Morgunblaðið - 11.07.2006, Síða 11

Morgunblaðið - 11.07.2006, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 11 FRÉTTIR LAGNING annars áfanga Sunda- brautar, sem fyrirhugað er að liggi frá Gufunesi upp á Kjalarnes, hefur verið kynnt í tillögu að matsáætlun, sem unnin var af Línuhönnun hf. Um er að ræða 8 km langan veg sem þverar Eið- isvík, Leiruvog og Kollafjörð. Gert er ráð fyrir að lagning annars áfanga brautarinnar eigi sér stað í áföngum og að fram- kvæmdir við lagningu braut- arinnar út í Geldinganes geti haf- ist á árinu 2008. Tengist Vesturlandsvegi vestan við Leiðhamra Fyrirhugað er að annar áfangi Sundabrautar liggi frá Gufunesi um Geldinganes, yfir Leiruvog, Gunnunes, Álfsnes og Kollafjörð að tengingu við Vesturlandsveg. Sundabrautin mun þvera Kolla- fjörð rétt vestan Helguskers og tengjast Vesturlandsvegi rétt vestan Leiðhamra. Áætlað er að u.þ.b. átta til tíu þúsund íbúa byggð rísi á Geld- inganesi og að fyrstu lóðum verði úthlutað á þessu ári, að því er fram kemur í skýrslu Línuhönn- unar. Með lagningu Sundabrautar mun þjóðvegur frá Kvosinni í miðbæ Reykjavíkur upp á Kjal- arnes, miðað við að farið sé um Sæbraut og Vesturlandsveg, stytt- ast um 7,5 til 9 km eftir því hvort miðað er við svonefnda Innri- eða Ytri-leið, sem kynntar eru sem valkostir við lagningu braut- arinnar. Í matsáætluninni kemur fram að valkostur nr. 1 sé í samræmi við Aðalskipulag Reykjavíkur 2001–2024. „Þar er gert ráð fyrir að seinni áfangi Sundabrautar tengist Vesturlandsvegi norðan við Kollafjörð með því að þvera Eiðsvík, Leiruvog og Kollafjörð. Gert er ráð fyrir að þveranirnar verði að mestu leyti á fyllingum og lágbrúm þar sem þarf. Eiðsvík verður þveruð á fyllingum að öllu leyti. Í valkosti 1 er gert ráð fyrir að brautin taki sveig til norðvest- urs þar sem hún þverar Geld- inganes nálægt miðju nesinu. Þar er gert ráð fyrir að brautin sé að hluta til í jarðgöngum. Hún þver- ar því mynni Leiruvogs töluvert vestarlega. Þverun hans er að mestu á lágri fyllingu en í henni verða tvær brýr, hvor sínum meg- in í sundinu, til að tryggja vatns- skipti í voginum. Brautin liggur vestan til á Gunnunesi þar sem hún kemur í land á Álfsnesi, ligg- ur meðfram urðunarsvæði Sorpu og að Kollafirði. Til er sam- komulag um legu Sundabrautar á Álfsnesi við mörk athafnasvæðis Sorpu í Álfsnesi. Þverun Kolla- fjarðar er einnig að mestu á fyll- ingu en í miðjum firði er gert ráð fyrir brú sem tryggir vatnsskipti innan við fyllinguna. Fyllingin í Kollafirði verður nokkuð hærri en fyllingin í mynni Leiruvogs vegna þess að land er nokkuð hátt báð- um megin fjarðar,“ segir í skýrslu Línuhönnunar. Gert er ráð fyrir að öll gatna- mót Sundabrautar verði mislæg þar sem umferð um Sundabraut verði í svonefndu fríu flæði. Reiknað er með gatnamótum við Borgarveg á Gufunesi, og tvenn- um gatnamótum á Geldinganesi og einnig á Álfsnesi. Er reiknað með mislægum gatnamótum á Kjalarnesi þar sem Sundabraut tengist núverandi Vesturlandsvegi vestan við Leið- hamra. Niðurgrafin að nokkru leyti Valkostur nr. 2 er að öllu leyti sambærilegur við valkost 1 fyrir utan þverun Geldinganess og Leiruvogs. „Valkostur 2 gerir ráð fyrir legu töluvert austarlega á Geldinganesi og að Leiruvogur sé einnig þver- aður innarlega í sundinu milli Geldinganess og Gunnuness. Endanleg staðsetning á valkosti 2 gæti hins vegar legið einhvers staðar á milli legu valkostar 1 og teiknaðrar legu valkostar 2 innan athugunarsvæðisins [...]. Ekki er gert ráð fyrir jarðgöngum undir Geldinganes heldur verði hún að nokkru leyti niðurgrafin. Brautin liggur austan til á Gunnunesi þar sem hún kemur í land á Álfsnesi. Á Álfsnesi og yfir Kollafjörð er gert ráð fyrir sömu legu og í val- kosti 1,“ segir í lýsingu Línuhönn- unar á þessum valkosti við lagn- ingu Sundabrautar. Fram kemur að lega Sundabrautar yfir Geld- inganes og Álfsnes sé fyrst og fremst bundin af því að Leiruvog- urinn er talinn hafa mikið um- hverfislegt gildi. Vogurinn er á náttúruminjaskrá og fjörurnar njóta hverfisverndar. Þykja því veglínur inn fyrir Geldinganes og á innanvert Álfsnes ekki koma til greina. „Þverun Kollafjarðar þykir heppilegri kostur en að fara með alla umferð til og frá höfuðborg- arsvæðinu um botn Kollafjarðar. Þverunin styttir leiðina um 3,5 km. Auk þess bendir líkleg um- ferðaaukning næstu ár á hringvegi við Kollafjörð til þess að þörf sé á breikkun núverandi vegar áður en Álfsnesið byggist upp eftir 2024. Sú breikkun myndi rýra gildi úti- vistasvæðisins sem er í botni fjarðarins skv. deiliskipulagi Mó- gilsár og Kollafjarðar. Ekki þarf að koma til þessarar breikkunar ef Kollafjörður er þveraður,“ segir í skýrslu Línuhönnunar. Almenningi gefst kostur á að senda athugasemdir við drögin til Línuhönnunar fyrir 19. júlí. Gert er ráð fyrir að matsáætlun verði svo skilað til Skipulagsstofnunar í lok júlí. Á fyllingum og lágbrúm yfir voga og firði Ljósmynd/Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar Rauðu línurnar sýna þá valkosti við lagningu annars áfanga Sundabrautar sem taldir eru koma til greina frá Gufunesi og yfir Kollafjörð. ÞVERUN Leiruvogs og Kolla- fjarðar við lagningu Sundabrautar, er talin geta haft áhrif á vatns- skipti, strauma og seltustig. Til að koma í veg fyrir þetta verður gert straumlíkan til að kanna áhrif mis- munandi útfærslna á brúaropum á hafstrauma. Þá þykir ljóst að þeir ferskvatns- fiskstofnar sem hugsanlega geti orðið fyrir áhrifum vegna fram- kvæmdarinnar séu aðallega lax og sjóbirtingur. Í Leirvogsá hefur ár- leg meðalveiði síðustu fimm ára verið 615 laxar og 106 sjóbirtingar en í Úlfarsá 225 laxar og 106 sjó- birtingar. Nokkrar bleikjur veiðast einnig í þessum ám ár hvert. „Leit- ast verður við að meta tegunda- samsetningu og stofnstærðir fiska í ánum sem eru innan áhrifasvæðis Sundabrautar,“ segir í skýrslu Línuhönnunar. Eyjar á Kollafirði (Lundey og Þerney), Úlfarsá (Korpa) og Blikastaðakró, Leiruvogur og Varmá eru á náttúruminjaskrá. „Fjallað verður um ofangreind svæði í frummatsskýrslu. Gerð verður grein fyrir því hver hugs- anleg áhrif framkvæmdarinnar verða á verndargildi þeirra m.t.t. þeirra forsendna sem settar eru fram í Náttúruminjaskrá og til- lögum Umhverfisstofnunar að Náttúruverndaráætlun.“ Eyjarnar eru á náttúruminjaskrá Eftir Andra Karl andri@mbl.is UNDANFARNAR tvær helgar hefur mikið borið á eftirlitslausum ungmennum á fjöl- skylduhátíðum, annars vegar á Færeyskum dögum á Ólafsvík og um helgina á Írskum dög- um á Akranesi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var hegðun flestra til fyrirmyndar en hins vegar þótti stinga í augu hversu ungt fólk hafði áfengi undir höndum, allt niður í fjórtán, fimmtán ára. Verkefnisstjóri hjá Lýðheilsu- stöð segir ábyrgð foreldra mikla og fyrirhugað er hjá skipuleggjendum hátíðanna að endur- skoða skipulagið. „Vandamálið er náttúrlega sú staðreynd að samfélaginu í heild sinni virðist þykja í lagi að fimmtán, sextán ára krakkar fari með leyfi for- eldra sinna hingað og þangað um landið og drekki áfengi í tvo til þrjá sólarhringa,“ segir Tómas Guðmundsson, markaðs- og atvinnu- fulltrúi Akraneskaupstaðar og einn skipuleggj- enda Írskra daga. Tómas segir að skipuleggj- endur hafi ráðfært sig við lögreglu og komist hafi verið að þeirri niðurstöðu að það bæti ekki vandamálið að vísa ungmennum frá. „Við höfð- um m.a. reynt að hringja og láta sækja krakka sem greinilega voru of ungir en það bar lítinn árangur. Það eina sem við gátum gert var að tryggja að á meðan þessir gestir voru á okkar ágætu hátíð þá liði þeim eins vel og hægt var og færu sér ekki að voða.“ Ungmennin voru aðallega á tjaldsvæði í jaðri bæjarins og var fjölskyldufólk fyrst og fremst á öðru tjaldsvæði. Tómas segir að í heild hafi hátíðin tekist í samræmi við væntingar og mik- ill fjöldi fólks hafi tekið þátt í fjölskylduvænni dagskrá í bænum. Hins vegar muni verða farið yfir þátt ungmenna á hátíðinni og hugsanlega endurskoðað með hvaða hætti brugðist verður við að ári liðnu. „Við vitum hvaða ábyrgð við berum þegar við auglýsum svona hátíð, en stóra spurningin eftir helgina er hins vegar hvar ábyrgð foreldranna liggur,“ segir Tómas. Vitundarvakning óskandi „Foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum til átján ára aldurs, þannig að hvort sem börnin eru að fara þarna með leyfi eða í leyfisleysi, þá er þáttur foreldra nokkuð stór,“ segir Rafn M. Jónsson, verkefnisstjóri hjá Lýðheilsustöð. Aðspurður hvað hægt sé að gera við ung- lingadrykkju, sem hefur verið viðvarandi í mörg ár, segir Rafn að ávallt sé verið að beina þessum orðum til foreldra, en vísar jafnframt í þátt fullorðinna á Færeyskum dögum. Þar voru allar bifreiðar með ungu fólki stöðvaðar og áfengi gert upptækt. Eftir helgina fóru hins vegar að berast af því fréttir að fullorðið fólk hefði einfaldlega keyrt áfengið inn í bæinn fyr- ir ungmenninn. Rafn segist ekki hafa neinar sannanir fyrir þessum fréttum en ef satt reyn- ist þurfi þeir að líta í eigin barm. Hann bendir ennfremur á að hugsanlega þurfi að vera með öflugra og sýnilegra eftirlit á slíkum hátíðum. „Þetta er ekki einfalt og áfengi er því miður samþykkt í samfélaginu. Unglingadrykkja hef- ur verið hluti af því að alast upp og sumarið er einhvern veginn hömlulaust hvað þetta varðar. Þannig að einhverskonar vitundarvakning í samfélaginu væri óskandi,“ segir Rafn. Verslunarmannahelgin nálgast Nú þegar alræmdasta helgi unglinga- drykkju nálgast, þ.e. verslunarmannahelgin, og farið er að auglýsa útihátíðir sem haldnar eru víðs vegar um land segir Rafn að rétt sé að árétta við foreldra að hleypa ekki börnum sín- um eftirlitslausum á útihátíðir. Öllum ætti að vera kunnugt um þær hættur sem þar leynast en að verslunarmannahelginni lokinni berast undantekningalaust fréttir af mikilli ölvun ungmenna, ofbeldi, vímuefnaneyslu og nauðg- unum. Á vefsvæði Lýðheilsustöðvar er að finna gagnlegar upplýsingar fyrir foreldra, s.s. til að bregðast við þrýstingi frá unglingnum á heim- ilinu á komandi vikum. Er þar meðal annars bent á að foreldrar séu besta forvörnin og eins að ein leið til að koma til móts við óskir ung- lingsins sé að fylgja honum á útihátíðina. Þann- ig fær unglingurinn tækifæri og frelsi til að njóta þeirrar skemmtunar sem þar er í boði en foreldrarnir eru um leið í betri aðstöðu til að koma í veg fyrir óæskilega hegðun. Unglingadrykkja samþykkt af samfélaginu? Ungu fólki undir tvítugu hefur verið meinað að tjalda á völdum tjaldsvæðum, án eftirlits. Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.