Morgunblaðið - 18.07.2006, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.07.2006, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fallslagurinn í Eyjum – baráttan um annað sætið harðnar enn Íþróttir á morgun BESTI tíminn í laxveiðiám landsins fer nú senn í hönd en samkvæmt tölum frá www.angling.is frá því á mið- vikudaginn var veiði í 16 laxveiðiám komin yfir 100 laxa og gera má ráð fyrir því að þær séu nú orðnar átján tals- ins. Veiðin er þó ekki eins góð og á sama tíma í fyrra en það sumar var sem kunnugt er afburðagott. Svo virðist sem margar árnar séu eitthvað seinni til þetta árið og benda margir á að smálax hafi ekki gengið af sama krafti og áður auk þess sem fremur kalt hafi verið í veðri víðast hvar. „Það virðist sem það sé hægari gangur í þessu yfir allt landið,“ segir Stefán Sigurðsson, sölustjóri hjá Lax-á. Hann bendir þó á að Blanda sé á fullu skriði, en holl sem hætti veiðum á laugardaginn var með 88 laxa. „Þá hefur verið stórveiði á vesturbakka Hólsár og hátt í hundrað laxar komnir á land á fjórar stangir.“ Að sögn Stefáns eru Miðfjarðará, Víðidalsá og Rang- árnar öllu seinni til en í fyrra þrátt fyrir að veiði hafi ver- ið með ágætum. „Síðustu daga hafa verið að veiðast átta til fimmtán laxar á dag í Miðfjarðará og hún virðist því dottin í gang. Maður myndi þó vilja sjá meira en það er tímaspursmál hvenær meira af smálaxi hellist inn. Víðidalsá og Rang- árnar eru í svipuðum gír. Þetta er rólegt ennþá og við er- um í raun að bíða eftir því að þetta fari af stað. Eftir svona viku verðum við komin á aðaltímann.“ Stefán segir að síðastliðin tvö ár hafi verið mjög góð – menn hafi ef til vill verið orðnir of góðu vanir. „Þetta er kannski orðið eðlilegra núna.“ Erfitt að spá fyrir um veiði Landssamband veiðifélaga mun nú í sumar, sem undanfarin ár, birta vikulegar aflatölur úr 25 laxveiðiám á vef sínum. Þorsteinn Þorsteinsson frá Skálpastöðum er umsjónarmaður vefsins en þetta er þriðja árið sem töl- urnar eru birtar í þessari mynd. „Við uppfærum þær eins reglulega og við mögulega getum og reynum að gera það um hádegi á fimmtudög- um og miðum þá við tölurnar eins og þær standa kvöldið áður,“ segir Þorsteinn en á síðunni er jafnframt skýrt frá veiðitölum eins og þær voru vikuna á undan og tölum frá sambærilegum degi sumarið áður. Þá er þar einnig að finna upplýsingar um upphafsdag veiði, stangafjölda í einstökum ám, lokatölur síðasta árs sem og meðalveiði síðastliðinna tíu ára. Þorsteinn segir að heimsóknum á vefinn hafi fjölgað jafnt og þétt en hann var upphaflega settur í gang með það að markmiði að vera upplýsingavefur fyrir erlenda veiðimenn. „Síðan við fórum að leggja meiri áherslu á innanlands- markaðinn hefur aðsóknin aukist en menn virðast hafa gaman af því að skoða þessar tölur.“ Aðspurður segir Þorsteinn það erfitt að spá fyrir um veiði en þetta sé hins vegar gott innlegg í þá umræðu. Það liggur því beinast við að spyrja hvernig honum lítist á sumarið. „Ég verð nú að segja eins og Veiðimálastofnun – að þetta verði nokkuð gott sumar en ekki eins gott og í fyrra. Það er ekki hægt að vonast eftir því tvö ár í röð. Það kemur samt einhvern tímann.