Morgunblaðið - 12.06.2006, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 19
MENNING
PROSPECTUS APPROVED
Atlantic Petroleum P/F, with the secondary name
P/F Atlants Kolvetni, will undertake a new share
offering to be in the period 15 June to 29 June
2006, both days included. Iceland Stock Exchange
has confirmed that the Prospectus for Atlantic
Petroleum is drawn up in accordance with Directive
2003/71/EC. and the Prospectus will be made
public on 12 June 2006.
THE COMPANY
The company's registered office is located at
Gongin 10, 3rd floor, FO-110 Tórshavn, Faroe
Islands. Atlantic Petroleum is registered in the
Faroe Islands at the Skráseting Føroya (Faroese
Business Registration Office) with registration
number P/F 2695. Atlantic Petroleum was founded
in 1998 as the first independent upstream oil and
gas company in the Faroe Islands. According to
clause 1 of the company's Articles of Association
its objective is to conduct business in the field of
hydrocarbon production and other related busi-
ness. Atlantic Petroleum currently participates in
exploration on the Faroese Continental Shelf and
exploration and development in the UK sector of
the North Sea. The long term strategic goals are:
• Oil and gas exploration and development in
Faroese waters
• Oil and gas exploration and development in UK
waters
• Acquisition of assets under development and
producing assets
On June 2005 Atlantic Petroleum was listed on the
Main List of ICEX. The total listed shares amount to
DKK 73,997,800 nominal value.
The securities are electronically registered at VP
Securities Services in Denmark. The ticker symbol
of the shares at ICEX is FO-ATLA and the ISIN code
is FO000A0DN9X4.
THE OFFERING
There will be offered a total of between 54,550 and
369,989 shares, at nominal value DKK 100 each,
at a price of DKK 550 per share. All Atlantic
Petroleum's shares, both existing and new, are of
one class and have equal rights. The shares will be
offered to the public in Iceland, Faroe Islands and
Denmark.
This offer is with pre-emptive rights to present sha-
reholders, but new investors or shareholders who
wish to subscribe for more shares can in the offe-
ring period subscribing for new or more shares.
MORE INFORMATION
The Prospectus is in English only and can be obtai-
ned on the websites www.sparikassin.fo and
www.petroleum.fo. The Prospectus will also in the
offering period be available at Føroya Sparikassi
P/F, Yviri við Strond 2 in Tórshavn, Faroe Islands
opening hours Monday-Wednesday and Friday 9.30
to 16.00 and Thursday from 9.30 to 18.00 and at
Atlantic Petroleum P/F, Gongin 10, 3rd floor in
Tórshavn, Faroe Islands opening hours Monday-
Friday from 9.00 to 16.00.
All information regarding Atlantic Petroleum and the
new offering is made available on the website
www.petroleum.fo.
Tórshavn, 12 June 2006.
S
te
p
h
a
n
ss
o
n
s
H
ú
s
PUBLIC OFFERING FOR SUBSCRIPTION OF NEW SHARES IN ATLANTIC PETROLEUM P/F
WITH PRE-EMPTIVE RIGHTS TO PRESENT SHAREHOLDERS
A t l a n t i c
P e t r o l e u m
PANIC Production var stofnað fyr-
ir rúmu ári af Sveinbjörgu Þórhalls-
dóttur og Margréti Söru Guðjóns-
dóttur. Markmið hópsins er
samvinna við erlenda listamenn í
þeim tilgangi að auðga dansleik-
húsmenningu á Íslandi. Að þessu
sinni voru dansverkin sýnd í sam-
vinnu við Hafnarfjarðarleikhúsið.
