Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Svona, láttu ekki svona kjánalega, Guðni minn, það er nú varla verra að kyssa mig en belju. Í menntamálaráðu-neytinu er nú veriðað skoða hvernig best er að haga fjárframlögum til fornleifarannsókna hér á landi, en árið í ár er síð- asta árið sem Kristnihá- tíðarsjóður ver fjármun- um til fornleifarannsókna. Sjóðurinn veitir í ár tæp- lega 60 milljónum króna til fornleifarannsókna. Kristnihátíðarsjóður var stofnaður árið 2000 og hefur á fimm árum varið um 500 milljónum til forn- leifarannsókna. Dr. Kristín Huld Sigurðardótt- ir, forstöðumaður Fornleifa- verndar ríkisins, segir að í ár sé varið 100–150 milljónum til forn- leifarannsókna hér á landi. Fjár- magnið komi úr Kristnihátíðar- sjóði, sveitarfélögum, rannsóknarsjóðum og víðar. Þá styrki Fornleifasjóður fornleifa- rannsóknir, en hann fékk aðeins 5 milljónir á fjárlögum þessa árs. Kristín Huld segir mikilvægt að verja áfram verulegum fjármun- um til rannsókna á fornleifum. M.a. þurfi að tryggja fjármagn til rannsókna og skráningar á því sem grafið hefur verið upp því það sé til lítils að grafa ef ekki séu unnar ítarlegar skýrslur um rannsóknirnar. Áfram grafið á sögustöðum Kristín Huld segir að í ár verði grafið á álíka mörgum stöðum og síðustu ár. Haldið verðið áfram með stóru rannsóknarverkefnin á Hólum, Skálholti, Þingvöllum, Gásum, Skriðuklaustri og Kirkju- bæjarklaustri. Hún sagði að þarna hefðu verið stundaðar mjög áhugaverðar rannsóknir á undan- förnum árum. Reyndar sé það af- staða Fornleifaverndar að það sé óæskilegt að grafa í friðlýstar fornleifar, en fornleifar á þessum þekktu sögustöðum eru friðlýst- ar. Í lögum um Kristnihátíðarsjóð er beinlínis tekið fram að sjóð- urinn eigi „að kosta fornleifarann- sóknir á helstu sögustöðum þjóð- arinnar, m.a. á Þingvöllum, í Skálholti og á Hólum“. Um 700– 800 fornleifar á Íslandi eru frið- lýstar, en talið er að a.mk. 200 þúsund fornleifar séu á Íslandi, en þá er átt við minjar sem eru eldri en 100 ára. Kristnihátíðarsjóður hefur einnig styrkt fornleifarannsókn- ina í Reykholti sem staðið hefur í mörg ár. Uppgröftur þar hófst í byrjun mánaðarins. Í ár verður viðfangsefni rannsóknarinnar gamla kirkjustæðið en í fyrra- sumar voru grafarar komnir nið- ur á mannvistarlög frá 15. öld. Ætlunin er að ljúka við uppgröft kirkjunnar nú í júní. Í ár verður einnig unnið að smærri rannsóknum víða um land. Í sumar verður t.d. grafið í rúst í Þorskafirði sem talið er vera hof eða bænhús. Haldið verði áfram að rannsaka víkingaaldar- skála og fleiri minjar í Vatnsfirði. Sömuleiðis verður haldið áfram rannsókn á minjum um veru Baska í Skálavík á Vestfjörðum. Þá verður grafið í rúst á Högna- stöðum á Flúðum. Könnuð verður gömul verstöð í Skálavík á Langa- nesi. Þá verður kannað hvort rúst á Sólheimum í Landbroti er af landnámsskála. Umsóknir um fleiri rannsóknarleyfi bíða af- greiðslu hjá Fornleifavernd. Á þessum stöðum er fyrst og fremst verið að kanna rústirnar, hugs- anlega með það í huga að fara út í viðameiri uppgröft