Morgunblaðið - 11.07.2006, Side 36

Morgunblaðið - 11.07.2006, Side 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING VERKIÐ Penetreitor eftir Anthony Neilson vakti mikla athygli þegar það var sýnt síðasta sumar. Bæði þótti sýningin áhrifarík og frammi- staða leikara eftirtektarverð, en ekki vakti síður athygli að uppfærslan var unnin í nánu samstarfi við Hugarafl, hóp fólks með geðsjúkdóma. „Okkur langaði í upphafi til að setja saman leikrit okkur til skemmtunar. Penetreitor varð fyrir valinu og freistuðum við þess að leita til Nýsköpunarsjóðs um styrki,“ segir Vignir Rafn Valþórsson, einn þriggja leikara sýningarinnar, um tilurð verkefnisins. „Geðsjúkdómar eru rauður þráður í verkinu og þró- aðist sýningin út í rannsóknarverk- efni þar sem við beittum vissum greiningaraðferðum á umfjöllunar- efni verksins. Var hluti af ferlinu að ræða við fólk sem þekkir geð- sjúkdóma af eigin raun. Það var þá sem við kynntumst Hugarafli, og eftir að við áttum fund með þeim varð ekki aftur snúið. Við áttuðum okkur strax á að þar væri kominn hópur fólks sem væri ónýttur visku- brunnur.“ Ómetanlegt að gera gagn Elín Ebba Ásmundsdóttir er einn af forsvarsmönnum Hugarafls: „Þetta gerist á sama tíma og Hugar- afl er orðið sýnilegur hópur í sam- félaginu, sem vill hafa eitthvað fram að færa. Hópurinn vildi nýta reynslu geðsjúkra í stað þess að hafa þá í hlutverki viðtakenda,“ segir Elín Ebba. „Hugarafl fagnaði því að fá svona verkefni, og ómetanlegt það gagn sem meðlimir hópsins hafa haft af samstarfinu. Geðsjúkir leggja sjálfir á það áherslu hve mikilvægur liður í því að ná bata er að geta verið öðrum að gagni, eins og þau gerðu með aðkomu sinni að Penetreitor.“ Mikilvægu smáatriðin Þátttaka Hugarafls í sýningunni var með þeim hætti að þeir fylgdust með æfingum og veittu umsögn um ýmis atriði sýningarinnar: „Leið- beiningar þeirra dýpkuðu skilning okkar á persónunum, og oft að þau bentu okkur á smáatriði sem skipta sköpum þegar dregin er upp mynd af einstaklingi með geðsjúkdóm,“ segir Kristín Eysteinsdóttir, leik- stjóri sýningarinnar. „Að heyra reynslusögur þeirra fékk okkur líka til að skilja og finna meðalveg í fram- vindu sögunnar og hegðun persón- anna. Þau hjálpuðu okkur ekki að- eins að móta hegðun geðsjúklingsins í verkinu, heldur veittu þau ekki síð- ur innsýn í viðbrögð aðstandenda, og hvernig venjulegt fólk hegðar sér þegar það lendir í aðstæðum eins og lýst er í Penetreitor.“ Úrræði skortir Talið berst að úrræðum fyrir geð- sjúka og aðstandendur þeirra: „Það kom okkur á óvart hve mikið skortir á fræðslu fyrir aðstandendur geð- sjúkra. Venjulegt fólk kann ekki að fást við þær aðstæður sem upp geta komið í kringum alvarlega veikan einstakling, og það er vegna skorts á fræðslu sem slysin gerast,“ segir Jörundur Ragnarsson, leikari í sýn- ingunni. Elín Ebba bætir við að lausnin sem flestir grípa til sé að fjarlægja hinn geðsjúka, og koma honum til læknis: „Við erum svo gjörn á að henda fólki inn í meðferðarkerfi, en við vitum samt ekki fyrir víst hvort meðferðarúrræðin sem til staðar virka sem skyldi. Þrátt fyrir æ fleiri sérfræðinga og alls kyns ný lyf virð- ist geðsjúkum ekkert vera að fækka.