Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 32
Orð dagsins: Berið sama hug til allra, hreykið yður ekki, en haldið yður að hinum lítilmótlegu. Ætlið yður ekki hyggna með sjálfum yður. (Rómv. 12, 17.) Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn NEI, ÞETTA GENGUR BARA EKKI EKKI? HVAÐ FINNST ÞÉR HELST VERA AÐ? HMMM... ÞAÐ ER EITTHVAÐ VIÐ UMGJÖRÐINA... VARIST HUNDINN ! MIG LANGAR AÐ SÝNA ÞÉR SVOLÍTIÐ! MIG HEFUR ALLTAF LANGAÐ Í SVONA HNÖTT SAMKVÆMT NÝJUSTU RANNSÓKNUM ÞÁ ER JÖRÐIN EKKI KRINGLÓTT! ÉG Á ÞAÐ TIL AÐ GLEYMA ÞVÍ HVERSU HVASS HANN GETUR VERIÐ ÞEGAR HANN LIGGUR SVONA! KONUN- GURINN ER DAUÐUR, LENGI LIFI DROTTNINGIN! HVAÐ KOM FYRIR KONUNGINN? HÚN SETTIST ÓVART Á HANN AUÐVITAÐ GETUM VIÐ PASSAÐ HÚSIÐ. HVERSU MIKIÐ ÖRYGGI MÁ BJÓÐA ÞÉR? VIÐ BJÓÐUM UPP Á BRONS SCOOPY DOO, SILFUR MARMADUKE, GULL MCGRUFF OG PLATINUM LASSIE HVAÐ ER INNI FALIÐ Í PLATINUM LASSIE? VIÐ REDDUM ÞÉR MEIRA AÐ SEGJA EF ÞÚ DETTUR OFAN Í BRUNN ABBY SKILDI ÓHREINA LEIRTAUIÐ EFTIR ÞEGAR HÚN FÓR Í MORGUN ÉG ÆTLA EKKI AÐ VASKA ÞETTA UPP. HÚN GETUR GERT ÞAÐ ÞEGAR HÚN KEMUR HEIM ÞIÐ REYNDUÐ AÐ KEYRA YFIR PETER PARKER, EN... ...ÆTLI ÞIÐ TREYSTIÐ YKKUR TIL AÐ TAKAST Á VIÐ MIG KÓNGULÓAR- MAÐURINN ER Á EFTIR OKKUR! HVAÐAN KOM HANN! Dagbók Í dag er mánudagur 12. júní, 163. dagur ársins 2006 Víkverji veitti þvíathygli á föstu- dagskvöldið að Rík- issjónvarpinu þótti fréttnæmt að tvær konur hefðu kært stöðuveitingar í Há- skóla Íslands eftir að Kristín Ingólfsdóttir varð þar rektor. Vík- verji veltir fyrir sér hvort fréttinni hefði verið stillt upp með sama hætti ef karl- maður væri rektor skólans. Auðvitað skiptir það engu máli hvors kyns rektorinn er; Háskóla Íslands ber að halda jafnréttislög og sína eigin jafnrétt- isáætlun í heiðri. x x x Víkverja þótti Kristín Ingólfs-dóttir hins vegar svara vel fyr- ir sig. Hún sagði í fréttum Sjón- varpsins að ráðningar hefðu ekkert með kynferði rektors að gera, heldur hæfileika og hæfni umsækjenda, m.a. menntun, reynslu af rannsóknum og kennslu, færni í mannlegum sam- skiptum o.s.frv. Þegar allir þessir þættir hefðu verið vegnir og metn- ir, væri tekin ákvörðun: „Við mun- um í hvert sinn, samt sem áður, verða að meta heildarhæfi ein- staklinga. Við getum ekki ráðið eingöngu eftir kynferði.“ x x x Þetta finnst Vík-verja vera hin rétta afstaða. Það má ekki slá af akadem- ískum kröfum Há- skólans í þágu jafn- réttissjónarmiða. Kynferði má aldrei verða til þess að sá hæfasti sé ekki ráð- inn til starfans. Vík- verji vonar að Há- skóli Íslands lendi ekki í sömu ógöngum og t.d. sumir bandarískir háskólar, sem hafa beinlínis slegið af kröfum til að jafna kynjahlutföll og auka hlut minnihlutahópa. Þar er byrjað á röngum enda. x x x Vinsælt happdrætti auglýsir í út-varpinu að Víkverji og aðrir landsmenn eigi að keypa sér miða í von um vinning. A.m.k. segir í út- varpsauglýsingu „keyptu þér miða“. Víkverji neitar að keypa neitt. Hann vill kaupa það og finnst að happdrættið eigi að leið- rétta auglýsinguna sína og segja „kauptu þér miða“. Víkverji situr fast við sinn keip í þessu efni. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is       Veður | Þessir ferðamenn nutu veðurblíðunnar við Tjörnina í Reykjavík á fimmtudaginn. Heldur þungbúið var hins vegar á höfuðborgarsvæðinu um helgina og samkvæmt veðurspá er ekki útlit fyrir mikið bjartviðri næstu daga. Morgunblaðið/Eyþór Veðurblíða við Tjörnina MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.