Morgunblaðið - 11.07.2006, Side 41

Morgunblaðið - 11.07.2006, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 41 SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI NÝJASTA MEISTARA- VERKIÐ FRÁ PIXAR SEM ALLIR ERU AÐ TALA UM. FRÁ FRAMLEIÐEN- DUM „THE INCREDI- BLES“ & „LEITIN AÐ NEMO“ VINSÆLASTA MYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ. eee Kvikmyndir.is NÚ ER KOMIÐ AÐ HENNI AÐ SKORA eeee V.J.V, Topp5.is SÝNDI BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI K R A F T M E S TA HASARMYND ÁRSINS HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA. DIGITAL Bíó SAMBÍÓIN KRINGLUNNI eee V.J.V.Topp5.is STAFRÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI DIGITAL Bíó SAMBÍÓIN KRINGLUNNI KVIKMYNDIR.IS THE BREAK UP kl. 3 - 5:45 - 8 - 10:20 THE BREAK UP VIP kl. 4:15 - 8 - 10:20 FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 B.I. 12.ÁRA. THE LAKE HOUSE kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 BÍLAR M/- ÍSL TAL. kl. 3 - 5:30 - 8 CARS M/- ENSKU TAL. kl. 3 - 5:30 - 10:20 SLITHER kl. 10:30 B.I. 16.ÁRA. SHE´S THE MAN kl. 8 THE BREAK UP kl. 3:45 - 6 - 8:15 - 10:30 FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 8:15 - 10:30 B.I. 12.ÁRA. BÍLAR M/- ÍSL TALI kl. 4 - 6:30 CARS M/- ENSKU TALI kl. 3:45 - 9 DIGITAL SÝN. THE POSEIDON ADVENTURE kl. 6 B.I. 14.ÁRA. DIGITAL SÝN. A A 08.07.2006 1 7 1 5 5 2 8 6 8 0 5 4 9 12 13 29 05.07.2006 1 8 26 33 44 46 1024 43 LISTHÁTÍÐIN LungA á Seyð- isfirði fer af stað í sjöunda sinn á mánudaginn næstkomandi og er óhætt að segja að hátíðin í ár sé sú stærsta og glæsileg- asta til þessa en hátíðin hef- ur verið í stöð- ugum vexti frá því hún var haldin í fyrsta sinn árið 2000. Aðalheiður Borgþórs- dóttir, ferða- og menningar- málafulltrúi Seyðisfjarðarkaupstaðar, hefur ver- ið framkvæmdastjóri LungA frá upphafi. Að hennar sögn er markmið hátíðarinnar að efla áhuga ungs fólks, á aldrinum 16–25 ára, á listum og menningu, virkja þau í list- sköpun, efla ímynd Austurlands- fjórðungs og að draga framhalds- skólanemana heim að námi loknu. „Hvatinn að hátíðinni var fyrst og fremst sá að það þurfti að gera eitt- hvað fyrir ungt fólk,“ segir Að- alheiður. Listahátíðin snýst fyrst og fremst um svokallaðar listasmiðjur þar sem ungt fólk fær leiðsögn reyndra listamanna við listsköpun sína sem verður síðan afhjúpuð á uppskerufögnuði sem er jafnframt lokapunktur listahátíðarinnar. Að- alheiður segir að þátttakendur í listasmiðjunni komi víða að og nefnir hún meðal annars að alls 37 ung- menni erlendis frá hafi þegar skráð sig á hátíðina í ár. Sjö listasmiðjur Listasmiðjurnar hafa verið margs konar í gegnum árin og að þessu sinni verður ýmislegt á boðstólum. Þarna verður hægt að sækja leiklist- arsmiðju þar sem leikarinn Víkingur Kristjánsson mun vinna með grunn- atriði í leiklist og spuna en viðfangs- efni smiðjunnar er götumenning. Trommarinn Arnar Þór Gíslason, sem trommar meðal annars með hljómsveitunum Ensími og Dr. Spock, hefur umsjón með stompi, eins konar takt-smiðju þar sem til- raunir eru gerðar með ýmis hljóð- færi eins og tunnur, stálrörbúta úr vélsmiðjunni, holræsisrör, hjól- koppa, járnarusl og hvaðeina sem mönnum dettur í hug að nota til að framkalla hljóð. Bjössi trommari í Mínus mun auk þess aðstoða Arnar við kennsluna. Hljóðsmiðja verður í höndum Curvers Thoroddsens en hann er eins og flestir vita nánast alfróður um allt sem við kemur hljóði. Hóp- urinn hans mun fara ótroðnar slóðir, kynnast stafrænum upptökuaðferð- um og semja hljóðverk fyrir uppske- ruhátíðina. Gospelsmiðjan hlaut mikið lof á hátíðinni fyrir tveimur árum og verður gospelið aftur á boð- stólum í ár. Ed Cohen píanóleikari og gospelsöngkonan Pat Randolph frá Bandaríkjunum munu veita leið- beiningu í ástríðufullum flutningi á trúarlegum textum með viðeigandi spuna og innlifun. Rithöfundurinn Jón Hallur Stef- ánsson og Rikke Houd útvarps- þáttagerðarkona stjórna listasmiðju sem ber heitið Hljóðfrásagnir. Þátt- takendur fá í hendurnar hljóðnema og upptökutæki og reyna