Morgunblaðið - 12.06.2006, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 25
UMRÆÐAN
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
19
6
4
Krabbameinsfélagsins
Glæsilegir vinningar:
www.krabb.is
Dregi› 17. júní 2006
Vertu með og
styrktu gott málefni!
„SPURÐU þig ekki hvers heimurinn
þarfnast. Spurðu þig heldur hvað þú
þarft til að vera lifandi. Farðu síðan
og gerðu það. Því fyrst og fremst
þarfnast heimurinn fólks sem er
virkilega lifandi.“
Í okkur öllum býr sú þrá að lifa líf-
inu lifandi. Það er hins vegar ekki
sjálfgefið að okkur takist það. Getur
það verið að nútíma lífsstíll sé kom-
inn svo óralangt frá því sem við vor-
um sköpuð til að okkur stafi ógn af?
Er það manninum eðlilegra að
hlaupa um fjörur og fjöll en að sitja í
bíl eða við tölvu? Er það ekki mann-
inum eðlilegra að dansa við eldinn og
leika við ölduna en að finna sér fróun
við sjónvarp og bari? Erum við að
glata manninum sem Guð skapaði og
er líklegt að við finnum hann með ró-
andi eða bólgueyðandi lyfjum? Það er
ekki líklegt. Það eru til aðrar leiðir.
Hér er fjallað um eina af þeim leiðum
sem við eigum kost á til að losna úr
viðjum, hindrunum og doða. Þetta er
dans sem kallast 5Rhythms TM, eða
5Rytmar og er sérlega áhrifarík leið
til að opna upp líkamann, hreyfa við
hjarta og sál og losa um hindranir.
Rytmarnir fimm draga nafn sitt af
því að dansað er í gegnum ákveðna
rytma, flæði, stakkató, kaos, lýrík og
kyrrð. Þegar dansað er í gegnum þá í
þessari röð mynda þeir það sem kall-
að er alda. Því hefur verið haldið
fram að í raun sé aldan alheims-
lögmál um hvernig orka flæðir, t.d. í
ástarleik eða við barnsfæðingu. Í
Rytmunum 5 þarf ekki að læra nein
spor, en í hverjum og einum þeirra er
ólík öndun, hreyfing og orka. Rytm-
arnir 5 voru þróaðir af Gabrielle
Roth, í gegnum þrjátíu ára reynslu
hennar og tilraunir í dansi og leik-
húsvinnu.
Líkaminn er í eðli sínu opinn og
sveigjanlegur, eins og við sjáum hjá
ungbörnum. Í gegnum uppvöxtinn og
lífið upplifum við ýmsar aðstæður og
tilfinningar sem við eigum erfitt með
að höndla vegna þess hvað við erum
opin. Þessar upplifanir eru orka og
þegar hún fær ekki að flæða verða til
hindranir; eitthvað stífnar og lokast í
líkamanum. Þannig verður til skelin
sem við brynjum okkur með. Við er-
um föst. Hér geta Rytmarnir 5 hjálp-
að og stutt okkur við að losa um þess-
ar innri hindranir. Og það skilar sér
ekki aðeins líkamlega, heldur líka til-
finningalega og huglægt. Þegar
stöðnuð orka fær að flæða á ný, kom-
umst við líka í betra samband við
uppsprettu þessarar orku, sem er
andinn og sköpunarkrafturinn.
Þannig getum við uppgötvað nýjar
víddir í sjálfum okkur og orðið til-
búnari til að lifa lífinu lifandi.
Ef við erum króuð af og okkur líð-
ur illa er okkur tamt að kenna að-
stæðum um, en finnum ekki þá frum-
sök sem liggur í okkur sjálfum.
Hvernig sál sem vill frelsi er heft í
líkama sem jafnvel er orðinn veikur
af átökum sínum við að virðast eins
og allir hinir.
Besta ráðið við öllu þessu er að
berjast til frelsis, setjast við eldinn
eða dansa við ölduna. Þannig getum
við lifað lífinu lifandi.
SIGURBORG KR.
HANNESDÓTTIR,
ráðgjafi og jógakennari.
Að lifa lífinu lifandi
Frá Sigurborgu Kr. Hannesdóttur:
KÆRI lesandi.
Þegar bíllinn minn fór í sína fyrstu
smurningu á Smurstöðina Klöpp í
febrúar þá urðu mistök starfsmanns til
þess að bíllinn lenti á verkstæði B&L
og var þar í mánuð í bilanaleit, kostaði
sú viðgerð rúmar 70.000 kr. Staðfestu
sérfræðingar B&L að þetta væri mis-
tökum hjá starfsmanni smurstöðv-
arinnar að kenna og skrifuðu það á
reikninginn að það tjón sem varð á
bílnum hefði gerst á smurstöðinni.
