Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 33 DAGBÓK Sýning og málþing um Spánverjavígin1615 verða haldin í Dalbæ á Snæ-fjallaströnd dagana 24. og 25. júní.Dagskráin er samstarfsverkefni Snjá- fjallaseturs, verkefnisins Vestfirðir á miðöld- um, Strandagaldurs, Náttúrustofu Vestfjarða og fleiri. Ólafur Engilbertsson er framkvæmdastjóri Snjáfjallaseturs: „Dagskráin er í tilefni af ný- legum fundi minja um hvalveiðistöðvar Spán- verja á Ströndum. Verða niðurstöður rann- sókna um fornleifarnar kynntar og fjallað um samskipi Baska og Íslendinga fyrr á tímum,“ segir Ólafur. „Samskipti Íslendinga við baskneska fiski- og kaupmenn voru margslungin og víðtækari en áður hefur verið talið. Milli þessara þjóða þróaðist viðskiptatungumál, lingua franca, og kenndu Baskar Íslendingum m.a. að verka hval. Þeir sigldu hingað með stór veiðiskip og settu upp hvalveiðistöðvar sem komið hefur í ljós að voru umfangsmeiri en áður var talið. Kalla má hvalveiðar Spánverja hér við land stóriðju þess tíma.“ Spánverjavígin 1615 hafa verið kölluð einu fjöldamorð Íslandssögunnar. Spænskir sjó- menn voru sakaðir um að hafa stolið búpeningi og hafa tekið skip heimamanna í leyfisleysi. Hafa sagnfræðingar ekki getað leitt í ljós hvort ásakanirnar á hendur Spánverjunum voru réttar, en heimamenn grýttu marga þeirra til bana eða murkuðu úr þeim líftóruna með öðru móti, undir forystu Ara sýslumanns í Ögri. Er talið að fjórtán Spánverjar hafi verið drepnir á svæðinu. Fjöldi virtra fyrirlesara tekur þátt í dag- skránni á Snæfjallaströnd: Selma Huxley held- ur erindi, en hún hefur mikið rannsakað sigl- ingar Spánverja til Íslands og Nýfundnalands og sérstaklega sögu skipstjórans Martins de Villafranca sem var fórnarlamb víganna 1615. Michael Barkham, doktor við Harvard- háskóla, hefur rannsakað hvalveiðar Spán- verja og gerir grein fyrir rannsóknum sínum. Þá fjallar Henrike Knörr, varaformaður Bask- nesku Akademíunnar, um rannsóknir á lingua franca. „Torfi Tulinius, formaður verkefnisins Vestfirðir á miðöldum, mun fjalla um hvort Spánverjavígin hafi í reynd verið fjöldamorð, og Magnús Rafnsson sagnfræðingur hjá Strandagaldri mun kynna fornleifarannsóknir auk þess að fjalla um Jón lærða og skrif hans um Spánverjavígin,“ segir Ólafur. „Þá mun Már Jónsson sagnfræðingur fjalla um Ara í Ögri og Spánverjavígsdóma hans, Trausti Ein- arsson sagnfræðingur ræðir um hvalveiðar Spánverja við Ísland, Sigurður Sigursveinsson um Spánverjavígin og Martin de Villafranca og loks mun Jónas Kristjánsson ræða um út- gáfu sína á riti Jóns lærða um vígin.“ Á Jónsmessukvöldvöku kl. 20 flytur Stein- dór Andersen kvæðamaður rímur eftir Jón lærða og Elfar Logi Hannesson flytur frum- saminn leikþátt sem byggist á upplifunum Jóns lærða af vígunum. Nánari upplýsingar um dagskrá málþings- ins og yfirstandandi sýningar má finna á www.snjafjallasetur.net Sagnfræði | Málþing og sýning um Spánverjavígin í Dalbæ á Snæfjallaströnd 24. júní Fjallað um Spánverjavígin 1615  Ólafur J. Eng- ilbertsson fæddist á Tyrðilmýri við Ísafjarðardjúp 1960. Hann lauk stúdentsprófi frá FB 1981, nam spænsku og leik- myndahönnun í Barcelona 1981– 84, grafíska hönn- un í San Francisco 1986–87 og lauk BA-prófi í sagnfræði frá HÍ 2001. Ólafur starfaði hjá Ríkisútvarpinu í 16 ár sem leik- myndahönnuður og grafískur hönnuður. Hann rekur Sögumiðlunina ehf. og er fram- kvæmdastjóri Snjáfjallaseturs. Sambýlis- kona Ólafs er Gyða S. Björnsdóttir fræðslu- fulltrúi. Fátækt á Íslandi MIG langar aðeins að skrifa um fátækt á Íslandi þar sem umræðan um hana glymur á ljósvökum alla daga. Hvernig fóru forfeður okkar að því að koma upp stórum barna- hóp og vel til manns. Nú getur hver litið í eigin barm. Maður átti jú lítið þegar maður byrjaði að búa en hafði lífsgleði og ánægju af því að koma þaki yfir höfuðið. Ég held að fólk ætti að minnka við sig þessi veraldlegu gæði, þá kæmist það af með minni vinnu og ætti að fara að rækta kærleikann og vin- áttuna. Lífið á ekki að snúast um að eiga nógu stóra villu og tvo bíla því það gerir jú lítið fyrir sál- artetrið ef enginn tími er fyrir börnin og fjölskylduna því það er það dýrmætasta í lífinu. Svo segir í góðri bók: Komdu fram við náungann eins og þú vilt að hann komi fram við þig. Þá færi margt betur. Græðgi og ágirnd er að steypa öllu um koll. Hvernig væri að hugsa til landsbyggðarinnar með uppbyggingu í atvinnulífi og búsetu eða eiga allir að flytja á mölina? Og lítum til gamla fólks- ins sem situr kannski eitt heima, hvernig væri að gefa sér tíma og heimsækja það, því það ruddi jú brautina fyrir okkur hin. Öryrki. Verð svefnlyfja EMBÆTTISMAÐUR segir í Mbl. 6. júní sl. verðmun Triazolam og Halcion vera vitleysu. Þó bæði lyf- in innihaldi „sama“ virka efnið (tríazólam) er ólíku saman að jafna þar sem annað (Halcion) er frumlyf en hitt eftirlíking. Kostn- aður við þróun frumlyfja er gíf- urlegur (fleiri tugir milljarða króna) en eftir að einkaleyfi á þeim eru fallin úr gildi geta fram- leiðendur eftirlíkinga keypt virku efnin fyrir slikk, t.d. frá Asíu – þeirra þróunarkostnaður er því hverfandi miðað við framleiðendur frumlyfja – frumkvöðla í uppgötv- un og þróun raunverulegra nýrra lyfja. Okkur vantar enn sárlega ný og betri lyf, t.d. við krabbameini – já, og svefnleysi og kvíða- sjúkdómum. Embættismaðurinn upplýsir réttilega að sjúklingar, sem nota svefnlyf og/eða róandi lyf verða að borga brúsann sjálfir því sam- kvæmt reglugerð taka almanna- tryggingar engan þátt í greiðslu þeirra. Nú er það alkunna, að kvíðasjúkdómar eru einatt þung- bærir og langvinnir (vara oft ævi- langt) en þessir sjúklingar verða semsagt að láta sig hafa þá eða greiða lyfin sín sjálfir. Er þetta ekki mismunun og/eða fordómar eða hvað? Nozinan (levómeprómazín – ekki eiginlegt svefnlyf og alls ekki vanabindandi) er oft hægt að nota sem svefnlyf í litlum skömmtum. Dugi það ekki eitt sér er hægt að ná tilætluðun árangri með því að gefa zópíklón (Imovane) með í litlum skömmtum, en það er eina svefnlyfið, sem er viðurkennt til langtímameðferðar (6 mán.) á svefnleysi í USA. Reynir Eyjólfsson, lyfjafr., Eyrarholti 6, Hafnarfirði. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Á undanförnum 15 árum hefur notkun serótónín-geðdeyfðarlyfja margfaldast jafnt og þétt hér á landi og víða um heim og mikil umræða farið fram í dagblöðum og tímaritum um þessa þróun. Hver ástæðan er, er fólk ekki á einu máli um. Eini möguleikinn. Norður ♠ÁG8 ♥G94 ♦ÁG72 ♣Á53 Vestur Austur ♠54 ♠632 ♥D1053 ♥K87 ♦D9854 ♦K103 ♣97 ♣G862 Suður ♠KD1097 ♥Á62 ♦6 ♣KD104 Suður spilar sex spaða og fær út tromp. Hvernig á að ná í tólf slagi? Ellefu slagir eru tiltækir