Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR GEIR LEIÐIR VIÐRÆÐUR Geir H. Haarde, tilvonandi for- sætisráðherra, mun áfram hafa for- ystu í viðræðum Íslendinga við Bandaríkjamenn um varnarmál þó að hann hverfi nú úr utanríkisráðuneyt- inu en Valgerður Sverrisdóttir, verð- andi utanríkisráðherra, hefur óskað eftir því við Geir að hann haldi á þeim málum með formlegum hætti þótt hann færi sig um set. Segist hún von- ast til þess að með þessari skipan mála náist mikilvæg samfella í varn- arviðræðunum við Bandaríkjamenn. Sjómannadegi fagnað víða Sjómannadagurinn var haldinn há- tíðlegur í gær og þrátt fyrir votviðri fjölmennti fólk á hátíðir í sjáv- arplássum landsins. Í Reykjavík var deginum fagnað samhliða Hátíð hafs- ins líkt og síðustu ár en þar var margt um manninn. Á Akureyri voru hátíð- arhöld með óvenjulegu sniði en þau fóru fram í skugga hins hörmulega atburðar er tveir menn úr áhöfn Ak- ureyrinnar EA-110 létust er eldur kom upp í skipinu fyrir skömmu. Minningarathöfn og fjöskylduhátíð var haldin á hafnarsvæðinu þar sem Sjómannafélag Eyjafjarðar heiðraði áhöfn Akureyrinnar fyrir hetjulega framgöngu þegar eldurinn kom upp. Guantanamo gagnrýnt Gagnrýni á ástandið í Guant- anamo-fangabúðum Bandaríkja- manna á Kúbu hefur aukist mjög eft- ir að þrír fangar styttu sér aldur. Hafa ummæli Colleen Graffy, eins af aðstoðarutanríkisráðherrum Banda- ríkjanna, vakið nokkra hneykslan en hún sagði, að dauði mannanna hefði verið úthugsað „auglýsingabragð“ og tilgangurinn sá að vekja athygli á „hinu heilaga stríði“ hryðjuverka- manna. Mannréttindasamtök segja aftur, að örvænting hafi hrakið menn- ina í dauðann enda njóti þeir engra mannréttinda og hafi ekki einu sinni verið ákærðir. Þing um loftslagsbreytingar Alþjóðlegt samráðsþing um lofts- lagsbreytingar hefst í dag en þar verður gerð tilraun til að draga að einu borði annars vegar fullrúa fjöl- margra helstu stórfyrirtækja í heim- inum og hins vegar úrval þeirra vís- indamanna sem fremstir eru í veröldinni varðandi greiningu og rannsóknir á þessu sviði. Þingið sækja tæplega tvö hundruðu fulltrú- ar um hundrað stórfyrirtækja, há- skóla og vísindastofnana. Herra Ólaf- ur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti þátt í að stofna til þingsins. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Minningar 28 Vesturland 11 Dagbók 32 Úr verinu 12 Víkverji 32 Viðskipti 13 Velvakandi 33 Erlent 14/15 Staður og stund 34 Daglegt líf 16/17 Menning 36/41 Listir 18 Bíó 38/41 Umræðan 19/27 Ljósvakamiðlar 42 Bréf 25 Veður 43 Forystugrein 22 Staksteinar 43 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is ARI Edwald, forstjóri 365, gagnrýnir harðlega auglýsingar Skjás eins þess efnis að það sé krafa 365 að stöðva endurvarp erlendra sjónvarpsstöðva þegar sent sé út frá HM-leikjum og segir umræddar auglýsingar gefa al- ranga mynd af aðstæðum. Segir hann ekki rétt að krafan sé komin frá 365 heldur sé hún sett fram af erlendum rétthafa myndefnisins sem hafi selt 365 einkaréttinn á Íslandi. „Það er seljandi þessa efnis, sem selur okkur þennan sýningarrétt hér- lendis, sem auðvitað gætir að því sjálfur að selja ekki öðrum sama rétt,“ segir Ari og bendir á að það sé því seljandinn sem komi þeim skila- boðum til erlendu stöðvanna að þær hafi ekki leyfi til að dreifa efninu hér- lendis. „Þannig að það þarf enga kröfu frá okkur til þess að þeir, sem gera við okkur samninga, standi við þá,“ segir Ari og bendir á að eðlilega geti seljandinn ekki selt sama efnið margsinnis í sama landinu. „Enda hefðum við væntanlega ekki verið til- búnir að greiða sama verð fyrir þenn- an sýningarrétt ef allir aðrir mættu sýna sama efni á sama tíma á sama markaði.