Morgunblaðið - 11.07.2006, Side 35

Morgunblaðið - 11.07.2006, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 35 DAGBÓK Sölusýning þriðjudaginn 11. júlí milli kl. 18 og 19 í Öldutúni 8, Hafnarfirði Glæsileg eign á draumastað í Hafnarfirði, örstutt frá Öldutúnsskóla. Í dag skiptist húsið í tvær íbúðir en eignin er alls 222,2 fm. Á neðri hæð er ca 75 fm, 3ja herbergja íbúð í útleigu. Á efri hæð og í risi er 5 herbergja björt og rúmgóð íbúð. Samkvæmt Fasteignamati Ríkisins er hún 95 fm en raunstærð hennar er mun meiri þar sem risið telst ekki í fermetratölunni. Húsinu hefur verið vel viðhaldið en stutt er síðan það var klætt að utan og þak einangrað. Einnig var skipt um alla ofna fyrir stuttu. Nýlegt parket er á gólfum að stórum parti og er húsið allt hið fallegasta. Stutt er í skóla, íbúðin er miðsvæðis í Hafnarfirði og því þægilegt að nálgast alla þjónustu og verslanir. Með eigninni fylgir 26 fm bílskúr. Albert Björn Lúðvígsson sölumaður, s. 840 4048 Guðrún Árnadóttir lögg. fasteignasali Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Alþjóðahúsið | Viðeyjarferð 13. júlí: Siglt til Viðeyjar og gengið um eyjuna með leiðsögn. Hist fyrir utan Alþjóða- hús kl. 19.30. Komið til baka um kl. 22.30. Allir velkomnir, innflytjendur og innfæddir. Verð 600 kr. Tilkynnið þátt- töku í síma 530 9313 eða í helga@a- hus.is fyrir hádegi á fimmtudag. Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað. Kl. 8–16 handavinna. Kl. 9–16.30. Smíði/ útskurður kl. 9–16.30. Leikfimi kl. 9. Boccia kl. 10–16 Púttvöllurinn. Bólstaðarhlíð 43 | Sólheimaferð 20. júlí kl. 12.30. Kaffiveitingar í Grænu könnunni. Leiðsögn um staðinn, að- eins fjögur sæti laus, upplýsingar í síma 535 2760. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, hárgreiðsla, fótaaðgerð, út að pútta, dagblöðin liggja frammi. Bólstaðarhlíð 43 | Böðun. Dalbraut 18–20 | Bridge mánudag kl. 14. Félagsvist þriðjudag kl. 14. Bónus miðvikudag kl. 14. Heitt á könnunni, blöðin liggja frammi. Hádegisverður og síðdegiskaffi. Uppl. um sumarferðir í síma 588 9533. Allir velkomnir. Félag eldri borgara, Reykjavík | Mið- vikudagur: Göngu-Hrólfar ganga frá Stangarhyl 4 kl. 10. Veiðivötn – dags- ferð 16. júlí. Ekið verður um Þjórsárdal til Hrauneyja, inn á Veiðivatnaveg á milli Vatnsfells og Þóristinds. Farinn er hringur um Veiðivatnasvæðið. Uppl. og skráning í síma 588 2111. Skrifstofa FEB verður lokuð frá 15. júlí til 7. ágúst. Félagsheimilið Gjábakki | Handa- vinnustofan opin. Þriðjudagsgangan á sínum stað kl. 14. Síðasti dagur ljóða- sýningar Hrafns Sæmundssonar. Opið 9–17. Allir velkomnir. Félagsstarf Gerðubergs | Vegna sum- arleyfa starfsfólks fellur starfsemi og þjónusta niður til þriðjud. 15. ágúst. Sund- og leikfimiæfingar í Breiðholts- laug, sími 557 5547, eru á mánud. kl. 10.30 og miðv.d. kl. 9.30. Strætis- vagnar S4, 12 og 17. wwwgerduberg.is. Hafnarfjörður | Í sumar verður púttað á Vallavelli á Ásvöllum á laugardögum frá 10–11.30 og á fimmtudögum frá kl. 14–16. Mætum vel. Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall, dag- blöðin, hárgreiðsla. Kl. 10 boccia. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 12.15 ferð í Bónus. Kl. 15 kaffi. Hraunsel | Moggi og kaffi kl. 9. Brids kl. 13. Pútt á Hrafnistuvelli kl. 14–16. Hvassaleiti 56–58 | Böðun fyrir há- degi. Hádegisverður kl. 11.30. Fótaað- gerðir sími 588 2320. Hársnyrting sími 849 8029. Blöðin liggja frammi. Hæðargarður 31 | Listasmiðjan opin. Félagsvist mánud. kl. 13.30. Frjáls spil miðvikudag kl. 13.30. Guðnýjarganga kl. 10 þriðjudag og fimmtudag. Gönu- hlaup föstudag kl. 9.30. Út í bláinn laugardag kl. 10. Púttvöllur opinn. Leiðsögn í pútti fimmtudag kl. 17. Sumarferðir 15. júlí og 15. ágúst. Nán- ari upplýsingar 568 3132. Norðurbrún 1 og Furugerði 1 | Farið verður að Flúðum föst. 14. júlí. Hrepp- hólakirkja verður skoðuð, einnig Byggðarsafnið í Gröf. Kaffi í Golfskál- anum. Lagt af stað kl. 12.30 frá Norð- urbrún og síðan teknir farþegar í Furu- gerði. Leiðsögumaður er Anna Þrúður. Skráning í Norðurbrún í síma 568 6960 og í Furugerði í síma 553 6040. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9–15.30 handavinna. Kl. 11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 13– 16 frjáls spil. Kl. 14.30–15.45 kaffiveit- ingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9–12.30, morgunstund kl. 9.30, hár- greiðslu- og fótaaðgerðarstofa opin, leikfimi kl. 10, handmennt almenn kl. 10–14.30, félagsvist kl. 14. Allir vel- komnir. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl. 9. Bænastund kl. 21.30. Garðasókn | Opið hús í sumar í Kirkju- hvoli, Vídalínskirkju á þriðjudögum, kl. 13 til 16. Við spilum lomber, vist og bridge. Röbbum saman og njótum samverunnar. Kaffi á könnunni. Vett- vangsferðir mánaðarlega, auglýstar að hverju sinni. Akstur fyrir þá sem vilja, upplýsingar í síma 895 0169. All- ir velkomnir. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjón- usta alla þriðjudaga kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Hjallakirkja | Bæna- og kyrrðarstund er í Hjallakirkju á þriðjudögum kl. 18. Kristniboðssalurinn | Samkoma verð- ur í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58–60, miðvikudaginn 12. júlí kl. 20. „Þeir festu orðin í minni …“ Kjartan Jónsson talar. „Ferskur úr fjöllunum“, Skúli Svavarsson sér um efni. Allir eru velkomnir. sama tíma. Tónleikar á þriðjudagskvöldum. Sjá nánar á www.lso.is Norræna húsið | Sumarsýning í anddyri Norræna hússins til 27. ágúst. Ljósmyndir frá Austur-Grænlandi eftir danska ljós- myndarann Ole G. Jensen. Opið virka daga kl. 9–17. Laugardaga og sunnud. kl. 12–17. Pakkhúsið í Ólafsvík | Hugrenningar – Mál- verkasýning Sesselju Tómasdóttur mynd- listarmanns til 17. júlí. Viðfangsefni sín sækir hún í Snæfellsjökul og hugsandi and- lit, sem hún vinnur með akrýl- og olíu- málningu á striga. Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina til 28. ágúst. Safn | Tvær af fremstu myndlistarkonum í Evrópu; Karin Sander & Ceal Floyer, sýna nýleg verk sín í bland við eldri, sem eru í eigu Safns. Sýningin er opin mið-fös kl. 14– 18 og lau–sun kl. 14–17. Safn er til húsa á Laugavegi 37. Aðgangur er ókeypis. Leið- sögn á laugardögum. www.safn.is Skaftfell | Nú stendur yfir sýning bræðr- anna Sigurðar Guðmundssonar og Krist- jáns Guðmundsonar í Skaftfelli, menning- armiðstöð myndlistar á Austurlandi. Sýningin er opin daglega frá kl. 14–21. Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldu- konur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og verk tíu kvenna sem voru nær allar fæddar á síðari hluta 19. aldar. Þær nutu þeirra for- réttinda að nema myndlist erlendis á síð- ustu áratugum 19. aldar og upp úr alda- mótum. Í Myndasal eru til sýnis ljósmyndir Marks Watson og Alfreds Ehrhardt af Íslandi sum- arið 1938. Af myndum ferðalanganna má sjá hve ljósmyndin getur verið persónulegt og margrætt tjáningarform. Söfn Árbæjarsafn | Á Árbæjarsafni hefur verið opnuð sýningin Húsagerð höfuðstaðar, saga byggingatækninnar í Reykjavík frá 1840–1940. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra- steinn er opinn alla daga í sumar kl. 9–17. Hljóðleiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu- leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á www.gljufrasteinn.is og í 586 8066. Kotbýli kuklarans | Sýning á Klúku í Bjarn- arfirði sem er bústaður galdramanns og lit- ið er inn í hugarheim almúgamanns á 17. öld og fylgst með hvernig er hægt að gera morgundaginn lítið eitt bærilegri en gær- daginn. Opið alla daga kl. 12–18 til 31. ágúst. Listasafn Árnesinga | List, listiðnaður og hönnun frá Færeyjum. Verk eftir 32 ein- staklinga. Ríkey Kristjánsdóttir textílhönn- uður í hönnunarstofu. Aðgangur ókeypis. Opið alla daga kl. 11–17 til 31. júlí. Minjasafnið á Akureyri | Sumarsýning. Ef þú giftist? Brúðkaupssiðir fyrr og nú. Ef þú giftist fjallar um brúðkaup og brúðkaups- siði í gegnum tíðina. Sýningin er unnin í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands og er opin alla daga milli 10 og 17. Til 15. sept. Perlan | Sögusafnið Perlunni er opið alla daga kl. 10–18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum fjölda leikmynda sem segja sög- una frá landnámi til 1550. ww.sagamu- seum.is Veiðisafnið – Stokkseyri | Skotveiðisafn – uppstoppuð veiðidýr og veiðitengdir munir, skotvopn o.fl. Opið 11–18. Sjá nánar á www.hunting.is Þjóðmenningarhúsið | Tvær glæsilegar nýjar sýningar: Íslensk tískuhönnun sem sýnir fjölbreytnina og sköpunarkraftinn í tískugeiranum og Í spegli Íslands, um skrif erlendra manna um Ísland og Íslendinga fyrr á öldum. Auk þess helstu handrit þjóð- arinnar í vandaðri umgjörð á handritasýn- ingunni og Fyrirheitna landið. Þjóðminjasafn Íslands | Fornleifaupp- greftir fara nú fram víðs vegar um land og í Rannsóknarýminu á 2. hæð má sjá úrval gripa sem fundist hafa á undanförnum ár- um. Mikil gróska hefur verið í fornleifarann- sóknum vegna styrkja úr Kristnihátíð- arsjóði en úthlutana hans nýtur í síðasta sinn í sumar. Sýningin stendur til 31. júlí. Vaxmyndasafnið hefur löngum verið sveip- að ævintýraljóma og í sumar gefst tæki- færi til að sjá hluta þess á 3. hæð safnsins. Óskar Halldórsson útgerðarmaður styrkti íslenska ríkið árið 1971 til að koma safninu upp í minningu sonar síns Óskars Theodórs Óskarssonar. Í Þjóðmminjasafni Íslands er boðið upp á fjölbreyttar sýningar, fræðslu og þjónustu. Þar er