Ég fór á smurstöðina og ræddi við
einn af eigendunum áður en bíllinn
var settur saman til að gefa honum
kost á að skoða tjónið.
Eigandinn mætti á verkstæði B&L
sama dag og skoðaði tjónið. Ég fór
reglulega næstu 3 vikurnar á smur-
stöðina til að reyna að fá einhver svör
frá eigandanum, þar sem smurstöðin
er tryggð fyrir svona tjónum fannst
mér mjög eðlilegt að þeir greiddu fyr-
ir tjónið sem þeir ollu, án þess að það
skapaði leiðindi.
Eigandi smurstöðvarinnar var ekki
á sama máli, og neitaði greiðslu, ég
hef sent reikninginn í innheimtu til
lögmanns og var svarið að berast frá
smurstöðinni þar sem þeir neita að
greiða reikninginn og reyna að koma
sökinni yfir á starfsmenn B&L.
Bíllinn minn, þó að hann sé af ár-
gerð 2004, hafði aldrei verið þjónust-
aður áður en hann fór á Smurstöðina
Klöpp, og hann fór svo stuttu seinna
bilaður til B&L, þannig að þessi bilun
gæti aldrei verið neinum að kenna
nema smurstöðinni, ekki gæti þetta
verið verksmiðjunni að kenna þar
sem bíllinn var ekinn, án vandamála,
22.000 km áður en hann fór í smurn-
ingu á smurstöðina Klöpp.
Samkvæmt sérfræðingum BMW á
þetta ekki að geta gerst ef verkið er
unnið af fagmennsku, og vissu þeir
ekki um nein önnur dæmi þess að
þetta hefði gerst áður, en það var
ástæða langrar bilanaleitar þar sem
gatið sást ekki nema taka stykkið úr
bílnum, en tölva bílsinns gaf alltaf
villuboð á skynjara sem var á öðrum
stað en mældi loftflæðið í gegnum
þetta box.
Staðan nú er annaðhvort að höfða
mál fyrir greiðslu á þessum reikningi,
þannig mál kostar hundruð þúsunda
og getur dómur fallið á hvorn veginn
sem er – dómkerfi Íslands hefur ekki
verið mjög hliðhollt neytendum hing-
að til – eða sætta mig við að Smur-
stöðin Klöpp hafi skemmt nýja bílinn
minn og að þeir komist upp með það á
minn kostnað.
Þar sem þeir eru ekki tilbúnir í
neinar viðræður þá ákvað ég að skrifa
þennan pistil og vara þig lesandi góð-
ur við að versla við Smurstöðina
Klöpp þar sem þeir virðast ekki vilja
bera ábyrgð á því sem þeir gera og þú
lesandi góður gætir lent í sama
vandamáli og ég eftir viðskipti við
þessa smurstöð.
Er þetta eitthvað sem við neyt-
endur eigum að sætta okkur við? Ég
mæli með því að allir hætti við-
skiptum við Smurstöðina Klöpp
þangað til þeir fara að taka ábyrgð á
sínum gjörðum og koma fram við við-
skiptavini sína af virðingu og kurteisi.
Ég hef verið viðskiptavinur þeirra í
mörg ár án athugasemda, enda ekk-
ert komið uppá fyrr en nú, og þá kem-
ur þeirra rétta andlit í ljós.
Ég er hættur að versla við Smur-
stöðina Klöpp og mæli með því, kæri
lesandi, að þú gerir slíkt hið sama.
DANÍEL SIGURÐSSON,
Völvufelli 44, 111 Reykjavík.
Hver ber ábyrgðina ?
Frá Daníel Sigurðssyni:
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
RÉTTUR kynhverfra til vígðrar
sambúðar og ættleiðingar ber
þessi misserin hátt svo um munar
á ísa köldu landi. Og mörgum er
brigslað um fordóma, en ekki
Framsókn.
Full ástæða er til að reifa
nokkrar staðreyndir í því sam-
bandi. Stuðst er við nýútkomna
bók vestur í Bandaríkjunum,
Schitzophrenia The Bearded Lady
Disease eftir J.Michael Mahoney
og auglýst hefur verið í tímaritinu
New York Review of Books um
nokkurt skeið. Þar kemur fram,
að tvíkynhneigð, og þess vegna
samkynhneigð láti rækilega á sér
kræla hjá þeim, sem kljást við
strembna taugaveiklun (paranoiu)
og komast í geðklofaástand. Fólk
almennt getur þjáðst tímabundið
af hvorutveggja meininu, án þess
þó að hrökkva algerlega úr líming-
unum, klikkast.
