Morgunblaðið - 03.07.2006, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 03.07.2006, Blaðsíða 62
62 F MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Bæjar l ind 6 • 201 Kópavogur • S ími : 575 8800 • Fax: 575 8801 • www.nethus. is Elín D.W. Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali Hvammabraut - 220 Hf. Góð 2ja-3ja herbergja íbúð í friðsælu hverfi. Eldhús með góðri uppgerðri inn- réttingu og nýlegum tækjum, bjartur rúmgóður borðkrókur. Útgengt frá stofu út á timburverönd í skjólsælan suðvest- urgarð. Afhendingartími ca einn mán. Ásett verð 14,9 millj. 3ja herbergja Andarhvarf - 201 Kópavogur Gott 269,4 fm parhús á tveimur hæðum með góðu útsýni ásamt innbyggðum bílskúr. Efri hæð allt að því tilb. til innréttingar. Allt efni til þess fylgir. Neðri hæð er að mestu fullbúin. Útihurðir og gluggar úr mahóní, inni- hurðir úr eik. Ásett verð kr. 59,5 millj. Rað- og parhús Holtagerði - 200 Kópavogur Vorum að fá í sölu vel viðhaldið einbýli ásamt bílskúr í grónu og vin- sælu hverfi vesturbæjar Kópav. Húsið er mikið endurnýjað á smekkleg- an hátt að innan, bæði gólfefni og innréttingar. Að utan er húsið nýmál- að. Fallegur og skjólsæll garður, hiti er í stétt og bílaplani. Mjög áhuga- verð eign sem vert er að skoða. Einbýli - Bílskúr Grundargerði - 108 Rvík Risíbúð með sérinngangi í fallegu tvíbýlishúsi. Fal- legur garður í góðri rækt. Gólfefni íbúðar eru park- et, dúkur og teppi. Sam- eiginlegt þvottahús á jarðhæð ásamt sér- geymslu. Afhendingar- tími er ca einn mánuður. Ásett verð kr. 12 millj. 3ja herbergja Smyrlahraun - 220 Hafnarfjörður 5 herbergja endaraðhús ásamt bílskúr. Neðri hæð er sjónvarpshol, gestasal- erni, þvottahús, eldhús og stofa. Gólfefni neðri hæð- ar eru marmaraflísar. Á efri hæð eru 4 svefnher- bergi og baðherbergi. Gólfefni efri hæðar teppi, flísar og dúkur. Verð 33,9 millj. Rað- og parhús - Bílskúr Galtalind -200 kóp íbúð á tveimur hæðum Vorum að fá í sölu rúmgóða 5 herbergja íbúð á tveimur hæðum í eftirsóttu hverfi. Eldhús er með innréttingum úr kirsuberjavið og innfelldum tækjum, baðherbergi eru flísalögð í hólf og gólf. Parket er á öðrum gólfum. Suðvestur svalir eru frá stofu. Verð 33,7 m. 5 herbergja Flétturimi - 112 R. Hagstæð lán Góð íbúð með sérinngangi frá svölum í vel staðsettu húsi innst í botnlanga. Lóð er snyrtileg og hefur leikaðstöðu fyrir börn, að auki er stórt óbyggt svæði í kring. Þvottahús er innan íbúðar og eru innr. og gólfefni úr mahóní. Ásett verð 21,9 millj. 3ja herbergja Stóragerði - 108 R. Góð áhv. lán Mjög rúmgóð og björt 90,4 fm íbúð á eftirsóttum stað. Íbúðin er 2ja herb. en hægt að gera 3ja herb. í stofu. Stofa, hol og svefnherbergi eru lögð fallegum olíubornum hlyn. Í kjallara er herbergi með aðgengi að salerni sem getur hent- að til útleigu. Verð 19,3 millj. 3ja herbergja LAUS FLJÓT LEGA LAUS FLJÓT LEGA Reykjavík - Fasteignasala Brynjólfs Jónssonar er með í sölu einbýlishús á einni hæð auk kjallara, þar sem m.a. er séríbúð, ásamt sérstæðum tvöföldum 54,6 fm bílskúr, í Brön- dukvísl 22. Eignin er skráð 236,7 fm en þar vantar inn í 80 fm í kjallara og er því heildar gólfflöturinn um 316 fm. „Þetta er stórglæsilegt, bjart og vel umgengið einbýlishús á afar glæsilegri, ræktaðri lóð á rólegum stað, innst í húsagötu,“ segir Brynj- ólfur Jónsson. „Vestur af lóðinni er opið svæði með gróðri og róluvelli.“ Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og forstofuskápum. Sjón- varpshol er með parketi á gólfi. Björt stofa og borðstofa eru með parketi á gólfi, viðarklæddum loftum og gluggum á tvo vegu, hátt til lofts. Úr stofu er gengið út á skjólsæla hellulagða vestursólverönd. Bjart eldhúsið er með dúk á gólfi, gluggum á tvo vegu, innréttingu, flísum á milli skápa og borðkrók. Þvottahúsið er með flísum á gólfi, innréttingu og hurð út í garð bakdyramegin. Snyrting er með flísum á gólfi og veggjum. Svefnherbergisgangur er með parketi á gólfi. Rúmgott bað- herbergi er með flísum á gólfi og veggjum, baðkari, sturtuklefa með hengi og innréttingu. Hjónaherbergi er með parketi á gólfi, góðum skáp- um og hurð út á norðursvalir. Tvö rúmgóð herbergi eru með parketi á gólfi og góðum skápum. Garðskáli er með parketi á gólfi og hurð út á hellulagða verönd. Úr garðskálanum er gengið niður í kjallara. Þar er geymsla og ein- staklingsíbúð. Komið er inn í for- stofu með flísum á gólfi. Baðher- bergi er með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu og sturtu. Eld- hús er með innréttingu og glugga. Rúmgott herbergi er með dúk á gólfi og skápum. Í kjallaranum er rúm- gott, gluggalaust tómstunda- herbergi sem getur nýst hvort sem er fyrir efri hæðina eða íbúðina í kjallaranum. Bílskúrinn er með rafmagni, hita og sjálfvirkum opnurum á báðum hurðum. Ásett verð 69,0 millj. kr. Bröndukvísl 22 Fasteignasala Brynjólfs Jónssonar er með í sölu einbýlishús á einni hæð auk kjallara, þar sem m.a. er séríbúð, ásamt sér- stæðum tvöföldum 54,6 fm bílskúr, í Bröndukvísl 22. Ásett verð er 69 millj. kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.