Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 27 UMRÆÐAN FÁAR fréttir eru jafnoft end- urteknar og fréttin af hlutfalli kvenna í stjórnum íslenskra fyr- irtækja. Það er kynnt sem ný upp- götvun á rúmlega tveggja vikna fresti, nú síðast á ráð- stefnu sem bar Holly- woodtitilinn „Tengsl- anet III – Völd til kvenna“. Ráðstefn- unni lauk með lófa- takssamþykkt, að sovéskum hætti, um að setja bæri lög til að tryggja að hlutur annars kynsins í stjórnum fyrirtækja færi ekki undir 40%. Þar er horft til ný- legra norskra laga, einhverrar vitlaus- ustu löggjafar á Vest- urlöndum í seinni tíð. Í ályktuninni birtast tvö af meginvanda- málum femínismans. Vangeta til að meta fólk sem einstaklinga, en skoða þess í stað allt út frá kynferði, og bagaleg vanþekking á þeim sviðum sem fjallað er um hverju sinni. Af ótal ástæðum, sem of langt mál er að tíunda hér, eru slík lög hvorki skynsamleg né raunhæf. Verst er þó að þau eru yfirgengileg móðgun við konur. Verandi ung kona sem setið hefur í stjórn nokk- urra fyrirtækja frábið ég mér svona kröfur. Ég hef fengið mig fullsadda á tilhneigingu femínista til að brjóta konur niður með því að telja þeim trú um að staða þeirra sé næsta vonlaus, m.a. vegna skipu- lagðs samsæris karlmanna. Vissulega verða konur fyrir verulegum fordómum af hálfu ákveðinna karla sem eru úr takt við tímann. Ég hef, sem stjórn- armaður, mátt þola kvartanir á borð við að ég vilji kynna mér hluti áður en ég tek ákvörðun um þá, og er þá jafnvel ýjað að því að ég þurfi að bera þá undir aðra (lesist: karl- menn). Sumir eru raunar vanfærir um að líta skoðanir þrítugrar konu sömu augum og álit fimmtugra karla. Langflestir karlmenn, og nánast allir þeir yngri, í viðskiptalífinu, t.d. í bönkunum, dæma fólk hins vegar að verðleikum en ekki eftir kynferði. Fyrirtæki sem ekki nýta mismunandi innsýn og hæfileika fólks til fullnustu verða enda undir og deyja út. Rétt eins og fordómafullu karl- arnir munu gera nema femínistar haldi áfram að tala konur niður og krefjast þess að þær fái hinar ýmsu stöður út á það eitt að vera konur. Aðalfyrirlesari á T III var Germaine Greer sem öðlaðist heimsfrægð á áttunda áratugnum þegar hún fékk konur til að brenna brjóstahaldara sína (hluta af samsæri karla til að halda kon- um í skefjum). Í seinni tíð hefur hún unnið fyrir sér sem þátttak- andi í grín- og „raun- veruleikaþáttum“ í sjónvarpi og með því að ferðast um heiminn og flytja kynjatengt uppistandsgrín. Slíkt uppistand markaði upphaf fundarins á Bifröst. Germaine vakti þar mikla lukku með því að líkja at- ferli karla í viðskipta- og stjórn- málaheiminum við það sem gerist í samfélögum apa í frumskóginum. Sú samlíking er að vísu hárrétt. Það hefur lengi þótt merkilegt hve atferli apa líkist atferli manna. Það eru því engin ný tíðindi í því fólgin að snúa dæminu við og segja að samfélag manna líkist samfélagi apa. Í viðskiptum og stjórnmálum manna, líkt og í samfélögum apa, gildir frumskógarlögmálið og hefur gert frá því áður en menn fóru að ganga uppréttir. Þ.e. löngu áður en farið var að skrá fyrirtæki á Verð- bréfaþing Íslands. Auðvitað væri betra að öll dýrin í skóginum væru vinir en þannig er það því miður ekki. Eðli valdabar- áttu verður ekki breytt með því að láta ríkisvaldið segja eigendum einkafyrirtækja hverjir megi og megi ekki gæta hagsmuna þeirra í stjórn. Slíkar kröfur minna á það þegar jafnréttisfulltrúi HÍ lagði til, fyrir nokkrum árum, að greinum á borð við eðlis- og stærðfræði yrði breytt til að laga þær að konum. Það kostar því miður miklar fórnir að keppa um stöður í fyr- irtækjum eða stjórnmálum. En meira að segja Germaine Greer hefur horfið frá þeirri skoðun að konur eigi að keppa að því að verða eins og karlar. Í ræðu sinni benti hún á, í andstöðu við lokaályktun fundarins, að jafnrétti snúist ekki um að konur temji sér karllæga forgangsröðun. Það þurfi ekki jafn- margar konur og karlar að sitja í stjórnum stórfyrirtækja, eða taka þátt í hernaðarbrölti, til að jafn- rétti sé náð. Raunverulegt kvenfrelsi snýst um valfrelsi. Konur eiga því líka rétt á að forgangsraða á annan hátt en karlarnir sem femínistar líta til. Ef færri konur en karlar vilja verja lífi sínu í „apaslaginn“ er það allt í lagi. Lífið á vissulega að snúast um meira en vinnu. Það er skemmti- legt að fara í sveitaferð til að drekka rauðvín og hlusta á fræga útlendinga fara með gamanmál. En á Bifröst vantaði e.t.v. innsýn þeirra kvenna sem voru of upp- teknar til að verja fimmtudegi og föstudegi í slíka samkomu. Hafi kokteilboðafemínistar raunveru- legan vilja til að auka hlut kvenna beini ég að þeim vinsamlegum til- mælum um að líta til þeirra kvenna sem raunverulega eru að taka þátt í baráttunni sem álykta skal um, í stað þess að sækja innblástur til hinna nýju ungfemínista sem lifa flestar í vernduðu og lokuðu um- hverfi og hafa ekki hugmynd um hvernig hlutirnir ganga fyrir sig í viðskiptalífinu. – En sleppa þó engu tækifæri til að draga upp þá mynd að konur séu fórnarlömb sem þurfi fyrirgreiðslu ríkisvaldsins. Konum sem lifa og hrærast í frum- skógi viðskiptalífsins og eiga í fullu tré við karlana er enginn greiði gerður með slíkum upphrópunum úr fjarlægum fílabeinsturnum. Kvenfyrirlitning femínista Anna S. Pálsdóttir skrifar um tilhneigingu femínista til að brjóta konur niður Anna S. Pálsdóttir ’Það kostar þvímiður miklar fórnir að keppa um stöður í fyr- irtækjum eða stjórnmálum.‘ Höfundur er mannfræðingur og stundar framhaldsnám í viðskipta- fræði á sviði mannauðsstjórnunar. MIKILLAR óánægju hefur gætt um nokkurt skeið hjá ýmsum starf- andi fasteignasölum vegna skyldu- aðildar að Félagi fasteignasala. Telja menn að hér sé brotið gegn 2. mgr. 74. gr. stjórnarskrár- innar en þar segir orðrétt: „Engan má skylda til aðildar að félagi. Með lögum má þó kveða á um slíka skyldu ef það er nauð- synlegt til að félag geti sinnt lögmæltu hlutverki vegna al- mannahagsmuna eða réttinda annarra.“ Í lögum um fast- eignasölu frá árinu 2004 kemur skýrt fram að Félag fasteignasala er skilgreint sem hagsmunasamtök en ekki sem eftirlitsaðili með fast- eignasölum. Eftirlitshlutverkið er eingöngu í höndum sérstakrar eft- irlitsnefndar sem hefur það hlut- verk að heimsækja fasteignasala reglulega og tryggja að vinnubrögð þeirra séu í samræmi við gildandi lög. Félag fasteignasala hefur ekkert það hlutverk samkvæmt lögum um fasteignasölu sem réttlætir frávik frá framangreindu stjórnarskrár- ákvæði hvorki vegna almannahags- muna né vegna réttinda annarra. Á síðasta ári voru stofnuð ný hagsmunasamtök fasteignasala en nafn félagsins er Landssamtök fasteignasala. Brýnt er að breyta núverandi ákvæðum laga um skylduaðild að Félagi fasteignasala þar sem fyrir liggur að fjöldi fasteignasala unir ekki hag sínum þar og vill segja sig úr félaginu. Ástæða fyrir óánægju þeirra eru ámælisverð vinnu- brögð stjórnarinnar sem hefur beinlínis unnið gegn hags- munum félagsmanna sinna og skaðað ímynd fast- eignasala gagnvart almenningi. Fé- lag sem eitt sinn var sameining- artákn og stolt margra fasteignasala hefur því miður snú- ist upp í andhverfu sína. Eins og komið hefur fram í fjöl- miðlum hefur efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra staðið fyrir um- fangsmikilli rannsókn á störfum formanns Félags fasteignasala Björns Þorra Viktorssonar. Í dómi Hæstaréttar frá því í mars síðast- liðnum er tekið fram að fyrir liggi að mati dómsins rökstuddur grunur um að formaður Félags fas- eignasala hafi sjálfur átt refsiverða hlutdeild í brotum gegn lögum 161/ 2002 um fjármálafyrirtæki. Í dag eru því allir fasteignasalar á landinu skyldaðir til að vera í fé- lagi sem stjórnað er af einstaklingi sem grunaður er um alvarleg lög- brot. Það er von mín að lög um fast- eignasölu verði endurskoðuð hið fyrsta og að stjórnarskrárvarið fé- lagafrelsi verði virt þannig að fast- eignasalar geti valið um aðild að hagsmunafélagi á sínum eigin for- sendum. Er skylduaðild að Félagi fasteignasala réttlætanleg? Franz Jezorski fjallar um skylduaðild að Félagi fasteignasala ’Brýnt er að breyta nú-verandi ákvæðum laga um skylduaðild að Félagi fasteignasala þar sem fyrir liggur að fjöldi fast- eignasala unir ekki hag sínum þar og vill segja sig úr félaginu.‘ Franz Jezorski Höfundur er héraðsdómslögmaður. MORGUNBLAÐIÐ gagnrýnir Samfylkinguna harðlega í for- ustugrein 10. júní sl. Finnur blað- ið Samfylkingunni allt til foráttu en þó einkum það, að Samfylk- ingin sé ekki nógu stefnuföst! Grein þessi er hin furðulegasta, einkum þegar tekið er tillit til þess, að síð- ustu daga og vikur hefur Morgunblaðið verið að mæra og prísa Framsókn- arflokkinn stöðugt í forustugreinum og í Reykjavíkurbréfum. Enda þótt Framsókn- arflokkurinn hafi log- að allur í illdeilum og alger upplausn ríkt í flokknum hefur Morgunblaðið stöðugt verið að hrósa flokkn- um. Ekki er þó stefnufestunni fyrir að fara hjá Framsókn nú fremur en áður. Auk þess hefur Morg- unblaðið hrósað Vinstri grænum í há- stert undanfarið og er greinilegt, að Sjálf- stæðismenn vilja hafa Vinstri græna til taks sem nýja hækju, ef Framsókn dugar ekki lengur. Morgunblaðið ræðst á Samfylkinguna en hrósar Framsókn og Vinstri grænum. Er þetta sjálfsgagnrýni? Athyglisvert er, að það sem Morgunblaðið gagnrýnir Samfylk- inguna fyrir er það sem helst má finna að Sjálfstæðisflokknum. Þannig gagnrýnir Morgunblaðið Samfylkinguna fyrir skort á stefnufestu í varnarmálum. En hver er stefna Sjálfstæðisflokksins í varnarmálum? Hún er sú að bíða eftir því sem Bandaríkjamenn vilja gera í varnarmálum Íslands. Sjálfstæðisflokkurinn hefur enga sjálfstæða stefnu í varnarmálum. Samfylkingin hefur hins vegar viljað taka upp samstarf við Evr- ópu í varnarmálum vegna þess að Bandaríkin hafa brugðist. Sam- fylkingin vill, að Ísland taki sjálft frumkvæði í varnarmálum en bíði ekki eftir útspili frá Bandaríkj- unum. Mbl. gagnrýnir Samfylk- inguna einnig fyrir stefnuna í mál- efnum Evrópusambandsins og segir flokkinn ekki vita í hvora löppina hann eigi að stíga í þeim málum. En hver er stefna Sjálf- stæðisflokksins í málum ESB? Hún er sú að segja ekki neitt! Meðan Davíð stjórnaði mátti ekki tala um ESB. Og flokksmenn létu bjóða sér það. Núna er flokkurinn klofinn í tvennt í málinu. Annar hlutinn vill skoða ESB aðild já- kvætt. Hinn hlutinn má ekki heyra ESB nefnt. Stefna Samfylk- ingarinnar er skýr í þessu máli. Flokkurinn vill ákveða samnings- markmið Íslands í viðræðum við ESB og láta fara fram þjóð- aratkvæðagreiðslu um þau. Á flokks- stjórnarfundi Sam- fylkingarinnar 10. júní kom fram, að Samfylkingin vill þegar í stað taka upp aðildarviðræður við ESB og láta reyna á samningsmarkmið Ís- lands. Stefna Sam- fylkingarinnar er því skýr en Sjálfstæð- isflokkurinn er villu- ráfandi í flestum stórmálum. Þegar Morgunblaðið er að gagnrýna Samfylk- inguna fyrir stefnu- leysi í varnarmálum og málefnum ESB er í rauninni um sjálfs- gagnrýni að ræða. Morgunblaðið er í rauninni að gagnrýna Sjálfstæðisflokkinn. Samfylkingin vill reglur um stórfyrirtæki Morgunblaðið segir einnig, að Samfylkingin vilji ekki setja regl- ur um stórar fyrirtækjasam- steypur til þess að sporna gegn of miklum samruna fyrirtækja. Þetta er alrangt. Þegar ríkisstjórnin lagði fram frumvarp um þetta efni barðist Samfylkingin gegn því, að dregið væri úr eftirliti með fyr- irtækjasamtökum en ríkisstjórnin tók ekki tillit til gagnrýni Sam- fylkingarinnar. Hún dró úr eftirliti þrátt fyrir gagnrýni Samfylking- arinnar á frumvarpið. Morg- unblaðið er því að skamma rík- isstjórnina þegar það ræðst á Samfylkinguna fyrir stefnuleysi í þessu máli. Morgunblaðið er greinlega óánægt með stefnuleysi Sjálfstæðisflokksins. En í stað þess að gagnrýna Sjálfstæð- isflokkinn ræðst blaðið á Samfylk- inguna og gagnrýnir hana harð- lega. Skrítin vinnubrögð það. Morgunblaðið skrifar um stjórn- málaflokkana eins og flokksblað en ekki eins og hlutlaust frétta- blað, sem vill láta alla taka mark á sér. Blaðið skrifar ekki á sann- gjarnan hátt um Samfylkinguna. Gagnrýni Morgunblaðsins á Sam- fylkinguna er ekki réttmæt og ást- ir Morgunblaðsins á Framsókn eru óeðlilegar. Sjálfsgagnrýni Morgunblaðsins Björgvin Guðmundsson fjallar um skrif Morgunblaðsins um stjórnmálaviðhorfið ’GagnrýniMorgunblaðsins á Samfylkinguna er ekki réttmæt og ástir Morg- unblaðsins á Framsókn eru óeðlilegar.‘ Björgvin Guðmundsson Höfundur er viðskiptafræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.