anna Pálsdóttir, Steinþór Pálsson, Atli Pálsson. Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi, langafi og bróðir, HILMAR SIGURBJÖRNSSON, Herjólfsgötu 7, Vestmannaeyjum, andaðist á dvalarheimilinu Hraunbúðum Vest- mannaeyjum sunnudaginn 21. maí. Útför Hilmars verður frá Landakirkju laugardaginn 27. maí kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd og kvenfélagið Líkn. Jónína Margrét Ingibergsdóttir, Sigurbjörn Hilmarsson, Sóley Hafsteinsdóttir, Kristján Ó. Hilmarsson, Heiðrún Guðbrandsdóttir, Katrín G. Hilmarsdóttir, Baldur Pálsson, Árni G. Hilmarsson Sesselja Jónsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. Systir mín, HREFNA SIGURÐARDÓTTIR, Bergstaðastræti 11a, áður til heimilis á Suðurgötu 13, Reykjavík, lést miðvikudaginn 10. maí. Bálför hefur farið fram að ósk hinnar látnu. Unnur Sigurðardóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN JÓHANNSSON frá Valhöll á Bíldudal, til heimilis á Kleppsvegi 62, Reykjavík, andaðist þriðjudaginn 23. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Arndís Ágústsdóttir, Gústaf Jónsson, Erla Árnadóttir, Jakobína Jónsdóttir, Sigurþór L. Sigurðsson, Kolbrún Dröfn Jónsdóttir, Kristófer Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabörn. þín, þú varst svo góður við öll litlu frændsystkini þín og bara alla í kringum þig og sem umgengust þig. Það verður erfitt að finna annan eins gullmola og þig elsku strákurinn minn. Við söknum þín svo mikið. Það er svo margt sem ég get skrif- að niður um þig en það er svo erfitt, tárin streyma bara niður, ég ætla að geyma þær minningar í hjarta mínu og halda fyrir mig. Ég skal segja þér frá þeim áður en ég fer að sofa á kvöldin Pétur Snær minn. Ég ætla að enda þessi orð á fal- legum texta. Óðum steðjar að sá dagur, afmælið þitt kemur senn. Lítill drengur, ljós og fagur lífsins skilning öðlast senn. Vildi ég að alltaf yrðir við áhyggjurnar laus sem nú en allt fer hér á eina veginn: Í átt til foldar mjakast þú. Ég vildi geta verið hjá þér veslings barnið mitt. Umlukt þig með örmum mínum. Unir hver með sitt. Oft ég hugsa auðmjúkt til þín einkum, þegar húmar að. Eins þótt fari óravegu átt þú mér í hjarta stað. Man ég munað slíkan, er morgun rann með daglegt stress, að ljúfur drengur lagði á sig lítið ferðalag til þess að koma í holu hlýja, höfgum pabba sínum hjá. Kúra sig í kotið hálsa, kærleiksorðið þurfti fá. (Vilhjálmur Vilhjálmsson.) Elsku yndislega systir mín, Pétur minn, Ari, Hrannar, Guðrún, Helgi, Helena Sirrý, Arna Siv, makar og börn, mamma og pabbi, systur mínar og bræður og fjölskyldur þeirra. Við munum standa þétt saman og veita hvert öðru stuðning í þessari óend- anlega miklu sorg og haldast í hend- ur, öll sem eitt. Ég sakna þín, elsku Pétur Snær minn og góða nótt. Ástarkveðja frá fjölskyldunni, Alda frænka. Elsku Pétur Snær. Mikið var sárt að missa þig. Þú varst vinur minn og frændi. Ég sakna þín rosalega mikið, við gerðum svo mikið saman. Við ætluðum saman á Sigló um verslun- armannahelgina vegna þess að ég var í Póllandi síðast, og ég veit að þú skemmtir þér svo vel þar og varst ákveðinn að fara aftur. Manstu þeg- ar við vorum að selja rauðmagana um allan Sandgerðisbæ? Afi veiddi fiskana og við drógum þá á kerru um allt og seldum. Það var svo gaman. Víkurfréttir komu og tóku myndir. Takk fyrir allt saman vinur minn, og takk fyrir allar bíóferðirnar. Ég skal passa allar minningarnar vel í hjartanu mínu. Og takk fyrir eyrna- lokkinn sem þú gafst mér, ég lofa að passa hann alltaf. Guð geymi þig elsku Pétur Snær og allir englarnir hans. Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. (Jóhannes 3:16.) Ég sakna þín og elska þig. Þinn frændi og vinur Viktor Patrik. Elsku hjartans frændi, þú ert far- inn frá okkur. Fallegur, duglegur og í blóma lífs- ins. Sársaukinn er svo mikill að eng- in orð fá því lýst. Aðeins 13 ára gam- all. Aðeins nýfermdur. Við spyrjum hvers vegna en það er fátt um svör. Hver er tilgangurinn með að hrifsa þig frá okkur, bara eins og hendi sé veifað? Við verðum að trúa og treysta Guði, að hans vilji ráði ríkj- um, hversu sárt og óréttlátt það er. Þú ert kominn í góðar hendur ástin okkar. Það er bara svo sárt að þurfa að kveðja. Það er svo sárt að hugsa til þess að fá ekki að knúsa þig meir, horfa í fal- legu grænu augun þín, sem bræddi alla … og brosið þitt. Alltaf varstu brosandi, elsku Pétur Snær, svo mikill gleðigjafi varstu. Það var allt- af bjart í kringum þig. Í þessari hræðilegu sorg er brosað í gegnum tárin þegar minningarnar um þig streyma um huga okkar. Þú varst alltaf krúsíkallinn minn. Við viljum þakka þér fyrir árin sem við áttum saman, alla þá gleði þú færðir okkur og kærleikann. Þú varst eitt stórt hjarta. Það sem þú dýrkaðir hana litlu frænku þína, hana Sóldísi Köru, og varst henni svo góður. Ég gleymi aldrei þegar þú komst síðast til okkar, hentist inn um dyrnar og hljópst til hennar, bara til að heyra hana syngja you’re beautiful og svo varstu farinn örfá- um mínútum síðar, skellihlæjandi að snillingnum eins og þú kallaðir hana. Ég varðveiti allar þessar minningar, ástin mín. Þú áttir svo stóran hluta af mínu hjarta. Og elsku drengurinn minn hann Viktor Patrik, hann sakn- ar þín svo sárt. Þið voruð ekki aðeins frændur heldur líka miklir vinir og oft voruð þið svo líkir. Ég hef alla tíð fundið Viktor Patrik í þér. Hann elskaði þig mikið elskan og leit upp til þín. Og þegar ég sagði þér það varstu að slá upp í grín og sagðir; vá maður, það er ekki eins og ég sé hár; svona varstu, með endalausan húm- or og svo bráðskemmtilegur. Ég ætla mér bara að kveðja í bili, gullið mitt. Nærvera þín fyllir húsið. Jafnvel þegar þú ert í burtu gríp ég mig í því að hlusta eftir þér. Ég opna dyr og býst hálfvegis við því að þú sért þarna, sný mér við að tala við þig og finn til söknuðar þegar mér mætir þögnin ein. Þú býrð í huga mér og hjarta, í hverjum andardrætti sem ég dreg. Við Jason, Viktor Patrik og Sóldís Kara munum hitta þig aftur, þegar sá tími kemur. Þangað til, sofðu rótt og megi englar Guðs varðveita fal- legu sálina þína. Þú varst undursam- lega skapaður. Hvíldu í friði, þín frænka Gréta. Elsku Pétur Snær minn, það er svo sárt að hugsa til þess að þú sért farinn frá okkur, og svona ungur og fallegur drengur sem áttir svo mikið fram undan er tekinn svo snöggt frá okkur. Þú varst með svo bjart bros og gleðin skein úr augunum þínum. Stundum vissi ég ekki hvar ég hafði þig þegar þú varst pirraður, en það breyttist fljótt þegar ég fór að tala um bíla eða eitthvað sem kom þér í gott skap, sem var nú varla mikið vandamál því þú varst opinn fyrir gleði og hamingju og ekki þurfti mik- ið til að kæta þig, og þú þurftir ekki mikið til að kæta aðra. Ég fer alltaf að brosa þegar ég hugsa um, þegar ég, þú, og mamma þín sátum heima hjá þér og ég var að segja þér sögu sem þér þótti svo fyndin og þú baðst mig að segja hana aftur og aftur og alltaf fannst þér hún jafn fyndin og við hlógum mikið þann dag og þeim degi mun ég aldrei gleyma. Ég er svo heppinn að eiga svo margar minningar um þig sem ég geymi í hjarta mínu og við svo heppin að hafa þekkt þig. En Pétur Snær minn ég kveð þig í bili og við sjáumst síðar, góða nótt elsku frændi ég mun aldrei gleyma þér. Hugsandi um engla ég