Morgunblaðið - 11.07.2006, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 11.07.2006, Qupperneq 32
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn HVERNIG ER HEILSAN? SLÆM! MÉR ER SVO ILLT Í BAKINU Á ÉG AÐ LÁTA BRAKA Í ÞVÍ, FYRIR ÞIG? KRAFTAVERK, MÉR ER BATNAÐ! HVAÐ ER MÁLIÐ MEÐ JÓLASVEININN? AF HVERJU ER HANN ALTAF Í FELUM? EF HANN ER TIL, AF HVERJU FÆR MAÐUR EKKI AÐ SJÁ HANN STÖKU SINNUM? ...OG HVAÐ EF HANN ER EKKI TIL? ERU JÓLIN EKKI TRÚARLEG- HÁTÍÐ? JÚ, ENDA HUGSA ÉG ÞAÐ SAMA UM GUÐ ÉG VEIT AÐ ÉG Á EKKI PANTAÐAN TÍMA, EN GÆTIRÐU SAMT AFGREITT MIG? ÞVÍ MIÐUR ER ALLT FULL BÓKAÐ HJÁ MÉR... ...GÆTIRÐU KOMIÐ AFTUR Á MIÐVIKUDAGINN? VÁ, SIGGA! ÞESSI BÓK ER ALGJÖRT ÆÐI... ÉG RÁÐLEGG ÖLLUM ÁHORFENDUM OKKAR AÐ DRÍFA SIG AÐ BORÐA ÞESSA FRÁBÆRU BÓK BÓK MÁNAÐARINS MEÐ LASSIE MIKIÐ ER ÞETTA SPENNANDI! SLAKAÐU Á ÞAÐ ERU ERFIÐLEIKAR Í HJÓNA- BANDINU ÞÍNU? NEI! VINKONA ÞÍN Á VON Á BARNI? NEI! NEI! VÁ, ER ÞAÐ! ÞÚ HEFUR MIKLAR ÁHYGGJUR? ÉG SÉ GLÆSILEGT TÆKIFÆRI Í ÞINNI NÁNUSTU FRAMTÍÐ ÉG ER ALVEG AÐ MISSA TAKIÐ! NEI! Í ÞETTA SKIPTI ÞÁ VINN ÉG! SÆLL FYRIRLIÐI, ÞETTA VERÐUR HÖRKU LEIKTÍÐ ÉG HEF EKKI HUGSAÐ UM ANNAÐ EN HAFNABOLTA SÍÐASTLIÐNAR VIKUR HELDURÐU AÐ MINNE- APOLIS VINNI YANKEES Í ÁR? EN SÁ FYRIRLIÐI, HANN NENNIR EKKI AÐ TALA UM HAFNABOLTA! Dagbók Í dag er þriðjudagur 11. júlí, 192. dagur ársins 2006 Á sunnudag lauk ummánaðarlangri knattspyrnuveislu í Þýskalandi þegar Ítal- ir og Frakkar mætt- ust í úrslitaleik heims- meistarakeppninnar í Berlín. Keppnin hefur farið vel fram og verið gestgjöfunum til sóma. Flestir Þjóð- verjar hafa opnað faðm sinn fyrir fjöl- þjóðlegu liði knatt- spyrnuunnenda svo að mikill sómi hefur verið að. Inn á milli hafa þó verið svartir sauðir, á borð við þá sem réðust á ítalska veit- ingastaði í kjölfar ósigursins gegn Ítölum í undanúrslitunum í síðustu viku. Þýsk stjórnvöld hafa haft sér- stakar gætur á öfgamönnum úr röð- um nýnasista og komið í veg fyrir að þeim tækist það ætlunarverk sitt að vekja athygli á málstað sínum á meðan Þýskaland er í sviðsljósi fjöl- miðla heimsins. Má segja að um- ræddir nýnasistar séu einkennilegar eftirlegukindur sögunnar, sem í nið- urlægingu sinni leita í öfgahyggju nasista til að finna fótfestu í flóknum veruleika nútímamannsins. Þessi til- hneiging er þeim mun sérkennilegri í ljósi þess að ungir Þjóðverjar finna nú til stolts yfir því að tilheyra þessari merku þjóð, sem hægt og bít- andi sökk ofan í fen öfgafullrar þjóðern- ishyggju á millistríðs- árunum. Þetta ný- fundna stolt, sem löngum var barið nið- ur í skömm yfir helför nasista, á sér eðlilegar rætur. Þýskaland nú- tímans er merkilegt land sem hefur upp á margt að bjóða. Þjóðin er vel menntuð og menningin heillandi. Á sögu landsins eru margar áhugaverðar hliðar og Vík- verji gat ekki annað en brosað þegar hann var staddur í borginni Trier á dögunum. Þannig var að Víkverji var staddur skammt frá fæðing- arstað stjórnmálaheimspekingsins Karl Marx í Trier, þar sem hópur Kínverja hafði safnast saman í virð- ingu við manninn sem skilgreindi heiminn út frá stéttaátökum. Aug- ljóst var að mikil lotning var borin fyrir höfundi Auðmagnsins sem svo mikil áhrif hafði á pólitíska umræðu á Íslandi á liðinni öld. Hitt er annað mál og alvarlegra að vinsældir hans í Kína eru ekkert gamanmál, enda stjórnin í Peking ógnarstjórn. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is        Námskeið | Í þessari viku hefjast hin sívinsælu örnámskeið Árbæjarsafns. Nám- skeiðin eru ætluð börnum í fylgd með fullorðnum og eru í um þrjár klukkustundir í senn, frá kl. 13 til um 16. Á örnámskeiðum Árbæjarsafns gefst meðal annars færi á að læra tálgun, glímu, þæfingu ullar og flugdrekagerð. Sætaframboð í hverju námskeiði er takmarkað. Frekari upplýsingar og skráning í síma 411 6320. Örnámskeið á Árbæjarsafni MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Þolgæðis hafið þér þörf, til þess að þér gjörið Guðs vilja og öðlist fyrirheitið. (Hebr. 10, 36.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.