Morgunblaðið - 11.07.2006, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 33
DAGBÓK
Taekwondo-íþróttin er í örum vexti hér-lendis og stunduð jafnt af ungum semöldnum. Meistari Sigursteinn Snorrasonfer fyrir Dojang dreka, sem er samband
átta taekwondo-deilda á Íslandi:
„Í sumar bjóðum við upp á sumarnámskeið fyrir
krakka sem komnir eru nokkuð áleiðis í íþrottinni.
Hvert námskeið varir í tvær vikur og stunda börn-
in, sem koma úr öllum félögum, æfingar undir leið-
sögn þjálfara í þrjá til fjóra tíma hvern dag,“ segir
Sigurstienn. „Sumrin eru oft rólegur tími hjá al-
mennum iðkendum, en þeir sem æfa taekwondo
sem keppnisíþrótt eru þeim mun virkari yfir sum-
artímann og standa æfingar nú yfir af fullum krafti
fyrir erlend keppnismót í sumar og haust.“
Ævaforn kóresk íþrótt
Taekwondo er upprunnið í Kóreu og saga íþrótt-
arinnar allt að 2000 ára gömul. „Hreyfingarnar
sem íþróttin byggist á eru æfafornar og hafa verið
kallaðar ýmsum nöfnum í gegnum tíðina en var
ekki gefið heitið taekwondo fyrr en árið 1955. Það
var síðan ekki fyrr en árið 1987 að iðkun taek-
wondo hófst fyrir alvöru hér á landi þegar Banda-
ríkjamaðurinn Stephen Leo Hall setti á laggirnar
Dojang Dreka,“ útskýrir Sigursteinn.
„Árið 1991 var sett á laggirnar taekwondo-deild
innan ÍSÍ og farið að keppa með formlegum hætti.
Hefur íþróttin síðan notið sívaxandi vinsælda.
Starfa nú á landinu öllu tólf félög og má ætla ætla
að virkir iðkendur séu allt að 700.“
Sigursteinn segir Taekwondo vera við hæfi allra
aldurshópa: „Allsstaðar er tekið vel á móti byrj-
endum og geta áhugasamir fundið það dojang sem
næst þeim er á síðunni www.Taekwondo.is. Það er
ráðlegt að byrjendur heimsæki nokkra klúbba því
áherslur geta verið mismunandi milli staða. Sum-
staðar er lögð meiri áhersla á sjálfsvörn og ann-
arsstaðar er áherslan á ólympískan bardaga. Starf-
ræktir eru barnaflokkar, „Old boys“-flokkar þar
sem æfingar eru með öðru sniði og áherslum en í
keppnisflokkum.“
Agi, styrkur, snerpa og liðleiki
Í barnaflokkum er mikil áhersla lögð á að kenna
aga: „Hjá fullorðnum iðkendum snýst íþróttin að
stærstu leyti um líkamlega þjálfun þar sem unnið
er að auknum styrk, snerpu og liðleika. Þeir sem
náð hafa svörtu belti teljast vera komnir nokkuð
langt í íþróttinni og skiptast í tvo hópa: þá sem eru
keppnisíþróttamenn og æfa iðulega oft á dag, og
hina sem leggja meiri áherslu á kennslu íþrótt-
arinnar og heimspeki,“ segir Sigursteinn.
Mikið er lagt upp úr því við æfingar að fyr-
irbyggja slys og meiðsli: „Í keppni er notaður hlífð-
arbúnaður en öll þjálfun miðar að því að hindra
meiðsli. Iðkendum taekwondo er kennd sjálfsvörn,
og að beita henni af hófi. Þá er mikil áhersla lögð á
teygjur og upphitun á æfingum til að fyrirbyggja
meiðsli enn frekar.“
Íþróttir | Tólf taekwondo félög eru starfrækt á Íslandi og tekið vel á móti byrjendum
Taekwondo fyrir unga sem aldna
Sigursteinn Snorra-
son fæddist í Reykjavík
1975. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum við Sund,
íþróttakennaranámi frá
KHÍ 2000, og meist-
aragráðu frá að-
alstöðvum taekwondo í
Kóreu 2002. Sig-
ursteinn hefur kennt
taekwondo frá 1996,
bæði á Íslandi og í Kóreu. Hann var þjálfari
landsliðs Íslands á árunum 1997-2001 og
2003-2004. Sambýliskona Sigursteins er
Magnea Kristín Ómarsdóttir kennari og eiga
þau þrjú börn.
