Morgunblaðið - 01.08.2006, Síða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Þriðjudagstónleikar
í kvöld kl. 20.30
J.S. Bach
Nicole Vala Cariglia selló og
Árni Heimir Ingólfsson semball
Sónöturnar þrjár sem Bach samdi fyrir
gömbu og sembal, (nr. 1 í G dúr, nr. 2
í D dúr og nr. 3 í g moll). Einnig sarabande
úr partítu nr. 5 í G dúr fyrir sembal og
allemande úr svítu nr. 6 í d dúr fyrir selló.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
Laugarnestanga 70, 105 Rvk.
www.lso.is - lso@lso.is
DaLí er nýr myndlistarsýning-
arsalur á Akureyri í eigu myndlist-
arkvennanna Dagrúnar Magn-
úsdóttur og Sigurlínu M.
Grétarsdóttur. Fyrsta opnun í gall-
eríinu var í sumar með pomp og
prakt á verkum Sigurðar Árna Sig-
urðssonar að viðstöddu fjölmenni.
Annar til að sýna í hinum nýja og
bjarta sýningarsal er listamaðurinn
Joris Rademaker sem er heima-
mönnum góðkunnur enda er þetta
sjötta eða sjöunda einkasýning hans
á Akureyri þar sem hann einnig býr.
Sýning Joris er í grunninn óður til
rýmisins þar sem hinir stóru
gluggar gallerísins spila stóran þátt
sem hin óljósu mörk ytra og innra
rýmis.
Það er aðeins gegnsætt gler sem
aðskilur inni og úti en birtan sem
kemur að utan teiknar sig á veggi
gallerísins og verður listamanninum
tilefni sólgulra veggjamálverka. Jor-
is er upptekin af skurðarpunkti lá-
réttra og lóðréttra lína, bæði í geó-
metrískum línum manngerðs
umhverfis og lífrænum línum lík-
amans og náttúrunnar. Hann hefur
raðað kræklóttum birkigreinum í
krossformum af mismunandi þétt-
leika í glugga salarins sem andstæðu
við þráðbeinar línur arkitektúrsins
og sólgulu ferninganna á veggj-
unum. Samkvæmt texta sýning-
arinnar er jafnmikilvægt að upplifa
sýninguna utan frá eins og innan frá
en einnig að glerið geri það að verk-
um að mögulegt sé að upplifa úti og
inni næstum samtímis. Undirrituð
bjóst við að greinarnar í gluggunum
myndu varpa mismunandi skugga-
spili á sólgul gluggaformin á veggn-
um en sá ekkert slíkt gerast enda
loftljós kveikt inni og sólin hátt á
lofti. Ekki er loku skotið fyrir að
slíkt eigi sér stað á öðrum tímum
dagsins og hugmyndin ein er svolítið
spennandi.
Við hliðina á hverjum máluðum
ferningi á veggjunum hefur Joris
komið fyrir málningarhrærispýtu af
þeirri sort sem hægt er að kaupa í
byggingarvöruverslunum. Það skír-
skotar til verkanna sem hluta af inn-
anhússmálningu frekar en til vegg-
málverka og gæti ýtt undir þá
hugmynd að verkin séu samofin
arkitektúrnum eða rýminu frekar en
að þau séu innsettir listhlutir. En
Joris hefur komið tannstönglum fyr-
ir í hliðum hrærispýtnanna svo úr
myndast hinir frumlegustu kambar
sem um leið rugla áhorfandann í
ríminu. Ef gluggað er í fyrri verk
Joris Rademaker þá má sjá að hann
vinnur gjarnan með tilbúna hluti
sem fá nýtt hlutverk með viðbótum
eða óvenjulegum samsetningum. Á
sýningu hans í fyrra í salnum Popu-
lus Tremula í Listagili mátti einmitt
sjá sérstæð verk unnin úr fundnu
efni á borð við útbrunnar flug-
eldatertur, sag og tannstöngla.
Sýningin í DaLí er björt og falleg
og ástæða til að óska Akureyringum
til hamingju með nýja sýningarsal-
inn sem verður vonandi varanleg
viðbót við sýningarflóruna á Ak-
ureyri.
Innra og
ytra rými
MYNDLIST
Joris Rademaker
Sýningin stendur til 26. ágúst
Opið alla daga nema sunnudaga í sumar
frá kl. 14–18
DaLí gallerí, Brekkugötu 9 Akureyri
Þóra Þórisdóttir
„Sýning Joris er í grunninn óður til rýmisins þar sem hinir stóru gluggar
gallerísins spila stóran þátt sem hin óljósu mörk ytra og innra rýmis,“ seg-
ir í umsögn um yfirstandandi sýningu hans í galleríinu DaLí á Akureyri.
