Morgunblaðið - 12.06.2006, Síða 18

Morgunblaðið - 12.06.2006, Síða 18
18 MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Hf. Ofnasmiðjan | Reykjavík | Háteigsvegi 7 | sími: 511 1100 Akureyri | Draupnisgata 4 | sími: 466 3311 | www.rymi.is Tilboð á ofnum og ofnum handklæða- verð nú 11.108 verð áður 15.866 verð nú 23.541 verð áður 33.630 verð nú 15.050 verð áður 21.500 ÍSLENSK tónverk vöktu mikla at- hygli á Alþjóðlega tónskáldaþinginuí París sem lauk á föstudaginn. Rík- isútvarpið tilnefndi tvö verk, annars vegar verkið Flecte Lapis II eftir Atla Ingólfsson, og hins vegar verk Huga Guðmundssonar, Equilibrium IV: Windbells. Bæði verkin voru í hópi þeirra tíu verka sem þátttak- endur á þinginu töldu athyglisverð- ust, en 60 verk frá 30 löndum kepptu um heiðurinn. Þá var verk Huga einnig valið í hóp þriggja athygl- isverðustu verkanna í flokki tón- skálda 30 ára og yngri. Hugi segist mjög sáttur við árangurinn. „Já, það er eiginlega ekki hægt að segja ann- að, þetta gat varla farið betur,“ segir Hugi, sem var þó ekki viðstaddur þingið. „Ég undirbjó bara upptöku sem var spiluð þarna. Þeir sem sitja þingið eru þarna í fjóra daga og hlusta á einhver 60 verk.“ Fær einhver stefgjöld Hugi segir að það hafi komið sér mjög á óvart að verkinu var tekið eins vel og raun bar vitni. „Ég held að það sé kostur að það eru ekki önnur tón- skáld sem eru að hlusta á verkin held- ur er það útvarpsfólk sem hlustar á þetta með svolítið öðrum eyrum en kollegar manns. Ég held að það hafi getað gagnast mér aðeins,“ segir hann. Tvö verk voru valin frá hverju landi fyrir sig, eitt verk eftir tónskáld sem er innan við þrítugt og svo annað eftir eldra tónskáld. Hugi segir að þessi mikla við- urkenning geti haft töluverða þýð- ingu fyrir sig. „Já, þetta þýðir að verkið verður spilað í útvarpinu í ein- hverjum 30 löndum. Þessi verk sem eru valin fara á einhvers konar „pla- ylista“. Fjárhagslega þýðir þetta auð- vitað að maður fær einhver stefgjöld, þótt ég geri mér ekki alveg grein fyr- ir því hversu mikil þau eru, líklega ekki mjög mikil þó,“ segir Hugi. „En kynningin skiptir kannski mestu, að vera nefndur í samhengi við þessa virtu hátíð. Kannski fær maður ein- hver tækifæri í kjölfarið, einhverjar pantanir eða eitthvað slíkt.“ Verk Huga, Equilibrium IV: Wind- bells var samið fyrir Caput-hópinn fyrir ferð á heimssýninguna í Japan árið 2005. Verkið var flutt í tvígang í Japan en frumflutningur þess á Ís- landi var á Myrkum músíkdögum í vetur. Verk Atla Ingólfssonar, Flecte Lapis II (fyrir klarínett og hljóm- borð) var samið árið 1998. Atli samdi hljómborðsröddina við Agon-tónverið í Mílanó og bætti klarínettröddinni við fyrir tónleika Erkitíðar í Reykja- vík 1998, þar sem verkið var frum- flutt af Guðna Franzsyni og Snorra Sigfúsi Birgissyni. Verkið var síðan hljóðritað og gefið út árið 2004. Öflugur vettvangur Tónskáldaþingið var fyrst haldið árið 1954. Þá tóku fjórar útvarps- stöðvar þátt í þinginu en í ár eru þátt- tökulöndin hátt í fjörutíu. Tón- skáldaþingið er vettvangur til kynningar á nýjum verkum, en auk þess nokkurs konar keppni, þar sem þátttakendur velja áhugaverðustu verkin með sérstakri stigagjöf. Þingið er skipulagt af Alþjóða- tónlistarráðinu (International Music Council) með stuðningi UNESCO, vísinda-, menntunar- og menning- arstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Undanfarin ár hefur Íslensk tón- verkamiðstöð verið í samstarfi við Ríkisútvarpið um þátttökuna. Tónlist | Íslensk tónskáld vekja athygli í París Á meðal tíu bestu Morgunblaðið/Sverrir Árangurinn í París kom Huga Guðmundssyni töluvert á óvart. Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is FYRIR tveimur árum stofnuðu menntskælingar á Akureyri heim- speki- og menningarfélagið sem set- ur nú upp sína fyrstu leiksýningu. Leiksýningin er frjó viðbót við leik- starf ungs fólks á Akureyri og kær- kominn valkostur þegar haft er í huga að undanfarin ár hefur Leik- félag MA haldið sig við söngleiki og stórsýningar. Þegar einnig er hug- leitt hvernig Leikklúbburinn Saga hefur haldið á mið samfélagsrýninnar eftir að hafa sett upp barnasýningar árum saman er ástæða til að fagna vel. HOMMA setur Fyrir luktum dyrum einmitt upp í samstarfi við Leikklúbbinn Sögu því reyndir leik- ararnir koma sumir þaðan.Fyrir luktum dyrum er mjög góð leiksýn- ing sem snertir við áhorfendum og fær þá til að gleyma stund og stað með tilvistarspeki og framúrstefnu- leiklist heimspekingsins Jean-Paul