Morgunblaðið - 24.05.2006, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 24.05.2006, Qupperneq 56
56 MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ RONJA RÆNINGJADÓTTIR Sun 28/5 kl. 14 UPPS. SÍÐ. SÝN. Í VOR Miðasala hafin á sýningar í haust! FULLKOMIÐ BRÚÐKAUP Fi 25/5 kl. 20 UPPS. Fö 26/5 kl. 20 UPPS. Fö 26/5 kl. 22:30 UPPS. Su 28/5 kl. 20 UPPS. Fi 1/6 kl. 20 UPPS. Fö 2/6 kl. 20 UPPS. Fö 2/6 kl. 22:30 UPPS. Má 5/6 kl. 20 Þri 6/6 kl. 20 UPPS. Fö 9/6 kl. 20 UPPS. Fö 9/6 kl. 23 Má 12/6 kl. 20 Þri 13/6 kl. 20 VILTU FINNA MILLJÓN? Fi 25/5 kl. 20 UPPS. Fö 26/5 kl. 20 UPPS. Mi 31/5 kl. 10 UPPS. Fö 2/6 kl. 20 UPPS. Lau 3/6 kl. 20 Má 5/6 kl. 20 Fi 8/6 kl. 20 UPPS. Fö 9/6 kl. 20 Lau 10/6 kl. 20 Fi 15/6 kl. 20 Sun 18/6 kl. 20 HLÁTURHÁTÍÐ Fi 25/5 kl. 22:30 BANANABIKARINN MIÐAVERÐ 1.000 Leikarar frá Leikfélagi Reykjavíkur og Leik- félagi Akureyrar, keppa í leikhússporti. Su 28/5 kl. 20:00 HLÁTURNÁMSKEIÐ MIÐAVERÐ 1.000 Ásta Valdimarsdóttir og Kristján Helgason kenna hláturjóga. NAGLINN Fi 1/6 kl. 20 SÍÐASTA SÝNING TENÓRINN Lau 27/5 kl. 19 ALLRA SÍÐASTA SÝNING ATHUGIÐ: Breyttan sýningartíma 25 TÍMAR DANSLEIKHÚSSAMKEPPNIN 2006 9 verk verða frumsýnd sem keppa til verðlauna. Fi 8/6 kl. 20 Teldu mig með. Höf. Ólöf Ingólfsdóttir og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachman. Elsku bróðir. Höf. Steinunn Ketilsdóttir. Blind ást. Höf. Rebekka Rán Samper. Tommi og Jenni. Höf. Elma Backman, Stefán Hallur Stefánsson ogHalldóra Malín Pétursd. Boðorðin 10. Höf. Marta Nordal. Guðæri. Höf. Ólafur Darri Ólafsson og Lovísa Ósk Gunnarsdóttir Dillir dó og Dummi. Höf. Benóný Ægisson. Shoe size nine months. Höf. Peter Anderson. Stigma. Höf Andreas Consantinou. MIÐAVERÐ 2.500. Miðasala hafin. RONJUVÖRUR Bolir, sundpokar, nælur, geisladiskur ofl. Fæst í miðasölu Borgarleikhússins. Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is MIÐASALA OPIN ALLAN SÓLAR- HRINGINN Á NETINU. Litla hryllingsbúðin – aukasýningar í september! Vegnar mikillar aðsóknar: Aukasýningar í september! Lau 2/9 kl. 19 AUKASÝNING – örfá sæti laus Sun 3/9 kl. 20 AUKASÝNING – nokkur sæti laus Fös 8/9 kl. 19 AUKASÝNING – örfá sæti laus Lau 9/9 kl. 19 AUKASÝNING – nokkur sæti laus Fullkomið brúðkaup – Borgarleikhúsinu. Sýningar í fullum gangi. Litla hryllingsbúðin – Íslensku óperunni. Sýningar í fullum gangi. Leiklistarnámskeið á Akureyri í júní. 100 ára hús eftir Jón Atla Jónasson Lokasýningar í Reykjavík. Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar. Miðvikudagur 24. maí kl 22:00 Fimmtudagur 25. maí kl 22:00 Föstudagur 26. maí kl 22:00 Takið eftir óvenjulegum sýningartíma. Sýnt á Ylströndinni í Nauthólsvík. Munið hlýlegan klæðnað í vorstemningunni. Miðasala í síma 899 8163 fruemilia@simnet.is og við innganginn. www.100arahus.blogspot.com                                      !   " #   $$$     %                                 ! "  # $    %&'()**+  # $    ,,-  .// %00  ('(/'12 34 .&256'+ &%1.71'1        8         %&'()**+ $ 9     %&'()**+ ÁRBÓK Þingeyinga er með sama sniði og verið hefur, að undantekinni kápusíðu, sem hefur fengið nýtt út- lit. Fremst í heftinu eru fjórar stutt- ar frásagnir og ræður, allar prýði- lega læsilegar hver á sinn hátt. Annars er aðalefnið – fyrir utan hér- aðsfréttir – tvær langar ritgerðir. Önnur þeirra er eftir Ólaf Grím Björnsson og ber heitið ,,Þeir sem eru af Reykjahlíðarætt sjá ekkert annað.... Þar segir hann frá ævi ömmu sinnar, Kristbjargar Hall- dóru Halldórsdóttur