Reynt hefur verið bæði leynt og
ljóst um eitthvert árabil að halda
því fram, og það af töluverðum
þunga, að helftin af báðum kynj-
um séu samkynhneigðir, ýmist í
felum í skápum, og hvar sem er.
Þessu er ef til vill trúað af marg-
num. Tortryggnin, brigslið, dómg-
irnin og harkið í samskiptum, ekki
síst hjá ungu og ómótuðu fólki
keyrir úr hófi. Það liggur fyrir
samkvæmt bæði bandarískum og
íslenzkum rannsóknum, að sjálfs-
morð hafa færst stórkostlega í
aukana víða um lönd síðustu ára-
tugi meðal drengja á mótunarreki.
Til þess geta vitaskuld legið ýms-
ar ástæður. En hvaða drengir eru
þetta, þræltaugaveiklaðir sjálf-
sagt, hálfgeggjaðir jafnvel, gjarn-
an skakkir, að glíma við eigin tak-
markanir, árangurslítið,
upprennandi hetjur diskóljósanna,
sem falla í valinn fyrir aldur fram
sakir mótlætis, kuldaviðbragða og
fordóma þjóðfélagsins eða á sökin
fremur rætur í yfirþyrmandi úr-
ræðaleysi, í og með vegna upp-
digtaðra og gjörónýtra kosta, grí-
nagtugheita, örþrifaráð hafi ráðið
voðaverki, ekki örlagadómur og
hann neodarvinískur.
Kynhverfu fólki ber mörgu sam-
an um, að heyrst hefur, að það sé
örugglega fætt öfugt og erfðavísar
ráði þar um. Á það við í einhvejum
tilvikum, en miðað við útbreiðslu
og einkenni slæmrar taugaveikl-
unar má telja víst að þeir séu
snöggtum færri en fleiri. Fólk
mótast jafnt í meðlæti sem mót-
læti. Kynhverfa er grínlaust ekki
allsherjar ráð við mótlæti, þó haft
sé í flimtingum, hvað þá kynlíf yf-
irleitt.
En hvað er það, sem helst skipt-
ir máli í þessu samband? Bera
ekki kröfur samtaka samkyn-
hneigðra um hjónavígslur og ætt-
leiðingar vitni um ofstæki þeirra
og fordóma? Og hvernig bregðast
sjórnmálamenn við? Á blautlegu
nótunum, reikna með, að þannig
liggi stemmingin hjá nýj-
ungagjörnu og rótlausu fólki, kjós-
endum? Í fyrsta lagi er gersam-
lega gengið á svig við forsendur
barnanna sjálfra hvað ættleið-
inguna varðar. Þau verða á end-
anum, má reikna með, unglingar
og ganga á hólm við lífið, oft varn-
arlitlir og umkomulausir. Hvert á
þetta góða fólk að snúa sér í sínu
mótlæti og uppreisn í þjóðfélagi,
sem snýr við þeim hálfkærings-
legu glotti og samþykkir kyn-
hverfu almennt sem meðfædda,
eðlilegan eðliskost og nauðung-
arkost ómótaðra ungmenna í tylfta
tali? Ætlar ríkisstjórn og alþingi
að bjóða hersingunni upp á vígslur
og ættleiðingu?
Auðvitað nær þetta ekki nokk-
urri átt fremur en að (fyrirgefið
orðbragðið) gera samfaraleiki að
íþróttagrein hjá ÍSÍ og keppn-
isíþrótt á Ólimpíuleikjum.
Kynhverfir verða að fá að hafa
frið og hætta að gera sér grillur
um fjölmenna sveit sinna nóta á
hverju strái, gerast raunsærri og
heiðarlegri við sjálfa sig og aðra.
Nóg er af fíflskunni samt, sem
gerir ekkert annað en eitra út frá
sér. Fólk, sem gerir viðlíka kröfur
á hendur sínu samfélagi og þeir
stjórmálamenn, sem undir taka er
auðvitað ekkert annað en dót, póli-
tísk merhross. Og hana nú. Jöfn-
uður og algert jafnrétti verða víst
seint lagt að jöfnu.
JÓN BERGSTEINSSON,
verkamaður, Snorrabraut 30,
Reykjavík.
Taugastríð samkyn-
hneigðra og alþingi
Frá Jóni Bergsteinssyni:
Fréttir
á SMS