Morgunblaðið - 18.07.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.07.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 193. TBL. 94. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 21Km 42Km Km10 Km3 MARAÞON REYKJAVÍKUR GL 19. Klappsiðir og -ósiðir Leiðbeiningar handa íslenskum listunnendum | Af listum Þrír ungir menn í hjóla- og tónleika- ferð í kringum landið | Daglegt líf Skagamenn skoruðu mörkin  Íslendingar mæta Áströlum  Kristján skoraði fyrir Brann Íþróttir í dagHjóla til styrktar börnum STJÓRNVÖLD víðast hvar í heiminum undirbúa nú brottflutning borgara sinna frá Líbanon og fóru þúsundir manna úr landi í gær, ýmist með rútum til Sýrlands eða sjóleiðis til Kýpur. Ísrael- ar hafa gefið í skyn að þeir muni tryggja að er- lend stjórnvöld geti komið borgurum sínum úr landi með öruggum hætti. Diplómatískar línur í deilu Ísraela og Hizboll- ah-samtakanna skýrðust nokkuð í gær þótt lausn deilunnar sé ekki í sjónmáli. Átök héldu áfram og nokkrir tugir féllu en alls hafa um 210 Líbanar fallið og að minnsta kosti 24 Ísraelar á þeim sex dögum sem átökin hafa staðið yfir. Her Ísraela stóð fyrir miklum loftárásum í fyrrinótt þar sem 17 Líbanar létust og yfir 50 særðust. Hizbollah-samtökin svöruðu árásunum með því að skjóta eldflaugum að ísraelsku borg- inni Atlit sem er um 55 kílómetrum suður af landamærum ríkjanna. Eldflaugaárásir samtak- anna hafa ekki náð svo sunnarlega inn í Ísrael fram til þessa og þykja til marks um aukinn hern- aðarmátt samtakanna. Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna lýstu bæði Bandaríkjamenn og Frakkar því yfir að afvopnun Hizbollah væri lykillinn að lausn deilunnar og vís- uðu sendiherrar þjóðanna hjá SÞ báðir til álykt- unar 1559 frá öryggisráðinu þar sem meðal ann- ars er kveðið á um afvopnun vígahópa í landinu. Ísraelar slaka á kröfum Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagði í ræðu á ísraelska þinginu að tekið yrði af fullri hörku á árásum skæruliðanna. Af hálfu Ísraela var hins vegar gefið í skyn í gær að þeir væru til- búnir að falla frá því skilyrði fyrir vopnahléi að Hizbollah-samtökin yrðu leyst upp en þeir krefj- ast þess áfram að ísraelsku hermönnunum sem rænt var á miðvikudaginn verði sleppt og að Hizbollah hörfi frá landamærum ríkjanna. Vijay Namibar, ráðgjafi Kofis Annans, fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, átti viðræð- ur við Fuad Siniora, forsætisráðherra Líbanons, í gær og sagðist ætla að kynna mótaðar hugmynd- ir fyrir Ísraelsmönnum. Namibar lýsti því yfir að fyrstu skrefin í viðræðunum lofuðu góðu en að mikil vinna væri framundan. Málefni Mið-Austurlanda voru áberandi á fundi G8-ríkjanna í Rússlandi í gær og lýstu Kofi Annan og Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, því yfir að senda ætti alþjóðlegt herlið til S-Líbanon. Þúsundir flýja Líbanon Reuters Líbanskur skæruliði fylgist með sprengingum í Beirút í gær. Unnið er að lausn deilunnar milli Ísraela og Hizbollah-samtakanna en átökin héldu áfram í gær, sjötta daginn í röð. Yfir 230 manns hafa látist í átökum milli Ísraels og Hizbollah-samtakanna Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is  Átökin í Beirút | 6 og miðopna Vínarborg. AP. | Tíðni barneigna hjá íslenskum konum var sú hæsta í Evrópu árið 2004 en þær áttu að meðaltali 2,03 börn að því er fram kemur í samantekt Eurostat. Tölur yfir fæðingartíðni fyrir árið 2005 eru ekki tiltækar. Frjósemin er næstmest meðal írskra kvenna, eða 1,99 börn á hverja konu, og franskar konur eru í þriðja sæti með 1,90 börn á hverja konu. Tíðni barneigna er almennt há á Norðurlöndunum