Morgunblaðið - 12.06.2006, Síða 26

Morgunblaðið - 12.06.2006, Síða 26
26 MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN HVAÐ eiga Íslendingar að halda um trúverðugleika Írans í kjarn- orkuvopnamálum? Hvað vitum við svosem almennt um Íran? Flestir okkar vita kannski að þetta er landið sem áður hét Persía, og að þar bjuggu Persar hinir fornu sem stóðu uppi í hárinu á Forn-Grikkjum. Þeir höfðu þá konunga með nöfnum eins og Kýros, Daríos og Xerxes. Þegar svo Alexander mikli lagði undir sig Persaveldi, náði það frá Miðjarð- arhafi til Indlands, og spannaði þá löndin sem við nefnum í dag Tyrk- land (Litlu Asíu), Írak (Mesópótamíu) og Íran (Persíu). Við lærðum í gagn- fræðaskóla og mennta- skóla að í Íran byggju þjóðir sem töluðu indó- evrópskt mál einsog við, og voru nafntogaðastar þjóða þar Medar og Persar í blómatíð Forn- Grikkja, en svo Parþar og Sassanítar á tímum Rómaveldis. Veittu þá Par- þar Rómverjunum marga skráveif- una; svosem konungurinn Mý- þradates, en aldrei tókst Rómverjum þó að leggja veldi þeirra undir sig. Eftir þann tíma hverfur ríkið útúr meginstraumi mannkynssögunnar, þartil kringum 1970, er keisarinn þeirra Reza Pahlavi er að reyna að iðnvæða borgir landsins, og svo aftur kringum 1980 þegar honum er steypt af stóli, og klerkastjórn verður í fyrsta sinn ein um völdin. Síðan kem- ur stríðið við Írak sem varir til 1988. Þessar fáu staðreyndir segja þó furðu mikið: Þarna er hern- aðarsinnuð þjóð sem hefur vanist því að vera sjálfstæð, og að líta stórt á sig í sögulegu tilliti. Fyrir utan skamm- vinna landvinninga grannþjóða hefur hún að mestu verið sjálfstæð að kalla í um 2500 ár, og hafa þar Persar og frændur þeirra verið langfjölmenn- asta þjóðarbrotið (nú um 40% lands- manna). Síðan á 16. öld hafa þeir haft tvípóla stjórnarfar keisaraveldis Shasins og klerkaveldis Shíta- múslima; sem laut jafnan forystu hins veraldlega sinnaða keisara. Íranar hafa lengi þurft að vera á verði gagnvart ásælni grannþjóða: Má þar nefna Írak í suðri, Tyrkland í vestri, Rússland í norðri, og Indland í austri. Við þetta bætt- ust á 20 öld áhrif breska heimsveldisins, Banda- ríkjanna, og nú einnig Kína; einkum er varðar olíuviðskiptin.. En margar grannþjóða Ír- ans hafa nú kjarn- orkuvopn sér til full- tingis, svosem Rússland, Natóríkið Tyrkland, Indland, Pakistan, Kína og Ísr- ael. Við slíkar kring- umstæður fer því varla hjá því að Írönum finnist að þeir hafi nánast heilagan rétt til að þróa sín eigin kjarnorkuvopn. Sérstaklega í ljósi hins nýlega innrásarstríðs frá Írak, 1981–1988. Við þetta bætist að Íranar eru talsvert hervæddir, líkt og flestar nágrannaþjóðir þeirra, og hermál því væntanlega ofarlega í huga stjórn- málamanna þeirra alla jafna sem áhrifavaldur. Því hlýtur nú að vera næstum ómótstæðileg freisting fyrir þá að þróa kjarnorkutilraunir sínar í átt til bæði kjarnorkuvers og kjarn- orkuvopna í senn. Þannig fari saman hagsæld, virðing, öryggi og drottn- unarvald. Ef ennþá ríkti keisarastjórn í Íran, yrði það kannski ekki uggvænlegra kjarnorkuveldi en t.d. Pakistan er núna. En þar eð þeir eru svo flæktir í trúarlega byltingu heima fyrir, og svo flæktir í stuðning við andspyrnuhópa Síta í ýmsum nágrannalöndunum, þá virðast þeir engan veginn hafa til að bera þann stöðugleika sem eigendur svo öflugra gereyðingarvopna sem kjarnorkuvopn eru, þyrftu við; til að forða jafnvel sjálfum sér frá voða. Þá er ótalið, að þeir eru á enn við- kvæmara áhrifasvæði Bandaríkjanna í Asíu en sjálf Norður-Kórea er á; og yrðu því svipuð ógn í því valdatafli og Írak var að verða með kjarn- orkuvopnatilraunum sínum á níunda áratuginum. Ljóst virðist því að vesturveldin verða að vera tilbúin að