Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN HEILINN er stjórnstöð lík- amans og stýrir m.a. hugsun, hegðun og tilfinningum. Þegar þessi starfsemi truflast af ein- hverjum völdum þá getur viðkom- andi setið uppi með varanlegan heilaskaða. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að heila- skaði getur átt sér stað á öllum æviskeiðum. Börn fá líka heila- skaða! Einkenni heilaskaða Algengasta orsök heilaskaða hjá ungum börnum eru föll og svo um- ferðarslys þar sem þau eru far- þegar í bíl eða hjólreiðaslys. Ann- að sem orsakað getur heilaskaða hjá börnum eru ýmsir sjúkdómar eins og t.d. heilahimnubólga og al- varleg flogaveiki. Í kjölfar áverka er rétt að fylgjast nánar með barninu ef um truflun á meðvitund í styttri eða lengri tíma er að ræða eða ef önnur einkenni um truflun á starfsemi taugakerfis koma í ljós eins og ruglástand. Fyrstu viðbrögð foreldra þegar barn verður fyrir slysi eða alvar- legum veikindum er yfirleitt áfall vegna líkamlegra einkenna, en fólk gerir sér ekki alltaf grein fyr- ir því í bráðafasanum hvað hefur í rauninni gerst. Þá er gleðin yfir því að viðkomandi er á lífi einnig oft mest áberandi og stundum kemur heilaskaði hjá börnum ekki í ljós strax heldur seinna á æviskeiðinu þegar kröfur sem gerðar eru til barnsins aukast. Ef barn verður fyrir ofan- greindum áföllum og í kjölfar kemur fram varanlega breytt hegðun þá er nauð- synlegt að athuga hvort um heilaskaða sé að ræða. Hvernig er heilaskaði hjá börnum frábrugðinn skaða hjá fullorðnum? Að fá áunninn heilaskaða er frá- brugðið því að fæðast með aðra fötlun. Aðstandendur barna með heilaskaða hafa upplifað eðlilegan þroskaferil hjá barninu fram að skaðanum en eftir hann verður breyting á hugrænni getu og hugsanlega persónuleika viðkom- andi, auk þess sem stundum fylgja önnur líkamleg einkenni. Heila- skaði getur haft nokkuð önnur áhrif á börn en fullorðna. Ein að- alástæða þess er að heili barns er enn að þroskast og skaði getur því breytt þroskaferlinu. Áður var gjarnan talið að ungur aldur við skaða væri kostur þar sem heilinn gæti þá aðlagast heilaskemmd- unum og afleiðingar þannig horfið. Því miður virðist þetta ekki vera rétt nema að takmörkuðu leyti. Heilaskaði skerðir yfirleitt getuna til að bæta við sig þekkingu og því hætt við að börn sem verða fyrir heilaskaða nái ekki að þroskast eins og önnur börn. Fullorðinn einstaklingur sem verður fyrir heilaskaða býr að fyrri reynslu og þekkingu, en barn sem verður fyr- ir heilaskaða áður en það hefur öðlast ýmsa grunnþekkingu og fé- lagslegan þroska er hins vegar verr statt. Ýmis flókin sálfélagsleg atriði koma seint í þroskaferlinu og ekki óalgengt að einstaklingar séu að þroska þennan hæfileika og ná leikni í honum um og eftir ung- lingsárin. Þá sem verða fyrir heilaskaða áður en þeir taka út þennan þroska vantar því ýmis gildismöt sem fullorðnir hafa. Skert námsgeta barna með heilaskaða Barn með heilaskaða þarf yf- irleitt að hafa mikið fyrir náminu og sérstaklega þegar skólaganga krefst orðið meiri hugsunar og þroska samhliða öðrum vaxandi kröfum. Ef barn er með heila- skaða þá þurfa umönnunaraðilar að vera meðvitaðir um slíkt því meðferð við heilaskaða er ekki alltaf sú sama og meðferð við sér- tækum námserfiðleikum vegna