Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Skordýr í Elliðaárdal Orkuveitan efnir til göngu- og fræðsluferðar í Elliðaárdal undir leiðsögn Guðmundar Halldórssonar, skordýrafræðings, þriðjudagskvöldið 13. júní kl. 19.30. Gengið verður um dalinn og hugað að þeim smádýrum sem þar búa. Þátttakendur eru hvattir til að hafa með sér stækkunargler. Gangan hefst við Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur. www.or.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O RK 3 30 97 06 /2 00 6 Kairó, Bagdad. AP, AFP. | Al-Qaeda- hryðjuverkasamtökin í Írak hótuðu í gær „stórkostlegum árásum“ í Írak og fullyrtu ennfremur, að dauði leið- toga þeirra, Abu Musab al-Zarqawis, myndi engin áhrif hafa á styrk þeirra. Ekkert kom fram um það hver tæki við af honum. Í yfirlýsingunni sagði, að Osama bin Laden, leiðtogi al-Qaeda, ætti eft- ir að „upplifa atburði, sem myndu gleðja hjarta hans“ og þar var talað um árásir, sem myndu „skekja óvin- inn eins og lauf í vindi“. Komu þessar hótanir fram á vef- síðu, sem íslamskir öfgamenn nota mikið og al-Qaeda hefur áður nýtt sér. Nokkrar vangaveltur hafa verið um hugsanlegan eftirmann al-Zar- qawis en talsmenn Bandaríkjahers í Írak segja líklegt, að hann verði Egyptinn Abu Ayyub al-Masri en nokkurt fé hefur verið sett honum til höfuðs. Sagðir hafa barið al-Zarqawi Tvö bresk dagblöð, The Observer og The Sunday Times, sögðu í gær, að hugsanlega hefði al-Zarqawi verið barinn til dauðs af bandarískum her- mönnum. Áður hefur komið fram, að hann lifði af loftárásina á húsið í Ba- quba mikið særður. Blöðin hafa það eftir vitnum, sem komu á vettvang strax eftir árásina, að bandarískir hermenn hefðu dregið al-Zarqawi út úr sjúkrabíl, sem búið var að setja hann í, dregið af honum kuflinn, vafið honum um höfuðið og barið síðan þar til hann gaf upp önd- ina. George Casey hershöfðingi og yf- irmaður herafla bandamanna í Írak neitaði í gær þessum fréttum og sagði, að þegar bandarísku hermenn- irnir hefðu komið á vettvang, hefði verið búið að koma al-Zarqawi fyrir í íröskum sjúkrabíl. Hefðu þeir þá reynt að hlúa að honum en hann hefði látist af sárum sínum. Árás á breska hermenn Að minnsta kosti fimm óbreyttir borgarar týndu lífi og margir særð- ust er til skotbardaga kom í gær milli breskra hermanna og vopnaðra sjíta- sveita í borginni Al-Amara í Suður- Írak. Sagt er, að sjítarnir hafi fyrst kveikt í á markaðstorgi borgarinnar og síðan hafið skothríð er bresku her- mennirnir komu á vettvang. Héraðsráðið í Amara tilkynnti í gær, að öllu samstarfi við breska her- liðið hefði verið hætt vegna átakanna í borginni. Kenndi það því um mann- fallið meðal óbreyttra borgara. Fyrst eftir innrásina í Írak og lengi framan af var allt kyrrara í suður- hlutanum en norðar í landinu enda sjítar í miklum meirihluta þar. Að undanförnu hefur þó árásum á breska herliðið, sem er með höfuð- stöðvar sínar við Basra, fjölgað mik- ið. Íraksstjórn sleppti í gær 230 föng- um en það er liður í því að auka líkur á sátt milli sjíta og súnníta. Í síðustu viku voru 594 fangar látnir lausir en alls er stefnt að því að sleppa um 2.000 manns. Al-Qaeda hótar hefndarárásum Vísað á bug að al-Zarqawi hafi verið barinn til dauðs AP Nokkrir af föngunum 230, sem látnir voru lausir í gær. Stefnt er að því að sleppa 2.000 manns í því skyni að auka líkur á sáttum milli súnníta og sjíta. Miami. AP, AFP. | Þrír fangar í fangabúðum Bandaríkjamanna í Guantanamo á Kúbu styttu sér ald- ur í klefum sínum aðfaranótt laug- ardagsins. Líkti bandarískur her- foringi dauða mannanna við „hernaðaraðgerð“ gegn Bandaríkj- unum en talið er, að þessi atburður muni kynda enn undir gagnrýni á Guantanamo en föngunum þar er haldið án ákæru og án þess, að við- urkennt sé, að þeir eigi að njóta einhverra réttinda sem menn. Í tilkynningu frá Bandaríkjaher sagði, að mennirnir, tveir Sádi- Arabar og einn Jemeni, hefðu fund- ist látnir í klefum sínum á laug- ardagsmorgni. Hefðu þeir notað klæði sín og lök til að hengja sig. Þetta er í fyrsta sinn, sem föngum í Guantanamo tekst að fyrirkoma sér þrátt fyrir margar tilraunir. „Þetta var augljóslega skipulagt og ekki skyndileg hugdetta,“ sagði Harry Harris aðmíráll og einn æðsti yfirmaður fangabúðanna. „Ég tel, að örvænting hafi ekki ráðið för, heldur hafi hér verið um að ræða hernaðaraðgerð gegn okkur.