hugsa til þín. Með hárið þitt eldrautt og heilbrigða sýn. Er lát þitt ég frétti brást lífstrúin mín. Hugsandi um engla ég hugsa til þín. Guð fylgi þér engill þá ferð sem þér ber. Þótt farin þú sért, þá veistu sem er. Að sorg okkar hjörtu nístir og sker. Við sjáumst á ný þegar kemur að mér. (KK – þýð. ÓGK.) Elsku Fríða, Pétur, Ari, Hrannar Már, Guðrún, Helgi, Helena Sirrý, Arna Siv, amma og afi, megi Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg, elskunar mínar. Þinn frændi Brynjar Mar. Kveðja Söknuður sál mína kvelur minn kæri vinur þú ei lengur hér á jörðu dvelur þinni lífsgöngu ei ætlað var lengri veg sárt er því að taka vildi að þú værir ennþá hér Nú þú leið þína hefur lagt yfir móðuna miklu með vissu ég veit þar þú mætt hefur móttökum góðum þar hlýtur nú að vera glatt á hjalla þannig ávallt það var er þú mættir með brosið þitt bjarta Þú einstaka sál hafðir að geyma þér ég aldrei mun gleyma minningin um þig er björt og mikil hér á jörðu niðri hún áfram lifir í hjarta mínu þinn stað þú ætíð munt eiga (Jónína Sesselja Gísladóttir.) Góða nótt, þú verður aldrei einn á ferð. Elsku hjartans systir mín, Pétur, systkini, mamma og pabbi og frænd- systkini öll, þetta er svo tilgangs- laust, meiningarlaust og illt. „Hvers vegna?“ hrópum við. „Af hverju?“ Stundum fáum við svar sem sefar og nægir. En oftar ekki, ekki strax, ekki fyrr en í eilífðinni. Í þeirri birtu þar sem sérhver rún er ráðin og öllum spurningum svarað. Þangað til vilj- um við treysta því að öllu sé óhætt í hendi Guðs. Megi algóður Guð gefa okkur styrk í þessari miklu sorg. Minning Péturs Snæs er ljós í lífi okkar. Ástarkveðja, Ólína, Lárus, Jón Karl og Katrín Helga. Elsku Pétur Snær. Ég ætla að reyna að kveðja þig, en þetta er svo sárt. Við erum búin að bíða eftir að vakna upp af þessari martröð, en þetta er víst veruleiki sem við getum ekki breytt, svo óréttlátt sem allt þetta ferli er. Elsku Pétur Snær það er svo gott að minnast þín, þú varst svo góður drengur og með fallegt hjarta. Mikill mömmulingur og alltaf að hugsa um mömmu þína enda margt líkt með ykkur. Hvernig á maður að skilja þetta, svo hress á þriðjudaginn þegar ég hitti þig, þá varstu að tala um hvað þú ætlaðir að kaupa fyrir ferming- arpeninganna. Já það eru ekki nema fimm vikur síðan þið Einar Pétur fermdust. Þú varst alltaf svo góður í þér, pínu stríðinn og hlóst mikið ef þér fannst eitthvað fyndið, þér fannst kannski skemmtilegast að stríða Örnu Siv, það var oft svo gaman að fylgjast með ykkur, enda mjög sam- rýnd systkini. Elsku Pétur Snær, það er svo margt sem fer um hugann á svona stundu, eins og þegar þið Arna Siv fóruð einn túr með pabba ykkar á sjóinn, nei takk, þetta var sko ekki „cool“ og þú vildir bara koma heim sem fyrst. Í september komu mamma þín og pabbi þér á óvart og fóru með ykkur til Spánar, þú varst ekkert smáglaður, það sést nú best af myndunum sem voru teknar þeg- ar þér var tilkynnt að þið væruð að fara upp í vél. Elsku engillinn, þú skilur bara eft- ir góðar minningar, og við vitum að Helgi, Gunna amma, Hildur og margir aðrir munu vefja þig örmum og passa þig og vernda. Við hin ætl- um að passa mömmu þína og pabba, systkini þín og ömmu og afa sem sakna þín svo sárt elsku karlinn. Sofðu rótt elsku Pétur Snær og Guð geymi þig engillinn okkar. Elsku Fríða, Pétur, Ari, Hrannar, Guðrún, Helgi, Helena Sirrý og Arna Siv, missir ykkar er mikill en góðar minningar um elskaðan son og bróður sem við öll getum yljað okkur við er yndislegt að eiga á þessum tímum. Guð leiði ykkur og styrki á sorg- arstundum. SJÁ SÍÐU 44

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.