Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF HAGSTOFA Íslands birtir í dag verðbólgumælingar júnímánaðar en verðbólga síðustu tólf mánaða mældist 7,6% í maí. Verðbólga án húsnæðis mældist hins vegar 5,4% á sama tímabili. Greiningardeildir bankanna spá 0,7-0,9% hækkun á vísitölu neyslu- verðs milli mánaða sem þýðir að verðbólga síðustu tólf mánuði mun standa í stað reynist hækkunin 0,7% en aukast í 7,8% reynist hækkunin 0,9%. Greining Glitnis segir að enn legg- ist flest á eitt við hækkun verðlags og útlit sé fyrir 0,9% hækkun vísi- tölu neysluverðs. Íbúðaverð hækki enn af krafti þrátt fyrir vaxtahækk- un og aukna verðbólgu og einnig hækki verð innfluttra vara áfram í kjölfar gengislækkunar krónunnar. Þá segir Greining að gangi spá sín eftir sé um að ræða 26. mánuðinn í röð þar sem verðbólgan reynist um- fram verðbólgumarkmið Seðlabank- ans. Gerir Greining ráð fyrir því að verðbólgan ná hámarki í byrjun næsta árs í ríflega 9% en hún muni hins vegar hjaðna hratt á næsta ári og verðbólgumarkmiði Seðlabank- ans verði náð við árslok 2007. Greiningardeild Landsbankans gerir ráð fyrir því að vísitala neyslu- verðs hækki um 0,7% en þá mun tólf mánaða verðbólga haldast óbreytt. Í spánni er helst litið til þess mikla verðbólguþrýstings sem ríkir í land- inu og almennra verðhækkana á vörum og þjónustu. Fasteignaverð hækkar enn Greiningardeild KB banka spáir 0,8% hækkun og telur að hækkun á innfluttum varningi og hækkandi húsnæðisverð leggi mest til hækk- unar á vísitölunni. Segir greining- ardeildin að fasteignaliðurinn verði að þessu sinni drjúgur hluti hækk- unarinnar en fasteignaverð hækkaði um 1,1% í apríl og hefur hækkað um 1,6% að meðaltali síðastliðna þrjá mánuði. Greiningardeild KB banka segir jafnframt að litlar vísbendingar séu um samdrátt á fasteignamarkaði í maí, en 779 kaupsamningum um fasteignir var þinglýst við sýslu- mannsembættin á höfuðborgar- svæðinu í maí samkvæmt upplýsing- um frá Fasteignamati ríkisins. Heildarupphæð veltu nam 22 millj- örðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 28,2 millj- ónir króna. Eru þetta 26,1% fleiri samningar og 29,4% meiri velta en í apríl og 7,4% fleiri samningar og 29,3% meiri velta en í maí í fyrra. Hafa ber þó í huga að í apríl voru óvenju margir frídagar sem gerir samanburð milli mánaða erfiðan. Íbúðalán bankanna hafa samt sem áður dregist saman á milli ára en þau námu tæpum 7,5 milljörðum króna í maí og hafa ekki verið lægri síðan bankarnir tóku að bjóða íbúða- lán í ágúst 2004. Í sama mánuði á síðasta ári námu íbúðalán bankanna 19,1 milljarði króna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum tölum Seðlabankans. Greiningardeild Landsbankans spáir því að fasteignamarkaðurinn muni kólna umtalsvert á næstunni, vegna mikils framboðs nýbygginga og hærri vaxta. Gerir hún ráð fyrir því að hækkun fasteignaverðs á þessu ári nemi 5%, sem feli í sér að fasteignaverð ætti að haldast óbreytt að meðaltali það sem eftir er ársins. Þó útilokar greiningardeildin ekki að fasteignaverð hækki eitt- hvað áfram, en fari svo lækkandi þegar líði á haustið. Frekari verð- hækkanir nú auki því líkur á verð- lækkunum síðar. Hagstofan birtir verðbólgumælingar fyrir júnímánuð í dag Spá 7,6–7,8% verðbólgu Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur sigurhanna@mbl.is Morgunblaðið/ÞÖK LÍFSKJÖR á Íslandi eru með þeim bestu í heiminum en það stafar meðal annars af því hversu opið hagkerfið er, það hefur gert Íslandi kleift að sérhæfa sig á ákveðnum sviðum við- skipta. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu Alþjóðavið- skiptastofnunarinnar (WTO) um ný- lega úttekt stofnunarinnar á íslenskri viðskiptastefnu og greint er frá í Stiklum, vefriti viðskiptastofu. Í síð- ustu viku lauk þriðju endurskoðun stofnunarinnar á viðskiptastefnu Ís- lands en úttektin fer fram á sex ára fresti og er þá fjallað um helstu breyt- ingar sem hafa átt sér stað í viðskipta- umhverfi landsins frá síðustu úttekt. Fram kemur í Stiklum að jákvæð mynd sé dregin upp af íslensku við- skipta- og efnahagslífi. Ísland hafi á tímabilinu aukið fjölbreytni í efna- hagslífi og unnið að þjóðhagslegum breytingum í frjálsræðisátt. Breyt- ingar á viðskiptaumhverfi, meðal ann- ars einkavæðing ríkisfyrirtækja, stuðningur við rannsóknir og þróun og skattalækkanir hafi haft jákvæð áhrif. Þá er Ísland sagt gott dæmi um hvernig lítil efnahagskerfi með til- tölulega fáar auðlindir geti byggt upp þekkingu og nýsköpun og þannig hagnast á þátttöku í hinu fjölþjóðlega efnahagslífi. Lífskjör á Íslandi með þeim bestu í heiminum ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.