Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 29
FRÉTTIR
VIÐ hátíðahöld Sjómannadagsins í
Neskaupstað sem að mestu leyti
fóru fram með hefðbundnum hætti
voru þrír aldraðir sjómenn heiðr-
aðir, þeir Sverrir Guðlaugur Ás-
geirsson, Herbert Benjamínsson og
Axel Óskarsson. Hátíðahöldin fóru
fram í blíðskaparveðri og voru vel
sótt.
Sverrir er lengst til vinstri á
myndinni. Þá kemur Herbert og
lengst til hægri er Axel.
Þrír heiðraðir
í Neskaupstað
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Á RIFI og á Hellissandi fóru sjó-
mannadagshátíðahöldin fram á
hefðbundinn hátt með kappróðri og
fleiri keppnisgreinum í Rifshöfn á
laugardag og svo í Röst á Hellis-
sandi á sunnudag með hátíðaræðu
Inga Dóra Einarssonar, verðlauna-
afhendingum og afhendingu heið-
ursorðu Sjómannadagsins til aldr-
aðs sjómanns. Heiðraður var Sævar
Friðþjófsson skipstjóri og útgerð-
armaður í Rifi.
Sævar hefur stundað sjómennsku
og útgerð frá Rifi frá því að útgerð
hófst þaðan um miðjan sjötta ára-
tug síðustu aldar og jafnan reynst
mjög farsæll í starfi.
Myndin er af Sævari þar sem
hann þakkar fyrir orðuveitinguna.
Við hlið hans er eiginkonan, Helga
Hermannsdóttir.
Sævar heiðraður á Rifi
Morgunblaðið/Hrefna
Við hátíðlega athöfn, í beinu fram-
haldi af Sjómannadagsmessu í
Þorlákskirkju, var gengið út fyrir
þar sem minnisvarði um drukkn-
aða og horfna var vígður.
Barbara Guðnadóttir, menning-
arfulltrúi Ölfuss, greindi frá að-
draganda verkefnisins, en það
voru fjórmenningar úr Ölfusinu,
þau Kristófer Bjarnason, Eyrún
Rannveig Þorláksdóttir, Ásberg
Lárentsínusson og Sigurður
Helgason, sem stóðu fyrir söfnun
fyrir minnisvarðanum og fengu
listamanninn Bjarna Jónsson til að
hanna listaverkið. Verkið lýsir
bátsstefni sem siglir fullum segl-
um fyrir suðvestanvindinum og
stefnir fyrir Lat, stóran stein sem
sjómenn notuðu til að miða við er
hann var á Berginu, sunnan við
bæinn. Latur var fluttur á hverf-
isverndarsvæðið fyrir austan
kirkjuna árið 2004. Þannig var
honum forðað frá því að hverfa í
sjóinn og því getur báturinn stefnt
fyrir Lat.
Listaverkið var smíðað í vél-
smiðjunni Orra í Mosfellsbæ. En
fyrirtæki, einstaklingar, félaga-
samtök, stofnanir og ráðuneyti
hafa ekki látið sitt eftir liggja og
styrkt verkefnið. Fjáröflun stend-
ur þó enn yfir.
Þrátt fyrir talsverða rigningu á
Sjómannadeginum var stilla og
þurrt á meðan minnisvarðinn var
vígður, en það gerði sóknarprestur
Þorlákskirkju, sr. Baldur Krist-
jánsson. Fyrir hönd undirbúnings-
hópsins afhenti menningarfulltrúi
formanni sóknarnefndar minnis-
varðann til varðveislu. Hugmyndin
er að í kjölfarið geti fólk hvaðan-
æva að fengið að festa minning-
arplötur um ástvini sína á hina sæ-
börðu steina við minnisvarðann.
Afhjúpuðu minnismerki
um drukknaða sjómenn
Ljósmynd/Barbara Guðnadóttir
Séra Baldur Kristjánsson vígði minnisvarðann í Þorlákshöfn.
Á ÞESSU sumri er í fyrsta sinn boð-
ið upp á sérstakt sumarhjóna-
námskeið í Hafnarfjarðarkirkju, en
slík námskeið hafa verið haldin þar
undanfarna 10 vetur. Um 7.500
manns hafa sótt námskeiðin frá upp-
hafi. Mikill áhugi er á námskeiðinu
og margir sem hafa haft samband til
að skrá sig.
Á námskeiðunum er fjallað um
samskipti hjóna í víðum skilningi.
En fyrst og fremst er talað um þær
leiðir sem hægt er að fara til að
sleppa út úr hring deilna og átaka í
sambúð og hvernig styrkja má inn-
viði fjölskyldunnar. Námskeiðið fer
fram í formi samtals milli þátttak-
enda og leiðbeinanda, þar sem pörin
eru m.a. látin vinna ýmis verkefni,
hvert fyrir sig. Enginn þarf að tjá
sig á námskeiðinu frekar en hann
vill. Sr. Þórhallur Heimisson, prest-
ur við Hafnarfjarðarkirkju, er leið-
beinandi á hjónanámskeiðunum.