Sartre. Hér verður einnig að nefna hvað það var vel til fundið að frum- sýna verkið á Litla-Hrauni. Fyrir luktum dyrum er eitt helsta og frægasta verk Sartre en það fjallar í örstuttu máli um tvær konur og einn karl sem eru dæmd til þess að vera saman í einu herbergi eftir dauða sinn. Fólkið þarf að horfast í augu hvað við annað, spegla sig hvað í annars augum og þar af leiðandi horf- ast í augu við gerðir sínar í lifanda lífi. Spurt er hvort mannskepnan sé nokkuð nema í augum annarra, hvort við getum þurrkað út gerðir okkar, hvort helvíti sé annað fólk þegar upp er staðið. Verkið hefur verið þýtt og að minnsta kosti verið flutt í útvarpi hér á landi en hinn ungi Ásgeir Berg Matthíasson þýðir leikritið að nýju og það mjög lipurlega. Leikstjórn Skúla Gautasonar ber vott um vönduð vinnubrögð þar sem næmur skilningur og náin vinna með leikurunum skilar sér í áhrifamikilli persónusköpun. Það var auðvelt að gleyma því hvað leikararnir voru ungir, því þeir sýndu allir þroskað fólk með mikla reynslu. Ævar Örn Benediktsson, Jóhanna V. Höskulds- dóttir og Lilja Guðmundsdóttir réðu öll jafn vel við persónur sínar og Haf- liði Arnar Hafliðason var áhugaverð- ur í hlutverki dyravarðarins eða þjónsins. Þegar gengið er út af sýningu sem þessari ríkir aðeins feginleiki og bjartsýni á að ungt listafólk láti sig heiminn varða þegar það vandar vinnubrögðin svo mjög. Tilvistarspekin beint í æð Hrund Ólafsdóttir LEIKLIST HOMMA Heimspeki- og menningarfélag Menntaskólans á Akureyri Höfundur: Jean-Paul Sartre. Þýðandi: Ásgeir Berg Matthíasson. Leikstjóri: Skúli Gautason. Sýning í Deiglunni 21. maí 2006 Fyrir luktum dyrum GENJI er byggt á kafla úr þekktri japanskri skáldsögu frá 11. öld. Aoi no ue, eiginkona aðalsmannsins Hikaru Genji, er altekin af- brýðisemi út í ástkonu manns síns. Heiftin breytir henni í skrímsli en eiginmaðurinn sefar hana að lokum og skrímslamyndin hverfur af henni. Í sýningunni er blandað saman nútímadansi, hinu forna jap- anska leikformi Noh, Gagaku, tón- listarhefð japönsku keisarahirðar- innar sem þróaðist samhliða Noh og Shomyo sem er heildarnafn yfir söngtónlist þar sem textinn er búddískar bænir fluttar á sanskrít. Í upphafi var sviðið í Kassanum næstum autt, aðeins tveir lampar, tjald í einu horninu, kollur og nokkrir litlir kassar aftast. Tónlist- arfólkið gekk síðan inn á sviðið og settist í beina röð aftast þar sem það var þar til alveg undir lok sýn- ingarinnar. Hjóðfæraleikararnir voru í dökkum hefðbundnum jap- önskum búningum og söngvararnir, sem allt voru virðulegir eldri menn sem minntu á raunverulega munka, í glæsilegum mislitum búningum. Dansararnir voru aðeins tveir, eig- inkonan túlkuð af Sengiku og Ryo- kei Kondo í hlutverki eiginmanns- ins. Dansinn var byggður á nútímadansi, en þó var hefð Noh leikhússins greinilega í fyrirrúmi. Hægar, yfirvegaðar hreyfingar og mjög falleg, stílfærð notkun á höndum og handahreyfingum, allt þar til undir lokin þegar Ryokei Kondo, sem er afar góður dansari, dansaði hraðan og kraftmikinn kafla. Sengiku túlkaði hina þjáðu eiginkonu á hefðbundinn japanskan hátt með niðurlútu höfði og smáum sporum, innri átök fengu aldrei út- rás í hreyfingunum. Þegar af- brýðisemin hefur heltekið hana er hvíti sloppurinn, sem hún bar frá byrjun, horfinn og hún hefur fengið andlit og horn einhvers djöfuls og gráan, næstum gegnsæjan búning. Í mjög hófstilltum hreyfingum hennar og stellingum fólst þó ein- hver ógn. Þáttur Shomyo-mannanna var mikill í þessari athyglisverðu sýn- ingu, þeir sungu ýmist einn og einn eða allir og seiðmagnaður hljóm- urinn flutti fólk í annan heim hand- an tíma og rúms. Í raun þarf áhorf- andinn að koma á sýninguna með ákveðnu hugarfari, tilbúinn að láta heillast af gífurlegri fágun og ein- faldleika hinna fornu japönsku list- forma sem með ívafi af nútíma- dansi eru gerð aðgengilegri fyrir okkar vestrænu augu. Handan tíma og rúms Ingibjörg Björnsdóttir DANS Kassinn í Þjóðleikhúsinu, 8. júní 2006 Dansarar og danshöfundar: Ryohei Kondo og Sengiku. Fjórir hljóðfæraleik- arar léku Gagaku tónlist og sex söngv- arar fluttu Shomyo bænir. Sýningin Genji var flutt í tilefni þess að 50 ár eru liðin síðan stjórnmálasamband var tekið upp á milli Japans og Íslands. Önnur japönsk sýning, Undir Sjöstjörnu, verður síðan á stóra sviði Þjóðleikhússins hinn 25. júní. Genji – Japönsk gestasýning Genji er byggt á kafla úr þekktri japanskri skáldsögu frá 11. öld.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.