Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HÁTÍÐARHÖLDIN á sjómanna- deginum á Akureyri voru með óvenjulegu sniði í ár, en segja má að þau hafi farið fram í skugga hins hörmulega atburðar er tveir menn úr áhöfn Akureyrinnar EA-110 létust þegar eldur kom upp í skipinu fyrir skömmu. Enginn opinber sjómannadansleik- ur var að þessu sinni haldinn og er það í fyrsta sinn um áratugaskeið sem slík skemmtun er ekki haldin í tengslum við sjómannadaginn. Ekki var heldur efnt til kappróðurs og reip- togs, sem jafnan hafa verið fastir liðir í dagskrá sjómannadagsins. Sjómannamessur voru í gærmorg- un haldnar bæði í Akureyrarkirkju og Glerárkirkju, og að þeim loknum var lagður blómsveigur að minnisvarða um týnda og látna sjómenn, en minn- isvarðinn stendur við Glerárkirkju. Áhöfnin á Kaldbaki EA-1 gefur blóm- sveiginn. Minningarathöfn og fjölskylduhá- tíð var haldin síðdegis á hafnarsvæð- inu. Þar stýrði séra Arnaldur Bárð- arson bænastund þar sem beðið var fyrir skipverjunum sem fórust í elds- voðanum á Akureyrinni EA. Sjó- mannafélag Eyjafjarðar heiðraði við það tækifæri áhöfn Akureyrarinnar fyrir hetjulega framgöngu þegar eld- urinn kom upp. Áhöfnin var reyndar ekki viðstödd en fær heiðursmerki frá félaginu afhent síðar. Að því loknu var stutt fjölskyldu- skemmtun, á hófstilltum nótum, þar sem kappróðrarbátar Sjómannadags- ráðs voru til sýnis á hátíðarsvæðinu, fólki var boðið upp á siglingu með Húna II og félagar í Björgunarsveit- inni Súlum sýndu björgun á manni úr sjó með hjálp svonefnds slöngubáts. Ljósmynd/Kristján Húni II á Pollinum og félagar í Björgunarsveitinni Súlum á slöngubátnum. Heiðruðu áhöfn Akureyrinnar Hátíðahöld á Sjómannadaginn í skugga slyssins hörmulega á dögunum SJÓMANNADAGURINN var hald- inn hátíðlegur í gær og að venju sótti fjöldi fólks skipulagðar hátíðir sem fram fóru í sjávarplássum landsins. Dagurinn var nú haldinn hátíðlegur í 69. skipti. Frá árinu 1999 hefur sjó- mannadagurinn í Reykjavík verið haldinn samhliða svokölluðum Hafnardegi undir heitinu Hátíð hafsins. Þrátt fyrir rigningu var fjölmennt við Reykjavíkurhöfn þar sem margt var á boðstólum fyrir alla fjölskylduna og gátu flestir fundið eitthvað við sitt hæfi. Margir höfðu tekið regnhlífina með sér en aðrir létu sér nægja dagblað, eins og sjá má á af meðfylgjandi mynd. Morgunblaðið/Jim Smart Fjölmenni í Reykjavík þrátt fyrir rigningu Mikið var um dýrðir þegar sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur víða um land í gær EINAR K. Guðfinnsson, sjávarút- vegsráðherra, gerði stöðu þorsk- stofnsins að umtalsefni í ávarpi sínu við hátíðarhöld í tilefni sjómanna- dagsins í Reykjavík í gær. Hann sagði hvorki ganga né reka í uppbyggingu þorsksins og að móta yrði uppbygg- ingarstefnu til lengri tíma varðandi þorskstofninn. Slíkt myndi að öllum líkindum kalla á tímabundnar fórnir. „Nýleg veiðiráðgjöf sem okkur var kunngerð um síðustu helgi segir í raun að okkur miði ekkert hvað þorskinn áhrærir. Það getum við ekki búið við. Í rauninni eigum við ekki nema einn kost; sem er sá að skapa þær forsendur að við sjáum uppbygg- ingu helsta nytjastofns okkar á næstu árum. [...] Þau úrræði sem helst hefur verið bent á, leiða til minnkandi veiði á einhverjum sviðum sem mun hafa neikvæð áhrif á tekjumyndun sjávar- útvegsins til skemmri