síðar. Mikið um framkvæmdarannsóknir Fornleifafræðingar eru ekki bara að rannsaka rústir sem þeir sjá og finnst áhugavert að skoða. Þeir eru einnig að rannsaka staði þar sem fyrirhugað er að fara út í framkvæmdir af ýmsu tagi. Krist- ín Huld segir að rannsóknir af þessu tagi séu mjög að aukast. Hún segir þetta endurspegli um- svif í efnahagslífi þjóðarinnar. Dæmi um rannsóknir af þessu tagi eru fornleifarannsóknir í grunni tónlistar- og ráðstefnu- húss í miðbæ Reykvíkur. Einnig hefur verið veitt leyfi til rann- sókna á Stað í Hrútafirði vegna vegaframkvæmda sem þar eru fyrirhugaðar. „Það sem við teljum að beri að leggja áherslu á er svokölluð forn- leifaskráning. Henni hefur aldrei verið lokið á Íslandi. Hún er und- irstaða þess að við vitum hvað er á hverjum stað. Eins hjálpar þetta framkvæmdaaðila. Hann veit þá hvað er í jörðinni. Þetta getur bæði lækkað kostnað við framkvæmdirnar og eins sparað tíma,“ sagði Kristín Huld. Hún sagði þetta viðamikið verkefni og það þyrfti að verja til þess aukn- um fjármunum. Fram að þessu hafa fram- kvæmdaaðilar borgað skráningu þar sem unnið hefur verið að skráningu. Vegagerðin hefur var- ið fjármunum í þessu skyni, en einnig hvílir lagaskylda á sveit- arfélögunum hvað þetta varðar þegar þau eru að láta vinna skipu- lagstillögur. Samkvæmt skýrslu sem Sól- borg Una Pálsdóttir, verkefnis- stjóri skráningarmála hjá Forn- leifavernd ríkisins, vann í vetur er áætlað að aðeins sé búið að skrá um 15% heildarfjölda fornleifa. Fréttaskýring | Fornleifarannsóknir verða stundaðar víða um land í sumar Kristnihátíðar- sjóður tæmdur Stjórnvöld skoða hvernig hægt er að tryggja fjármögnun fornleifarannsókna Frá uppgreftri á Hofstöðum í Mývatnssveit. Svipaður fjöldi fornleifa- rannsókna og verið hefur  Í fyrra gaf Fornleifavernd rík- isins út 41 leyfi til fornleifarann- sókna. Það var svipað og árin þar á undan. Búið er að gefa út 21 leyfi í ár en forstöðumaður Fornleifaverndar reiknar með að gefin verði út álíka mörg leyfi á ár og undanfarin ár. Flest leyfin eru gefin út til einkafyrirtækja sem starfa á þessu sviði, en op- inberir aðilar hafa dregið mikið úr umsvifum á þessu sviði á und- anförnum árum. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is „Á hinn bóginn kom fram einlægur vilji viðstaddra til þess að efla sam- starf Íslendinga, Grænlendinga og Færeyinga á sviði ferðamála,“ segir Halldór og tekur fram að í framsögu Árna Gunnarssonar, framkvæmda- stjóra Flugfélags Íslands, hafi komið fram að það sem helst hái ferðaþjón- ustunni á Grænlandi sé annars vegar að flugbrautir þar séu margar hverjar of stuttar og hins vegar sú staðreynd að sáttmálinn sem nefndur hefur ver- ið Open sky sé ekki í gildi á Græn- landi, en samningurinn heimilar flug- félögum frá hinum ýmsu löndum að fljúga til landanna með sama rétti og innlend flugfélög. „Við teljum að það sé óhjákvæmilegt að opna fyrir frjálst MÁLEFNI vestnorrænna ferðamála og ferðaþjónustu auk samstarfs vest- norrænu landanna í ferðamálum voru til umræðu á árlegri þemaráðstefnu Vestnorræna ráðsins sem haldin var dagana 6.-9. júní sl. í bænum Maniit- soq á Grænlandi. Ráðstefnan var að þessu sinni helguð ferðamálum. „Það má segja að tvennt hafi staðið upp úr á þessari ráðstefnu,“ segir Halldór Blöndal, formaður Íslands- deildar Vestnorræna ráðsins, sem sótti ráðstefnuna fyrir hönd Alþingis ásamt þingmönnunum Önnu Kristínu Gunnarsdóttur, Helga Hjörvar, Magnúsi Stefánssyni, Sigurjóni Þórð- arsyni og Sigurrós Þorgrímsdóttur. „Annars vegar bauð Olav Stavad, formaður Norðurlandaráðs, upp á nánara samstarf Norðurlandaráðs og Vestnorræna ráðsins með því að Grænlendingar og Færeyingar fengju sterkari stöðu innan Norður- landaráðsins en þeir hafa núna. Og við sem erum í stjórn Vestnorræna ráðsins tókum hann auðvitað á orðinu og höfum falið embættismönnum okkar að fylgja þessu eftir með það í huga að Færeyjar og Grænlendingar komi þar sterkar inn og helst með sama rétt og aðrar Norðurlandaþjóð- ir,“ segir Halldór Blöndal. flug milli landa til að hjálpa ferðaþjón- ustunni á Grænlandi að koma undir sig fótunum.“ Að mati Halldórs hefur Grænland upp á afskaplega margt að bjóða á sviði ferðamennsku, m.a. einstaka náttúrufegurð og lifandi tengsl við hina gömlu veiðimenningu. Segir hann allar móttökur hafa verið til mikillar fyrirmyndar og að ráðstefnu- gestum hafi verið boðið að smakka jafnt sel, sauðnautasteik, hákarl, hval og fugl. „Við gistum á hóteli sem stendur niðri við höfnina og það var mjög gaman að fyrsta kvöldið sem við gistum þar þá sáum við hvar hnúfu- bakar léku sér rétt utan við hafnar- garðinn,“ segir Halldór að lokum. Vilji til að efla samstarf landanna í ferðamálum Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Ole Stavad, Halldór Blöndal og Søren Lyberth, borgarstjóri Maniitsoq. TALSVERÐAR hækkanir hafa orðið milli ára á sumarnámskeiðum margra íþróttafélaga, skv. nýrri könnun verð- lagseftirlits Alþýðusambands Íslands (ASÍ). Kannað var verð á sambærilegum námskeiðum íþróttafélaga, á vegum íþrótta- og tómstundaráða og -nefnda sveitarfélaga, skátafélaga, siglinga- klúbba og reiðskóla, auk þess sem gjöld fyrir skólagarða í nokkrum sveitarfélögum voru skoðuð. Kemur fram í frétt á vefsíðu ASÍ að mest var hækkunin á námskeiðs- gjaldi hjá Fimleikafélaginu Björk í Hafnarfirði sem hækkaði um 80% milli ára. Námskeið á vegum sveitar- félaganna hækkuðu mest á Seltjarn- arnesi, eða um 13-14%, og í Reykjavík um 5%. Knattspyrnuskólar fyrir börn frá 5 ára aldri eru víða starfandi og kostar tveggja vikna námskeið hálfan daginn frá 4.500 krónum hjá Leikni í Reykja- vík og Gróttu á Seltjarnarnesi upp í 11.000 krónur hjá Þrótti í Reykjavík. Önnur námskeið íþróttafélaganna eru af ýmsum toga en eiga þó flest sameiginlegt að vera leikjanámskeið með áherslu á íþróttaiðkun. Af þeim námskeiðum sem starf- rækt eru á vegum íþrótta- og tóm- stundaráða og -nefnda sveitarfélaga hefur verð hækkað á námskeiðum á vegum ÍTR í Reykjavík og Íþrótta- og tómstundaráðs Seltjarnarness. Verð á sumarnámskeiðum fyrir börn hefur hækkað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.