Morgunblaðið - 18.07.2006, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.07.2006, Blaðsíða 32
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÓNÁÐIÐ EKKI ÓNÁÐIÐ EKKI PENINGAR, BÍLAR, KVENFÓLK? EÐA KANNSKI BARA PENINGAR OG BÍLAR? HVER HELDURÐU AÐ SÉ LYKILLIN AÐ SANNRI HAMINGJU? SVONA SVARAÐU MÉR! EKKI LÁTA ÞAÐ KOMA ÞÉR AÐ ÓVÖRUM ÞÓ ÉG LEIKI FREKAR ILLA Í DAG AF HVERJU? ER ER SVOLÍTIÐ RYÐGAÐUR ÞETTA ER SÚ ALLRA VERSTA LYKT SEM ÉG HEF FUNDIÐ! ÞÚ HEFUR GREINILEGA EKKI ÞEFAÐ AF INNI- SKÓNUM ÞÍNUM NÝLEGA! ÞÓ EINHVER HAFI SPÁÐ ÞVÍ AÐ ÞÚ VERÐIR BEÐIN UM AÐ HALDA FYRIRLESTU ÞÁ GENGUR SAMT EKKI AÐ BÍÐA BARA EFTIR ÞVÍ AÐ HAFT VERÐI SAMBAND VIÐ ÞIG ÞÚ ÆTTIR AÐ KYNNA ÞIG. SENDA ÞEIM SEM SJÁ UM RÁÐSTEFNUNA BRÉF, EÐA EITTHVAÐ Í ÞÁ ÁTTINA VÆRI ÉG ÞÁ EKKI AÐ SVINDLA? ÉG SKAL EKKI KJAFTA FRÁ HVER ERTU? ÉG ER LOVELACE SMILEY, ÉG ER FRAMLEIÐANDI MYNDARINNAR HANS KRAVEN EN ÁN KRAVEN ER MYNDIN ÓNÝT ÞVERT Á MÓTI, ALLIR MUNU VILJA SJÁ KÓNGULÓARMANNIN OG KRAVEN BERJAST UM ÞIG... ...ÞÚ VERÐUR STÓRSTJARNA ÉG VIL AÐ ÞIÐ KOMIÐ HLAUPANDI OG RENNIÐ YKKUR Í HÖFNINA! FÍFLALÆTI ERU VÍST GÓÐ Í HÓFI NÚ ÆFUM VIÐ OKKUR Í ÞVÍ AÐ RENNA OKKUR! Dagbók Í dag er þriðjudagur 18. júlí, 199. dagur ársins 2006 Víkverji kom við íBónus á dögunum til að kaupa hamborg- ara á grillið. Heitt var í veðri þennan dag og greinilega margir í sömu hugleiðingum og Víkverji því enga hamborgara var að finna í hillunni. Á gólf- inu fyrir neðan hilluna var hins vegar opinn pappakassi fullur af hamborgurum merkt- um Bónus og greip Víkverji tvær pakkn- ingar. x x x Ekki hentuðu þessir borgarar vel ágrillið. Þeir voru svo þunnir að þeir gengu meira og minna í sundur. Víkverji hefur sjaldan lent í öðru eins og er hann þó eldri en tvævetur þegar kemur að grillun hamborgara. En hvað um það. Víkverji raðaði brotunum bara saman og hamborg- ararnir smökkuðust alls ekki illa enda þótt fjölskyldan ræki upp stór augu og furðaði sig á vinnubrögðum hins annars óskeikula grillara. x x x Það sem vakti þó mesta athygliVíkverja í þessu máli var að framleiðsludagur téðra hamborgara var ekki runninn upp þeg- ar þeir mættu örlög- um sínum á grillinu. Á pakkningunni stóð m.ö.o. að þeir yrðu framleiddir daginn eftir. Má það vera? Víkverji spyr í fávisku sinni. Hann veit næsta lítið um pökkun mat- væla en vonar að það sé ekki viðtekin venja á Íslandi að segja ósatt um fram- leiðsludag. x x x Víkverji útilokar alls ekki að hérhafi verið um mannleg mistök að ræða og vonar það satt best að segja en eftir þetta veltir hann því alvar- lega fyrir sér hvort pottur sé víðar brotinn við upplýsingagjöf í þessu samhengi og matvæli sem hann er að kaupa séu í raun eldri en pakkn- ingin gefur til kynna. Þetta er óþægilegur efi. x x x Annars finnst Víkverja alltaf jafngaman að grilla. Hann er engin hamhleypa í eldhúsinu en við grillið er hann í essinu sínu. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is        Veður | Veðurstofa Íslands spáir betra veðri víðast hvar á landinu næstu daga; hægviðri eða hafgola og skýjað með köflum, en sums staðar skúrir síð- degis. Hitinn getur farið allt upp í 17 stig, einkum inn til landsins. Þessi ungi drengur, Kári Steinn, naut sín í lúpínubreiðu í góðu veðri á snjóflóðavarnar- garðinum við Flateyri. Morgunblaðið/Golli Sumarið loksins að koma? MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins : Ég mun biðja föðurinn, og hann mun gefa yður annan hjálpara, að hann sé hjá yður að eilífu. (Jóh. 14, 16.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.