Morgunblaðið - 11.07.2006, Síða 29

Morgunblaðið - 11.07.2006, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 29 MINNINGAR amma og mamma og síðast en ekki síst minn besti vinur. Það var ekkert sem ég ekki gat rætt við ömmu, hún var einlægur og góður hlustandi, þagði yfir leyndarmálum og gaf góð ráð. Mér finnst ég hafa notið mikillar blessunar að hafa átt hana að og þrátt fyrir að ég sakni hennar sárt og finn- ist ég standa berskjaldaðri en fyrr í þessum heimi, þá samgleðst ég henni af öllu hjarta að geta nú loksins flogið um í fangi afa; laus við allar þær kval- ir og þjáningar sem hún þurfti að þola vegna veikinda sinna í þessu lífi. Guð geymi þig elsku amma. Elínrós Líndal. Fjólu Eiríksdóttur kynntist ég fyr- ir u.þ.b. þremur árum, þegar móðir mín og hún deildu stofu í tvígang á HSS. Fljótt sá ég, þó svo að kynnin væru stutt, að þarna fór mikil dama, ættmóðir stórrar fjölskyldu, kona sem kærleikur geislaði frá hvar sem hún kom. Það var auðséð að hún naut virðingar, var elskuð og dáð, um það báru símtöl og heimsóknir til hennar fagurt vitni. Við mæðgur fórum ekki varhluta af hjartagæsku Fjólu. Hún deildi með okkur sigrum og ósigrum og gerði sigra okkar að sínum þó sjálf væri hún oft sárþjáð. Á sjúkrastofunni myndaðist vin- kvennabandalag. Þar var spjallað um allt mögulegt. Fjóla gerði mig líka að sínum gesti í daglegum heimsóknum mínum til móður minnar. Hún fagn- aði mér og mínum þegar við komum, með elskusemi og vináttu. Þegar sorgin knúði dyra hjá mér á síðasta ári hafði þessi sómakona ekki gleymt mér. Hún sendi mér yndislega kveðju sem mun lengi ylja mér um hjarta- ræturnar. Við mæðgur töluðum oft um að við þyrftum að heimsækja Fjólu, en aldrei varð úr því. Enn einu sinni erum við minnt á hve augnablik- ið er ofurstutt og hve mikilvægt það er að slá ekki góðum hugmyndum á frest því það er ekki víst að okkur verði gefið tækifæri til að framkvæma þær síðar. Hún Fjóla hefur hlotið góða heimkomu þar sem gengnir ást- vinir hafa fagnað henni með Gunn- hildi dótturdóttur hennar fremsta í flokki. Sú sýn gefur lífinu eilífðargildi. Ég kveð þessa heiðursdömu með söknuði og bið Guð að leiða hana til ljóssins. Ástvinum hennar öllum og ættmennum votta ég mína dýpstu samúð. Rósa Sigurðardóttir. Elsku amma. Þú varst einstök kona. Þú lifðir í nútímanum en um leið stóðstu fyrir þau gömlu gildi sem allir ættu að hafa hugföst, virðuleika, væntumþykju, dugnað, ósérhlífni, hlýhug og trúrækni. Það er ógleym- anlegt þegar þú sagðir okkur sögur af uppvaxtarárum þínum og hvernig nú- tíminn, sem þú hafðir svo sterkar skoðanir á, kallaðist á við fortíðina í frásögnum þínum. Það einhvern veginn svo eðlilegt að margir hafi leitað skjóls í hlýju þinni, sérstaklega þegar erfiðleikar steðj- uðu að. Þú varst alltaf eins og klettur í hafinu og gafst hlutunum nýja vídd. Þú reyndir að skilja án þess að dæma. Allir voru jafnir fyrir þér. Nú þegar við höfum aðeins minn- ingar til að ylja okkur við og sökn- uðurinn grípur um sig veit ég að þú munt vaka yfir okkur, blessa og varð- veita börnin þín, barnabörnin og barnabarnabörnin. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. Ég reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt sem miður fer, og man svo sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í brjósti mér, ég betur kunni þjóna þér. Því veit mér feta veginn þinn og verðir þú æ Drottinn minn. (Pétur Þórarinsson.) Þú verður alltaf með okkur. Guð geymi þig. Ragnheiður, Haraldur, Arnar og Óliver Dagur. Elsku yndislega amma mín. Þótt þú sért nýorðin 87 ára sem kallast mikill aldur finnst mér ótrúlegt að sitja hér og skrifa til þín kveðjuorð. Þó ég vissi innst inni að einhvern tím- ann kæmi að kveðjustund fannst mér einhvern veginn eins og þú myndir alltaf vera hjá okkur, þú bara gætir ekki farið. Þú hefur verið svo mikill klettur, höfðingi fjölskyldunnar sem alltaf hafðir réttu svörin við öllu, áttir alltaf nóg að gefa til annarra og fannst ekki mikið mál að hjálpa öðrum þó þú værir sjálf búin að þjást mikið í mörg ár. Það var svo skrýtið að þó líkami þinn minnkaði með árunum eins og gengur og gerist varðst þú alltaf stærri og stærri því persóna þín er svo stór og mikilfengleg. Það var allt- af svo gott að koma til þín og hjá þér ríkti alltaf svo mikil ró og friður. Og þó maður væri nýbúinn að borða var ekki möguleiki að sleppa án þess að fá sér eitthvað. Borðin hjá þér kiknuðu alltaf undan kræsingunum. Elsku amma mín, þú gerðir svo mikið fyrir mig og gafst mér svo mik- ið í gegnum árin að ég get aldrei þakkað þér nóg. Það verður skrýtið að fara næst erlendis og geta ekki hringt í þig til að fara með bænina okkar en ég veit að þegar ég fer með hana sjálf þá ert þú hjá mér og ég veit að við förum með hana saman. Nú segi ég bara eins og þú sagðir alltaf, eigum við að fara með bænina okkar: Fagra nafnið frelsarans fylgi þér og hlífi. Ávallt vaka augu hans yfir þínu lífi. Elsku amma mín, nú hefur þú örugglega þegar hitt afa, Gunnhildi, pabba, Borgu, Sigrúnu og alla hina og ég er viss um að það hafa verið miklir og góðir endurfundir. Ég bið algóðan guð að vernda þig og passa fyrir okk- ur og hjálpa þér til að líða vel þar sem þú ert núna, því ég veit að þú munt halda áfram að hugsa um að hjálpa öðrum. Þín að eilífu, Margrét.  Fleiri minningargreinar um Fjólu Eiríksdóttur bíða birting- ar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Svanbjörg Helena, Bryndís, Steinþór Örn, Hel- ena Sif og Magnús Breki, Gunnar Steinþórsson, Alexander Sær Elf- arsson, Hafdís Hildur og Nadía Sif, Magnús Þór, Björn Jónsson, Vil- borg Sigríður. vorum að gera mikinn áhuga þar til minnið fór að bregðast honum. Afi var góður og hlýr maður sem vildi öllum vel í kringum sig og við munum minn- ast hans þannig. Elsku afi, þú áttir langa og góða ævi þar til líkaminn fór að bregðast þér. Amma hefur staðið við hlið þér eins og klettur og hefðir þú ekki getað valið þér betri lífsförunaut. Þú skilur eftir þig stóra, samhenta og góða fjöl- skyldu sem mun ávallt minnast þín með hlýhug. Elsku amma, pabbi, Björg, Gunnar og Örn, megi Guð geyma okkur öll á þessari sorgarstundu. Þín barnabörn, Ásdís Björg, Elísabet og Kjartan Ari. Nú er afi farinn frá okkur og kom- inn á betri stað. Þótt sá staður sé ekki lengur hjá okkur þá er gott að vita að hann hefur það betra núna. Við minnumst allra góðu stund- anna sem við áttum með honum. Fjöl- skyldan var honum mjög mikilvæg og var gaman að sjá hvað samband hans og ömmu var alltaf fallegt. Hann var okkur barnabörnunum ávallt mjög góður og þolinmóður og hafði alltaf tíma fyrir okkur þegar við komum í heimsókn. Hann kenndi okkur ýmis spil og kapla og ef okkur leiddist einhvern tímann fórum við bara til hans og báðum hann um að spila við okkur. Hann sagði okkur líka sögur, aðallega af því þegar hann var lítill drengur á Vestfjörðum. Þegar við komum í heimsókn spurði hann okkur frétta og hlustaði á okkur lýsa deginum okkar fyrir sér. Jafnvel þegar hann var orðinn veikur fundum við hvað glaðnaði yfir honum þegar við kíktum í heimsókn og röbb- uðum um daginn og veginn. Þið eruð meira en líkaminn, annað en hús ykkar og eigur. Hið sanna sjálf dvelst ofar fjöllum og svífur á vængjum vindanna. Það er ekki eitthvað, sem skríður inn í hlýju sólskinsblettanna eða grefur holur inn í myrkrið í leit að öryggi. Það er eitthvað frjálst; andi, sem leiðir þró- un jarðarinnar og stjórnar himninum. (Spámaðurinn, Kahlil Gibran) Við vitum að nú er elsku afi okkar hjá guði og kveðjum hann í hinsta sinn. Elín Birna, Agnes Björg og Arnór Gunnar. Kveðja frá Ríkisendurskoðun Guðmundur Magnússon, fyrrver- andi skrifstofustjóri í Ríkisendur- skoðun, er í dag til moldar borinn en hann lést í Reykjavík 28. júní sl., 89 ára að aldri. Guðmundur útskrifaðist frá Versl- unarskóla Íslands árið 1940. Áður en hann hóf störf hjá hinu opinbera vann hann við bókhalds-, gjaldkera- og skrifstofustörf hjá nokkrum fyrir- tækjum í Reykjavík. Guðmundur var skipaður fulltrúi hjá endurskoðunar- deild fjármálaráðuneytisins 15. sept- ember 1956 en deildin var forveri Ríkisendurskoðunar. Hinn 1. júní 1964 var hann ráðinn deildarstjóri hjá Ríkisendurskoðun og loks skrifstofu- stjóri hinn 1. nóvember 1974. Því starfi gegndi Guðmundur til ársins 1987 en þá lét hann af störfum fyrir aldurssakir eftir rúmlega 30 ára starf. Guðmundur bjó yfir flestum þeim kostum, sem prýða góðan embættis- mann. Auk þess að vera mjög fær í sínu starfi var hann notalegur yfir- maður, enda bæði hæglátur og ljúf- mannlegur í fasi og viðmóti þó hann gæti verið fastur fyrir þegar og ef á reyndi. Á löngum starfsferli voru Guð- mundi falin fjölmörg viðfangsefni til úrlausnar á sviði fjársýslu ríkisins, bæði innan stofnunarinnar og utan hennar. Sem skrifstofustjóri hafði hann með innri málefni stofnunarinn- ar að gera og var helsti samstarfs- maður Halldórs heitins Sigurðssonar, fv. ríkisendurskoðanda. Meðal annars gegndi Guðmundur starfi ríkisendur- skoðanda um nokkurra mánaða skeið á árinu 1980 í veikindaforföllum Hall- dórs. Guðmundur annaðist sjálfur eða hafði umsjón með endurskoðun fjöl- margra málaflokka á sínum tíma. Má þar nefna fjárreiður utanríkisþjón- ustunnar og ársreikninga flestra