Morgunblaðið - 18.07.2006, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 18.07.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2006 39 FRAMHALDSMYNDIN um sjó- ræningjana frá Karíbahafi er að gera góða hluti vestra. „Pirates of the Caribbean: Dead Man’s Chest“ sló um síðustu helgi aðsóknarmet fyrir fyrstu sýningarhelgi og fyrsta sýningardag, og peningarnir halda áfram að streyma inn til Johnny Depp og félaga. Um helgina tókst þeim að grafa upp um 62 milljónir bandaríkjadala á annarri sýningarhelginni sinni og er þá myndin komin í samanlagt 258 milljónir dala á tíu dögum. Myndin er orðin langvinsælasta kvikmynd ársins, en myndin „X- Men: The Last Stand“ halaði inn 232 milljónum á átta dögum. Að auki hefur myndin um sjóræn- ingjana fengið um 125 milljón dala erlendis. „Það er gríðarlega gaman hvað þetta gengur vel,“ lét Chuck Viane hafa eftir sér, en hann er yfirmaður dreifingardeildarinnar hjá Disney myndum. Fyrirtækið byggði ein- mitt myndirnar um „Pirates of the Caribbean“ á sjóræningjunum í skemmtigörðunum á vegum þess. „Þetta er alveg ótrúlegt,“ sagði Chuck ennfremur. Myndin skilur hreinlega eftir sig hjólför.“ Myndin „Little Man“ var í öðru sæti yfir vinsælustu myndir helg- arinnar með um 22 milljónir dala í farteskinu. Hún er framleidd af Sony og er úr smiðju Wayans- bræðranna. Eins og venjulega þeg- ar Wayans-bræður eiga í hlut er um að ræða farsa og fjallar myndin um lágvaxinn þjóf sem þykist vera barn. Shawn og Marlon Wayans fara með aðalhlutverkin í myndinni og skrifuðu handritið ásamt eldri bróður þeirra Keenen Ivory Wa- yans, en sá síðasttaldi var jafnframt leikstjóri myndarinnar. Grínmyndin „You, Me and Dup- ree“ er með leikaranum Owen Wil- son í aðalhlutverki, en hún fjallar um gest sem veldur félaga sínum og nýrri eiginkonu hans miklum vandræðum. Skötuhjúin eru leikin af Matt Dillon og Kate Hudson og náði myndin alls um 21 milljón dala. Iðnaðurinn í Hollywood tók hins vegar dýfu í fyrsta skipti í tvo mán- uði. Eftir átta vikur af samfelldri aðsóknaraukningu féll heildar- aðsókn helgarinnar um 5 prósent frá sömu helgi fyrir ári. Þá var Jo- hnny Depp einnig í aðalhlutverki vinsælustu myndarinnar, „Charlie and the Chocolate Factory“. Önnur myndin um sjóræn- ingjana, „Dead Man’s Chest“, náði ekki að slá met myndarinnar „Shrek 2“ (72 milljónir dala) um bestu aðra vikuna frá upphafi. Myndin náði þriðja sæti í þeim flokki á eftir myndinni um græna tröllið og „Spider-man“ (71 milljón). Búist er við því að „Dead Man’s Chest“ komist yfir 305 milljónir, en það var heildaraðsókn myndarinnar „Pirates of the Caribbean: The Curse of the Black Pearl“. Fyrirhugað er að þriðja myndin í seríunni um sjóræningjana komi út í maí. Í þeirri mynd takast persón- ur leikaranna Orlando Bloom og Keiru Knightley á við það hlutverk að fara að bjarga kapteininum Jack Sparrow. Að sögn Paul Dergarabedian, forseta fyrirtækisins Exhibitor Relations, sem fjallar um kvik- myndir, verður erfitt fyrir þriðju myndina að koma í kjölfar „Dead Man’s Chest“. „Það verða gríð- arlegar væntingar gerðar til mynd- arinnar. Önnur myndin um sjóræn- ingjana er kannski sú mynd í sögu kvikmyndanna sem erfiðast verður að fylgja eftir,“ sagði Paul. Eftir öfluga byrjun í aðeins 17 kvikmyndahúsum helgina áður náði myndin „A Scanner Darkly“ inn á topp 10 listann. Myndin fór inn á fleiri hús og fékk 1,2 milljón í að- sóknartekjur. Hún er byggð á vís- indaskáldsögu og fjallar um fíkni- efnanotkun. Með aðalhlutverk fara Keanu Reeves, Winona Ryder og Robert Downey Jr. Kvikmyndir | Vinsælast í kvikmyndahúsum erlendis Sjóræningjarnir mala enn meira gull Reuters Kvikmyndin um Jack Sparrow og Karíbahafs- sjóræningjana er engin smá- gullkista. Topp 10 í Bandaríkjunum: 1. Pirates of the Caribbean: Dead Man’s Chest 2. Little Man 3. You, Me and Dupree 4. Superman Returns 5. The Devil Wears Prada 6. Cars 7. Click 8. The Lake House 9. Nacho Libre 10. A Scanner Darkly 400 KR. Í BÍÓ * * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu Sími - 551 9000 ROBIN WILLIAMS -bara lúxus Sýnd kl. 6, 8 og 10 STRANGLEGA B.i. 16 ára K R A F T M E S TA HASARMYND ÁRSINS Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10:15 B.i. 12 ára Sýnd kl. 4 ÍSL. TALSýnd kl. 4, 6, 8 og 10:15 Ef þú ættir fjarstýringu sem gæti stýrt lífi þínu? Hvað myndir þú gera ...? -bara lúxus Salma hayekpénelope cruz Stick It kl. 5.40, 8 og 10.20 The Benchwarmers kl. 6, 8 og 10 B.i. 10 ára Click kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára Yfir 51.000 gestir! eee L.I.B.Topp5.is Adam Sandler, Kate Beckinsale og Christopher Walken í fyndnustu gamanmynd ársins!                                                           !                  !                          # $                                                             !                                      ! "  ! #  $  % & '   ( ) &  * "        +      

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.