Jarðgöng – Ábending
til sjónvarpsins
FRÁ því að maður fór að heyra full-
orðna menn ræða um jarðgöng til
Vestmannaeyja hefur mér fundist
það vera brandari.
Fyrir sveitarstjórnarkosning-
arnar í maí var í sjónvarpsfréttum
rætt við fólk á götu í Vestmanna-
eyjum og virtist mikil trú á að jarð-
göng til lands væru á næsta leiti,
bara ef menn kysu rétt. Nýlega var í
blöðum greint frá áframhaldandi
undirbúningi að gerð ganganna og
þótt þeir aðilar, sem að því standa,
telji kostnaðinn nokkrum tugum
þúsunda milljóna lægri en einhverjir
svartsýnir íslenskir verkfræðingar
hef ég ekki séð útreikninga þeirra á
hvað mundi kosta fyrir fjölskylduna
að skjótast á bílnum á milli lands og
Eyja.
Eftir að hafa séð ítarlegan
fræðsluþátt BBC-sjónvarpsins um
gerð Ermarsundsganganna og síðar
annan þátt sem fjallaði um rekstr-
arerfiðleika fyrirtækisins hef ég oft
hugsað um, að mikil þörf sé á að
upplýsa Íslendinga um hve um-
fangsmikið og flókið verkefni gerð
og rekstur slíks mannvirkis er og því
tel ég mjög æskilegt að sjónvarp
allra landsmanna fái þessa tvo þætti
til sýningar.
Þegar fólk hefur séð þá er ég viss
um að enginn efast um, að besti
kosturinn í samgöngumálum Vest-
mannaeyinga er ferjuhöfn í Bakka-
fjöru.
Hins vegar eru jarðgöng upp á
Kjalarnes, sem hluti af Sundabraut,
með allri sinni umferð, allt annað og
hagkvæmara verkefni.
Óskar Jóhannsson,
Skúlagötu 40a, Rvík.
Staðið við loforðin
NÝI borgarstjórnarmeirihlutinn gaf
það til kynna, eða tilkynnti, að hann
ætlaði að láta þrífa betur í borginni.
Það hefur verið staðið við það og má
sjá víða merki um það.
Ég geng á hverjum morgni niður í
Fossvog og á bílastæðum sem eru
austan við brúna, sem er yfir í Naut-
hólsvík, þar eru stæðin hrein og vel
þrifin og ánægjulegt að sjá það. Með
fram Fossvogslæknum, þegar mað-
ur gengur í austurátt, er mikið
fuglalíf og margir sem leggja leið
sína með fram læknum. Þar var fullt
af rusli, m.a. gömul reiðhjóladekk,
nú er búið að þrífa það allt.
Ég vil koma á framfæri þakklæti
fyrir þessar hreinsunaraðgerðir og
gaman að sjá hversu þrifalegt er
orðið og mikið búið að slá.
Það hafa aukist mikið hjólreiðar
hjá fólki, það kemur í hópum, 15–20
manns, og það er ekkert pláss fyrir
það á hjólreiðabrautinni því hún er
svo mjó og mjög óþægilegt fyrir fólk
sem er á gangbrautinni þegar svona
hópur kemur aftan að því á mikilli
ferð. Ég vil vegna þess koma því á
framfæri að það er nauðsynlegt að
breikka hjólreiðastígana.
190923-4799.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Þungur samgangur.
Norður
Norður
♠G9
♥ÁK94
♦D109843
♣Á
Suður
♠KD1084
♥53
♦G62
♣KDG
Suður verður sagnhafi í þremur
gröndum. AV hafa ekkert blandað sér í
sagnir og vestur kemur út með lauftíu.
Hvernig er best að spila?
Efniviðurinn í slagi er svo sem næg-
ur, en vandinn er þungur samgangur á
milli handanna.
Segjum að sagnhafi spili fyrst spaða-
gosa og yfirdrepi með kóng, sem vörn-
in dúkkar, auðvitað. Ef innkoman er
notuð til að taka slag á lauf og tígli síð-
an spilað, nær vörnin að fríspila laufið.
Svo þetta gengur ekki.