fyr- irtækja í eigu ríkisins. Guðmundur naut virðingar og vin- áttu fyrrum samstarfsmanna sinna og geyma þeir góðar minningar um hann. Ekki er við þetta tækifæri hægt að láta hjá líða að minnast eftirlifandi eiginkonu hans, Elísabetar Jónsdótt- ur, en hún tók ásamt honum jafnan virkan þátt í félagslífi innan stofnun- arinnar. Við þau tilefni fór ekki fram hjá neinum hve mikla virðingu og vin- áttu þau hjónin auðsýndu jafnan hvort öðru. Á meðan heilsan leyfði sýndi Guðmundur sínum gamla vinnustað og samstarfsfólki ræktar- semi með því að heimsækja það og gera sér glaðan dag með því þegar svo bar undir. Um leið og ég fyrir hönd fyrrum samstarfsfólks hans hjá Ríkisendur- skoðun kveð Guðmund Magnússon þakka ég honum gifturík störf í þágu stofnunarinnar. Frú Elísabetu, börn- um þeirra og fjölskyldu allri er vottuð dýpsta samúð. Blessuð sé minning Guðmundar Magnússonar. Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi. Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall ástkærrar eiginkonu minnar, dóttur, móður okkar, tengdamóður og ömmu, ERNU SIGURBJARGAR RAGNARSDÓTTUR hárgreiðslumeistara, Löngufit 24, 210 Garðabæ. Færum starfsfólki hjúkrunarheimilisins Holts- búðar sérstakar þakkir. Guð blessi ykkur öll. Jón Boði Björnsson, Jóhanna Eiríksdóttir, Gréta Boða, Sveinn Gaukur Jónsson, Guðbjörg Jónsdóttir, Þröstur Gestsson, Hafdís Jónsdóttir, Björn Leifsson, Jóhanna Jónsdóttir, Guðmundur Bergmann Jónsson, og barnabörn. Þökkum samúð, tryggð og vinarþel við andlát og útför ÁGÚSTAR THEÓDÓRS BLÖNDALS BJÖRNSSONAR. Elín Sigurbjörg Magnúsdóttir, Birgir Ágústsson, Hrafnhildur Úlfarsdóttir, Sverrir Ágústsson, Eva Ósk Ármannsdóttir, Kristín Ágústsdóttir, Marinó Stefánsson, Elín Ágústa, Kristrún, Ottó Ingi, Hrafn, Anna Karen og Börkur. Þökkum hlýhug og vináttu við andlát og útför SIGURÐAR SVEINSSONAR fv. aðalbókara frá Kolsstöðum í Dölum. Eysteinn Sigurðsson, Sigrún Jónsdóttir, Auður Sigurðardóttir, Vigfús Þorsteinsson, Hallsteinn Sigurðsson, Kristinn Helgason, barnabörn og aðrir aðstandendur. Elsku eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN ÞÓRHALLSDÓTTIR LUDWIG, sem andaðist þriðjudaginn 4. júlí, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 14. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á að leyfa Krabbameinsfélaginu og hjúkrunarþjónustunni Karitas að njóta þess. Thomas M. Ludwig, Margrét Ludwig, Björgvin Jósefsson, Brandur Thor Ludwig, Anna M. Rögnvaldsdóttir, Clara Regína Ludwig og barnabörn. Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og ómetanlega aðstoð við fráfall elskuleg- rar dóttur okkar, sambýliskonu, systur, mágkonu og frænku, GUÐRÚNAR GÍSLADÓTTUR, Arnarhrauni 11, 220 Hafnarfirði. Sérstakar þakkir viljum við færa læknum og hjúkrunarfólki á deild 11E Landspítalanum Hringbraut og Karitas heimahjúkrunarþjónustu. Guðrún M. Jónasdóttir, Gísli Sumarliðason, Einar B. Pétursson, Sigrún Erla Gísladóttir, Þorvaldur Svavarsson, Jón Ari Gíslason, Arnar Gíslason, Björk Arnbjörnsdóttir og frændsystkini.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.