Morgunblaðið - 11.07.2006, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 15
ERLENT
GEIMFARINN Piers Sellers býr
sig undir geimgöngu frá Al-
þjóðlegu geimstöðinni í gær. Sell-
ers var á meðal sjö geimfara sem
lögðu af stað til stöðvarinnar í
geimferjunni Discovery frá Ca-
naveral-höfða 4. júlí sl., eða á
þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna.
Discovery á að flytja þangað
birgðir og geimfararnir eiga m.a.
að prófa nýjan búnað sem á að
auka öryggi geimferja.
AP
Lagt af stað í geimgöngu
LIÐSMAÐUR Al-Qaeda í Dan-
mörku tók þátt í undirbúningi
árásar sem hryðjuverkamenn
fyrirhuguðu á jarðlestakerfi New
York-borgar, að sögn danskra
fjölmiðla í gær.
Danska lögreglan kom upp um
hryðjuverkahóp í Brøndby fyrir
tæpu ári og hefur nú aftur þefað
uppi annan slíkan hóp. Við rann-
sókn komu í ljós bein tengsl milli
nokkurra danskra ríkisborgara
og hryðjuverkasamtakanna al-
Qaeda. Hermt er að eftirlit
dönsku lögreglunnar með einum
þessara manna hafi stuðlað að því
að upp komst um hryðjuverkaá-
formin.
Þrír menn handteknir
Bandaríska alríkislögreglan,
FBI, skýrði frá því á föstudag að
tekist hefði að afstýra árás
hryðjuverkamanna á jarðlest-
agöng undir Hudson-fljóti milli
New Jersey og New York. Vitað
væri um átta menn sem hefðu
tekið þátt í undirbúningi árásar-
innar og þrír þeirra hefðu þegar
verið handteknir.
Assem Hammoud, 31 árs Líb-
ani, er talinn hafa skipulagt árás-
ina og hefur verið handtekinn og
ákærður í Beirút. Ekki hefur ver-
ið skýrt frá því hvar hinir menn-
irnir tveir voru handteknir. Tals-
maður FBI sagði að yfirvöld í sex
löndum hefðu aðstoðað við rann-
sókn málsins.
Enginn mannanna átta, sem
eru bendlaðir við málið, hafa farið
til Bandaríkjanna. Nokkrir þeirra
eru ef til vill í Kanada, að sögn
bandarískra yfirvalda.
Þóttist vera glaumgosi
Assem Hammoud hefur viður-
kennt að hafa skipulagt árásina.
Hann segist vera í al-Qaeda og
styðja Osama bin Laden, leiðtoga
samtakanna.
Hammoud er tölvufræðipró-
fessor við einkaháskóla í Beirút
og lét mikið á sér bera í skemmt-
analífi borgarinnar til að leyna
trúarofstæki sínu, að sögn Elie
Baradei, talsmanns öryggisyfir-
valda í Líbanon. „Hann var beð-
inn um að sýna ekki trúaráhuga á
meðan hann dveldi í Líbanon og
honum var sagt að láta líta út fyr-
ir að hann væri glaumgosi. Og
hann hefur gert það fullkom-
lega.“
Al-Qaeda-liði
í Danmörku
undirbjó árás
Skipulögðu hryðjuverk í New York
B&L verslun og varahlutir
Brú
Shell
Fossháls