beita tals- verðu valdi til að forða því að svo stór ógn verði að veruleika. Nú er Ísland að sækja um sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Er þar meginatriði í stefnuskrá okkar að stuðla gegn frekari útbreiðslu kjarn- orkuvopna. Enda virðist að áfram- haldandi útbreiðsla kjarnorkuvopna- eignar hlyti á endanum að leiða til slita á heimsfriðinum; ef ekki til slita sjálfs heimsins. Því virðist nú sem ut- anríkisráðherra okkar mæli með hefðbundinni árás á Íran, sem ör- þrifaráðs; ef það megi verða til að af- stýra því að Íranar komi sér upp kjarnorkuvopnum. Hætt er þó við að Íran yrði þá að hliðstæðu vandamáli og Írak er nú orðið; og jafnvel að spjót múslímskra öfgamanna færu þá að beinast að Ís- landi sérstaklega; ef Ísland væri formlegur aðili að slíkri innrás úr sæti sínu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna! Friðvænleiki Írans Tryggvi V. Líndal fjallar um Íran ’Er þar meginatriði ístefnuskrá okkar að stuðla gegn frekari útbreiðslu kjarnorku- vopna.‘ Tryggvi V. Líndal Höfundur er þjóðfélagsfræðingur og áhugamaður um kjarnorkuafvopnun. RADÍÓAMATÖR ! Hvað er nú það? Við sem höfum þetta að áhugamáli erum oft spurðir að þessu. Og eins og gefur að skilja er stundum erfitt að segja frá því í stuttu máli. Fyrst og fremst er þetta áhugamál um fjar- skipti og fjarskiptatækni. Sumir eru í því að hafa samband við aðra ama- töra um allan heim en aðrir hafa meiri áhuga á að smíða alls konar búnað. Allt frá því Mar- coni tókst að senda loft- skeyti hafa radíó- amatörar verið til, kannski var hann sá fyrsti! Fljótlega fór þeim fjölgandi sem höfðu áhuga á þessu og þar kom að þeir sem töldu sig vera "alvöru" ákváðu og bundust samtökum um að þess- ir amatörar ættu ekki tilverurétt á langbylgjunni og úthlut- uðu þeim svæðum á stuttbylgjunni, sem væri hvort sem er alveg ónýt til fjarskipta. Fljótlega fóru þessir amatörar að smíða sér senda og viðtæki og settu upp loftnet til þess að nota sín á milli. Þróun í fjarskiptum varð mjög hröð á þessum upphafstímum og kom að því að samband við radíó- amatöra í öðrum löndum tókst og amatörar fengu því framgengt að þeim var úthlutað smábútum hér og þar á stuttbylgjusviðinu. Og nú í dag hafa amatörar leyfi til að nota tíðni- svið frá langbylgju 1,8 MHz og að 29 MHz og nú í seinni tíð (tilraunaút- sendingar) á 137 Hz, Félagið Íslenskir radíóamatörar, skammstafað ÍRA, var stofnað 14. ágúst 1946, verður því 60 ára á næsta ári, en þá skömmu áður höfðu íslensk yfirvöld sett reglugerð um starfsemi radíóamatöra þar sem nokkuð ströng skilyrði voru sett. Þeim var gert að undirgangast próf til þess að sanna að þeir kynnu eitthvað fyrir sér í þessum fræðum en það var í fullu samræmi við það sem tíðkaðist erlendis. Einnig var sett ákvæði um að þeir sem sóttu um leyfi urðu að vera greiðendur útvarpsgjalds. ÍRA hefur frá upphafi reynt að standa vörð um starfsemi amatöra á Íslandi og í góðri samvinnu við yf- irvöld sem áður voru Landssími Íslands en á seinni árum Póst- og fjarskiptastofnun. Má segja að sú stofnun hafi verið okkur afar hag- stæð og menn þar á bæ verið framsýnir á þarfir radíóamatöra. Þess má geta að fyrir u.