Morgunblaðið - 11.07.2006, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 27
MINNINGAR
þetta er varð til þess að deildarstarfið
fór ört vaxandi og styrkti félagið í
heild á komandi árum. Einar tók við
formennsku félagsins 1958 er Erlend-
ur Ó. Pétursson lést en vegna veik-
inda formanns síðustu árin má segja
að hann hafi í raun tekið við for-
mennskunni mun fyrr. Sem formaður
starfaði hann í 17 ár við miklar vin-
sældir. Enda hélt hann ótrauður
áfram að styrkja allt starf félagsins
og tryggja framgang deilda, sem
höfðu nú sjálfstæðan fjárhag.
En það var víðar sem leiðir okkar
lágu saman. Um langan tíma vorum
við félagar í Lionsklúbbi Reykjavíkur
en þar starfa menn fyrst og fremst við
að styrkja sjónskerta eða aðra líkn-
arstarfsemi. Einar var lengi í þeirri
nefnd og vann þá að því að Íþrótta-
félag fatlaðra fékk myndarlegan
styrk til þess að byggja íþróttahús
sitt sem þá var í smíðum.
Á seinni árum þegar farið var að
hægjast um í íþróttamálum vorum við
feðgarnir farnir að stunda golf. Þá
fengum við enn þá ánægju að hitta
Einar þar fyrir. Hann hafði þá bætt
golfinu við sínar uppáhaldsíþróttir til
að iðka en jafnframt hélt hann áfram
við sundið og skíðin svo lengi sem
heilsan entist.
Að lokum sendum við Auði Einars-
dóttur, börnum hans og fjölskyldum
þeirra hugheilar samúðarkveðjur.
Gísli Halldórsson.
Leifur Gíslason.
Mikill höfðingi og öðlingur er lát-
inn. Vandfundnir eru slíkir menn sem
Einar Sæmundsson var. Vasklegur
og góðlegur maður í sjón og raun.
Hláturmildur og bjartur yfirlitum.
Jákvæður, kurteis og fágaður í fram-
komu. Heilsteyptur og heiðarlegur.
Hann bar með sér heiðríkjuna. Hvað
er betra hægt að segja og þó á þetta
allt við minn gamla vin, sem nú er fall-
inn frá eftir langa sjúkdómslegu.
Einari kynntist ég fyrir meira en
hálfri öld þegar hann var í forystu-
sveit KR, í hópi annarra öndvegis-
manna. Einar tók við formennsku í
KR af Erlendi Ó. Péturssyni. Það var
ekki létt verk að feta í fótspor þeirrar
goðsagnar sem Erlendur var. En svo
var Einar dáður og virtur að hann sat
á formannsstóli í nær tvo áratugi, svo
aldrei bar skugga á. Alls staðar ná-
lægur, alltaf brosandi, alltaf til taks
og stuðnings og hann gerði alla kepp-
endur, fullorðna sem unglinga, að fé-
lögum sínum. Hvar í íþrótt sem þeir
stóðu, án manngreinarálits, án for-
dóma eða yfirlætis. Kostir þessa höfð-
ingja voru einlægni, jákvæðni og vin-
átta, einlæg vinátta sem skein úr
augum hans og birtist okkur í hlátr-
inum og gleðinni, þegar vel gekk. Og
líka þegar miður gekk. Það var aldrei
bilbugur á þeim manni.
Einar var sundmaður á sínum
yngri árum og var síðar áhugamaður
um skíði og golf en var í rauninni
alæta á hvers konar íþróttir og
íþróttaiðkun. Þangað hafa börnin
hans og barnabörnin sótt áhugann og
getuna. Og þangað sótti hann lífs-
kraftinn, sem alltaf einkenndi þennan
heiðursmann. Forystustörf hans í
þágu íþróttanna voru áhugamál hans
en fyrir utan þær annir sinnti Einar
um langt árabil umfangsmiklum at-
vinnurekstri sem gekk farsællega
eins og flest annað í lífi hans.
Á síðari árum haðfi Einar dregið
sig í hlé frá félagsstörfum og atvinnu,
en hann var fastur gestur á öllum
samkomum og samkvæmum ungra
sem gamalla KR félaga og sem heið-
ursfélagi hjá ÍSÍ, sótti hann jafnan þá
atburði sem ÍSÍ bauð honum til. Þar
var hann aufúsugestur, hlæjandi,
glæsilegur sjentilmaður, sem setti
svip sinn á hver þau mannamót, sem
til féllu.
Það er sjónarsviptir af slíkum
mönnum. En um leið getum við glaðst
yfir því að hafa verið samferðamenn
Einars Sæmundssonar og þessi lífs-
nautna- og lífskraftsmaður hefur
sjálfsagt verið fullsáttur við þessi
endalok, þegar honum var þrotin geta
til að njóta sín. Afkomendur Einars
Sæmundssonar geta sömuleiðis verið
stoltir af löngum og hamingjuríkum
æviferli föður síns og afa. Ég flyt
þeim öllum innilegar samúðarkveðj-
ur. Sömuleiðis Auði sambýliskonu
hans.
Ellert Schram.
Góður vinur og félagi, Einar Sæ-
mundsson, er fallinn frá. Hans verður
sárt saknað í félagi okkar, KR. Það
eru um 50 ár síðan við kynntumst. Ég
var ungur að árum að leika minn
fyrsta leik í meistaraflokki KR í
knattspyrnu og Einar var nýlega orð-
inn formaður félagsins. Einar kom þá,
eins og ávallt síðan, inn í búningsklefa
okkar að leik loknum og tók þéttings-
fast og innilega í hönd hvers og eins.
Með bros á vör og blik í auga þakkaði
hann framlag okkar til KR. Hver sem
úrslitin voru var framkoma for-
mannsins ævinlega sú hin sama, hlý-
leg og traust. Enda ávann hann sér
virðingu og trúnað allra félagsmanna
og langt út fyrir raðir félagsins. Aldr-
ei heyrði maður Einar hallmæla
nokkrum manni. Hann var einkar
fundvís á hið jákvæða í fari hvers og
eins og með ljúfu brosi, hlýju og hæfi-
legri glettni voru mörg ágreiningsat-
riði leyst og urðu í raun og veru að
engu eftir að við Einar hafði verið
rætt. Einar var formaður á hinum
svokölluðu gullaldarárum í KR. Sigr-
ar og titlar komu á færibandi. Ekki
aðeins í knattspyrnu heldur í öllum
þeim íþróttagreinum er félagið lagði
stund á. Þá var og unnið ötullega að
því að bæta aðstöðu til æfinga bæði
innan- og utanhúss. Það má með
sanni segja að á formannsárum Ein-
ars hafi KR verið fremst í flokki á
meðal jafningja. Árangurinn í hinum
fjölmörgu íþróttagreinum er félagið
lagði stund á var framúrskarandi og
íþróttaaðstaðan var hin besta á land-
inu.
Síðan átti það fyrir mér að liggja að
taka við formennsku í KR þegar Ein-
ar óskaði eftir að hætta. Það mætti
ætla að það hefði verið erfitt að feta í
fótspor jafnvinsæls formanns og Ein-
ar var, en svo var í raun ekki. Allt var í
föstum skorðum, félagsstarfið mjög
öflugt og fjármálin stóðu traustum
fótum. Ég þekkti vel það traust er fé-
lagar í KR báru til Einars formanns,
en það var fyrst eftir að ég tók við að
ég gerði mér grein fyrir þeirri virð-
ingu er hann naut innan íþróttahreyf-
ingarinnar. Einar reyndist mér ein-
staklega góður ráðgjafi og
hjálparhella og á ég þessum góða vini
afskaplega mikið að þakka.
Að leiðarlokum kveð ég þennan öð-
ling og KR-ing númer 1. Mikinn höfð-
ingja, sem var mér fyrirmynd, vinur
og félagi.
Við hjónin flytjum Auði og fjöl-
skyldu Einars innilegar samúðar-
kveðjur.
Sveinn Jónsson.
Fleiri minningargreinar um Ein-
ar Sæmundsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Höfundar eru: Systkinabörnin,
Guðmundur Jón Elíasson, Kristinn
Jónsson, Húbbahópurinn, Pétur,
Sigrún og Bjarni Ingvar Árnason,
Hallgrímur Jónsson.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BRYNLEIFUR JÓNSSON
klæðskeri,
Kirkjuvegi 11,
Keflavík,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðju-
daginn 4. júlí, verður jarðsunginn frá Keflavíkur-
kirkju miðvikudaginn 12. júlí kl. 14.00.