tíma. Slíkt er þá aðeins réttlætanlegt að við teljum að það færi okkur árangur sé litið til lengri tíma. Þetta er okkar stóra verkefni á komandi tímum,“ sagði Einar. Einar fjallaði jafnframt um samspil alþjóðavæðingarinnar og íslensks sjávarútvegs og sagði forsendu þess að hann dafnaði hér væri markaðs- aðgangurinn erlendis. „Ákvörðun úti í heimi hefur áhrif á okkur og ákvarðanir okkar geta jafn- vel haft áhrif langt út fyrir landsins steina. Þær ákvarðanir sem við tök- um og máli skipta verðum við að íhuga nú, betur en nokkru sinni fyrr með hliðsjón af þessu. Þetta á ótví- rætt við þegar við ákveðum heildar- aflamark okkar. til okkar er litið utan Sjómenn eru ánægðir og stoltir af starfi sínu Morgunblaðið/ Jim Smart Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra sagði meðal annars í ræðu sinni að uppbygging þorskstofnsins kallaði á tímabundnar fórnir. úr heimi sem mikils fyrirmyndar- lands að flestu leyti í sjávarútvegi. Menn lofa ábyrga auðlindanýtingu Ís- lendinga, þekkja tækniframfarir í sjávarútveginum og gapa í forundran yfir afköstum íslenskra sjómanna. Af- urðirnar sem við framleiðum njóta álits fyrir vöruvöndun og fyrir að vera unnar úr sjálfbærum fiskistofnum. Þessi velvilji og góði orðstýr á snaran þátt í því að fiskafurðir okkar eru svo eftirsóttar sem raun ber vitni.“ 85 af hundraði ánægðir í starfi Einar greindi einnig frá niðurstöð- um skoðanakönnunar sem gerð var meðal sjómanna en þar kom í ljós að um 85 af hundraði sögðust bæði ánægðir og stoltir af starfi sínu. Þá kom einnig fram að meira en tveir af hverjum þremur hyggjast vera til sjós næstu tvö til fimm ár eða þaðan af lengur. „Svona afdráttarlausa afstöðu taka menn ekki nema vera vissir í sinni sök. Það er gott að vera sjómaður að þeirra eigin mati og þeir eru bæði ánægðir og stoltir af starfi sínu. Þetta eru góð tíð- indi sem ég tel að skipti miklu máli. Fyrst og fremst vitaskuld fyrir sjó- mennina sjálfa og fjölskyldur þeirra, en einnig fyrir þjóð okkar í heild, vegna þeirrar þýðingarmiklu stöðu sem sjó- menn gegna í þjóðfélagi okkar.“ ÁRLEGUR Esjudagur sem haldinn er af Ferðafélagi Íslands og Sparisjóði Reykja- víkur og nágrennis fór fram í gær. Var af því tilefni haldið kapphlaup upp á Esjuna auk þess sem haldin var fjölskylduhátíð við Mógilsá. Í tilefni dagsins komu aðstand- endur hátíðarinnar fyrir nýjum skiltum í Esjunni, hönnuðum af Árna Tryggvasyni, þar sem upplýsingar er að finna fyrir göngufólk. Á fjölskylduhátíðinni var margt í boði fyrir börn og fullorðna. Meðal þeirra sem þar komu fram voru Benedikt búálfur, trúðurinn Moli og ýmsir flytjendur úr Idol- stjörnuleitinni. Krakkar gátu þar einnig skemmt sér í hoppukastala. Nýlega var svokallaður Esjuklúbbur stofnaður af sömu aðilum og standa fyrir Esjudeginum. Markmið félagsskaparins er að hvetja borgarbúa til að fara í göngu- ferðir á Esjuna og stunda útiveru, hreyf- ingu og heilbrigða lífshætti. Jafnframt mun klúbburinn beita sér fyrir uppbyggingu gönguleiða og aðstöðu fyrir göngumenn á Esjunni. Öllum þeim sem skrá nafn sitt og netfang í gestabók Ferðafélags Íslands á Þverfellshorni er boðin þátttaka í Esju- klúbbnum. Fjölskylduhátíð Sparisjóðsins og Ferðafélags Íslands haldin við Esjurætur í níunda sinn Morgunblaðið/Jim Smart

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.