Morgunblaðið - 12.06.2006, Qupperneq 23
flokks og Sjálfstæðisflokks nk. fimmtudag en þá tekur Framsókn jafnframt við umhverfisráðuneytinu að nýju
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 23
„ÞETTA eru vonbrigði vegna þess
að ég hefði gjarnan viljað ljúka
þeim mörgu og stóru verkefnum
sem ég hef verið að vinna að í um-
hverfisráðuneytinu,“ segir Sigríður
Anna Þórðardóttir, fráfarandi um-
hverfisráðherra.
„En þetta er bara þannig að
þarna er um niðurstöðu viðræðna
milli flokkanna að ræða um verka-
skiptingu, þannig að þetta snýst
ekki að neinu leyti um mig og mín
störf,“ segir Sigríður Anna og bæt-
ir við að hún hafi stutt tillögu Geirs
H. Haarde, formanns Sjálfstæð-
isflokksins um að umhverfisráðu-
neytið færi yfir til Framsókn-
arflokksins og að hún gengi úr
embætti umhverfisráðherra.
Sigríður Anna segir að umhverf-
ismálin séu mjög spennandi mála-
flokkur sem skipti mjög miklu máli
fyrir framtíðina og þess vegna hafi
verið mjög mikilvægt að ráðherra í
þeim málaflokki kæmi úr Sjálfstæð-
isflokknum.
Hún segir það
því einnig von-
brigði fyrir
flokkinn sem
heild að missa
ráðuneytið
enda sé mikill
áhugi á um-
hverfismálum
innan hans.
„Þess vegna sé ég mjög mikið
eftir ráðuneytinu frá Sjálfstæð-
isflokknum og þar að auki var ég
fyrsti umhverfisráðherra flokks-
ins og ég er mjög stolt af því.“
Sigríður Anna segist mjög
ánægð með að formaður flokksins
taki við forsætisráðherraembætt-
inu.
„Það eru mörg stór og mikilvæg
verkefni framundan, til dæmis í
efnahagsmálunum og ég treysti
engum betur en honum til þess að
leiða þau til farsælla lykta.“
Vonbrigði að fara úr
umhverfisráðuneytinu
iðnaðar-
hún væri
dum. Um
i öll sjón-
sé að hafa
ðun. Hann
ð reynsl-
kyn-
rkaskipt-
anna og
ra á milli.
ð hafa
ag sem
verjum
óskyn-
aða skoð-
öðlast
eigum
ytingar
uga að nú
og
eru
gir og
mark-
sstofn-
rar í
ðka sitt
rotamikið
ðið í gær
ð til for-
ins en
nnað að
dirnar.
rt gildi að
ingar.
eðlabank-
g þennan
g auðvitað
ð að vera
lt starf-
þýðir
k í þessu.
em mér
mín.“
Eftir Berg Ebba Benediktsson
bergur@mbl.is
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar sagð-
ist ekki ánægð með þá ákvörðun
stjórnarflokkanna að halda áfram
samstarfi er hún var spurð um boð-
aðar breytingar á ríkisstjórninni.
„Ég hefði talið eðlilegt að þessi rík-
isstjórn færi frá og það tæki við ný
ríkisstjórn með skýrara umboð og
meira traust því það eru stór verk-
efni sem þarf að takast á við. Mér
finnst ríkisstjórnin vera orðin það
löskuð eftir það sem á undan er
gengið að ég dreg í efa að hún sé til
þess fallin að takast á við þessi
verkefni,“ segir hún.
„Mér finnst merkilegt að sjá það
endurtaka sig að þegar fara saman
umhverfismál og kona í ráðherra-
stól, þá virðist vera sjálfsagt að ýta
henni til hliðar. Þetta er í annað
skipti sem það gerist,“ sagði Ingi-
björg þegar hún var spurð um
framkvæmd þessarar uppstokk-
unar. „Mér finnst Sjálfstæðisflokk-
urinn teygja sig mjög langt að inn-
sigla þetta valdabandalag með
Framsókn. Það er sama hvort litið
er á Kópavog, Reykjavík eða rík-
isstjórnina. Það eru nánast alltaf
helmingaskipti um völdin þó að hið
lýðræðislega umboð Framsókn-
arflokksins sé mjög takmarkað. Ég
held að í þessu liggi meinsemd
Framsóknarflokksins. Hann er að
taka sér meiri völd en hann hefur
umboð til frá þjóðinni og Sjálfstæð-
isflokkurinn ber ábyrgð á því.“
Halda lífi í Framsókn
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, var
sama sinnis, hann er ekki sáttur við
þá ákvörðun að halda ríkisstjórn-
arsamstarfinu áfram. Inntur eftir
því hvort hann hefði talið rétt að
boðað yrði til kosninga sagði Guð-
jón að miðað við stöðu mála hefði
það verið eðlilegra. „Menn hefðu
átt að leggja það í dóm þjóðarinnar
hvernig völdin skiptast í þessu
landi. Það er náttúrulega stað-
reynd að Halldór Ásgrímsson er að
draga sig í hlé í kjölfar mikillar
fylgisminnkunar og hann metur
stöðuna þannig að honum sé ekki
stætt sem forystumanni áfram.“
Guðjón telur einnig að hlutur
Framsóknar sé óeðlilega stór í rík-
isstjórninni. „Ég met þetta þannig
að Sjálfstæðisflokkurinn sé tilbúinn
að teygja sig ansi langt til að
tryggja að Framsókn haldi lífi.