með því að hitta í laufið, en sá tólfti er vand- fundinn. Fyrsta hugsunin er sú að spila upp á „öfugan blindan“ og trompa tígul þrisvar heima. En sam- gangurinn leyfir það ekki, því blind- ur á ekki nægar innkomur. En hvað með að trompa hjarta í borði? Það er möguleiki ef laufið skilar sér og sami mótherji er með 2–2 í svörtu litunum. Til að byrja með er tígulás tekinn og tígull trompaður. Svo er hjarta dúkkað. Millileikurinn í tígli er hugsaður til að ginna vörnina til að spila enn tígli, en þá má fá sex slagi á tromp með öf- ugum blindum. En vörnin er vakandi og trompar aftur út. Þá er aðeins einn möguleiki eftir. Sagnhafi spilar laufkóng, laufi á ás og svínar tíunni. Hendir svo hjarta í fjórða laufið og trompar hjarta í borði. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjórn@mbl.is 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. e3 e6 5. Bd3 dxc4 6. Bxc4 Rbd7 7. 0–0 Bd6 8. b3 0–0 9. Bb2 Dc7 10. Rc3 e5 11. h3 exd4 12. Rxd4 Bc5 13. Rf3 b6 14. Dc2 Bb7 15. Had1 Hae8 16. Rg5 h6 Staðan kom upp í opnum flokki á ólympíuskákmótinu sem lauk fyrir skömmu í Tórínó á Ítalíu. Ar- menski stórmeistarinn og reynslu- boltinn Smbat Lputjan (2.619) hafði hvítt gegn norskum kollega sínum Einari Gausel (2.509). 17. Rce4! Rxe4 17. … hxg5 gekk ekki upp vegna 18. Rxf6+ Rxf6 19. Bxf6 gxf6 20. Dg6+ Kh8 21. Dh6+ Kg8 22. Bd3 og svartur getur ekki varn- að máti með góðu móti. 18. Rxe4 Re5 19. Rxc5 Rxc4 20. Hd7 Dc8 21. Dxc4 bxc5 22. Dg4 og svartur gafst upp enda fátt til varnar. Lputjan tefldi eingöngu þrjár skák- ir fyrir ólympíumeistara Armena en í þeim fékk hann 2½ vinning. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjórn@mbl.is Hvítur á leik. ÚT ER komin bókin Verndum þau eftir Ólöfu Ástu Farestveit og Þor- björgu Sveinsdóttur hjá Máli og menningu. Flest börn búa við öruggt og frið- sælt umhverfi heima, í skóla, leik og frístundastarfi. Því miður á þetta ekki við um öll börn; sum eiga und- ir högg að sækja, eru beitt ofbeldi – líkamlegu, kynferðislegu eða and- legu – eða eru vanrækt á einhvern hátt. Það er mikilvægt fyrir alla þá sem starfa með börnum og ungling- um að vera meðvitaðir um skyldur sínar og ábyrgð, geta lesið í vís- bendingar um að vanræksla eða ofbeldi eigi sér stað gegn börn- um heima fyrir, í skóla eða ann- ars staðar og viti hvernig bregðast á við ef slík mál skjóta upp kollinum. Vernd- um þau fjallar um alla þessa þætti á aðgengilegan hátt og eru les- endur upplýstir um eðli og birting- armyndir ofbeldis og vanrækslu, auk þess sem gerð er grein fyrir ferli mála af þessu tagi hjá barnaverndaryfirvöldum og innan dómskerfisins. Bókin er ætluð öllum þeim sem starfa með börnum og unglingum, í skólum og íþrótta-, félags- og æsku- lýðsstarfi af öllu tagi. Höfundarnir, þær Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis- og afbrotafræðingur, og Þorbjörg Sveinsdóttir, BA í sálfræði, starfa báðar í Barnahúsi og hafa mikla reynslu af barnaverndarmálum. Bókin er gefin út í samstarfi við menntamálaráðuneytið og Æsku- lýðsráð ríkisins. Nýjar bækur Su›urlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Sími 540 7000 • www.falkinn.is • Léttbygg› hjól • Bur›armikil hjól • Húsgagnahjól • Ry›frí hjól • I›na›arhjól VAGNHJÓL E in n t v e ir o g þ r ír 31 .2 94 Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.