þ.b. 35 árum var sett reglu- gerð um starfsemi ný- liða og urðum við þar með fyrstir í Evrópu til að leyfa ungu fólki, sem kannski hafði ekki allt þetta á hreinu, að kynnast þessu áhugamáli og með tímanum að til- einka sér þetta. Það er núna fyrst sem það hefur komið til tals í ná- grannalöndum okkar að nauðsynlegt væri að taka þetta upp En nokkrir frumkvöðlar höfðu þó verið í loftinu hér á landi án leyfis en amatörleyfi höfðu verið útgefin víða í Evrópu. T.d. eru félögin annars stað- ar á Norðurlöndum komin yfir 80 ár- in. Enn í dag verða amatörar um all- an heim að undirgangast próf til þess að fá að fara í „loftið“. Í seinni tíð hafa kröfur til amatöra verið sam- ræmdar milli landa þannig að nú get- ur íslenskur radíóamatör farið til flestra landa í heiminum og haft sam- band þaðan við umheiminn og flestir komið til Íslands. Í tímans rás hefur þó þessum takmörkunum verið aflétt eða þær rýmkaðar verulega. Ekki þarf lengur að kunna að senda og taka á móti morse. Radíóamatörar um víða veröld hafa veitt radíóþjónustu á hættutím- um, til dæmis þegar flóðbylgjan mikla olli miklu manntjóni, þá voru það radíóamatörar frá nálægum löndum sem settu upp radíóþjónustu sína og veittu alla þá hjálp sem þeir gátu. Einnig í BNA hafa þeir verið til staðar vegna hamfara (fellibylja) en þar í landi er mikil hefð fyrir ama- törradíói og má geta þess hér að þeir fá ekki leyfi nema undirgangast skil- yrði um að veita þessa þjónustu. Við íslenskir radíóamatörar höfum lengi veitt þessa þjónustu fyrir Al- mannavarnir ríkisins en því miður hefur nú sem stendur ekki verið ósk- að eftir okkar aðstoð en þó fer fjöldi manna og kvenna í okkar röðum af stað ef þörf krefur. Margar björg- unarsveitir landsins hafa innan sinna raða einmitt menn sem eru radíó- amatörar þannig að við komum víða að. ÍRA hefur staðið fyrir nám- skeiðum í radíófræðum og fyr- irhugað er eitt slíkt í byrjun næsta árs. Ef þú hefur áhuga þá ertu velkom- in(n) í félagsheimili okkar að Skelja- nesi (endastöð Strætó) en við erum með opið hús alla fimmtudaga frá kl. 20 og oftast heitt á könnunni. Á heimasíðu okkar www.ira.is eru frekari upplýsingar um félagið. Sjáumst fljótlega. TF3HP Hvað er amatörradíó ? Haraldur Þórðarson fjallar um radíóamatöra ’Margar björgunar-sveitir landsins hafa inn- an sinna raða einmitt menn sem eru radíó- amatörar þannig að við komum víða að.‘ Haraldur Þórðarson Höfundur er tækjavörður við efnafræðiskor HÍ. AÐ UNDANFÖRNU hef ég skrifað greinar um Krabbameins- félag Íslands (KÍ). Svör við þessum greinum hafa borist fyrst frá for- manni stjórnar og síðan 3. júní frá forstjóra KÍ, Guðrúnu Agnars- dóttur. Aldrei hefur mér verið boð- ið í kaffi í gegnum Mbl. en allt er ein- hvern tímann fyrst. Þar sem fram kemur í þessum greinum þeirra að ég sé að gagnrýna starfsemi og meðferð fjármála KÍ verð ég að leiðrétta þau aðeins. Tilgangur minn er að vekja athygli á því sem tugir krabba- meinsgreindra hafa nefnt við mig. Sér- staklega þeir sem hafa tekið virkan þátt í starfsemi stuðnings- hópa KÍ og tóku einn- ig þátt í söfnun KÍ ár- ið 2001 „Einn af hverjum þremur“. Þetta fólk er reitt, fullt af gremju og bit- urt út í hvernig starf- semi KÍ er háttað. Ég verð að taka undir með þessu góða fólki sem hefur verið að berjast við sinn sjúkdóm í fleiri ár, með það að gagnrýni þeirra er að mörgu leyti réttmæt í garð KÍ. Þegar rætt er við krabbameins- greinda einstaklinga sem hlotið hafa fullkomna bót á meinum sín- um líkamlega og rætt við þá um þá þjónustu sem þeir fá varðandi framtíðina og andlegan þátt veik- inda sinna get ég ekki orða bund- ist. Framtíðin er með stóru „EF“ sjúkdómurinn tekur sig upp aftur, lýtaaðgerðir og aðrar skurð- aðgerðir ásamt öllu því amstri sem því fylgir. Inn í andlega þáttinn koma líka breytingar í samlífi hjóna, skilnaðir og annað sem krabbameinsgreindur getur lent í. Og margir búa einir. Félagsleg nánd, t.d. koma saman og ræða málin við aðra sem eru í svipaðri aðstöðu, hefur hjálpað þessu fólki ómetanlega. Að horfa á einstakling á bestu árum ævi sinnar, kominn með útskrift, brotna síðan saman vegna „EFSINS“ vegna þess að við fáum ekki sömu þjónustu og aðrir í heilbrigðiskerfinu. Vegna þess að hagsmunagæsla krabbameins- greindra