Hjördís Brynleifsdóttir, Einar Jóhannsson,
Jón Magnús Brynleifsson, Hanna Fjóla Eriksdóttir,
Guðmundur Stefán Brynleifsson,
Guðlaug Brynleifsdóttir, Marteinn Magnússon,
Brynja Brynleifsdóttir, Ragnheiður Ásta Þorvarðardóttir
og barnabörn.
Elskuleg dóttir okkar, systir og barnabarn,
SIGRÚN KRISTINSDÓTTIR,
Vesturgili 5,
Akureyri,
sem lést af slysförum sunnudaginn 2. júlí, verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn
12. júlí kl. 13.30.
Guðbjörg Inga Ragnarsdóttir, Kristinn Tómasson,
Ragnar Páll, Baldur,
Ásta Sigurlaug, Ketill,
Sigurlaug Ingólfsdóttir,
Gerður Lárusdóttir.
Okkar ástkæra
ODDNÝ ÞÓRA BJÖRNSDÓTTIR REGAN,
4 Champlain Dr.,
Old Lyme, Conn., U.S.A.,
lést fimmtudaginn 6. júlí á heimili dóttur sinnar í
Bandaríkjunum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Birna Á. Björnsdóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi, langafi og langalangafi,
BRYNJÓLFUR EYJÓLFSSON
fyrrv. vélamiðlari
hjá Vélamiðstöð Reykjavíkurborgar,
Grundargerði 6,
Reykjavík,
lést laugardaginn 8. júlí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Svanhvít Stella Ólafsdóttir,
Helena Á. Brynjólfsdóttir, Valur Waage,
Ólafur Brynjólfsson, Hrefna Björnsdóttir,
Eyjólfur Brynjólfsson, Steinunn Þórisdóttir,
Kristín Brynjólfsdóttir, Kristján Jónasson,
Sverrir Brynjólfsson, Guðríður Ólafsdóttir,
Dagný Brynjólfsdóttir, Gunnar Óskarsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN P. HELGADÓTTIR
fyrrverandi skólastjóri,
Aragötu 6,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju fimmtu-
daginn 13. júlí kl. 15.00.
Ólafur Oddsson, Dóra Ingvadóttir,
Helgi Jónsson, Kristín Færseth,
Jón Jóhannes Jónsson, Sólveig Jakobsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
FJÓLA EIRÍKSDÓTTIR,
Kirkjuvegi 1,
áður Framnesvegi 16,
Keflavík,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánu-
daginn 26. júní, verður jarðsungin frá Keflavíkur-
kirkju í dag, þriðjudaginn 11. júlí kl. 14.00.
Hreinn Líndal Haraldsson,
Eiríka Haraldsdóttir,
Aldís Haraldsdóttir,
Sólveig Haraldsdóttir, Arnbjörn Óskarsson,
Sveinbjörg Haraldsdóttir,
Haraldur L. Haraldsson, Ólöf Thorlacius,
Ágúst Líndal Haraldsson, Valgerður Sigurjónsdóttir,
barnabörn og banabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför
ÓLA HAUKS SVEINSSONAR,
Háengi 19,
Selfossi.
Sérstakar þakkir til þeirra sem önnuðust hann í
veikindum hans. Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd aðstandenda,
Lilja Friðbertsdóttir.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ZOPHONÍAS JÓSEPSSON,
Ægisgötu 25,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtu-
daginn 6. júlí.
Jósep Zophoníasson, Ingibjörg Salóme Egilsdóttir,
Þóra Zophoníasdóttir,
Húni Zophoníasson, Anna Tryggvadóttir,
barnabörn og langafabarn.
Elsku mamma, tengdamamma, amma og lang-
amma,
LÚLLA KRISTÍN NIKULÁSDÓTTIR,
Kirkjuvegi 5,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudag-
inn 9. júlí.
Elín Sigríður Jósefsdóttir, Snæbjörn Guðbjörnsson,
Ketill G. Jósefsson, Karen Valdimarsdóttir,
Jenný Þuríður Jósefsdóttir, Alan Terry Matcke,
ömmubörn og langömmubörn.