“ STANGVEIÐI „Kannski orðið eðlilegra núna“ Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Arnar Jón Lárusson og Marinó Þórisson með glæsi- legar 14 og 13 punda hrygnur úr Gvendardrætti í Stóru-Laxá. Þetta var maríulax Marinós. veidi@mbl.is NAUÐSYNLEGT er að endur- skoða álagningu virðisaukaskatts af ferðaþjónustunni og áhrif virðis- aukaskatts á allar greinar hennar. Þetta er niðurstaða starfshóps sem samgönguráðherra skipaði í byrjun árs til að fjalla um rekstraraðstæður þeirra sem reka hópferðabifreiðar. Komist er að þeirri niðurstöðu að upptaka olíugjalds í stað þunga- skatts 1. júlí á seinasta ári virðist hafa haft í för með sér kostnaðar- auka fyrir þá sem reka hópferða- fyrirtæki sé litið til upplýsinga úr rekstri nokkurra fyrirtækja í grein- inni. Greina verði þó á milli öku- tækja sem áður voru á föstu árgjaldi í þungaskattskerfinu og þeirra sem greiddu mælagjald. Meðal þess sem fram kemur í skýrslu hópsins er að skv. upplýs- ingum Ríkisskattstjóra hafa bif- reiðagjöld hækkað mun meira á þyngri bifreiðar en léttari. Hækkun bifreiðagjalda frá 1994 til 2005 á 850 kílóa bifreið nemur rúmum 20% en á bifreið sem vegur 3.500 kíló hafa gjöldin hækkað um rúmlega 50%. Á sama tíma hefur vísitala neyslu- verðs hækkað um rúm 40% og því hafa gjöld á léttari bifreiðar lækkað að raungildi. Á fyrri hluta ársins 2002 voru álögð bifreiðagjöld tæpir 1,6 millj- arðar króna. Á fyrri hluta þessa árs voru álögð bifreiðagjöld rúmlega 2,1 milljarður króna. Hækkunin nemur um 35% án tillits til verðlagsbreyt- inga, að því er fram kemur í skýrsl- unni. Hafa ber í huga að hópferða- bifreiðar sem skráðar eru fyrir 10 til 17 manns að meðtöldum ökumanni bera 30% vörugjald. Hópferða- bifreiðar sem skráðar eru fyrir 10 til 17 manns og eru í eigu hópferða eða sérleyfishafa bera 5% vörugjald og hópferðabifreiðar fyrir 18 manns eða fleiri eru undanþegnar vöru- gjaldi. 413 þúsund farþegar 2004 en voru 635 þúsund árið 1960 Starfshópurinn telur ekki gerlegt að breyta virðisaukaskattsskyldu hópferðaleyfishafa einna og sér en gerir að tillögu sinni að virðis- aukaskattskerfið verði skoðað með hliðsjón af áhrifum virðisauka- skattskyldu á allar greinar ferða- þjónustu m.t.t. hagsmuna atvinnu- greinarinnar í heild sinni. Meðal þess sem fram kemur í skýrslunni er að farþegum hóp- ferðabíla hefur fækkað verulega á umliðnum áratugum. Á seinustu ár- um hefur farþegum á sérleyfisleið- um fjölgað á nýjan leik þó þeir sem ferðast með hópferðabílum séu langtum færri en fyrir nokkrum áratugum. Þannig voru þeir árið 2002 rúmlega 377 þúsund talsins en fjölgaði í 413 þúsund á árinu 2004. Til samanburðar voru hins vegar farþegar á sérleyfisleiðum árið 1960 kringum 635 þúsund. Sérleyfisleiðum hefur einnig fækkað. Árið 1940 voru sérleyfis- leiðir hér á landi 79 en voru árið 2004 orðnar 32. Þá kemur fram í samantektinni að meðalaldur hópferðabíla í landinu hefur farið lækkandi. Í lok síðasta árs töldust þeir alls 1.906 en árið 2000 var fjöldinn 1.673 bílar. Árið 1940 voru 137 slíkir bílar í landinu. Þá hefur meðalaldur bílanna lækkað talsvert eða úr 12,9 árum árið 2000 í 10,2 ár á síðasta ári. Langflestir bílanna eða yfir 1.100 eru skráðir á höfuðborgarsvæðinu en næstflestir á Suðurlandi eða 175. Gróska í