Morgunblaðið - 11.07.2006, Page 44

Morgunblaðið - 11.07.2006, Page 44
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alladaga í Lágmúla og Smáratorgi endurskoðun reikningsskil skattar / ráðgjöf www.ey.is Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is ÞEKKTUR andstæðingur Kárahnjúka- virkjunar kærði í gær til lögreglu meintar njósnir starfsmanns ítalska verktakafyrir- tækisins Impregilo. Talsmaður Impregilo hafnar því að fyrirtækið stundi njósnir. Þórhallur Þorsteinsson, formaður Ferða- félags Fljótsdalshéraðs, fór í Snæfellsskála sl. föstudag. Þegar hann ók brott sá hann bíl staðnæmast við skálann og frétti síðar að ökumaðurinn hefði snarast inn, ekki virt skálavörðinn viðlits en flett gestabókinni og ljósmyndað síður í bókinni þar sem þekktir andstæðingar virkjunarinnar höfðu skrifað nöfn sín. Hann hefði svo endað á því að rita nafn sitt og farið án þess að kveðja. „Ég varð fljótt var við það á leið minni inn í Hrafnkelsdal að það var bíll á eftir mér, en hugsaði ekki sérstaklega um það. Ég stopp- aði á Aðalbóli og sá bílinn þar aftur. Ég stoppaði þar í 20 mínútur í kaffi og varð var við að bíllinn var kominn aftur eftir það og fylgdi mér eftir út Hrafnkelsdal. Þá hafði ég áttað mig á því að þetta var bíllinn sem ég sá við Snæfellsskála,“ segir Þórhallur. Hann segir bílinn hafa haldið sig í 500– 1.000 metra fjarlægð og elt bíl sinn 40 km. Þórhallur segist að lokum hafa komist í hvarf og ekið inn að bóndabæ. Þá hafi bíl- stjórinn sem veitti eftirförina hikað en svo ekið framhjá á mikilli ferð. Þórhallur segir að það sé ekki bara eft- irförin sem hann finni að, hegðun mannsins í skálanum hafi verið óviðunandi. „Hann hefði getað boðið góðan daginn og óskað eft- ir að fá að sjá gestabókina, hann hefði feng- ið það og fengið að mynda það sem þar stóð. Það er ekkert þarna sem við erum að fela. En þessi framkoma var alveg óþolandi.“ Fylgjast ekki með ferðum mótmælenda Ómar R. Valdimarsson, talsmaður Imp- regilo, neitar að starfsmenn Impregilo stundi njósnir. Hann segir starfsmenn fyr- irtækisins hvorki hafa þann starfa að elta umhverfisverndarsinna né hafi þeir á því áhuga. „Umhverfisverndarsinnum er vel- komið að mótmæla hvar sem þeir vilja svo framarlega sem þeir hafa ekki áhrif á fram- gang verksins. Ef þeir hafa truflandi áhrif á framkvæmdina vegna þeirra verkþátta sem okkur hefur verið falið að vinna þá köllum við í lögreglu til að sjá um þau mál.“ Kærði meint- ar njósnir starfsmanns Impregilo ÞAÐ er engu líkara en fjöldinn allur af of- urmennum hafi verið saman kominn í Sam- bíóunum í Kringlunni í gærkvöldi. Það var þó ekki þannig því hér var um að ræða forsýningu kvik- myndarinnar Ofurmennið snýr aftur en öllum sem horfa vildu var gert skylt að klæðast bol með merki ofurmennisins og voru bolirnir afhentir við innganginn í salinn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ofurmenni á forsýningu JÓNÍNA Bjartmarz um- hverfisráðherra til- kynnti í gær að hún hygðist gefa kost á sér í kjöri til varaformanns Framsóknarflokksins á flokksþingi um miðjan ágúst. Hún segir í til- kynningu