frá Kálfaströnd við Mývatn og dapurlegum örlögum hennar. Er það mikil saga og má vera að sumum finnist hún undarleg. Hin ritgerðin er eftir annan ritstjór- ann, Guðna Halldórsson, og nefnist hún Kísilgúrverksmiðjan í Mývatns- sveit 1966-2004. Má segja að það séu eins konar eftirmæli þessarar verk- smiðjustarfsemi. Sagan er rakin allt frá fyrsta upphafi 1958 til síðasta dags. Það er greinargóð og vönduð frásögn, þó að fljótt sé farið yfir sögu. Síðustu tæpar 100 blaðsíður rits- ins eru fréttir úr sýslunum tveimum og eru þær rækilegar og gagnlegar að vanda. Skagfirðingabók hefur fylgt sama sniði allt frá upphafi. Hún hefur aldrei fjallað um efni líðandi stundar – og er því leyti ólík Árbók Þing- eyinga – og ekki hefur þar verið birt- ur annáll ársins eða önnur héraðstíð- indi. Ævinlega hefur hvert hefti hafist á langri ritgerð um einhvern Skagfirðing, sem markað hefur spor í samtíð sína með einum eða öðrum hætti. Síðan hafa komið ritgerðir og þættir um ýmis efni varðandi skag- firskt mannlíf eða hérað eða ferðafrásagnir Skagfirðinga. Lang- mest efnið hefur verið frá heima- mönnum eða þeim sem á einhvern hátt hafa verið tengdir Skagfirð- ingum eða Skagafirði. Þriðja hverju hefti hefur fylgt ítarleg nafnaskrá, svo og athugasemdir og leiðrétt- ingar. Þessi lýsing á við öll heftin þrjátíu. Samkvæmt þessu hefst þetta hefti á langri (80 bls.) ritgerð um merkan Skagfirðing. Að þessu sinni er það rithöfundurinn Indriði G. Þor- steinsson frá Gilhaga í Lýtings- staðahreppi. Höfundur ritgerð- arinnar er Gunnar Stefánsson útvarpsmaður. Gunnar var vel kunn- ugur Indriða og sér í lagi þekkti hann ritstörf hans vel og leggur raunar aðaláhersluna á þau í ritgerð sinni. Greinin er ágætlega vel gerð eins og vænta mátti og gott yfirlit yf- ir merkt höfundarstarf Indriða. Ég er vissulega sammála Gunnari í því að Indriði naut alls ekki þeirrar við- urkenningar sem hann átti skilið og oft var ómaklega að honum vegið. Að lokinni þessari ritgerð er svo- lítil frásögn frá æskuárum Indriða (Jól í Gilhaga 1893). Hún er fróðleg til samanburðar við ritleikni Indriða síðar. Önnur löng ritgerð er í þessu hefti. Það er ferðaminning Gísla Gottskálkssonar bónda í Sól- heimagerði í Blönduhlíð, vegaverk- stjóra og kennara. Hann fór þessa ferð árið 1926 og skrifaði ferðasög- una fljótlega þar á eftir. Gísli mun þá hafa verið rúmlega hálfþrítugur. En hann lést 1960. Ferðin var farin til Reykjavíkur með Esju og er frá mörgu sagt og skemmtilegu sem við bar. Og skemmtileg er einnig sýn þessa unga Blöndhlíðings á það sem fyrir augu bar. Klefafélagi Gísla var Stefán nokkur Guðmundsson, sem nú var að hleypa heimdraganum í fyrsta sinn, bláfátækur sveitapiltur. Hann gerði síðar garðinn frægann sem Stefán Íslandi. Raunar er hér önnur frásögn af Stefáni. Það var þegar hann söng í Sauðárkrókskirkju um 1935 við mik- inn fögnuð sveitunga sinna. Sú frá- sögn er komin frá Emmu Hansen, sem hlýddi á sönginn. Pétur Jóhannsson í Glæsibæ segir frá fjárkaupaferð til Furufjarðar og Reykjafjarðar á Ströndum. Þar hefði kannski mátt hafa í huga að ekki eru allir lesendur nákunnugir efninu. Að vísu hafa ritstjórar bætt við nokkrum skýringargreinum neð- anmáls. Úr fórum Sigurðar Þórðarsonar (1888-1967) kaupfélagsstjóra og al- þingismanns koma hér tveir stuttir þættir. Annar segir frá Birni Ólafs- syni og Ástríði prófastsdóttur og hinn frá Agli Benediktssyni bónda á Sveinsstöðum. Báðir eru þættir þessir vel skrifaðir og hinir