Þetta gera þeir til þess að eftir
næstu kosningar sé ennþá hægt að
treysta á þetta hjól sem Framsókn
er. Það er verið að tryggja að hægt
sé að nota flokkinn aftur. Það hefði
ekki átt að framlengja þetta stjórn-
arsamstarf,“ sagði Guðjón.
Umrót ekki fólgið í kosningum
„Það vekur undrun að Sjálfstæð-
isflokkurinn telji sig þurfa að skila
Framsókn ráðuneyti. Ég lít svo á að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi staðið
við sitt með því að láta Halldór fá
forsætisráðuneytið haustið 2004.
Það vekur því athygli að Geir þurfi
að kaupa þessa tíu mánaða dvöl í
forsætisráðuneytinu svona dýru
verði,“ sagði Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður Vinstri grænna.
„Sjálfstæðisflokkurinn er með
hjúkrunarheimili fyrir Framsókn-
arflokkinn næstu tíu mánuðina svo
hann verði í kosningahæfu ástandi
vorið 2007.“
Steingrímur vildi hins vegar
óska nýjum ráðherrum velfarnaðar
í starfi. „Ekki veitir þeim af þar
sem verkefnin eru ærin,“ sagði
Steingrímur. „Ég er algerlega
ósammála því að kosningum fylgi
meira umrót og los heldur en að
halda þessu áfram. Þá myndi þetta
væntanlega gilda alltaf og þá væri
alltaf stórhættulegt að kjósa,“
sagði hann.
Óánægja
meðal
stjórnarand-
stöðunnar
„MÉR finnst það vera mjög spenn-
andi viðfangsefni að taka við utan-
ríkisráðuneytinu og hlakka til þess
að takast á við þetta nýja starf,“
segir Valgerður Sverrisdóttir, til-
vonandi utanríkisráðherra. „Ég
geri mér grein fyrir því að þetta er
mjög krefjandi starf og ýmislegt
sem getur komið upp. Þar að auki
stöndum við í stórræðum um þess-
ar mundir á sviði varnarmálanna,
en ég hef óskað eftir því við Geir
H. Haarde, verðandi forsætisráð-
herra, að hann haldi á þeim málum
áfram formlega þótt hann færi sig
um set,“ segir Valgerður og tekur
fram að vinnan við viðræðurnar
fari engu að síður að miklu leyti
fram í utanríkisráðuneytinu. Seg-
ist hún vonast til þess að með þess-
ari skipan mála náist mikilvæg
samfella í varnarviðræðunum við
Bandaríkjamenn.
Býður sig ekki fram til forystu
Framsóknarflokksins
Innt eftir því hvort hún hyggist
gefa kost á sér sem formaður
Framsóknarflokksins á flokks-
þinginu í ágúst svarar Valgerður
neitandi og tekur fram að hún ætli
heldur ekki að sækjast eftir neinu
öðru sæti í forystu Framsókn-
arflokksins á komandi flokksþingi.
Segist hún vilja beina kröftum sín-
um annars vegar að utanrík-
isráðuneytinu og hins vegar í það
að sinna eigin kjördæmi. Val-
gerður er fyrsti þingmaður norð-
austurkjördæmis og segist hún
hafa mikinn áhuga á því að halda
þeirri forystu. „Ég vil því frekar
nota kraftana þar en á landsvísu,
enda veit ég að það er nóg til af
góðu fólki til að
taka við foryst-
unni í Fram-
sóknarflokkn-
um.“
Valgerður
verður fyrst
kvenna hér-
lendis skipuð
utanrík-
isráðherra. Spurð hvernig það
leggist í hana segist Valgerður
auðvitað stolt af því að vera með
því að brjóta blað, en hins vegar
vilji hún ekki gera of mikið úr
þessu á persónulegum grundvelli.
„Engu að síður skiptir það örugg-
lega máli fyrir jafnréttisbarátt-
una að konur eru að hasla sér völl
á æ fleiri sviðum og í nýjum emb-
ættum, enda er þarna ákveðið vígi
að falla. Það hlýtur að skipta máli
fyrir framtíðina, t.d. fyrir ungar
konur sem hyggja á pólitískt
starf, að sjá að þetta er í raun allt
opið.“
Vill nýta utanríkisþjónustuna
í þágu atvinnulífsins
Aðspurð hver séu helstu verk-
efnin sem bíði hennar í utanrík-
isráðuneytinu segir Valgerður of
snemmt að segja til um það. „En
miðað við það sem ég þekki til
sem ráðherra í ríkisstjórn þá eru
það mjög fjölbreytileg málefni
sem þarna eru til umfjöllunar,“
segir hún og bendir á að margt af
því tengist viðskiptum. „Ég hef
mikinn áhuga á atvinnulífinu og
tel það vera mjög af hinu góða
þegar utanríkisþjónustan getur
veitt því aðstoð. Ég tel að Halldór
Ásgrímsson, sem utanrík-
isráðherra, hafi brotið blað hvað
það varðar að nýta utanríkisþjón-
ustuna meira fyrir atvinnulífið.“
„Mjög spennandi
viðfangsefni“
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
féll sjálfstæð-
ismönnum í
skaut og þetta
hefði verið nið-
urstaða for-
manna stjórn-
arflokkanna.
Jónína mun
jafnframt gegna
starfi sam-
starfsráðherra Norðurlandanna.
Hún hefur allt þetta kjörtímabil
verið formaður Íslandsdeildar
Norðurlandaráðs og segist því
þekkja vel til á vettvangi norræns
samstarfs.
Jónína aftekur ekki að hún muni
bjóða sig fram til forystu á kom-
andi flokksþingi Framsókn-
arflokksins.
JÓNÍNA Bjartmarz segir að sér
finnist það mjög spennandi verk-
efni að taka við umhverfisráðu-
neytinu og finnist það ráðuneyti
eitt af þeim veigameiri.
Segir hún að horfa þurfi til
tveggja átta. „Mér finnst það brýnt
verkefni að við náum sem mestri
sátt, milli þeirra sjónarmiða sem
liggja að baki nýtingar auðlind-
anna okkar og svo sjónarmiða um-
hverfisverndar. Ég held að það sé
verðugt verkefni, meðal annarra
verkefna sem eru á höndum þessa
ráðuneytis og ég kem til með að
taka við.“
Jónína segir að sér hafi fundist
eðlilegt að umhverfisráðuneytið
gengi aftur til Framsóknarflokks-
ins um leið og forsætisráðuneytið
Brýnt að ná sátt
milli sjónarmiða
egir að
f erfið.
enn eru
a liðið.
nái vopn-
k séu að
kil tíma-
að
mál-
amherjar
fskipti af
ð leyti
erum
su í um
gði fyrir
að hann
nnsku að
ldið
úst. Þeg-
r Jón,
gmenn á
byrjaði,
son,
na Sig-
Jón kveðst aðspurður binda
miklar vonir við þá ungu þing-
menn Framsóknarflokksins sem
nú séu að hasla sér völl. „Ég bind
miklar vonir við þá ungu kynslóð
sem er að komast að í flokknum og
þá ungu þingmenn sem eru í þing-
flokknum. Einn bætist við í haust,
aðstoðarmaður minn, Sæunn Stef-
ánsdóttir.“ Hún tekur við þingsæti
Halldórs Ásgrímssonar. Jón segist
ekki eiga von á öðru en að hin nýja
kynslóð eigi eftir að taka upp
merki flokksins með mynd-
arlegum hætti.
