Morgunblaðið - 03.07.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 2006 F 21
Reykjavík - Kjöreign fasteignasala er með í sölu 237,7
fm endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bíl-
skúr í Laxakvísl 27. „Húsið
stendur á mjög fallegum stað rétt við Árbæjarsafn og
Elliðaárvoginn, gott útsýni er til suðurs og norðurs og
ekkert verður byggt fyrir framan,“ segir Dan V.S.
Wiium hjá Kjöreign.
Á neðri hæð eru forstofa, snyrting, forstofuherbergi,
hol, eldhús, geymsla, stofur og bílskúr. Efri hæðin er
með góðri lofthæð og þar eru fjögur svefnherbergi,
sjónvarpsstofa, baðherbergi, þvottahús og tvennar sval-
ir.
Rúmgóð, flísalögð forstofan er með góðum skáp og
parketlagt forstofuherbergið er með skáp. Gestasnyrt-
ingin innaf forstofunni er nýlega flísalögð. Holið er með
parketi og innaf er góð geymsla. Eldhúsið er rúmgott
með nýjum tækjum og tveimur gluggum. Parket í borð-
króknum og gólfflísar við innréttingu. Innréttingar eru
úr gegnheilli eik og flísar milli skápa. Gengið er niður í
stofurnar og er þar mikil lofthæð. Arinn og útbyggðir
gluggar í stærri stofunni. Sólarfilmur í gluggum stofa.
Gengið er út á hellulagða verönd og út í garðinn.
Léttur stigi upp á efri hæðina. Skápar eru í tveimur
af fjórum svefnherbergjum. Úr sjónvarpsstofu er út-
gengi á norðursvalir. Dúklagt þvottahúsið er með
glugga og innréttingu. Rúmgott baðherbergið er flísa-
lagt og með innréttingu, sturtuklefa og baðkari. Hjóna-
herbergið er rúmgott með góðum skáp og með suður-
svölum. „Húsið er í góðu ástandi að utan sem innan,“
segir Dan V.S. Wiium. „Örstutt er í frábærar gönguleið-
ir og helstu akstursleiðir.“
Ásett verð er 51,5 millj. kr.
Kjöreign fasteignasala er með í sölu 237,7 fm endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr í Laxakvísl 27. Ásett verð er 51,5 millj. kr.
Laxakvísl 27
Borgartún - Skrifstofuhúsnæði
Ný uppgert 2.000 fm skrifstofuhúsnæði til leigu á besta stað í
Borgartúni. Opin og skemmtileg rými. Falleg sjávarsýn.
Húsið hefur mikið auglýsingalegt gildi.
Laust til afhendingar strax.
Upplýsingar gefur Karl í síma 892 0160 eða Aron í síma 861 3889.
Fasteignafélagið Kirkjuhvoll
TIL LEIGU