Hjónanámskeið
í Hafnarfjarðar-
kirkju vel sótt
LÖGREGLAN í Bolungarvík hand-
tók eftir ábendingu frá bæjarbúa
tvo unga menn á laugardag þar sem
þeir voru að bera á milli sín stóran
poka fullan af áfengi. Í ljós kom að
þeir höfðu brotist inn í félagsheim-
ilið Víkurbæ og stolið áfenginu það-
an. Mennirnir gistu fangageymslur
en var sleppt eftir yfirheyrslur þar
sem þeir viðurkenndu verknaðinn.
Nokkur erill var hjá lögreglunni í
Bolungarvík um helgina í tengslum
við fjölmennt ball sem haldið var í
Víkurbæ í Bolungarvík. Dyravörð-
ur var fluttur á sjúkrahúsið á Ísa-
firði eftir að hafa verið bitinn illa í
fingur í átökum við ölvaðan gest.
Nokkuð var um slagsmál og aðra
pústra eftir dansleikinn.
Stálu áfengi í
félagsheimilinu
SJÓMANNADAGSRÁÐIÐ á Húsa-
vík hefur jafnan heiðrað sjómenn
fyrir störf sín á sjómannadaginn en
að þessu sinni varð breyting á. Sjó-
mannadagsráð var í fyrsta skipti
eingöngu skipað sjómannskonum og
þótti þeim því tilvalið að heiðra að
þessu sinni sjómannskonur.
Heiðraðar voru tvær konur, Berg-
ljót Sigurðardóttir sem er eiginkona
Sigtryggs Kristjánssonar og Ragn-
heiður Jónasdóttir ekkja Olgeirs
Sigurgeirssonar. Það var Ósk Þor-
kelsdóttir sem sá um orðuveiting-
arnar sem fram fóru í kaffifagnaði
slysavarnadeildar kvenna.
Á myndinni eru sjómannskon-
urnar Bergljót Sigurðardóttir (til
vinstri) og Ragnheiður Jónasdóttir.
Sjómannadagsráð á Húsavík
heiðraði tvær konur í ár
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
SVANBERG Már Pálsson varð um
helgina Íslandsmeistari í skólaskák í
yngri flokki. Ingvar Ásbjörnsson,
Matthías Pétursson og Sverrir Þor-
geirsson þurfa að tefla aukakeppni
um titilinn í eldri flokki.
Svanberg endaði með 10,5 vinn-
inga af 11 mögulegum og var vel að
sigrinum kominn. Hjörvar Steinn
Grétarsson varð annar með 10 vinn-
inga og Jóhanna Björg Jóhannsdótt-
ir lenti í 3 sæti með 8,5 vinninga.
Í eldri flokki sigraði Ingvar Ás-
björnsson Vilhjálm Pálmason í úr-
slitaskák og það þýðir að 3 urðu efst-
ir og jafnir í efsta sæti og verður
aukakeppni um titilinn mjög fljót-
lega. Ingvar Matthías og Sverrir
urðu efstir og jafnir með 9 vinninga
af 11 mögulegum. Vilhjálmur og
Daði Ómarsson urðu svo jafnir í 4.–5.
sæti.
Á myndinni má sjá Íslandsmeist-
arann Svanberg Má tefla við Hjörv-
ar Stein, sem hafnaði í 2. sæti en
Hjörvar var sá eini sem náði að halda
í við Svanberg.
Svanberg
varð
Íslands-
meistari
Á SL. ÁRUM hefur verið stigvax-
andi ferðamannastraumur til
Djúpavogshrepps. Ástæðuna má
rekja til þess að mikið hefur ver-
ið unnið í að bæta þjónustu og af-
þreyingarmöguleika í sveitarfé-
laginu á síðastliðnum árum. Fyrir
tveimur árum var m.a. hafist
handa við að bæta aðstöðu á
tjaldsvæðinu og nú í ár liggur
fyrir áframhald á þeirri vinnu
sem er fólgið í því að stækka
verulega svæði fyrir hús-
bílaeigendur með tilheyrandi
þjónustu.
Tjaldsvæðið á Djúpavogi er sér-
staklega skemmtilega staðsett í
bænum þar sem klettaveggir
girða svæðið af þannig að það er
mjög til hlés þrátt fyrir að það sé
inni í miðju bæjarins. Öll þjónusta
og helsta afþreying á svæðinu er
í mjög góðu göngufæri frá tjald-
svæðinu. Framkvæmdum verður
lokið á næstu vikum, en aðrir
hlutar tjaldsvæðisins eru opnir
gestum þrátt fyrir þessar afmörk-
uðu framkvæmdir á svæðinu.
Unnið að bættu tjaldsvæði
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Ferðamannastraumur til Djúpavogshrepps hefur aukist undanfarin ár.