að fjöldi fram- sóknarmanna, flokks- bundinna jafnt sem óflokksbundinna, hafi skorað á hana að gefa kost á sér. Nái Jónína kjöri hyggst hún beita sér fyr- ir nýrri sókn framsóknarmanna, aukinni þátttöku og áhrifum kvenna innan flokksins og auknum samhug og samvinnu flokks- manna. Telur hún það leiða til sterkari stöðu Framsóknarflokksins og öflugs sig- urs flokksins í næstu alþingiskosningum. Jónína Bjartmarz Gefur kost á sér sem varaformaður Jónína Bjartmarz ♦♦♦ GEIR Ómars- son, íbúi í Krummahól- um, er orðinn vanur að heyra öskrin í mávum á nótt- unni þar sem þeir sveima kringum blokkirnar í Breiðholti í leit að einhverju æti- legu. En í gær kynntist hann bíræfni þeirra svo um munaði. „Við félagarnir vorum að grilla hér úti á svölum og ég hafði skellt fjórum lærissneiðum á grillið. Ég brá mér innfyrir til að búa til sósuna og skildi grillið eftir opið. Skyndi- lega verð ég þess áskynja að máv- arnir fljúga óvenju nálægt gluggan- um þannig að ég hleyp út á svalir og sé þá að tvær lærissneiðar eru horfnar af grillinu,“ segir Geir og tekur fram að þeir félagarnir, hann og Davíð Páll Helgason, hafi ekki getað annað en skellt upp úr. Hann tekur þó fram að eftir þetta hafi hann passað að loka grillinu þegar hann þurfti að bregða sér frá, því mávarnir hafi setið á öllum ljósa- staurum allt í kringum húsið og fylgst gaumgæfilega með honum. Bíræfnir mávar „ÞETTA er tímamótadómur fyrir íslenskt at- vinnulíf,“ segir Halldór Jónasson, fulltrúi hjá Trésmiðafélagi Reykjavíkur, en Félagsdómur komst í dómi sínum sl. föstudag í máli Trésmiða- félagsins gegn Sóleyjarbyggð ehf. að þeirri nið- urstöðu að hið íslenska fyrirtæki bæri ábyrgð á því að tryggja að erlendum starfsmönnum sem hingað kæmu til að vinna væru greidd laun í sam- ræmi við lágmarkskjör í viðkomandi starfsgrein. Í málinu var upplýst að litháskir starfsmenn sem komu hingað til lands á vegum tveggja lit- háskra fyrirtækja til að vinna fyrir Sóleyjar- byggð ehf. við húsbyggingar fengu greiddar rúmar 20 þúsund krónur í laun á mánuði. Dóm- urinn tekur fram að ekki beri að líta á dagpen- inga eða aðrar greiðslur vegna útlagðs kostnaðar sem laun. Í niðurstöðu dómsins er tekið fram að þar sem Sóleyjarbyggð ehf. hafi ekki gert neitt til að isstöðu þeirra, því lykilatriði sé að öll fyrirtæki sitji við sama borð og að ekki sé verið að und- irbjóða verk á grundvelli launa sem samræmist ekki íslenskum kjarasamningum. Hissa á því hvað dómurinn gengur langt í túlkun samkomulagsins Að mati Hrafnhildar Stefánsdóttur, yfirlög- fræðings SA, er fremur óljóst hvað felst ná- kvæmlega í niðurstöðu dómsins. Segir hún að sér komi á óvart hvað dómurinn gangi langt í túlkun sinni á fyrrgreindu samkomulagi ASÍ og SA. „Við höfum áður sagt að notendafyrirtæki hljóti að bera ábyrgð ef það sé augljóst að endurgjald þeirra til leigufyrirtækja nægi ekki fyrir launa- greiðslum. En þessi dómur gengur hins vegar lengra, þar sem hann túlkar útlendingasam- komulagið með nýjum hætti, á þann veg að það leggi beinar skyldur á herðar notendafyrirtæk- inu að gera ráðstafanir til að tryggja hinum er- lendu starfsmönnum launakjör samkvæmt kjarasamningi.