greininni „Ferðamenn sem hingað koma ferðast meira sjálfir um landið en áður var. Þannig taka mun fleiri ferðamenn bílaleigubíla enda hefur bílaleigum fjölgað um 50% frá árinu 2000,“ segir í skýrslunni en fram kemur að í fyrra voru 59 bílaleigur á Íslandi og fjöldi bílaleigubíla hafði nær tvöfaldast frá árinu 2000 en þeir voru skráðir alls 4.213 á sein- asta ári. „Þegar greint er hvernig eftir- spurn eftir þjónustu þessarar grein- ar hefur þróast er líklega besta viðmiðið það að ferðamönnum hefur fjölgað um 6% á ári frá 1960. Afleið- ingin er sú að á sama tíma fjölgar hópferðabifreiðum nífalt, úr 212 í 1.906 og sé miðað við árin 1980 til 2005 fjölgaði hópferðabifreiðum um hvorki meira né minna en 10% á ári þannig að þetta er mikill og stöðug- ur vöxtur,“ segir þar ennfremur. Niðurstaða hópsins er sú að ekki verði annað séð en að gróska sé í greininni. Ljóst sé að hópferðabif- reiðum muni fjölga umtalsvert á næstunni ef greinin þróast áfram í takt við þróun ferðaþjónustunnar. Starfshópur samgönguráðherra skoðaði rekstrarumhverfi hópferðabifreiða Upptaka olíugjaldsins hefur aukið kostnaðinn Bifreiðagjöld á 3.500 kg bifreið hækkuðu um 51,8% frá 2004 Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Talið er ljóst að hópferðabifreiðum muni fjölga á næstu árum ef greinin þróast í takt við þróun ferðaþjónustunnar. Starfshópur samgönguráðherra kemst að þeirri niðurstöðu að gróska sé í greininni. Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is HLAUP úr Grænalóni, sem er í suð- vestanverðum Vatnajökli, hófst í gær en vatnið hleypur í Súlu sem síð- an rennur í Núpsvötn. Hlaup úr Grænalóni er árviss viðburður og eru hlaupin þekkt af góðu einu, þ.e. þau valda engu tjóni. Jón G. Sigurðsson, flugmaður, sem flaug yfir svæðið í gærmorgun, segir að hlaupið sé ekki sérlega mik- ið og minna en hlaup sem kom úr lóninu í ágúst á síðasta ári. Jón flýgur reglulega með farþega í Skaftafell og sér því breytingar á jöklinum. Hann segir að í hlaupinu í fyrra hafi opnast leið fyrir vatn úr lóninu og ísstíflan hafi greinilega brostið í fyrrinótt þannig að vatn rennur úr lóninu á sama stað og í fyrra. Jón segir að í hlaupinu á síðasta ári hafi vatn runnið bæði í Súlu og Gígjukvísl en nú renni hlaupvatnið aðeins undan Skeiðarárjökli og í Súlu. Iðulega lítil hlaup Oddur Sigurðsson, fagstjóri hjá Orkustofnun, segir að stofnunin sé ekki með mæli á staðnum og fái því fregnir af hlaupunum frá þeim sem leið eiga um svæðið. Hlaup úr Grænalóni séu hins vegar iðulega svo lítil að aðeins þeir sem eru kunn- ugir á staðnum verði þeirra varir „Grænalón er dalverpi sem er stíflað af Skeiðarárjökli,“ segir Odd- ur um aðdraganda hlaupa úr Græna- lóni. „Smám saman hækkar í lóninu þangað til að þrýstingurinn verður meiri en svo að jökullinn geti haldið. Þá hleypur úr lóninu, stundum tæm- ist það alveg, sem er sjaldgæft, en stundum lækkar í því.“ Hlaupin koma fram í Núpsvötn- um. „Ég á ekki von á að það verði nein- ar skemmdir af neinu tagi,“ segir Oddur um hlaupið. „Þetta er árvisst og jafnvel oftar en einu sinni á ári og engar skemmdir hafa orðið sem hægt er að telja.“ Lítið hlaup hafið úr Grænalóni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.