gagnvart heilbrigðiskerf- inu er engin. Peningar sem safnað er 2001 og lofað til þessara hluta eru ekki nýttir. Þetta er ekki að mínu mati gagnrýni á starfsemi KÍ heldur staðreynd um starfsemi KÍ. Á meðan sjúklingum innan okkar hóps er mismunað með gjaldtöku innan LSH og annarra stofnana segir KÍ ekki neitt. Staðreynd. Ég viðurkenni þó að stjórn KÍ sýndi smálit á aðalfundi sínum að færa Ljósinu, endurhæfingar- og stuðn- ingsmiðstöð krabbameinsgreindra, 2,5 milljónir að gjöf. Ljósið var sett á stofn, ekki að tilstuðlan KÍ, sem mér hefði þótt rétt, heldur af krabbameinsgreindum ein- staklingum sem vissu af þörfinni í þjóðfélaginu og gátu ekki sætt sig við óbreytt ástand. Innan KÍ er fjölbreytt starfsemi í leit að krabbameini og við lestur ársreikninga KÍ kemur í ljós að tekjur eru umtalsverðar af rekstri. T.d. árið 2004 eru skoðanagjöld 66 millj., styrkur frá ríkissjóði 240 millj., fjárveiting frá ríkissjóði 29 millj., erfðagjafir 39 millj., aðrar tekjur 89 millj. Eignir KÍ eru sam- tals 641 millj. Athygli vekja útgjaldaliðir s.s. launakostnaður 256 millj., verk- takavinna 64 millj., Ríkisspítalar vegna launa lækna 4 millj. Styrki til aðild- arfélaga, vegna þess að GA minnist á þá, er fróðlegt að skoða. Er þá hægt að skoða í ársskýrslu 2004 undir Landssöfnun 2001 (þjóðarátak gegn krabbameini), rekstr- arreikningur 2004. Getur það verið að 60 millj. séu enn inni af 75 millj. sem voru til úthlutunar? Ég hélt að söfnunin hefði heitið „Einn af hverjum þremur“? Ég hef í áhuga mín- um sótt tvo aðalfundi aðildarfélaga. Í öðru félaginu sóttu fundinn 22 félagsmenn. Aðal- fundarstörf tóku 20 mínútur. Allir sam- mála enda í sjóðum félagsins 3,2 millj. Engin starfsemi og engin umræða um að nýta fjár- munina. Í hinu félaginu tóku aðal- fundastörf aðeins lengri tíma þar sem mér datt í hug að koma með fyrirspurnir. Á fundinn mættu u.þ.b. 10 manns. Í sjóði þess félags eru um níu millj. Umræða var mik- il á þeim fundi um óánægju með störf KÍ og hvernig stuðningshópar væru undir hælnum á stjórn KÍ. Engin umræða um á hvern hátt ætti að verja sjóðum félagsins. Ég komst ekki yfir fleiri aðal- fundi, enda hækkandi bensínverð, en ég get ímyndað mér að í sjóðum annarra stuðningshópa og félaga sé sama sjóðmyndunin. Á heimasíðu KÍ má lesa sögu KÍ frá upphafi. Margsinnis hefur KÍ fengið styrki frá t.d. Heilbrigðsst. Bandaríkjanna, 25 aura styrk af hverjum sígarettupakka sem þá kostaði 15,80 kr. og margt fleira. KÍ rekur röntgendeild, rann- sóknastofur, leitarstöð og krabba- meinsskrá. Starfsfólk krabbameins- skrár er 10 manns en starfsmenn KÍ eru 78 í 60 stöðugildum. Læknar sem unnu sem verktakar hjá KÍ eru 23. Í vísindaráði KÍ sitja níu manns. Læknar í starfi við LSH sem störfuðu í 50% starfi við KÍ eru 16 talsins. Er þarna vina- samfélagið? Á sama tíma og viðtal er tekið við hjartasjúkling/ þingmann í tímariti sem lýsir yfir ánægju sinni með aðbúnað á Reykjalundi og hjartadeild sér maður svo ekki verður um villst að langt er í land. Getur nokkur hjartasjúklingur ímyndað sér Hjartaheill, landssamtök hjarta- sjúklinga, hefja rannsóknir á hjartasjúkdómum? KÍ verður að skilja að starfsemi sína og hags- munagæslu fyrir krabbameins- greinda. Er áhugi fyrir hendi? Heimildir: Heimasíða KÍ. Árs- skýrsla 2004. Umsvif Krabba- meinsfélags Íslands Haukur Þorvaldsson fjallar um starfsemi Krabbameinsfélags Íslands ’KÍ verður aðskilja að starf- semi sína og hagsmunagæslu fyrir krabba- meinsgreinda.‘ Haukur Þorvaldsson Höfundur er krabbameinsgreindur öryrki. Gætum tungunnar Á stofunni eru einar dyr og í þeim er ein hurð. Á skálanum eru tvennar dyr og sín hurðin í hvorum þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.