“ Að sögn Ara er þetta ekkert frá- brugðið því sem gerist með aðrar út- sendingar hérlendis. Nefnir hann máli sínu til stuðnings að þegar Rík- issjónvarpið sýni frá Formúlukeppn- inni þá sé sama efni ekki endurvarpað á erlendum sjónvarpsrásum þar sem RÚV hafi einkarétt á myndefninu hérlendis. Aðspurður hvort borist hafi kvart- anir frá áskrifendum, sem kaupa að- gang að erlendum rásum gegnum hið stafræna útsendingarsvæði 365 ljós- vakamiðla, Digital Ísland, vegna þess að ekki sé hægt að horfa á HM-leiki á erlendu stöðvunum, svarar Ari því neitandi. „Enda höfum við í sölu á okkar fjölvarpi ekki haldið því að fólki að það muni geta horft á efni í gegn- um þessar rásir sem þessar erlendu stöðvar hafi ekki leyfi til að senda út hér,“ segir Ari og segist vona að aðr- ar sjónvarpsstöðvar hafi ekki verið að lofa áskrifendum sínum einhverju sem þeir geti ekki staðið við. Talsvert borist af kvörtunum Í samtali við Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóra Skjás eins, segir hann fyrirtækinu hafa borist nokkuð af kvörtunum frá áskrifendum vegna þess að ekki væri endurvarpað frá HM-leikjum þegar þær væru á dag- skrá erlendra stöðva sem við- skiptavinir eru með í áskrift. „Auðvit- að hafa 365 rétt á að setja fram þessa kröfu, en fólk áttar sig kannski ekki endilega á því þegar það kaupir áskrift að erlendri rás, hvort sem er hjá okkur eða Digital Ísland,“ segir Magnús sem telur að viðskiptavinir beggja kerfa séu vansælir með þetta fyrirkomulag. Aðspurður hvort veitt- ur verði einhver afsláttur til handa áskrifendum sökum þess að þeir geti ekki séð allt efni á þeim erlendu stöðvum sem þeir eru með í áskrift segir Magnús að ekki hafi verið tekin afstaða til þess að svo komnu máli. „Við lendum bara í fjárhagslegu tjóni ef við ætlum að fara að endurgreiða áskriftargjöld eða veita afslætti vegna kröfu sem er tilkomin frá 365.“ Að sögn Magnúsar er krafan um stöðvun endurvarps HM-leikja sett fram af erlendu rásunum sjálfum sem krefjast þess að einkarétturinn til út- sendinga hérlendis sé virtur. Segir Magnús fyrirtækið ekki eiga kost á öðru en að hlíta því þar sem það gæti annars verið að stefna samningsstöðu sinni við erlendu rásirnar í hættu auk þess að baka sér skaðabótakröfu. Bendir hann á að sama staða hafi verið upp á teningnum í kringum síð- asta HM-mót. Tekur hann fram að í ljósi reynslunnar þá hafi margir áskrifendur ekki átt von á öðru nú en að leikjunum yrði ekki endurvarpað hérlendis. „Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að þetta er vonandi í síð- asta sinn sem málum verður komið fyrir með þessum hætti,“ segir Magnús og bendir á að allar líkur séu á að RÚV hljóti útsendingarréttinn fyrir HM árið 2010 í samræmi við Evróputilskipun sem skilgreini stór- íþróttaviðburði á borð við HM sem sjónvarpsefni í almannaþágu. Krafan sett fram af erlendum rétthöfum myndefnisins Ari Edwald Magnús Ragnarsson Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is KAUPENDUR Morgunblaðsins fengu ekki allir blaðið með sömu forsíð- unni í gær. Þegar búið var að prenta hluta af upplaginu um miðjan dag í gær var forsíðunni breytt og raunar baksíðu blaðsins einnig. Frétt um ræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar á forsíðu var færð á baksíðuna þegar fyrir lágu þær breytingar sem yrðu á ríkisstjórn. Kom frétt þar að lútandi í staðinn á for- síðuna. Sú sem er til hægri var prentuð á undan. Tvær forsíður TAÍLENDINGAR hylla þessa dag- ana konung sinn, Bhumibol Adula- yadej, en sextíu ár eru um þessar mundir síðan hann settist í stól konungs. Taílendingar búsettir á Íslandi, en þeir eru um eitt þúsund, voru engin undantekning og héldu þeir hátíð í Ráðhúsi Reykjavíkur á laugardag. Dagskrá hátíðarinnar var helguð lífi og starfi konungs- ins, flutt voru söng- og dansatriði og taílensk matargerð kynnt. Munkur búddistafélagsins hélt svo kynningu á konunginum í máli og myndum. Að hátíðinni stóðu að- alræðisskrifstofa Taílands á Ís- landi, Búddistafélag Íslands og Taílensk-íslenska samfélagið. Bhumibol er 79 ára gamall og varð því konungur aðeins 19 ára. Eng- inn núverandi þjóðhöfðingi í heim- inum hefur setið jafn lengi á valda- stóli og hann. Morgunblaðið/ Jim Smart Taílands- konungur hylltur Áreitti tvær sjö ára stúlkur LÖGREGLUNNI í Reykjavík barst um sjöleytið í gærkvöldi tilkynning um að maður hefði haft í frammi ósiðsamlegt at- hæfi fyrir framan tvær sjö ára stúlkur sem voru að leik í sandkassa við leikskólann Laugaborg í Lækjahverfinu í Reykjavík. Lögreglan í Reykjavík leit- aði mannsins í gærkvöldi en hann hafði ekki fundist þegar blaðið fór í prentun. Maðurinn er talinn vera um tvítugt, um 190 sentimetrar á hæð, með ljósbrúnt hár og var klæddur röndóttri peysu með kraga samkvæmt upplýsingum lög- reglu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.