“ Bætti hann því við, að fangarnir bæru enga virðingu fyrir manns- lífum, hvorki sínu eigin né annarra. Josh Colangelo-Bryan, sem starf- ar hjá samtökum, sem gæta hags- muna 200 fanga í Guantanamo, sagði á fréttamannafundi á laug- ardag, að dauði fanganna ætti ekki að koma neinum á óvart. Þeir vissu ekki annað en að þeim yrði haldið þar til æviloka án nokkurs mögu- leika á venjulegum réttarhöldum. „Þeim hefur verið sagt, að í Gu- antanamo njóti þeir engra mann- réttinda,“ sagði Colangelo-Bryan. Sádi-arabíski lögfræðingurinn Kateb al-Shimmari og fulltrúi fjöl- skyldna tveggja mannanna, sagði í gær, að fjölskyldur þeirra tryðu því ekki, að þeir hefðu stytt sér aldur. Því þyrfti að rannsaka málið ofan í kjölinn enda væri það undarlegt, að mönnunum skyldi hafa tekist að fyrirkoma sér þar sem þeir hefðu verið í sérstökum öryggisbúðum og fylgst með þeim allan sólarhring- inn. „Réttarfarslegt svarthol“ Dauði fanganna kemur á sama tíma og Bandaríkjastjórn reynir að verjast vaxandi gagnrýni á ástandið í Guantanamo en Sameinuðu þjóð- irnar, mannréttindasamtök, mörg Evrópuríki og aðrir hafa gagnrýnt það „réttarfarslega svarthol“, sem búðirnar eru. Anders Fogh Rasm- ussen, forsætisráðherra Danmerk- ur, vakti máls á þessu er hann átti fund með George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, í Washington á föstudag og þá svaraði Bush því til, að hann vildi gjarnan tæma búð- irnar. Sagði Bush, að verið væri að semja við erlendar ríkisstjórnir um að taka við sínum þegnum en sumir fanganna væru þó svo hættulegir, að ekki yrði komist hjá því að rétta yfir þeim. Búist er við, að hæstiréttur Bandaríkjanna skeri úr um það al- veg á næstunni hvort það sé í sam- ræmi við stjórnarskrána, að her- dómstólar taki mál fanganna fyrir en Bush sagði, að gengi úrskurð- urinn gegn því, yrði réttað yfir föngunum fyrir venjulegum dóm- stólum. Búist við vaxandi gagnrýni á Guant- anamo-búðirnar Þremur föngum tókst að stytta sér aldur þrátt fyrir gæslu Reuters Fangar í Guantanamo-fangabúðunum sitja á hækjum sínum undir strangri gæslu bandarískra hermanna. Þeir fá að fara undir bert loft tvisvar í viku. ÚRKOMAN verður miklu meiri en áður þegar rignir en auk þess má bú- ast við, að þurrkar standi lengur en fyrr. Þannig hljóðar framtíðarspá 70 vísindamanna og veðurfræðinga, sem verið hafa á ráðstefnu í Dan- mörku. Meginniðurstaðan er sú, að sumr- in verði miklu þurrari en verið hefur en veturnir votviðrasamari. Er hækkandi hitastigi, svokölluðum gróðurhúsaáhrifum, um að kenna en það veldur verulegum breytingum á veðrakerfinu að sögn vísindamann- anna. Voru þessar breytingar um- ræðuefnið á ráðstefnu í Helsingør að því er fram kom í Berlingske Ti- dende. „Það verður votviðrasamara á jörðinni, ekki vegna þess, að úrkomumagnið aukist svo mikið, heldur vegna þess, að það mun deil- ast með öðrum hætti. Mesta áhyggjuefnið er þurrkatímabilin. Hér í norðanverðri álfunni munu þau hafa áhrif á vöxt alls gróðurs en sunnar í álfunni eykst hættan á skógareldum,“ sagði Claus Beier frá Risø og einn af skipuleggjendum ráðstefnunnar. Votviðrasöm veröld Morgunblaðið/RAX Framleiðendur regnhlífa þurfa ekki að kvíða framtíðinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.