t.d. þroskafrávika. Ef barn fær ekki markvissa meðferð vegna heila- skaða er hætta á að barnið verði út undan í menntakerfinu og það fyllist óöryggi og vanmáttarkennd, því umhverfið og hinn heilaskaðaði hafa ekki vitneskju um og því síð- ur skilning á hvert eðli vanda- málsins er í rauninni. Þannig get- ur barn með vangreindan heilaskaða farið á mis við að hljóta uppeldi og menntun sem er í sam- ræmi við getu þess. Hvað á að gera? Þegar barn fær heilaskaða er mikilvægt að stuðningur sé til staðar í þjóðfélaginu, bæði fyrir börnin og ekki síður foreldrana sem bera oft þunga byrði. For- eldrar þurfa að fá persónulega að- stoð og stuðning og oft gagnast að kynnast öðrum í svipuðum að- stæðum. Ef börn eða unglingar fá heila- skaða eru þrír þættir mikilvæg- astir. Sá fyrsti að greina vanda- málið, en það er forsenda réttrar meðferðar. Í öðru lagi þarf að setja markmið þar sem tekin eru mið af veikleikum og styrkleikum viðkomandi, samfara því sem tekið er mið af námsskrá ef barn er í námi. Í þriðja lagi þarf að upplýsa og aðlaga umhverfið eins og hægt er að þörfum barns með heila- skaða, þ.e.a.s. aðstandendur, þjón- ustukerfin og menntastofnanir. Hafa ber í huga að meðferð við heilaskaða er oft fólgin í því að breyta umhverfisþáttum en ekki eingöngu einstaklingum sjálfum. Einnig þarf fagfólk með þekkingu á heilaskaða að fylgja þessum börnum eftir því umhverfi barna er síbreytilegt og ýmis atriði geta verið frábrugðin þeim sem tíðkast varðandi börn með náms- og hegð- unarvandamál. Mikilvægt er að hjálpa börnum með heilaskaða. Til að svo megi verða þurfa allir að leggjast á eitt við að greina vandamálin réttilega frá upphafi og veita svo sérhæfða og persónubundna meðferð. Börn fá líka heilaskaða! Ólöf H. Bjarnadóttir og Smári Pálsson fjalla um heilaskaða hjá börnum ’Hafa ber í huga að með-ferð við heilaskaða er oft fólgin í því að breyta um- hverfisþáttum en ekki eingöngu einstaklingum sjálfum.‘ Smári Pálsson Höfundar eru læknir og sálfræðingur við taugasvið Reykjalundar. Ólöf H. Bjarnadóttir ÞRÁTT fyrir að ýmislegt hafi verið gert til að viðhalda hreinu ís- lenku máli virðist sem margt hafi farið úrskeiðis upp á síðkastið. Mál- farsráðunautar voru starfandi við Ríkisútvarpið um tíma er hafa nú horfið af sviðinu, eða það heyr- ist ekki til þeirra leng- ur, hvað svo sem veld- ur? Mjög algengt er nú að menn séu að troða aukalega ennum inn í fleirtöluorð og er svo komið að margir hafa það á tilfinningunni að þetta innskot sé nauð- synlegt til skilnings á því að þetta sé fleir- tala. Hér koma nokk- ur dæmi um slíka mis- notkun: N-villan: Á Alþingi er skýrt frá því að mönn- um verði gert skylt að tilkynna fyrirfram um starfsemi „starfs- mannaleignanna“. Fjölgun „hryssnanna“ er nauðsynleg til að mæta auknum útflutn- ingi á hrossum. Vegna fjölgunar „byssnanna“ er nauðsyn- legt að takmarka aðgengi „rjúpna- skyttnanna“ að veiðilöndunum. Fjöldi „tillagnanna“ á Alþingi eykst stöðugt. Mikið úrval „hljómplatna“ er í verzlunum nú og „platnaspil- arar“ kynna þær. Prestar eru um- sjónarmenn „kirknanna“. Notkun „jarðsprengna“ er aukið vandamál. Minnkandi fjöldi „kvígnanna“ sýnir að stofninn er ekki sjálfbær. Mikill fjöldi „launagreiðslna“ við- gengst. Morgunblaðið og Ríkisútvarpið eru orðnir helzti vett- vangur