Og ekki heldur að spila tígli strax á
eftir spaðanum. Þá mun vörin spila við
blindan og fá á endanum tvo slagi á
hjarta til hliðar við toppana þrjá:
Norður
♠G9
♥ÁK94
♦D109843
♣Á
Vestur Austur
♠Á63 ♠752
♥G76 ♥D1082
♦K75 ♦Á
♣10963 ♣87542
Suður
♠KD1084
♥53
♦G62
♣KDG
Því er betra að byrja á tíglinum.
Segjum að vörnin svari með hjarta.
Sagnhafi drepur, spilar spaða heim,
notar innkomuna til að taka einn laufs-
lag og sækir svo síðari tígulhámanninn.
Þetta er skotheld leið í flóknu spili.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e5 7. Rb3 Be6 8.
f3 Rbd7 9. Dd2 Be7 10. O-O-O O-O
11. g4 Hc8 12. Kb1 b5 13. g5 Rh5 14.
Rd5 Bxd5 15. exd5 Rb6 16. Ra5 Dc7
17. Hg1 g6 18. h4 Rxd5 19. Dxd5
Dxa5 20. c4 Bd8 21. cxb5 Bb6 22. Bd2
Da4 23. b3 Da3 24. Hg4 axb5 25. Bb4
Da7 26. Dxb5 Ha8 27. Hd2 Be3 28.
Hc2 Hfb8 29. Dc6 Rf4 30. Bb5 Dd4
31. a3 Kg7 32. Hxf4 Bxf4 33. Bc4
Staðan kom upp í stórmeistara-
flokki Fyrsta laugardagsmótsins
sem lýkur í dag í Búdapest í Ung-
verjalandi. Alþjóðlegi meistarinn
Liem Quang Le (2488) frá Víetnam
hafði svart gegn heimamanninum
Viktor Varadi (2384). 33... Hxb4! 34.
Dxa8 hvítur hefði orðið mát eftir 34.
axb4 Ha1#. 34... Dd1+ 35. Kb2 Be3!
36. Kc3?! hvítur hefði einnig tapað
eftir 36. axb4 Bd4+ 37. Hc3 Dd2+
38. Kb1 Bxc3 39. Da3 d5 en besta til-
raunin í stöðunni var að leika 36. h5
og svara 36...gxh5 með 37. Dd8. 36...
Hxc4+! 37. bxc4 Bd4+ 38. Kb3
Db1+ og hvítur gafst upp enda er
hrókurinn á c2 að falla í valinn.
Svartur á leik.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hlutavelta | Þessar duglegu stúlk-
ur, Þórunn Anna 9 ára og Kolbrún
Ósk 12 ára söfnuðu munum og seldu
á Garðatorgi fyrir kr. 18.331. Verða
peningarnir notaðir fyrir börn
Barnaspítala Hringsins. Á myndina
vantar Ólaf Jökul 5 ára sem einnig
tók þátt í söfnuninni.
Morgunblaðið/Eyþór
BÓKIN Saga biskupsstólanna verður
kynnt að Hólum í Hjaltadal í dag, 11.
júlí. Óskar Guðmundsson, annar rit-
stjóra bókarinnar, kynnir verkið og
svarar fyrirspurnum. Kynningin
verður í Auðunarstofu og hefst kl. 20.
Sagan biskupsstólanna geymir
viðamikil skrif um Skálholt og Hóla
og er rituð í tilefni af 950 og 900 ára
afmæli staðanna. Í ritinu fara fjöl-
margir fræðimenn ofan í kjölinn á
þessum valdamiklu miðstöðvum trú-
ar og menningar.
Við kynninguna mun Marta Hall-
dórsdóttir syngja við undirleik Arnar
Magnússonar, þar sem Örn leikur á
langspil og symfón, og að kynningu
lokinni verður farið í Hóladómkirkju
og þar syngur Marta við orgelleik
Arnar.
Morgunblaðið/Einar Falur
Saga biskupsstólanna
kynnt á Hólum
UM þessar mundir eru verk Sam-
úels Jóhannssonar til sýnis í Rósen-
borg möguleikahúsi á Akureyri við
Skólastíg 2 (gamli Barnaskóli Ak-
ureyrar). Sýningin er opin á opn-
unartíma Rósenborgar. Samúel
vinnur myndverk sín með akríllit-
um, bleki, tússi og vatnslitum.
Samúel í Rósenborg