Jón segir aðspurður að tími sinn
sem ráðherra hafi verið mjög góð-
ur. „Hann hefur verið mjög góður
að mínu mati. Ég átti mjög góðan
tíma í heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu. Það er erfitt
ráðuneyti en mjög áhugavert. Þá
var mjög skemmtilegt að fá að
kynnast því fólki sem vinnur í heil-
brigðisgeiranum; þar er mjög öfl-
ugt og framsækið fólk.“
Hann segir að ýmis mál hafi
komist til framkvæmda í ráð-
herratíð sinni. Öldrunarmál hafi
mikið verið í umræðunni að und-
anförnu en margt hafi þó áunnist í
þeim málaflokki. Þá hafi heilsu-
gæslan verið efld til muna. „Við
náðum því í gegn, ég og Árni
Magnússon, að einum milljarði
yrði varið til að bæta stöðu geð-
fatlaðra,“ segir hann ennfremur
og bætir við: „Og þannig mætti
lengi telja.“
Jón kveðst því vera stoltur af
sínum tíma í ráðherrastól. Inntur
eftir því hvort hann hverfi þaðan
með söknuði segir hann: „Ég neita
því ekki, ég hef verið í skemmti-
legum verkefnum.“ Því fylgi líka
söknuður að kveðja samstarfs-
fólkið í ráðuneytunum. „En nú fer
ég fyrst um sinn niðrá þing og fer
að vinna þar í umhverfi sem ég
þekki ágætlega. Ég kvíði því ekki
og mun leggja mitt af mörkum til
þess að störf þingflokksins geti
gengið greiðlega fyrir sig, sem er
ákaflega mikilvægt.“
næstu kosningum
MAGNÚS Stefánsson, sem á
fimmtudag tekur við embætti fé-
lagsmálaráðherra, segir að þessi
niðurstaða hafi ekki komið honum
á óvart enda taldi hann þann
möguleika vera fyrir hendi að
hann yrði kallaður til starfa í rík-
isstjórn. Hann segist hlakka til
þess að takast á við þetta verkefni
enda falli margir spennandi mála-
flokkar undir ráðuneytið.
„Sveitarstjórnarmál eru mér of-
arlega í huga en ég tel mjög mik-
ilvægt að það séu góð samskipti og
góð tengsl milli félagsmálaráð-
herra og sveitarstjórnarstigsins.
Málefni vinnumarkaðarins og mál-
efni fatlaðra eru einnig stórir
málaflokkar sem ég hef ætíð haft
sterkar taugar til,“ segir Magnús
en hann telur sig hafa ágætis
grunn til þess að takast á við fé-
lagsmálaráðu-
neytið.
„Eftir að ég
varð þingmaður
árið 1995 hef ég
unnið ýmis
verkefni fyrir
þá félagsmála-
ráðherra sem
þar hafa verið.
Til dæmis við endurskoðun á lög-
um um húsnæðismál þegar Íbúðar-
lánasjóður varð til. Þá hef ég einn-
ig kynnst ýmsum málum í gegnum
fjárlaganefnd.“
Magnús vildi ekkert gefa upp
um málefni Íbúðarlánasjóðs að svo
stöddu.
„Nú ætla ég að kynna mér
hvernig staðan er í ráðuneytinu.
Húsnæðismálin eru í deiglunni og
ég þarf að fara yfir þau mál.“
Hlakkar til að takast
á við verkefnið
Morgunblaðið/ Jim Smart
r Ásgrímsson tilkynnir hrókeringar á ráðherraliði Framsóknar sl. laugardag.
UTANÞINGSRÁÐHERRA er ráð-
herra sem ekki er jafnframt kjör-
inn alþingismaður. Ekkert er því
til fyrirstöðu að svo sé samkvæmt
stjórnskipaninni heldur er þvert á
móti gert ráð fyrir því í 51. gr.
stjórnarskrárinnar, að ráðherrar
séu ekki allir jafnframt alþing-
ismenn.
Þessi tilhögun mála er hins veg-
ar fátíð hér á landi en Jón Sigurðs-
son verður sautjándi utanþings-
ráðherrann frá árinu 1919. Hafa
einungis verið skipaðir þrír ut-
anþingsráðherrar sl. 50 ár en
tveir þeir síðustu, Geir Hall-
grímsson og Ólafur Ragnar
Grímsson, voru báðir formenn
sinna flokka. Gunnar Helgi Krist-
insson, prófessor í stjórn-
málafræði við Háskóla Íslands,
segir að þetta sé greinilega mjög
víkjandi í íslenskri pólitík. „Meg-
inreglan á Íslandi er að ráð-
herrar séu þingmenn og Ísland
er eitt þeirra ríkja sem heldur
hvað stífast við þá reglu,“ segir
Gunnar en að hans mati virðast
meginástæðurnar fyrir því að
brugðið sé til þessa ráðs vera
þær, að um sé að ræða mjög
óvenjulegar aðstæður eða að um-
ræddir menn séu formenn sinna
flokka án þess að vera á þingi.
Einungis þrír utanþings-
ráðherrar síðastliðin 50 ár