“ tryggja hinum lithásku starfsmönnum launakjör samkvæmt íslenskum kjarasamningum hafi fyr- irtækið brotið alvarlega gegn þeim skyldum sem á því hvíli samkvæmt samkomulagi því sem að- ilar vinnumarkaðarins, ASÍ og SA, gerðu með sér í mars 2004 um útlendinga á íslenskum vinnu- markaði. Mikilvægur áfangi í því að treysta stöðu íslenskra kjarasamninga Ingvar Sverrisson, hdl. og lögfræðingur hjá ASÍ, segir nýfallinn dóm vera mjög mikilvægan áfanga hvað það varðar að treysta og styrkja stöðu íslenskra kjarasamninga í ljósi alþjóðavæð- ingar. Að mati Ingvars hefur dómurinn jákvæð áhrif fyrir ASÍ í væntanlegum viðræðum sam- bandsins við hið opinbera í þá veru að í útboðs- skilmála verði sett mjög skýr og afdráttarlaus ákvæði um ábyrgð þeirra sem fá úthlutað verk- um hjá opinberum aðilum. Leggur Ingvar áherslu á að þetta atriði sé ekki síður mikilvægt fyrir fyrirtækin í landinu og tryggi samkeppn- Kveðið á um aukna ábyrgð notendafyrirtækja Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „FORELDRAR bera ábyrgð á börn- um sínum til átján ára aldurs, þannig að hvort sem börnin eru að fara þarna með leyfi eða í leyfisleysi er þáttur foreldra nokkuð stór,“ segir Rafn M. Jónsson, verkefnisstjóri hjá Lýðheilsustöð, en undanfarnar tvær helgar bar töluvert á eftirlitslausum og ölvuðum unglingum á fjöl- skylduhátíðunum Færeyskir dagar og Írskir dagar. Hann segir þörf á vitundarvakningu í samfélaginu. Samkvæmt upplýsingum lögreglu náði aldur drukkinna ungmenna allt niður í fjórtán ár og segir Tómas Guðmundsson, einn skipuleggjenda Írskra daga á Akranesi, dæmi um unglinga sem stolist hafi út til að skemmta sér. Meirihlutinn hafi hins vegar verið á aldrinum 15 til 17 ára, sem hafi farið í útilegu með leyfi for- eldra sinna og stóra spurningin eftir helgina sé því hvar ábyrgð foreldr- anna liggi. „Vandamálið er náttúr- lega sú staðreynd að samfélaginu í heild sinni virðist þykja í lagi að fimmtán, sextán ára krakkar fari með leyfi foreldra sinna hingað og þangað um landið og drekki áfengi í tvo til þrjá sólarhringa.“ Tómas segir að ungmennin hafi upp til hópa hegðað sér vel en þó verði farið yfir þátt þeirra í hátíðinni og hvernig brugðist verði við að ári liðnu. Hins vegar eru aðstandendur ánægðir með hátíðina í heild sinni þar sem fjöldi fólks naut fjölskyldu- vænnar dagskrár. Talið er að ríflega þrjú þúsund manns hafi verið á Írsk- um dögum. Segja þörf á vit- undarvakningu  Unglingadrykkja | 11 FYRSTA 45 MW aflvél Hellis- heiðarvirkjunar Orkuveitu Reykjavíkur verður gangsett 1. september nk. Að sögn Eiríks Bragasonar, verkefnisstjóra virkjunarinnar, hafa fram- kvæmdir gengið eftir áætlun. Dagsetning lykiláfanga er óbreytt og þegar seinni vélin í þessum áfanga fer í gang 1. októ- ber nk. verður framkvæmdum lokið við það sem kalla má kjarna Hellisheiðarvirkjunarinnar. Alls vinna rúmlega 500 manns við verkið í dag, þar af eru 70% Íslendingar. | Miðopna Aðeins 51 dagur í gang- setningu fyrstu aflvélar Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.