“ Þessu tengt minnist Elín Ebba á tilraunaverkefni í Finnlandi: „Þar er bráðateymi kallað til innan sólar- hrings þegar einhver lendir í alvar- legri geðrænni krísu. Allir eru kall- aðir til: ættingjar, vinir, nágrannar og vinnufélagar. Í sameiningu er reynt að ná skilningi á aðstæðum, rætt opinskátt um hlutina og allir leggja sitt af mörkum til að hjálpa einstaklingnum að finna lausn á sín- um vanda, frekar en að skilja hann eftir í umsjón heilbrigðiskerfisins. Þetta verkefni hefur borið mikinn árangur og hefur fækkað nýgreind- um geðklofasjúklingum, innlögnum á bráðageðdeildum og notkun geð- rofslyfa á svæðinu.“ Hæfileikafólk á geðdeild Elín Ebba segir hópinn vonast til að Penetreitor ryðji veginn fyrir önnur verkefni þar sem listamenn vinna með geðsjúkum. „Í Noregi var settur á laggirnar styrktarsjóður fyrir slík tilraunaverkefni og fékk ég að sjá leiksýningu í Bergen; atvinnu- leikarar og geðsjúkir unnu saman,“ segir Elín Ebba. „Verkefnið kom þannig til að tveir nýútskrifaðir leik- stjórnarnemar gátu hvergi fundið vinnu og réðu sig til starfa á geð- deild. Þegar þangað var komið upp- götvuðu þeir að þar dvaldist hópur af ungu og hæfileikaríku fólki með mikla sköpunargáfu, sem fékk ekki að deila hugsunum sínum með öðr- um en sálfræðingi eða geðlækni á viðtalstímum.“ Árangurinn í Noregi segir Elín ótvíræðan: „Þessum krökkum þóttu þau loksins vera orðin einhvers virði. Loksins höfðu þau fengið tækifæri til að hafa áhrif, nýta styrkleika sína og vera virkir þátttakendur í sam- félaginu. Við erum öll manneskjur, og það sem við eigum sameiginlegt og drífur okkur áfram er það að við höfum eitthvað að segja: að við höf- um hlutverki að gegna. Geðsjúkir finna oft fyrir því hvað þeir eru áhrifalausir, og hafa hvorki hlutverk né hlutdeild í samfélaginu. Þeir hafa jafnvel ekki áhrif á eigin meðferð.“ Jörundur bendir líka á að verkefni af þessu tagi geta komið í veg fyrir að fólk einangrist innan afmarkaðra hópa: „Oft dveljast geðsjúkir lang- dvölum á stofnunum, og eignast þá nær eingöngu vini innan stofn- anakerfisins.“ Elín Ebba tekur und- ir: „Það skiptir svo miklu máli að við getum eignast vini gegnum verkefni eins og þetta og brjótum niður þá fé- lagslegu múra sem reistir hafa verið svo víða um samfélagið.“ Styðja fleiri verkefni Allur ágóði af sýningum Penetrei- tor rennur óskiptur í styrktarsjóð Hugarafls sem ætlað er að hvetja til samstarfsverkefna af svipuðum toga. „Við viljum sérstaklega leggja áherslu á ungt fólk: Í stað þess að einblína á sjúkdóminn og einkenni hans viljum við nota listsköpun til að leyfa hæfileikum þeirra og styrk- leikum að njóta sín, því lausnin getur alveg eins leynst þar,“ segir Elín Ebba. Kristín bætir við: „Við hvetj- um fólk í öllum listgreinum að brjóta niður þau mæri sem reist hafa verið kringum geðsjúka. Samstarf okkar við Hugarafl hefur verið mjög gef- andi fyrir alla sem að því hafa komið og geta verkefni af þessu tagi gert mikið fyrir listina, og líka fyrir sam- félagið.“ Geðsjúkir og leikarar taka höndum saman Í kvöld hefjast að nýju sýningar á leikritinu Penetreitor. Ásgeir Ingvarsson ræddi við aðstandendur sýningarinnar um sýninguna og ávinninginn af samstarfi leikara og geðsjúkra. Penetreitor er sýnd í Sjóminja- safni Reykjavíkur, Grandagarði 8. Frekari upplýsingar eru á http:// vermordingjar.blogspot.com og miðapantanir í síma 699 0913. Morgunblaðið/Jim Smart Á myndinni eru þau Elín Ebba Ásmundardóttir frá Hugarafli, Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri og einnig allir þrír leikarar sýningarinnar: Jörundur Ragnarsson, Vignir Rafn Valþórsson og Stefán Hallur Stefánsson. HÓPUR