Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 44
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
MAGNI Ásgeirsson, söngvari
hljómsveitarinnar Á móti sól, komst
í gær í átján manna hóp söngvara
sem keppast um 15 laus sæti í nýrri
syrpu raunveruleikaþáttarins Rock
Star. Fjórir Íslendingar voru á
meðal 35 efstu söngvaranna;
Magni, Hreimur Örn Heimisson,
Kristófer Jensson og Heiða Idol-
stjarna.
Hinn 20. júní fara síðustu áheyrn-
arprufurnar fram og þá munu þrír
til viðbótar detta út. Þeir fimmtán
sem þá standa eftir komast í þátt-
inn, en sigurvegarinn verður að-
alsöngvari hinnar nýstofnuðu
hljómsveitar Supernova, sem er
skipuð meðlimum hljómsveitanna
Motley Crüe, Metallica og Guns
N’Roses. Sigurvegarinn mun svo
ásamt öðrum meðlimum Supernova
fara í hljóðver og taka upp plötu.
Að því loknu verður lagst í heims-
reisu. | 39
Magni næstum kominn
í Rock Star: Supernova
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar
KRISTÍN Ingólfsdóttir, rektor HÍ, og Jeff-
rey D. Sachs, forstöðumaður Jarðarstofn-
unar Kolumbíuháskólans í New York,
undirrita viljayfirlýs-
ingu um samstarf á
þriðjudaginn. Athöfnin
er hluti alþjóðlegs sam-
ráðsþings Jarðarstofn-
unarinnar um loftslags-
breytingar, sem fer
fram í Reykjavík.
Að sögn Kristínar
hafa einstakir kennarar
stofnananna verið í
samstarfi undanfarið en viljayfirlýsingin
muni færa samvinnuna á formlega braut.
Samstarfið felst í rannsóknum á sviði
loftslagsbreytinga, nýtingu endurnýj-
anlegrar orku og sjálfbærrar þróunar.
Það veiti stúdenta- og kennaraskiptum
milli stofnananna einnig farveg.
Vikuritið Time hefur útnefnt Jeffrey
Sachs sem einn af 100 áhrifamestu mönn-
um heims. Hann er þekktur ráðgjafi um
efnahagslegar umbætur og fyrir baráttu
sína fyrir því að draga úr fátækt, stöðva
útbreiðslu sjúkdóma og takast á við lofts-
lagsbreytingar. | 4
Samstarf við
Jarðarstofnun
Kolumbíu-
háskóla
Jeffrey D. Sachs
HALLDÓR Bragason blúsgítarleikari,
eða Dóri í Vinum Dóra, spilaði á laug-
ardagskvöld með hljómsveit bláma-
söngkonunnar Zoru
Young á blúshátíðinni í
Chicago en um 750 þús-
und manns sækja hátíð-
ina á ári hverju og er
laugardagskvöldið jafn-
an hápunktur hennar.
„Upplifunin var alveg
æðisleg og mjög öðru-
vísi,“ sagði Halldór þeg-
ar Morgunblaðið náði tali af honum í gær.
„Þetta var rosalega skemmtileg lífs-
reynsla og mikill heiður að vera kynntur
þarna frá Íslandi yfir allan hópinn. Zora
kynnti mig sérstaklega sem vin frá Ís-
landi, sagði að ég væri góð landkynning
og þjóðinni til sóma,“ sagði Halldór.
„Hún steig á svið með okkur hún Koko
Taylor, blúsdrottningin hér í Chicago, en
hún er 78 ára gömul. Hún sat í vængnum
við sviðið og Zora tók í höndina á henni og
dró hana fram á sviðið við mikil fagn-
aðarlæti áhorfenda. Hún söng svo Wang
Dang Doodle með okkur,“ segir Halldór
og skýtur á að um 100.000 manns hafi ver-
ið á tónleikasvæðinu þegar hann stóð á
sviðinu.
Spilaði fyrir
100.000 manns
á blúshátíðinni
í Chicago
Halldór Bragason
SJÓMANNADAGURINN var
haldinn hátíðlegur í gær og þrátt
fyrir votviðri fjölmennti fólk á há-
tíðir í sjávarplássum landsins. Í
Reykjavík var Sjómannadagurinn
haldinn hátíðlegur samhliða Há-
tíð hafsins líkt Sog síðustu ár en
þar var margt um manninn. Gest-
ir og gangandi létu rigninguna
ekki draga úr sér þrótt heldur
brugðu fyrir sig regnhlífum og
stóðu vaktina – að sjómanna sið.
