Morgunblaðið - 18.07.2006, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.07.2006, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Lúlla KristínNikulásdóttir fæddist í Reykjavík 17. mars 1937. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja 9. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Þuríður Guðmundsdóttir, f. á Stóra Nýja-Bæ í Krýsuvík 17. febrúar 1910, d. 27. septem- ber 1996, og Nikulás Baldvin Nikulásson sjómaður, f. í Reykjavík 27. júní 1905, d. 23. apríl 1937. Bróðir Lúllu var Baldur, f. 7. janúar 1934, d. 6. september 1989. Fósturforeldrar Lúllu voru hjónin Elín Guðmundsdóttir, f. 11. október 1904, d. 20. janúar 1969, og Ketill Ólafsson, f. 21. júlí 1900, d. 23. októ- ber 1993 í Höfnum í Hafnahreppi. Lúlla giftist 25. desember 1957 Guðjóni Jósef Borgarssyni, f. á Hesteyri í Jökulfjörðum, N-Ís 14. september 1934, d. 24. júní 1999. f. 25. maí 1961, gift Alan Terry Matcke, f. 13. desember 1957. Börn þeirra eru Herbert Jósef, f. 2. apríl 1981 og Lára Kristín, f. 16. sept- ember 1983. 4) Baldur Jósef, f. 27. maí 1963, d. 30. desember 1999. Börn hans eru: a) Sveina, f. 5. apríl 1979, hún á einn son. Barnsmóðir er Guðrún Vilhjálmsdóttir. b) Guð- jón Jósef, f. 8. desember 1993. Barnsmóðir er Ásta Huld Jónsdótt- ir. Lúlla fór ung í fóstur suður að Kalmannstjörn í Höfnum. Hún gekk í barnaskólann í Höfnum og var síðar einn vetur í Skógaskóla. Lúlla og Jósef byggðu sér íbúðar- hús að Sjónarhóli í Höfnum og bjó fjölskyldan þar. Lúlla var húsmóðir og vann einnig við fiskvinnslu. Um 1980 fluttu Lúlla og Jósef í Grænás í Ytri Njarðvík. Lúlla tók þátt í fé- lagsstörfum með konum karlkórs- manna og var í Rebekkustúkunni Steinunni. Hún gekk í Sálarrann- sóknarskólann og var félagi í Sálar- rannsóknarfélagi Suðurnesja. Lúlla vann við greiningu og flokk- un ljósmynda hjá Reykjanesbæ. Ár- ið 2000 flutti Lúlla að Kirkjuvegi 5 í Keflavík og bjó þar til æviloka. Út- för Lúllu verður gerð frá Ytri- Njarðvíkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 11. Foreldrar hans voru Jensey Magðalena Kjartansdóttir, f. 18. ágúst 1907, d. 5. októ- ber 1987, og Borgar Gunnar Guðmunds- son, f. 2. september 1911, d. 26. nóvember 1985. Lúlla og Jósef eignuðust fjögur börn, þau eru: 1) Elín Sigríður, f. 26. júlí 1954, gift Snæbirni Guðbjörnssyni, f. 13. desember 1952. Börn þeirra eru: a) Svan- hildur, f. 17. janúar 1980, í sambúð með Guðmundi V. Rafnssyni, b) Harpa, f. 18. desember 1982, og c) Snæbjörn Gauti, f. 5. ágúst 1991. 2) Ketill Guðjón, f. 9. febrúar 1959, kvæntur Karen Valdimarsdóttur, f. 12. apríl 1960. Börn þeirra eru a) Alda, f. 21. september 1978, í sam- búð með Marteini Ibsen, þau eiga einn son, b) Pálmi, f. 29. ágúst 1986, c) Smári, f. 5. maí 1988, og d) Hera, f. 3. febrúar 1995. 3) Jenný Þuríður, Gleðin er björtust í litrófi mannlegra tilfinn- inga og getur sprottið fram eins og morg- unfugl af hreiðri. Allir þekkja hana en of fá- ir rækta hana eða leyfa henni að njóta sannmælis. Þessi orð Gunnars Hersveins í bók hans, Gæfuspor/Gildin í lífinu, eru speki sem svo sannarlega á við um elskulega tengdamóður mína og vin- konu. Lúlla var þeim kostum gædd að gleðjast jafnt yfir því smáa sem stóra og lagði þannig rækt við að miðla gleðinni til okkar hinna. Gleði og kát- ína ásamt háværum hlátri sem oft og tíðum heyrðist langar leiðir vega hæst í minningunni á þessari stundu. Lúlla var einstök manneskja sem kenndi mér svo margt og þó sérstak- lega hvað flóra mannlífsins er stór- kostleg sem og fjölbreytileg. Þvílík uppgötvun og fjársjóður fyrir unga stúlku sem þyrsti í fróðleik og visku um lífið og tilveruna að kynnast konu eins og henni. Hún var skarpgreind, vel lesin og víðförul. Frá því leiðir okkar lágu saman sýndi Lúlla mér ávallt áhuga og stuðning í því sem ég tók mér fyrir hendur. Má þar nefna framhaldsnám, krefjandi verkefni í einkalífi og í op- inberum störfum. Þar reyndist hún mér hinn besti vinur og ráðgjafi. Þeg- ar ég kom til hennar lúin eftir anna- saman vinnudag var hellt upp á könn- una og bolla hvolft. Lúlla sá alls staðar lukkustoðir í bollanum og spennandi tíma framundan svo ekki var hægt annað en að ganga tvíefld út frá henni með tilhlökkun að takast á við ný og framandi verkefni. Lúlla var mikill jafnréttissinni, lagði ríka áherslu á að bæði kynin tækjust jafnt á við heimilisstörfin og bæru ábyrgð á uppeldi barna sinna. Þetta var ómetanlegur stuðningur fyrir mig sem tengdadóttur sem hafði þörf fyrir rými utan veggja heimilis- ins. Þessi stuðningur lýsti best hvað Lúlla átti auðvelt með að setja sig í spor annarra og virða þá ákvörðun sem viðkomandi stóð frammi fyrir hverju sinni. Hún var einlæg með góða og þægi- lega nærveru sem skapaði notalegt andrúmsloft. Hún þoldi illa umtal um náungann og ósjaldan áttum við sam- ræður á heimspekilegum nótum um mikilvægi þess að konur stæðu sam- an og nytu sín á eigin forsendum. Við áttum saman margar skemmtilegar samverustundir sem gott verður að ylja sér við í minningunni. Ég vel að kveðja elskulega tengda- móður mína og umfram allt vinkonu með ljóðinu Vináttubönd eftir Vigdísi Einarsdóttur úr ljóðabók hennar sem heitir Vigdísarljóð. Tengjum allar hug og hönd hjartað látum ráða, saman okkar bindum bönd til blessunar og dáða. Karen. Elsku amma Lúlla. Þegar við minnumst þín fyllumst við gleði í hjarta. Þú varst alltaf svo hress og kát. Þú tókst á móti okkur með faðmlagi og kossi og leið okkur ætíð vel í návist þinni. Þú hafðir góða kímnigáfu, með glettni í augum hlóst þú dátt að öllum þeim skemmtilegu samræðum sem við áttum saman. Við þökkum þér fyrir allar góðu stund- irnar og um leið söknum við þín. Þínar ömmustelpur, Hera og Alda. Elsku amma, á leið minni til að kveðja þig varð mér litið að Grænási og ég fór að hugsa um tímann þegar ég kom til þín og afa í verkfalli kenn- ara og gisti hjá ykkur í nokkra daga. Við sátum þá oft við stofuborðið og máluðum á dúka með taulitum, rölt- um svo stundum niður í bæ að kaupa meira föndur eða ís, sem þú áttir allt- af nóg af í frystikistunni. Ég kvartaði einu sinni yfir því að ég væri stundum kölluð Dúmbó, þar sem annað eyrað á mér var beyglað og útstætt. Þú sagðir að það væri nú ekki slæmum fíl að líkjast, en ég væri nú samt ekki lík honum, ég gæti jú ekki flogið með eyranu. Þú varst engin venjuleg amma, oftar en ekki þegar ég kom til þín fórstu að spyrja um strákamál og hvort ég hefði farið út á lífið um helgina. Ef ég sagðist hafa farið eitt- hvert spurðir þú hvort ég hefði náð mér í einhvern og glottir. Eftir sam- bandsslit sagðir þú alltaf: Ef hann hefur ekki fattað hvað þú ert æðisleg á þessum tíma, þá hefur þú verið með algjörum vitleysingi. Þú talaðir oft um það að ég ætti alltaf að gera það sem ég vildi og ekki láta neina ,,karlp- unga“ ráða yfir mér. Þú vissir kannski stundum betur en ég hvernig málum var háttað, en þú spáðir oft fyrir mér og sást þessa stráka löngu á undan mér. Þú varst alltaf sjúk í skó og áttir mjög mikið af þeim og ég man sérstaklega eftir einum sem komu mér til að brosa, en það voru háhæl- aðir skór og það kom rautt ljós þegar þú gekkst í þeim. Á unglingsárunum langaði mig oft í skó af þér en þú fylgdir svipuðum tískustraumum og ég á þeim tíma. Það var alltaf æð- islegt að horfa á sjónvarpið með þér, þú talaðir til persónanna um hvers- lags vitleysingar þær væru eða sagðir þeim að passa sig og stóðst upp og nagaðir neglurnar. Þú lifðir þig svo mikið inn í allt, þú hefðir haft gaman af leiknum Frakkland – Ítalía. Þú hefðir öskrað, skammast, hlegið eins og þér einni var lagið. Ég veit samt að núna ertu komin þangað sem þú þráðir að vera svo ég bið að heilsa. Eins og stjarnan lýsir í myrku himinhvofinu lýsir trúin í myrkri angist okkar. Eins og fræið liggur í moldinni, lifir í öskunni og kveikir bálið vermir kærleikurinn hjörtu okkar. Missum ekki trúna, vonina og kærleikann, leyfum þeim að lýsa upp líf okkar. (Kristjana E. Guðmundsdóttir) Þín Harpa. Hún amma var okkar besti vinur sem hægt var að tala við um allt á milli himins og jarðar. Hún smitaði frá sér gleði og ánægju alls staðar þar sem hún kom og þar átti hennar ein- staki hlátur stóran þátt í því. Við þurftum aldrei að vera hræddir við að segja henni nokkurn skapaðan hlut því alltaf tók hún mark á okkur og sagði sína skoðun, hvort sem hún var með eða á móti, án þess þó að dæma. Hluti sem maður oft á tíðum þorði ekki að segja mömmu og pabba gat maður sagt ömmu Lúllu. Þegar mað- ur þurfti á henni að halda þá var hún alltaf til staðar og tilbúin að rétta fram hjálparhönd. Hún gaf svo sann- arlega meira af sér en hún áttaði sig á, þessi ástarengill okkar. Það er ólýs- anlega erfitt að horfa á eftir henni en um leið ánægjulegt að vita til þess að hennar hinsta ósk um að hitta aftur Balla son sinn og afa Jósef hefur ræst. Eitt er víst að nú ríkir gleði og ánægja í himnaríki. Ástarkveðjur, Smári og Pálmi. LÚLLA KRISTÍN NIKULÁSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Lúllu Kristínu Nikulasdótt- ur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Gauti.Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.350 kr. á mann. Perlan ERFIDRYKKJUR Látin er í Færeyjum JENSÍNA PÁLSDÓTTIR (JENSA), áður Þrastarlundi og Suðurgötu 17, Sandgerði. Hún lést á sjúkrahúsinu í Þórshöfn aðfaranótt föstudagsins 14. júlí sl. Útförin fer fram frá kirkjunni á Glyvrum á Austurey í dag, þriðjudaginn 18. júlí, kl. 13.00. Jarðsett verður á sama stað. Fjölskyldurnar frá Hvalsnesi. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, BJÖRG ÁGÚSTSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 20. júlí kl. 13.00. Tryggvi Baldursson, Guðrún Edda Pálsdóttir, Valgerður Baldursdóttir, Lárus H. Blöndal, Stefán Baldursson, Bára Baldursdóttir, Haraldur Baldursson, Sigríður Amalía Þórðardóttir, Magnús Baldursson, Guðný Jóna Einarsdóttir og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, RAGNA GUÐRÚN HERMANNSDÓTTIR (BÍBÍ), Ásgarði 19, Reykjavík, andaðist á Landspítala Landakoti laugardaginn 15. júlí. Jarðarförin auglýst síðar. Guðsteinn Magnússon og fjölskylda. Elskulegur faðir okkar, SÆMUNDUR BJÖRNSSON, lést á Hrafnistu í Reykjavík að morgni sunnudags- ins 16. júlí. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Brynjúlfur Sæmundsson, Ásta Ásdís Sæmundsdóttir. Ástkær móðir okkar, HERMANÍA KRISTÍN ÞÓRARINSDÓTTIR, Skálagerði 11, Reykjavík, er látin. Jarðarförin auglýst síðar. Andrea Danielsen, Sigurþór Charles Guðmundsson, Bjarni Ólafur Guðmundsson, Þórarinn Guðmundsson, tengdabörn og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, UNNUR Þ. KRISTJÁNSDÓTTIR, Miklubraut 42, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 14. júlí. Sigríður Viborg, Málfríður Viborg, Kristján Viborg, Margrét Unnarsdóttir, Gísli Jens Viborg, barnabörn og aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.