ÞAÐ ER ekki eingöngu hér á Ís-
landi að merkar skruddur frá mið-
öldum finnast við uppgröft. Á dög-
unum gerðist hið sama á Írlandi, þó
ekki við fornleifauppgröft eins og á
Skriðuklaustri.
Verkamaður vann að uppgreftri í
mýrlendi í Írlandi og rak þá augun í
sálmabók, sem talin er vera frá 800–
1000 e.Kr. Handritasérfræðingar
frá Trinity College í Dublin segja
fundinn einstakan, og fyrstu upp-
götvun á írsku miðaldahandriti í
tvær aldir.
Sálmabókin er nú geymd í frysti
og við taka áralangar rannsóknir
áður en hún verður til sýnis fyrir al-
menning. Fundurinn þykir krafta-
verki líkastur fyrir tvær sakir. Í
fyrsta lagi er ótrúlegt að svo við-
kvæmur hlutur skuli ekki hafa eyðst
í mýrlendinu. Bókin var til allrar
mildi varin með leðurbindingu. Í
annan stað þykir merkilegt að
verkamaðurinn skuli hafa orðið bók-
arinnar var áður en hún eyðilagðist,
en unnið var með stórvirkar vinnu-
vélar á svæðinu.
Bókin fannst opin á sálmi númer
83 þar sem sagt er frá að Guð heyri
umkvartanir annarra þjóða yfir til-
raunum til að eyða Ísrael. Þetta hef-
ur ýmsum dómsdagsspámönnum
þótt merkilegt í ljósi núverandi
ástands fyrir botni Miðjarðarhafs.
Sérfræðingar segja þó ekkert bein-
línis sagt um heimsendi, og telja hér
eingöngu um enn eina tilviljunina að
ræða í þessum ótrúlega fundi.
Líkt og Ísland er Írland auðugt
að merkum miðaldahandritum.
Meðal annarra handrita hefur
Keltabókin (The Book of Kells), sem
er skreytt mörgum lýsingum, verið
til sýnis við Trinity College í Dublin
frá 19. öld.
Undrum sætir hversu vel handritið
er varðveitt, en það er talið vera
1000 til 1200 ára gamalt.
Írsk sálmabók frá miðöld-
um finnst við uppgröft
Á CAFÉ Cultura verða djass-
tónleikar í kvöld með tríóinu Ut-
hlendish kl. 21. Tríóið skipa tveir
erlendir hljóðfæraleikarar auk Ósk-
ars Guðjónssonar saxófónleikara,
þeir Scott McLemore trommuleik-
ari frá Bandaríkjunum og Simon
Jermyn rafbassaleikari frá Írlandi.
Þeir Simon og Scott eru reyndar
báðir mægðir íslensku tónlistarlífi í
gegnum íslenskar konur, en Scott
er kvæntur Sunnu Gunnlaugs-
dóttur djasspíanista og Simon er
kærasti Heiðu Árnadóttur söng-
konu. Þeir hafa því sín tengsl við
landið, og fást við sama „hark og
tónlistarmenn hérlendis“, að sögn
Óskars. „Það er að segja við kenn-
um og spilum þess á milli.“
Óskar segir að þar sem tríóið
hafi ekkert hljómahljóðfæri heldur
bara trommu, bassa og svo laglínu-
hljóðfærið saxófón, hafi þessi eina
rödd mikið frjálsræði. Það breytist
að hans sögn ekki þó að með
tríóinu leiki að þessu sinni sér-
stakur gestaspilari, Joachim Ba-
denhorst frá Belgíu, sem spilar á
klarínett og bassaklarínett. Joac-
him býr í Brussel og starfar þar í
ýmsum djassgrúppum, ásamt því
að spila í tangóhópi og leiða klez-
mertríó.
Á skylt við nýdjass og fer
í ýmsar áttir eftir því
„Það sem gerist við að fá inn
nýjan mann er að það bætist við
önnur rödd sem kemur inn í laglín-
ur og annað. Það gerir þetta bara
enn skemmtilegra.“
Tríóið hefur nánast eingöngu
flutt eigin tónlist en minna af stan-
dördum. „Tónlistin á mikið skylt
við nýdjass og fer í ýmsar áttir eft-
ir því. Sum lögin hafa á sér suður-
amerískan blæ, og önnur poppblæ,“
segir Óskar.