fyrir sér í umhverfisupptökum, vettvangs- upptökum og viðtölum og þessar upptökur verða síðan notaðar til að æfa stafrænar klippingar, hljóð- vinnslu og hljóðblöndun. Síðan verða kraftar allra þátttakenda sameinaðir kringum eitt meginverkefni, heim- ilda- eða fléttuþátt þar sem mögu- leikar hljóðfrásagna eru nýttir. Sérstök listasmiðja mun standa fyrir ákveðnum vinnubúðum þar sem listir fjölleikahússins verða teknar fyrir. Verkefninu lýkur með því að sett verður upp sýning sem tvinnuð verður saman við aðrar listasmiðjur LungA-hátíðarinnar og allt verður keyrt saman í allsherjar karnival. Kennarar á Northen Cir- cus Culture verða Henna, Ole og Petris sem öll eru útskrifuð úr Cirkuspilotema skóla Cirkus Cirkör í Svíþjóð. Tónlistarveisla Einnig verður boðið upp á fata- hönnunarsmiðju í umsjón Ríkeyjar Kristjánsdóttur en megináhersla námskeiðsins verður endurnýting gamalla efna og fatnaðar. Auk listasmiðjunnar verður ým- islegt annað á dagskrá LungA og ber helst að nefna viðamikla tónlist- arveislu sem haldin verður í Herðu- breið á laugardeginum 22. júlí, að lokinni uppskeruhátíðinni. Hljóm- sveitirnar sem þarna munu stíga á svið eru Ampop, Ghostigital Fræ, Benny’s Crespos Gang, Jeff Who?, Sometime, Bigital Orchestra, Tony the Pony, Miri og Foreign Monkeys. Lunga hlaut Eyrarrósina 2006 fyrir famúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni en verndari Eyr- arrósarinnar er forsetafrú Íslands, frú Dorrit Moussaieff. Nánari upplýsingar um hátíðina má finna á www.lunga.is. Menning | Listahátíð ungs fólks á Austurlandi er haldin dagana 17.–23. júlí Curver Thoroddsen sér um hljóðsmiðju á Lunga annað árið í röð. Fræ er ein hljómsveitanna sem spila í Herðubreið á lokakvöldi Lunga. Listasmiðjur og risatónleikar ANNAR þátturinn í Rock Star: Su- pernova fer fram í nótt klukkan 1 en þátturinn er sýndur beint á Skjá ein- um. Í síðasta þætti var það Matt sem datt út eftir að hafa sungið Duran Duran lagið „Planet Earth“ en þar áður söng hann „Yellow“ með Coldplay. Þeir Clarke, Lee og New- stead voru óánægðir með lagaval Matts og þrátt fyrir að hann hefði ekki sungið verst af öllum keppend- unum, var eins og þeim byði einfald- lega við tónlistarsmekk stráksins og því var hann látinn fjúka. Hurðin skall þó ansi nálægt hælum Magna og eins og kom fram hjá þokkadísinni Brooke Burke sem kynnir þættina, þá var Magni á ein- hverjum tímapunkti kosningarinnar í einu af þremur neðstu sætunum. Mikla umræðu er að finna á spjall- síðu þáttarins sem finna má á slóð- inni, www.rockstar.msn.com, þar sem meðal annars er rætt um frammistöðu Magna og þar eru ekki allir á eitt sáttir. Einhver sem kallar sig WinceWhirlwind segir til dæmis að Magni verði næstur til að fá reisu- passann. Í hann vanti allan takt og svo sé hann ekki nógu áhugaverður einstaklingur til að vinna hylli Super- nova. Það er ljóst að mikill fjöldi Ís- lendinga leggur leið sína á spjallsíðu þáttarins því holskefla andmæla hellist yfir WinceWhirlwind í kjölfar- ið og honum eru svo sannarlega ekki vandaðar kveðjurnar. Lagavalið mikilvægt Eins og fyrr kom fram verður þátt- urinn sýndur í kvöld klukkan 1 og samkvæmt áreiðanlegum heimildum Morgunblaðsins er Magni fyrstur á svið í nótt. Í síðustu viku valdi hann að syngja „Satisfaction“ með Rolling Stones en margir hafa síðan sagt að það val hafi ekki verið skynsamlegt. Lagið sé svo frægt í meðförum Jag- gers og félaga að allir aðrir virki eins og karaoke-söngvarar þegar þeir reyni við það. Hvort það reynist Magna heilladrjúgt að stíga fyrstur á svið í kvöld kemur í ljós en aðalatriðið er að hann velji lag sem hentar hon- um og býður upp á hans eigin túlkun.  Keppendurnir 15 í Rock Star: Supernova. Nú ætti að hitna í kol- unum eftir brotthvarf Matts. Ljósmynd/Danny Moloshok Nú reynir á Magna að sýna sitt rétta andlit en hann var gagn- rýndur síðast fyrir að vera of Vegas-legur í flutningi sínum. Magni stígur fyrstur á svið Fólk | Annar þáttur Rock Star: Supernova sýndur í nótt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.