Morgunblaðið - 03.07.2006, Síða 21

Morgunblaðið - 03.07.2006, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 2006 F 21 Reykjavík - Kjöreign fasteignasala er með í sölu 237,7 fm endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bíl- skúr í Laxakvísl 27. „Húsið stendur á mjög fallegum stað rétt við Árbæjarsafn og Elliðaárvoginn, gott útsýni er til suðurs og norðurs og ekkert verður byggt fyrir framan,“ segir Dan V.S. Wiium hjá Kjöreign. Á neðri hæð eru forstofa, snyrting, forstofuherbergi, hol, eldhús, geymsla, stofur og bílskúr. Efri hæðin er með góðri lofthæð og þar eru fjögur svefnherbergi, sjónvarpsstofa, baðherbergi, þvottahús og tvennar sval- ir. Rúmgóð, flísalögð forstofan er með góðum skáp og parketlagt forstofuherbergið er með skáp. Gestasnyrt- ingin innaf forstofunni er nýlega flísalögð. Holið er með parketi og innaf er góð geymsla. Eldhúsið er rúmgott með nýjum tækjum og tveimur gluggum. Parket í borð- króknum og gólfflísar við innréttingu. Innréttingar eru úr gegnheilli eik og flísar milli skápa. Gengið er niður í stofurnar og er þar mikil lofthæð. Arinn og útbyggðir gluggar í stærri stofunni. Sólarfilmur í gluggum stofa. Gengið er út á hellulagða verönd og út í garðinn. Léttur stigi upp á efri hæðina. Skápar eru í tveimur af fjórum svefnherbergjum. Úr sjónvarpsstofu er út- gengi á norðursvalir. Dúklagt þvottahúsið er með glugga og innréttingu. Rúmgott baðherbergið er flísa- lagt og með innréttingu, sturtuklefa og baðkari. Hjóna- herbergið er rúmgott með góðum skáp og með suður- svölum. „Húsið er í góðu ástandi að utan sem innan,“ segir Dan V.S. Wiium. „Örstutt er í frábærar gönguleið- ir og helstu akstursleiðir.“ Ásett verð er 51,5 millj. kr. Kjöreign fasteignasala er með í sölu 237,7 fm endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr í Laxakvísl 27. Ásett verð er 51,5 millj. kr. Laxakvísl 27 Borgartún - Skrifstofuhúsnæði Ný uppgert 2.000 fm skrifstofuhúsnæði til leigu á besta stað í Borgartúni. Opin og skemmtileg rými. Falleg sjávarsýn. Húsið hefur mikið auglýsingalegt gildi. Laust til afhendingar strax. Upplýsingar gefur Karl í síma 892 0160 eða Aron í síma 861 3889. Fasteignafélagið Kirkjuhvoll TIL LEIGU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.