fróðleg- ustu. Vonandi er meira til úr fórum Sigurðar handa Skagfirðingabók að flytja. Þá eru hér fjórar greinar til við- bótar. Magnús Helgason segir frá Þjóðvarnarmönnum í Skagafirði og framboði þeirra til bæjarstjórnar 1954. Séra Gísli H. Kolbeins rekur nokkur minningabrot um Marka- Leifa. Birt eru dagbókarbrot frá Skagafirði 1905 eftir Guðbjart Jóa- kim Guðbjartsson skipstjóra og Steinn Jónsson á Hring í Stíflu segir frá hrakningasömu ferðalagi vorið 1920. Heftinu lýkur með Nafnaskrá þriggja síðustu árganga (XXVIII – XXX); er þar aðgreind manna- nafnaskrá og staðanafnaskrá. Skagfirðingabók, sem nú kemur út annað hvert ár er hið læsilegasta rit eins og forverar hennar. Skagfirðingar, ÞingeyingarBÆKURHéraðsrit Skagfirðingabók 2005, XXX.ár. Rit Sögu- félags Skagfirðinga. Ritstj.: Gísli Magn- ússon, Hjalti Pálsson, Sigurjón Páll Ís- aksson, Sölvi Sveinsson Reykjavík, 2005, 240 bls. Árbók Þingeyinga 2004, XLVII. Árg. Ritstj.: Guðni Halldórsson, Sigurjón Jó- hannesson. Útg.: Suður-Þingeyjarýsla, Norður-Þingeyjarsýsla, Húsavíkurbær Akureyri, MMV, 256 bls. Skagfirðingabók og Árbók Þingeyinga Sigurjón Björnsson Í GÆR afhentu IBBY samtökin á Íslandi í 19. sinn svokallaðar Vorvindaviðurkenningar. Viðurkenn- ingarnar eru veittar fyrir framlag til barnamenn- ingar. Vorvindaviðurkenningar IBBY 2006 hljóta Sig- rún Eldjárn, Bernd Ogrodnik og Björk Bjarka- dóttir. „Sigrún Eldjárn mynd- og rithöfundur hefur látið frá sér yfir 30 bækur og hlotið fjölda verð- launa fyrir störf sín. Bækur hennar eru fjöl- breyttar í efnistökum en alltaf ævintýralegar og uppfullar af húmor og væntumþykju fyrir við- fangsefninu,“ segir Sólveig Ebba Ólafsdóttir, for- maður IBBY á Íslandi. „Bernd Ogrodnik leik- brúðusmiður hefur verið mjög afkastamikill og hlaut sýning hans „Klaufar og kóngsdætur“ verð- skuldaða athygli og hreppti Grímuna fyrir bestu barnasýningu ársins 2005. Hann hefur heimsótt flesta leikskóla landsins með leikbrúðusýningum og vill með því starfi kynna börnin fyrir leik- brúðulistinni, sem þau geta síðan búið að alla ævi.“ Þá hlýtur Björk Bjarkadóttir verðlaun fyrir myndlist og ritstörf í þágu barna: „Björk er bæði barnabókahöfundur og grafískur hönnuður og hefur látið frá sér fimm bækur fyrir yngstu börnin. Verk hennar eru litskrúðug og fyndin og innihalda jákvæð skilaboð til barnanna,“ segir Sólveig. IBBY eru alþjóðleg samtök, stofnuð í Basel í Sviss árið 1953 fyrir tilstuðlan Jellu Lepman. „Þetta var skömmu eftir seinna stríð og sá hún þann möguleika að barnabæk- ur gætu byggt brú milli þjóða heims og miðlað fróðleik og skilningi milli ólíkra menningarheima,“ segir Sólveig. IBBY á Íslandi stendur fyrir margskonar starfi á sviði barnamenningar. Skrautfjöður starfseminnar er tímaritið Börn og menning. IBBY stendur árlega fyrir ráðstefnu um barnabókmenntir og -menningu, halda svokölluð bókakaffi þar sem rætt er um barnabókmenntir. Þá hefur IBBY á Íslandi í samstarfi við Eddu-útgáfu staðið að út- gáfu tveggja barnabóka og kom sú þriðja út á dögunum, smásagnasafnið Heil brú, þar sem níu myndhöfundar og níu rithöfundar leggja saman krafta sína. Viðurkenningar fyrir fram- lag til barnamenningar Vorvindaviðurkenningar 2006: Harpa Þórs tók við viðurkenn- ingunni fyrir hönd Bjarkar Bjarkadóttur, Sigrún Eldjárn og Sigurður Skúlason sem kom fyrir hönd Bernd Ogrodnik. Morgunblaðið/ÞÖK Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn smáauglýsingar mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.