Hluti efnisskrárinnar var leikinn
áður þegar tríóið lék á Café Cult-
ura í maí. Óskar segir þó lögin
verða flutt í nýjum búningi að
þessu sinni. Auk þess leggur hljóm-
sveitin mikið upp úr frjálsum
spuna, t.d. í intróum, sem eðli
málsins samkvæmt hljómar aldrei
eins á tónleikum. „Spuninn hefur
heppnast vel og hefur ekki verið
frjáls bara til að vera frjáls. Hann
hefur iðulega fundið sér farveg á
melódískar tengingar.“
Aðgangseyrir á tónleikana er
1.000 kr.
Tónlist | Óskar Guðjónsson leikur með
Tríó Uthlendish á Café Cultura
Melódískur
spuni í fyrirrúmi
Djasstríóið Uthlendish leikur ásamt Joachim Badenhorst á Café Cultura í
kvöld. Scott McLemore lengst til vinstri, Óskar og Simon Jermyn.
Í TILEFNI af útnefningu Rúnars
Helga Vignissonar sem bæjarlista-
manns Garðabæjar árið 2006 hefur
bókaútgáfan Græna húsið sent frá
sér skáldsögu hans Feigðarflan í
kilju. Seinnipart
sumars er jafn-
framt von á end-
urskoðaðri út-
gáfu af
skáldsögu hans
Nautnastuldi í
kilju en báðar
fjalla sögurnar
um Egil Gríms-
son.
Í Feigðarflani
hefur Egill
Grímsson tekið
ákvörðun um að stytta sér aldur.
Framkvæmdin vefst þó fyrir honum
og í leit að stund og stað ferðast
hann á tveimur sólarhringum um líf
sitt, land og íslenska samtíma-
menningu. Yfir öllu vokir kynleg
feigð, eins og sveitir jafnt sem sjáv-
arpláss riði til falls, og á köflum er
engu líkara en íslenska þjóðin sé
vegalaus eftir valdatöku jeppakyn-
slóðarinnar.
Saga Rúnars Helga fékk góð við-
brögð hjá gagnrýnendum jafnt sem
almennum lesendum, þótti sérlega
skemmtileg auk þess að draga upp
umhugsunarverða mynd af samtím-
anum.
Bækur
HIN NÝJA hljómsveit Kvintett
Ragnheiðar Gröndal leikur á Café
Rósenberg í kvöld kl. 22. Á efnis-
skránni eru létt djass- og blúslög
sem hljómsveitin útsetur sjálf.
Sveitin stendur á gömlum merg
en hún er byggð á þeirri hljómsveit
sem lék á fyrstu sólóplötu Ragn-
heiðar frá 2003. Hana skipa nú,
líkt og áður, gítarleikarinn og
djassgoðsögnin Jón Páll Bjarnason
ásamt danska bassaleikaranum
Morten Lundsby og Hauki Gröndal
á saxófón. Hljómsveitinni hefur
borist liðsauki í trommuleik-
aranum Erik Qvick sem full-
komnar liðskipunina eins og hún er
nú.
Jón Páll bjó og starfaði um langt
skeið í Los Angeles og lék þar með
mörgum þekktum djassleikurum.
Ragnheiður hefur kallað Jón Pál
guðföður sinn í djassinum og segist
hafa lært margt af honum.
Tónleikarnir eru liður í stuttri
tónleikaferð, en auk tónleikanna í
kvöld mun hljómsveitin spila nk.
fimmtudag á Listasumri á Ak-
ureyri kl. 21.30. Hljómsveitin færir
sig svo um set yfir í Mývatnssveit
og leikur í Gamla bænum í Hótel
Reynihlíð kl. 22 föstudagskvöldið
4. ágúst og á sama tíma laug-
ardagskvöldið 5. ágúst. Ferðinni
lýkur í Fossatúni í Borgarnesi kl.
21 sunnudaginn 6. ágúst.
Aðgangseyrir á tónleikana í
kvöld er 1.000 kr.
Tónlist | Kvintett Ragnheiðar Gröndal leikur á Café Rosenberg
Djass-
goðsögn á
tónleikaferð
um landið
Morgunblaðið/Golli
Jón Páll Bjarnason djassgítarleikari leikur í kvintett Ragnheiðar Gröndal,
sem ferðast nú um landið, en hún kallar hann guðföður sinn í djassinum.