en í Noregi er tíðnin 1,81 og í Finnlandi er hún 1,80. Fæðingatíðni almennt of lág Þessar tölur valda þó tölfræð- ingum Evrópusambandsins nokkr- um áhyggjum þar sem talið er að fæðingatíðnin þurfi að vera 2,1 barn á konu að meðaltali til að fólksfjöldi haldist stöðugur. Tíðni barneigna er hvað lægst í A-Evrópu og reka slóvenskar kon- ur lestina með 1,22 börn að með- altali en bæði pólskar og tékk- neskar konur eiga að meðaltali 1,23 börn. Til að hvetja til aukinna barn- eigna hafa stjórnvöld í bæði Aust- urríki og Frakklandi hækkað bæt- ur til barnafólks að undanförnu. Íslenskar konur frjó- samastar í Evrópu ÍSLENDINGARNIR sex, sem komust ekki frá Beirút sl. sunnu- dagsmorgun, fengu flutning á veg- um finnskra yfirvalda í gær til Damaskus og komust eftir daglangt ferðalag í finnska sendiráðið þaðan sem halda átti út á flugvöll borg- arinnar og áleiðis til Danmerkur með Atlanta-vél á vegum íslenska utanríkisráðuneytisins. Tvívegis komu upp tafir á fluginu í gær, fyrst þegar brottför frá Damaskus var seinkað um tvo tíma, eða til kl. 3.55 í nótt að íslenskum tíma. Síðar í gær varð ljóst að um þriggja tíma seink- un á brottför frá London til Damas- kus yrði ekki umflúin vegna tækni- legra vandamála. Nýjasta flugáætlunin seint í gærkvöldi hljóð- aði því upp á brottför frá London kl. 23.15 og brottför frá Damaskus með Íslendingana og hátt í 500 aðra Norðurlandabúa kl. 7 í morgun að ís- lenskum tíma. Var því ráðgert að lent yrði með fólkið í Kaupmanna- höfn kl. 12 á hádegi í dag, þriðjudag. Að sögn Más Þórarinssonar flug- virkja sem var í síðari Íslendinga- hópnum var fólkið komið með rút- unum til Damaskus kl. 21.30 að staðartíma í gærkvöldi. „Þetta gekk mjög vel,“ sagði Már. „Við erum afar ánægð með framvindu mála. Við er- um mjög fegin því að vera komin hingað til Damaskus því sprengjur voru að falla í hálfs kílómetra fjar- lægð frá okkur þegar við hittum Finnana. Við erum ósköp rólegir en fjölskyldur okkar heima voru mjög órólegar þannig að þetta var meira álag fyrir þær en okkur.“ Alma Hannesdóttir var með í för- inni ásamt ungri dóttur sinni og eig- inmanni. Sagði hún Finna hafa tekið einstaklega vel á móti því fólki sem vildi far með þeim frá Beirút. „Með- höndlun þeirra á málum fólks var margfalt betri en hjá Norðmönnum í gær og vart hægt að bera þetta tvennt saman. Þeir tóku afar vel á móti okkur og voru almennilegheitin uppmáluð. Frá byrjun voru allir vel- komnir í rúturnar þeirra án tillits til þjóðernis og ekki var spurt um eitt né neitt. Bara allir boðnir velkomn- ir,“ sagði hún við Morgunblaðið. Íslendingarnir komust frá Beirút undan sprengjugný Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is Væntanlegir með vél Atlanta til Kaupmannahafnar í dag Flugvélin sem sótti Íslendingana. Indónesía. AFP. | Talið er að 105 manns hafi látist og 127 er sakn- að í kjölfar þess að flóðbylgja skall á eyjunni Jövu við Indó- nesíu í gær. Flóðbylgjan fór af stað eftir að sterkur jarðskjálfti skók hafsbotn sunnan eyjunnar og voru öldurnar allt að þriggja metra háar þegar þær flæddu yfir strendur Jövu. Gefin var út flóðbylgjuviðvörun fyrir hluta Indónesíu og Ástralíu eftir að skjálftans varð vart en viðvör- unin náði ekki til eyjunnar þar sem viðvörunarkerfið var í ólagi. Fjöldi íbúa hefst við í neyðar- skýlum en leit stendur yfir að þeim sem er saknað. Nokkrir skjálftar urðu í kjölfar þess stóra, sem mældist 7,7 á Richt- er. Tvö sænsk börn, 5 og 10 ára, og fjórir hollenskir ferðamenn eru meðal þeirra sem saknað er. Yfir 100 létust í flóðbylgju á Jövu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.