Morgunblaðið/ Jim Smart
Fagnað með sjómönnum í votviðri
GEIR H. Haarde, tilvonandi for-
sætisráðherra, mun áfram hafa
forystu í viðræðum Íslendinga við
Bandaríkjamenn um varnarmál
þó að hann hverfi nú úr utanrík-
isráðuneytinu. Valgerður Sverris-
dóttir, verðandi utanríkisráðherra,
greindi frá þessu í gær.
Valgerður segist hafa óskað eft-
ir því við Geir að hann haldi á
þeim málum með formlegum
hætti þótt hann færi sig um set.
Segist hún vonast til þess að með
þessari skipan mála náist mikil-
væg samfella í varnarviðræðunum
við Bandaríkjamenn.
Valgerður ekki í framboð
Innt eftir því hvort hún hyggist
gefa kost á sér sem formaður
Framsóknarflokksins á flokks-
þinginu í ágúst svarar Valgerður
því neitandi og tekur fram að hún
ætli heldur ekki að sækjast eftir
neinu öðru embætti í flokksfor-
ystu Framsóknarflokksins á kom-
andi flokksþingi. Segist hún vilja
beina kröftum sínum annars veg-
ar að starfinu sem utanríkisráð-
herra og hins vegar í það að sinna
eigin kjördæmi, en Valgerður er
fyrsti þingmaður norðausturkjör-
dæmis.
Jón Sigurðsson seðlabanka-
stjóri, sem taka mun við embætti
viðskipta- og iðnaðarráðherra af
Valgerði, útilokar hins vegar ekki
að hann bjóði sig fram til forystu-
starfa fyrir Framsóknarflokkinn á
flokksþingi í ágúst. „Ég vinn öll
þau verk sem mér verða falin –
það er skylda mín,“ segir hann.
Geir áfram með varnarmálin
Miðopna
♦♦♦
FIMM starfsmönnum mötuneytis
flughersins á varnarstöðinni í
Keflavík var fyrir helgi tjáð af yf-
irmanni að þeir skyldu fluttir og
gerðir að starfsmönnum mötu-
neytis sjóhersins, sem staðsett er
annars staðar á herstöðinni.
Óánægja ríkir meðal þeirra vegna
þessa.
Áform eru um að loka mötu-
neyti flughersins, enda Banda-
ríkjaher á förum frá Íslandi, og
vill varnarliðið nýta starfsfólkið til
vinnu í mötuneyti sjóhersins á
meðan uppsagnarfrestur þess líð-
ur. Rekstraraðili beggja þessara
mötuneyta er varnarliðið. Starfs-
mennirnir eru hins vegar óánægð-
ir með þessa ráðstöfun og vilja
aðeins vinna á sínum gamla
vinnustað. Í ráðningarsamningi
þeirra er ekki gert ráð fyrir að
tilflutningur sem þessi sé mögu-
legur.
„Yfirmennirnir hafa sagt það
berum orðum að þeir vilji flytja
þær milli deilda og það er engan
veginn ásættanlegt,“ segir Krist-
ján Gunnarsson, formaður verka-
lýðs- og sjómannafélags Keflavík-
ur og nágrennis.
Þarf ekki að vinna út
ráðningarsamninginn
Spurður um ástæðu flutning-
anna segir Kristján að varnarliðið
vilji fá sem mesta nýtingu út úr
starfskröftum sínum og það sé
ekki nægilega mikið að gera í
mötuneyti flughersins vegna
breyttra aðstæðna. „Þeir eru bún-
ir að loka búllunni þarna,“ segir
Kristján.
Kristján segir það skýran rétt
starfsfólksins að fá að vinna sam-
kvæmt samningi sínum. Vilji
varnarliðið segja því upp hafi það
rétt á þriggja mánaða uppsagn-
arfresti og þurfi ekki að vinna út
ráðningarsamninginn á öðrum
vinnustað.
Starfsfólk
mötuneytis
flughersins
óánægt