safnbúð og kaffihús. Safnið hlaut sérstaka viðurkenningu í samkeppni um safn Evrópu árið 2006. Leiklist Iðnó | The best of Light Nights í Iðnó – öll mánudags- og þriðjudagskvöld í júlí og ágúst. Sýningar hefjast kl. 20.30. Fjöl- breytt efnisskrá flutt á ensku (að und- anskildum þjóðlagatextum og rímum), þjóðsögur færðar í leikbúning, þættir úr Ís- lendingasögum, dansar og fleira. Nánari uppl. á www.lightnights.com Fréttir og tilkynningar Fjölskylduhjálp Íslands | Tekið á móti mat- vælum, fatnaði og leikföngum á mið- vikudögum kl. 13–17. Úthlutun matvæla sama dag kl. 15–17 að Eskihlíð 2–4 v/ Miklatorg. Þeir sem vilja styðja starfið fjár- hagslega, geta lagt inn á reikning 101-26- 66090 kt. 660903-2590. JCI Heimilið | Ljósmyndasamkeppni JCI Íslands stendur nú yfir. Keppnin er opin öll- um áhugaljósmyndurum og verða úrslitin kynnt á Menningarnótt Reykjavíkur 19. ágúst. Keppnin er árleg, en þemað í ár er Höfuðborgin í ýmsum myndum. Veitt verða fern verðlaun frá Ormsson og ljos- myndari.is. Sjá nánar www.jci.is. Börn Garðabær | Golfleikjaskólinn heldur 5 daga golfnámskeið, mánudag–föstudags fyrir foreldra og börn, flestar vikur í sumar. Hægt er að velja milli tímana 17.30–19 eða 19.10–20.40. Upplýsingar og skráning eru á golf@golfleikjaskolinn.is og í síma 691– 5508. Heimasíða skólans: www.golf- leikjaskolinn.is Reykjavíkurborg | Í sumar verða opnir leikvellir á vegum ÍTR fyrir 2–5 ára börn í hverfum borgarinnar. Þar er boðið upp á útivist og leik í öruggu umhverfi. Komu- gjald er 100 kr. Nánari upplýsingar á www.itr.is og í síma 411 5000. Útivist og íþróttir Viðey | Guðrún Ásmundsdóttir leikkona fjallar um Ólafíu Jóhannsdóttur, Skúla fóg- eta og dóttur Guðmundar litunarmanns. Gestum verður boðið inn í Viðeyjarstofu sem er sögusviðið í þessar leiðsögn en gengin verður smá spölur ef vel viðrar. Lagt af stað með Viðeyjarferjunni í Sunda- höfn kl. 19. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is KÓR Grafarvogskirkju fór í söng- ferð til Finnlands og Eistlands dagana 9.– 15. júní sl. Með í för voru söngstjórinn Hörður Braga- son, sr. Vigfús Þór Árnason sókn- arprestur, sr. Anna Sigríður Páls- dóttir og ýmsir fylgifiskar. Hápunktur fararinnar var að syngja við finnska guðsþjónustu í Klettakirkjunni sem er fræg kirkja í Helsinki. Kirkjan er sprengd inn í bjarg þannig að veggir kirkj- unnar eru berir klettar. Séð utan frá minnir kirkjan helst á fljúg- andi disk sem sett hefur sig niður í miðri borginni. Kirkja þessi dreg- ur að sér ferðamenn víðs vegar úr heiminum. Kórinn söng íslenska sálma, þar af einn eftir kórstjór- ann Hörð Bragason og einn finnsk- an sálm. Ekki skildu kórfélagar mikið í boðskap predikunarinnar þennan sunnudaginn. Eftir messuna var boðið í kaffi og síðan söng kórinn klukkustund- arlanga dagskrá fyrir gesti og gangandi. Gerður var góður róm- ur að söngnum. Tónleikaferð þessi tókst í alla staði vel. Markverðir staðir voru skoðaðir á milli þess sem radd- bönd voru þanin. Ekki sakaði að veðurguðir voru í sínu blíðasta skapi. Kór Grafarvogskirkju söng í Klettakirkjunni í Helsinki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.