n-villunnar. Villan sést oftast auð- veldlega þegar ákveðnum greini er bætt við orðið. Aukið latmæli: „Reygvígingar“ geta ekki lengur borið eðli- lega fram bókstafina k eða t og vilja láta „Ag- ureyringum“ og „Agranesingum“ eftir að breyta þeirra fram- burði. Kaupið jólagjaf- irnar í „Dódabúðinni“. Ný hljóðvilla rís. Nú kunna menn ekki leng- ur að bera fram ís- lenzkt opið ö en fram- burðurinn verður líkari dönsku sem u. Sagt er nú „stuðug“ þróun. „Huvuðstuðvar“ félagsins eru í Reygjavíg. „Urork“ fæst ekki bætt hjá TR. „Sumu“ reglur gilda utan „Bandarígjanna“. Íslenzk málstöð. Þessarri stofnun hefir tekist að loka nokkra mál- fræðinga inni þannig að enginn sinnir nú lengur töluðu máli eða framburði þess svo sem að ofan greinir. Í stað þess dunda þessir menn sér við að semja orðabækur um ritað mál, sem enginn les og kemur þannig að engu gagni fyrir talmálið. Er ekki kominn tími til að athuga hvort menntakerfið sé á réttri leið með framburð á íslenzku máli? Nútíma íslenzka er „umurleg“ Ønundur Ásgeirsson fjallar um íslenskt mál ’Er ekki kom-inn tími til að athuga hvort menntakerfið sé á réttri leið með framburð á ís- lenzku máli?‘ Ønundur Ásgeirsson Höfundur er fyrrverandi forstjóri OLÍS. MARGT er skrafað og margt er spurt, en hvert er gagnið ef við fáum ekki réttu svörin? Í fugla- flensu, tannkremi, matvöru og miklu fleiru, liggur stórkostleg áhætta fyrir manneskjuna í dag. Líf og heilsa almennings virðist ekki skipta miklu máli þegar hags- munir þjóða og eða stundargróði einstaklinga eru ann- ars vegar. Framfarir og alls kyns grufl er stundum til góðs, en hafa oftar leitt yfir þjóðirnar meiri ógæfu en gæfu. Fikt vísindamanna við að finna upp veirur fyrir hermálayfirvöld sem notaðar skyldu í stríði til að drepa fólk, hafa á öllum tímum leitt mikla ógæfu yfir heimsbyggðina. Skemmst er að minn- ast HIV (Alnæmi) veirunnar sem ,,uppgötvuð“ var 1981 og drepur um 8.000 manneskjur á dag. En HIV veiran varð til á rannsókn- arstofum að undirlagi Bandaríkja- stjórnar árið 1971 og hlaut heitið LAV (,,Lymphadenopathy Associa- ted Virus“.) Skömmu síðar kölluð HTLV-111 eða HIV (,,Human T- Cell Leukemia Virus, third spe- cies“). Það má víst segja að hún hafi orðið til fyrr, vegna þess að ís- lenskur læknir kom við sögu 1946 með því að uppgötva annan að- alfaktorinn í AIDS (the retrovírus). Tilraunir þurfti að gera og þótti viturlegt að gera þær á einangr- aðri eyju. Þessi íslenski læknir gerði Ísland að tilraunastað og voru tilraunirnar gerðar á Ak- ureyri 1946. Leyndardómsfullur sjúkdómur braust út. Þau 1.116 skólabörn og ungmenni sem notuð voru í tilraunina veiktust alvar- legra af ýmsum sjúkdómum, þar á meðal fengu fimm Parkinson og dóu. Var þetta ekki Akureyr- arveikin svokallaða? Hvernig er t.d. Parkinson-sjúkdómurinn til- kominn? Finna átti upp efnavopn sem virkaði fljótt og vel og lamaði mótstöðuafl óvinarins. Það hefur aldrei verið upplýst hvað var þarna að gerast fyrr en nú. Ekki var nú minna stórslysið þegar ,,snillingur“ fann upp úr járnúrgangi, eitrið Flúor. Flúor var svo stórkostleg uppgötvun vegna þess að það drap bakteríur, en þess var ekki getið að það gæti líka drepið fólk. Síðan var þessu dælt í drykkjarvatn margra landa og fólkið hrundi niður eins og flug- ur. ,,Blöndun“ flúors í drykkjar- vatn eru stærstu læknisfræðilegu mistök sem gerð hafa verið í heiminum, var sagt á læknaþingi í Ósló 1978. Hvað skyldi flúor vera búið að valda dauða margra milljóna manna í gegnum árin og hvað ætli það sé búið að afvegaleiða líkamsstarfsemi margra? Það er eins og ein- hver sagði: ,,Það verð- ur ekki loftsteinn sem tortímir manneskjunni á jörðinni, heldur heimska okkar sjálfra.“ Ýmsir hafa brosað að mér og mínum kenningum í gegnum tíðina og hugsað, auminginn, hann á bara verulega bágt. En í dag trúi ég að flest brosin séu fallin og að fólk sé að átta sig á alvöru málsins. Það sem ég og margir fleiri hafa verið að vara við í gegnum tíðina er nefnilega illþyrmilega komið fram. Vitneskjan um hvernig færi ef við ekki spyrntum við fótum droppaði ekki upp í gær, hún hefur verið til staðar lengi. Rannsóknir sýna t.d. að börnin okkar í dag eru eitraðri en við sjálf. Rannsóknir sýna að blýmagn í beinum okkar sem lifum í dag er t.d. 1.000 sinn- um meira en í kynslóðinni á undan okkur. Eiturefni, hættuleg heilsu okkar mannanna, virðast streyma óhikað inn á markaðinn í hinum ýmsu formum og eru matvæli þar ekki undanþegin. Ég býst t.d. við, að ef hvítur sykur væri að koma fram í dag, þá er líklega óhugsandi að hann fengist samþykktur á mark- aðinn, vegna þess hve hættulegur hann er heilsu manna. En það er stór biti að taka sykur af markaði og segja sumir að þá myndi hag- kerfi heimsins hrynja og því verð- ur að halda honum inni, þrátt fyrir að hann skaði heilsu manna. Pen- ingar virðast því vera æðri heilsu manneskjunnar. En getum við eitthvað gert? Já. Víða um heim er sem betur fer hugsandi fólk sem þorir, bæði læknar og leikir, sem spyrja þessa dagana hvort mennirnir séu und- irbúnir undir fuglaflensu og hvort upplýsingar gangi til fólks um hvað hægt sé að gera til að verjast. Inflúensan sem einangruð var í Kína er blóðsjúkdómur er veldur fljótt dauða helmings þeirra er sýkjast, vegna þess að veiran eyðir öllu ascorbate (C-vítamíni) úr lík- amanum, veldur þar með skyrbjúg, slagæðar missa sveigjanleika, blæðingar verða innvortis m.a. í lungum. Jonathan Campbell, heilsuráð- gjafi hjá Natural Therspies for Chronic Illness & Health Mainten- ance, segir fæsta hafa nóg C- vítamín í líkamanum vegna þeirra lágu marka sem yfirvöld setja 60– 90 mg en hann segir það magn rétt halda skyrbjúg í skefjum og því séu fáir undir það búnir að fá fuglaflensuna. Hann segir t.d. rótina að ófyrirséðum barna og ungbarnadauða um heim allan or- sakast af skorti á C-vítamíni. (Sud- den Infant Death Syndrome – SIDS.) Hann segir bestu leiðina til að verja sig og fjölskylduna fyrir inflúensunni vera, að byggja upp mótstöðuafl líkamans og það verði best gert með stórum skömmtum af C-vítamíni. Byrja með 1000 mg með hverri máltíð og halda sig svo við 2–4000 mg. Fullvíst er talið að C-vítamín geti komið í veg fyrir flesta sjúkdóma manneskjunnar. Eituráhrif af vítamínum eru hvergi þekkt í heiminum. Skoðið þessa síðu: http://www.cqs.com/influ- enza.htm Fuglaflensa og fleira Aðalsteinn Bergdal fjallar um heilsufar og læknavísindi ’Það verður ekkiloftsteinn sem tortímir manneskjunni á jörðunni, heldur heimska okkar sjálfra.‘ Aðalsteinn Bergdal Höfundur er leikari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.