sem nefnir sig Þremenn- ingasambandið heldur tónleika í Listasafni Íslands í kvöld kl. 20.00. Leikið verður í einum salanna á neðri hæð safnsins og er gengið inn frá höggmyndagarðinum við Freyju- götu. Hópinn skipa Arngunnur Árnadóttir og Ásta María Kjart- ansdóttir, sem munu leika dúetta og einleiksverk fyrir klarinettu og selló, og Halla Oddný Magnúsdóttir, pí- anóleikari Þremenningasambands- ins, sem flytja mun ljóð á milli atriða. Á efnisskrá verða Invensjón (út- skrifað fyrir klarinettu og selló) eftir Johann Sebastian Bach, Hyldýpi fuglanna fyrir einleiksklarinettu úr Kvartett fyrir endalok tímans eftir Olivier Messiaen, Allemande og Co- urante úr Sellósvítu nr. 2 eftir Jo- hann Sebastian Bach, Lysting er sæt að söng eftir Snorra Sigfús Birg- isson og Invensjón eftir Johann Seb- astian Bach. Hópurinn Þremenningasambandið er skipaður tónlistarkonunum Arn- gunni Árnadóttur og Ástu Maríu Kjartansdóttur, sem munu leika á klarin- ettu og selló, og Höllu Oddnýju Magnúsdóttur en hún leikur á píanó. Tónleikar í Listasafni Einars Jónssonar Á SÍÐARI tónleikum laugardags- ins í Skálholti má segja að vind- urinn hafi verið í meginhlutverki. Svo til eingöngu blásturshljóðfæri komu við sögu, bæði úr málm- og tréfjölskyldunni. Fyrst og síðast á dagskránni var blásarakvintett frá Svíþjóð, Rena- issance Brass. Eins og nafnið gefur til kynna flutti kvintettinn aðallega eldri tónlist, en hún var eftir Gabr- ieli, Locke og di Lasso. Yfirleitt var leikur kvintettsins til fyr- irmyndar, flestir tónar voru tærir og þægilega ávalir og hljómuðu ágætlega í ríkulegri endurómun kirkjunnar. Lítið en snyrtilega samið verk eftir Þóru Marteinsdóttur, Ferða- maðurinn, var líka prýðilega flutt af kvintettinum; þunglyndislegt tónmálið var sérstaklega undir- strikað af drungalegum, nánast draugalegum básúnuhljómnum og var útkoman eftirminnileg. Fjögur flautuverk voru á efnis- skránni. Eitt var eftir Stephen Lucky Mosko, margbrotin tónsmíð sem Berglind María Tómasdóttir lék á sannfærandi hátt. Berglind flutti líka In Two Different Places eftir Önnu Þorvaldsdóttur, en sú tónlist var einstaklega seiðandi í einfaldleika sínum og Berglind María Tómasdóttir spilaði hana af undursamlegri mýkt sem skapaði magnaða stemningu. Þau Berglind og Kolbeinn voru jafnframt með allt á hreinu í Reve bleu eftir Diönu Rotaru, en þar var stígandin svo úthugsuð að hápunkturinn var óvanalega áhrifamikill. Sömuleiðis var litrík tónsmíð eft- ir Úlfar Inga Haraldsson, L’unione sacra, sem Kolbeinn lék ásamt Guðrúnu Óskarsdóttur semballeik- ara, dásamleg áheyrnar. Kolbeinn hefur glæsilega tækni og ótrúlega fókuseraðan, merkingarþrunginn tón; hann kann þá list að láta fín- legustu blæbrigði segja heila sögu. Leikur Guðrúnar var líka hnitmið- aður og rafhljóðin, sem skreyttu verkin, sköpuðu skemmtilega and- stæðu við forneskjulegt andrúms- loft sembalsins. Án efa var verk Úlfars og flutningurinn á því með því mergjaðasta á tónleikunum. Af undursamlegri mýkt TÓNLIST Sumartónleikar í Skálholti Verk eftir Gabrieli, di Lasso, Locke, Mosko, Diönu Rotaru, Úlfar Inga Haralds- son, Önnu S. Þorvaldsdóttur og Þóru Marteinsdóttur. Laugardagur 8. júlí. Kammertónleikar Jónas Sen Morgunblaðið/Þorkell Verk Þóru Marteinsdóttiur, Ferða- maðurinn, var prýðilega flutt af blásarakvintettinum Renaissance Brass, að mati Jónasar Sen.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.