Sýningin hófst á verki Sveinbjargar
Þórhallsdóttur en í því á að skoða
áleitin efni eins og ástríðu, brostnar
vonir og þráhyggju. Áhorfendur
sátu við borð, prýdd kertaljósum og
blómi í flösku. Andinn í salnum lof-
aði strax góðu. Sviðsmyndin sam-
anstóð af dönsurum klæddum
ömmulegum kjólum með veski í
hendi. Þeir héngu í spottum niður
úr loftinu yfir sviðinu. Verkið hófst
á því að ljósklæddur dansari með
blóm í hendi og annar dökklæddur
kipptust til og hnoðuðust um með
rykkjum og skrykkjum. Óræðir
bjöllu-strengja-blásturstónar óm-
uðu undir en tónlistin var flutt lif-
andi. Verkið varð dramatískara og
átökin jukust og hangandi konurnar
úr sviðsloftinu litu út sem hengdar
væru. Í verkinu var mikil angist en
hvað olli henni eða kallaði hana
fram var hulin ráðgáta. Tjáningin
varð því ástæðulaus og innantóm,
það litaði verkið og gerði það dauft.
Uppsetning hangandi kvenna var
skemmtilega til fundið og hefði ver-
ið áhugavert að sjá þá hugmynd
tekna lengra í vinnslu.
Verkið er samstarfsverkefni leik-
ara, dansara og tónlistarmanns frá
fjórum löndum en það var frumsýnt
í Berlín í febrúar síðastliðinn. Verk-
ið er spunnið út frá blús; perónuleg-
um, vinnulegum verkamannalegum
og tónlistarlegum og er unnið án
handleiðslu leikstjóra. Mörkin milli
dans og leiks eru ekki sjáanleg en
verkið myndar heild sem nefnist
dansleikhús. Áhorfendur gengu inn
í salinn undir notalegri blústónlist.
Pappakassar lágu á víð og dreif og
nokkrir gítarar hvíldu við vegg.
Verkið hófst á ofsafengnu hoppi
kvendansaranna fjögurra með síg-
arettu í munni og við ágenga tón-
list. Búningar þeirra voru venjuleg-
ir, pils eða buxur. Þær klesstu sér
upp við vegg, skældust á sviðinu í
tangó, drösluðust um hvor aðra og
voru í alla staði ófágaðar, klaufaleg-
ar og lifaðar. Verkið gaf strax pönk-
aðan tón. Það bar með sér skeyting-
arleysi og vanmátt, stundum
óöryggi. Í því var lífskraftur og
mikill húmor. Allar voru með mónó-
lóg sem voru hver öðrum slitróttari,
samt innihaldríkir eins og stór-
markaðskaflinn þar sem skipað var
fyrir í míkrófón. Það var sunginn
blús um tapað Rolex-úr, spjallað
saman á ýktan máta í einskonar
vinnustaða kaffihléi og sungið á
víxl. Innihaldið var á reiki í brota-
kenndri heildinni og ekki fannst
önnur merking en grín í blúsnum.
Einhvernvegin var það svo að ein-
lægnin og óbeislaður lífskrafturinn
heillaði mjög og stóð uppúr í verk-
inu. Hugmyndaauðgin og hráleikinn
varð hrífandi og brotakenndir
mónólógarnir urðu að heilsteyptu
verki í meðför flytjendanna. Þetta
var hrífandi dansverk sem vert var
að sjá.
Pönk-
aður
blús
DANS
Panic production
Hafnarfjarðarleikhúsið
Laugardagurinn 10. júní 2006
Rauðar liljur: Höfundur: Sveinbjörg Þór-
hallsdóttir. Tónlist: Eiríkur Orri Ólafsson
og Kristín Anna Valtýsdóttir. Búningar og
útlit: Hildur Hafstein. Dramatúrg: Gréta
María Bergsdóttir. Dansarar: Saga
Sgurðardóttir, Tanja Friðjónsdóttir o.fl.
No, he was white: Höfundar og flytj-
endur: Anne Tismer, Margrét Sara Guð-
jónsdóttir, Sveinbjörg Þórhallsdóttir, Ra-
hel Savoldelli. Tónlist: David Kiers.
Búningar: Nir De Volff.
Lilja Ívarsdóttir
Morgunblaðið/Eyþór
„Þetta var hrífandi dansverk sem vert var að sjá.“
MIKIÐ mæddi á píanistanum á síð-
ustu IsNord tónleikum þessa vors,
Jónínu Ernu Arnardóttur. Að leika í
hverju einasta atriði – aðeins þrem-
ur dögum eftir síðustu framkomu
sína með Sinfóníuhljómsveit Norð-
urlands, auk þess að vera jafnframt
listrænn stjórnandi hátíðarinnar –
gengur vafalítið á orkuforðann þó
bæti því fyrr í reynsluforðann. En
það er eflaust líka það sem til þarf ef
festa á unga tónlistarhátíð fljótt og
vel í sessi.
Tónleikarnir voru undir fyr-
irsögninni „Íslenzkt í öndvegi“ enda
öll dagskráin eftir íslenzka höfunda.
Atriðum fyrir og eftir hlé var raðað
eins niður: fyrst þríþætt verk fyrir
fiðlu og píanó, síðan píanóverk og
loks 5-6 sönglög. Fiðluverkin voru
bæði eftir Jón Nordal og í fersku
minni eftir afmælistónleika hans
fyrr í vor. Fyrst kom þjóðernisróm-
antíska æskusmíðin Systurnar í
Garðshorni frá 1944 um Ásu, Sig-
nýju og Helgu er þær Eygló Dóra
Davíðsdóttir fluttu af smitandi spila-
gleði, en eftir hlé Sónatan frá 1952
er ber mark yngri evrópskra sam-
tímaáhrifa. Sú þurfti heyranlega á
reyndari fiðlutúlkun að halda en hér
var völ á til að njóta sín til fulls, enda
Eygló ófullnuma í grein sinni, tónn-
inn enn tággrannur og inntónunin á
köflum svolítið óörugg. En miðað við
kornungan aldur tókst henni víða
þokkalega vel upp, og röggsamur pí-
anóleikurinn var samstilltur og fag-
mannlegur.
Fyrra einleikspíanóstykkið var
Torrek Op. 1 nr. 2 eftir Jón Leifs;
frá 1919 skv. skrá ÍTM, þar auk-
nefnt „intermezzo“ og væntanlega
innblásið af Sonatorreki Egils
Skallagrímssonar. Jónína lék þessa
drungalegt örvæntingarfullu smíð af
sannfærandi krafti þó að sumir veik-
ir staðir virkuðu ofurlítið eirð-
arlausir. Píanóslátturinn í hinni
furðuheillandi litlu Sónatínu Jóns
Þórarinssonar „í C“ frá 1945 óð að
vísu nokkuð á súðum í hröðu útþátt-
unum – fyrir utan eina minnisgloppu
í lokaþætti – en slapp annars dável
fyrir horn.
Gunnar Guðbjörnsson söng fyrir
hlé þrjú stutt lög eftir Jón Leifs við
texta úr fornbókmenntum og þrjú
öllu ljóðrænni lög eftir Jón Ásgeirs-
son, en eftir hlé fimm lög eftir Jón
Þórarinsson. Fyrstu þrjú voru við
ljóð eftir Stein Steinarr og hreif
mann þar minnst hið síðasta, Siesta,
en perlurnar tvær í lokin, Íslenzkt
vögguljóð á Hörpu og Fuglinn í fjör-
unni, náðu þó að yfirtrompa við hæfi
í tónleikalok.
Gunnar söng allt sitt af blaði, og
kann það að hafa hamlað eitthvað
frjálsari inntakstúlkun textans, auk
þess sem mér þótti fullmikið gert út
á klappvænan óperuglæsikraft á
kostnað fíngerðari litbrigða. Því þó
að t.d. háttlægu píanissimó-
höfuðtónum fyrri ára, sem Gunnar
framdi hér manna bezt, kunni að
fækka með aldri og þroska, þá er
vonandi enn af nægri mýkt að taka á
neðri sviðum, jafnvel þótt lítið hafi
bólað á henni að þessu sinni.
Undirleikur Jónínu var sem fyrr
fylginn og öruggur og bar vott um
vandaðan undirbúning.
Íslenzkt í öndvegi
TÓNLIST
Borgarneskirkja
Verk eftir Jón Nordal, Jón Leifs, Jón Ás-
geirsson og Jón Þórarinsson. Gunnar
Guðbjörnsson tenór, Eygló Dóra Davíðs-
dóttir fiðla og Jónína Erna Arnardóttir pí-
anó. Mánudaginn 5. júní kl. 16.
IsNord-hátíðin
Ríkarður Ö. Pálsson
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson