Morgunblaðið - 11.07.2006, Síða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Vegna aukinna umsvifa í blaðadreifingu óskar Morgunblaðið eftir að
ráða fólk á öllum aldri í blaðburð víða á höfuðborgarsvæðinu sem fyrst.
Blaðberi hjá Morgunblaðinu fær að meðaltali 31.160 kr. á mánuði fyrir klukkustundarlangan
hressandi göngutúr.* Til viðbótar kemur þungaálag og greiðslur fyrir aldreifingar tvisvar í viku.
Vinsamlegast hafið samband í síma 569 1440 eða
sendið tölvupóst á netfangið bladberi@mbl.is.
*Miðað við að 65 eintökum af Morgunblaðinu sé dreift í 30 skipti.
Vel launuð líkamsrækt
− fyrir fólk á öllum aldri
Umboðsmaður
Ólafsfirði
Morgunblaðið vill ráða
umboðsmann á Ólafsfirði.
Í starfinu felst dreifing á
Morgunblaðinu við komu í
bæinn.
Nauðsynlegt er að viðkom-
andi hafi bíl til umráða.
Upplýsingar gefur Örn Þórisson
í síma 569 1356
eða í netfangi ornthor@mbl.is.
Múrarar, húsasmiðir
og verkamenn óskast!
Húsaklæðning ehf. óskar eftir að ráða múrara,
húsasmiði og verkamenn til framtíðarstarfa.
Fyrirtækið hefur sérhæft sig í viðgerðum,
breytingum og viðhaldi fasteigna. Fyrirtækið
starfar einnig við nýbyggingar. Áhugasamir
sendi upplýsingar á netfangið info@husco.is
eða hafi samband við Matthías í s. 897 4224.
Raðauglýsingar 569 1100
Uppboð
Uppboð
Eftirtalin ökutæki verða boðin upp á Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli,
fimmtudaginn 20. júlí nk. kl. 16.00.
YO-456 OB-754 LZ-574
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli,
7. júlí 2006.
Óska eftir íbúð með húsgögnum
100% skilvís, reglusamur og reyklaus
einstaklingur óskar eftir góðri 2-3 herbergja íbúð
með húsgögnum á höfuðborgarsvæðinu.
Leigutími 8-12 mánuðir.
Upplýsingar um íbúð, leigutíma og leigugjald
sendist Mbl. merkt "Íbúð-777" fyrir 15. júlí.
Húsnæði óskast
Hringvegur um Horna-
fjarðarfljót í Hornafirði
Drög að tillögu að matsáætlun.
Vegagerðin auglýsir hér með drög að tillögu
að matsáætlun vegna fyrirhugaðra breytinga
á Hringvegi um Hornafjarðarfljót í sveitarfélag-
inu Hornafirði. Framkvæmdin er 11-18 km löng
veglagning, háð veglínum og nær frá Hring-
vegi vestan Hornafjarðarfljóts, yfir Hornafjarð-
arfljót og að Hringvegi skammt austan Hafnar-
vegar sem liggur að Höfn í Hornafirði. Fram-
kvæmdin styttir Hringveginn um 10-12 km.
Tilgangur framkvæmdar er að bæta samgöng-
ur á Suðausturlandi og styrkja byggðalög á
Suðaustur- og Austurlandi með bættu vega-
sambandi á Hringvegi.
Drög að tillögu að matsáætlun eru kynnt á ver-
aldarvefnum samkvæmt reglugerð 1123/2005
um mat á umhverfisáhrifum. Tillöguna er hægt
að skoða á eftirfarandi heimasíðu:
www.vegagerdin.is. Almenningur getur gert
athugasemdir við áætlunina og er athuga-
semdafrestur til 31. júlí 2006. Athugasemdir
er hægt að senda með tölvupósti til
ebh@vegagerdin.is eða senda til Vegagerðar-
innar, Borgartúni 5-7, 105 Reykjavík.
Tilkynningar
FRÉTTIR
SUMARBÚÐIR í Skálholti, sem
kallast Söngur og sögur, eru ætl-
aðar börnum 8–13 ára sem búa er-
lendis og eiga a.m.k annað foreldrið
íslenskt og tala íslensku nógu vel til
að njóta dagskrárinnar. Nokkur
pláss eru laus og öll börn velkomin.
Börnunum verða kynntir ýmsir
þættir íslenskrar menningar og
kennd íslensk þjóðlög og skemmti-
leg nútímalög við leiðsögn tónlist-
arkennaranna Heiðrúnar Hákonar-
dóttur og Svövu Bernharðsdóttur.
Guðrún Ásmundsdóttir leikari seg-
ir íslenskar þjóðsögur ásamt Ragn-
heiði Lárusdóttur bókmenntafræð-
ingi. Þá leiða garðyrkjufræðingar
börnin inn í heim íslenskra jurta og
þau munu elda þjóðlega rétti með
aðstoð Láru Jónsdóttur heim-
ilisfræðikennara. Bændabýlið í
Skálholti verður heimsótt og farið í
sögugöngu um Skálholtsstað. Bern-
harður Guðmundsson rektor veitir
námskeiðinu forstöðu. Fyrsta nám-
skeiðið af þessu tagi fór fram í
fyrrasumar og tókst afar vel og
hvöttu foreldrar og börn eindregið
til þess að þessu starfi yrði haldið
áfram. Námskeiðið hefst eftir há-
degið mánudaginn 17. júlí og taka
aðstandendur þátt í fyrstu atriðum
dagskrárinnar. Því lýkur svo með
uppskeruhátíð síðdegis á föstudegi
þar sem vandamenn eru líka vel-
komnir.
Söngur og sögur fyrir börn í Skálholti
FÉLAG heyrnarlausra vill koma
því á framfæri við almenning að um
þessar mundir stendur félagið ekki
fyrir sölu á neinni vöru. Félaginu
hafa borist tilkynningar um að ver-
ið sé að selja einhverjar vörur í
nafni félagsins í heimahús og biður
almenning að hafa í huga að þar
eru ekki á ferðinni sölumenn frá fé-
laginu.
Söfnun á fölskum
forsendum Rangt farið með heiti
flugvélar á málverki
Í FYRIRSÖGN og kynningu grein-
ar eftir Snorra Snorrason í Morg-
unblaðinu á sunnudag var rangt far-
ið með heiti flugvélar á málverki
breska málarans W. Hardy. Eins og
fram kemur í textanum er um að
ræða mynd af DC-8-63 þotu. Beðist
er velvirðingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT