Morgunblaðið - 19.09.2006, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
Michelle Wie ætlar ekki að gefast upp >> 2
KALT Í HOLLANDI
ARNAR ÞÓR VIÐARSSON HEFUR EKKERT FENGIÐ
AÐ LEIKA MEÐ TWENTE Í HOLLENSKU DEILDINNI >> 4
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
„Það teygðist aðeins á hásininni en
ég er að skríða saman og mun lík-
lega byrja að æfa í dag. Það var
fúlt að geta ekki mætt Fúsa en ég
sat heima og fylgdist spenntur
með leiknum í sjónvarpinu,“ sagði
Ólafur við Morgunblaðið í gær.
Ciudad Real, sem vann Evrópu-
meistaratitilinn í vor, hefur unnið
báða leiki sína í deildinni eins og
Spánarmeistarar Barcelona og
Portland San Antonio.
„Þetta hefur farið vel af stað hjá
okkur og við stefnum ótrauðir í átt
að titlinum. Eins og venjulega
verður þetta barátta hjá okkur við
Barcelona og Portland og þá
reikna ég með því að Ademar
Leon verði með í toppbaráttunni,“
segir Ólafur.
Skrifar undir nýjan samning
á næstu dögum
Spænskir fjölmiðlar greindu frá
því í síðustu viku að Ólafur væri
búinn að ná samkomulagi um að
framlengja samning sinn við Ciu-
dad Real um tvö ár.
„Ég gerði munnlegt samkomu-
lag við félagið fyrir einhverjum
fimm mánuðum. Ég er ekki búinn
að skrifa undir samninginn en það
gerist einhvern næstu daga,“ sagði
Ólafur en samningurinn mun gilda
til ársins 2009.
Spurður hvort hann hafi þá
ákveðið að ljúka ferlinum með Ciu-
dad Real; „Já, nema eitthvað
klikkað komi upp á borðið. Hugur
minn er hjá Ciudad Real og svo
eru auðvitað spennandi tímar með
landsliðinu. HM í Þýskalandi í vet-
ur og vonandi Ólympíuleikar 2008.
Eftir það fer maður líklega að
draga sig í hlé.“
Mikil tilhlökkun fyrir HM
Ólafur segist hlakka mikið til
heimsmeistarakeppninnar sem
hefst í Þýskalandi í janúar. „Það
eru allar forsendur til staðar að
þetta geti orðið frábær keppni,
handboltakeppni aldarinnar. Allt
það sem maður hefur séð og heyrt
um keppnina lítur vel út. Það virð-
ist vera mikill áhugi á keppninni
og mér skilst að það sé að verða
uppselt á marga leiki og það er
bara hið besta mál.“
Ólafur hefur jafnan stefnt hátt.
Þessi frábæri handboltamaður er
ákaflega metnaðargjarn íþrótta-
maður og hann hefur miklar vænt-
ingar til íslenska liðsins fyrir HM.
„Ef engin alvarleg meiðsli herja
á hópinn og við strákarnir í liðinu
verðum einbeittir á verkefnið þá
getum við gert góða hluti í Þýska-
landi. Ég hef alltaf mínar vænt-
ingar. Sumir vilja skrúfa þær nið-
ur en ég vil stefna hátt með liðið.
Það er auðvitað mikil vinna fram-
undan og margt á eftir að gerast
en mitt markmið er skýrt. Ég
stefni á verðlaunasæti,“ sagði Ólaf-
ur.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Metnaðargjarn Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, hefur lítið leikið með Ciudad Real á Spáni í deildarkeppninni vegna meiðsla í hásin.
Hann vonast til að meiðslin dragi ekki neinn dilk á eftir sér og hann geti beitt sér af fullum krafti með félagsliðinu og með landsliðinu á HM í Þýskalandi.
Stefnir á verðlaun á HM
ÓLAFUR Stefánsson gat ekki tekið
þátt í leik Ciudad Real gegn Sigfúsi
Sigurðssyni og félögum hans í
Ademar Leon í spænsku 1. deildinni
í handknattleik um nýliðna helgi
vegna meiðsla í hásin. Ólafur fann
fyrir eymslum í hásin eftir nokk-
urra mínútna leik á móti Altea í
fyrstu umferðinni og var ákveðið
að hvíla hann í leiknum gegn
Ademar þar sem Ciudad Real hafði
betur, 27:26.
Ólafur Stefánsson meiddur í hásin og gat ekki spilað á móti Sigfúsi Sigurðssyni
Landsliðsmað-
urinn Kristján
Örn Sigurðsson,
miðvörður
norska knatt-
spyrnuliðsins
Brann, nefbrotn-
aði í leik liðsins
gegn Sandefjord
í norsku úrvals-
deildinni í fyrra-
kvöld þar sem
Brann fór með sigur af hólmi, 5:3.
Kristján lenti í árekstri við sókn-
armann Sandefjord undir lok fyrri
hálfleiksins en lék engu að síður
leikinn til enda. Kristján var ekki
eini leikmaður Brann sem varð illa
fyrir barðinu á leikmönnum Sand-
efjord því félagi hans í vörninni, Er-
lend Hanstveit, missti tönn eftir
viðskipti sín við einn leikmann gest-
anna.
Ólafur Örn Bjarnason skoraði
fjórða mark Brann í leiknum og
kom því yfir, 4:3, og ætlaði allt um
koll á keyra á leikvangum í Bergen
þegar Grindvíkingurinn skoraði en
Brann hafði misst niður þriggja
marka forskot í leiknum. Með sigr-
inum náði Brann fjögurra stiga for-
skoti á Rosenborg í toppsætinu en
Rosenborg á leik til góða. Meistarar
síðasta árs, Vålerenga, eru hins
vegar í áttunda sæti og eiga enga
von um að verja titilinn.
Kristján
Örn nef-
brotinn
Kristján Örn Sig-
urðsson.
Ásthildur Helga-
son fyrirliði ís-
lenska landsliðs-
ins í knattspyrnu
skoraði bæði
mörk Malmö í
gær þegar liðið
gerði 2:2 jafntefli
við Linköping í
sænsku úrvals-
deildinni í knatt-
spyrnu.
Ásthildur hefur þar með skorað
17 mörk í 18 leikjum Malmö í deild-
inni og er markahæst ásamt
sænsku landsliðskonunni Lottu
Schelin sem leikur með Kopp-
arbergs/Göteborg.
Malmö er í þriðja sæti deild-
arinnar með 35 sig, Djurgården
hefur 39 og Umeå hefur 49 stig og á
leik til góða.
Ásthildur
með tvö
fyrir Malmö
Ásthildur
Helgadóttir
íþróttir þriðjudagur 19. 9. 2006 íþróttir mbl.is
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Landið 19
Staksteinar 8 Daglegt líf 20/25
Veður 8 Forystugrein 26
Úr verinu 12 Viðhorf 28
Viðskipti 12/13 Umræðan 28/31
Erlent 14/15 Bréf 31
Menning 16/17, 40/44 Minningar 32/37
Akureyri 18 Dagbók 45/49
Austurland 18 Víkverji 48
Suðurnes 19 Ljósvakamiðlar 50
* * *
Viðskipti
Stjórn Actavis hefur ákveðið að
hækka ekki tilboð sitt í króatíska
lyfjafyrirtækið Pliva, en bandaríska
fyrirtækið Barr tilkynnti nýlega
hækkun síns tilboðs til hluthafa
Pliva. Actavis útilokar þó ekki að ný
tilraun til yfirtöku á Pliva verði gerð
breytist aðstæður. » 12
Innlent
Farþegum fjölgar. Farþegum
strætó fjölgaði um 20% í júlí og
ágúst í ár samanborið við sömu mán-
uði í fyrra og sambærilega þróun má
merkja það sem af er septem-
bermánuði, að sögn Ásgeirs Eiríks-
sonar, framkvæmdastjóra Strætó
bs., sem þakkar þessa þróun nýja
leiðakerfinu. » 52
Kjarasamningar. Félag leikskóla-
kennara ákvað í gær að vísa kjara-
viðræðum sínum við sveitarfélögin
til ríkissáttasemjara, en samningar
félagsins eru lausir í lok mánaðarins.
Fundað hefur verið í sumar og við-
ræður gengið vel þar til í síðsutu
viku að viðræðurnar rak aðeins upp
á sker. » 52
Rannsóknarleyfi. Hjá iðn-
aðarráðuneytinu liggja fyrir um-
sóknir frá orkufyrirtækjum um
rannsóknarleyfi á þremur svæðum á
suðvesturhorninu sem ekki hafa ver-
ið virkjuð áður; þ.e.a.s. Brenni-
steinsfjöll og Krýsuvík á Reykjanes-
skaga og í Grændal sem liggur upp
af Hveragerði. » 6
Erlent
Jacques Chirac Frakklands-
forseti hvatti í gær til þess að fram
færu frekari viðræður við ráðamenn
í Íran um kjarnorkuáform stjórn-
valda þar. Lagði forsetinn áherslu á
að ekki bæri að vísa kjarnorkudeil-
unni til öryggisráðs SÞ á meðan slík-
ar viðræður færu fram. » 14
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, lýsti því yfir í
gær að Írak og leiðtogar landsins
stæðu nú á „krossgötum“, líkur
væru á að átökin í landinu þróuðust
út í borgarastyrjöld ef ekki yrði
gripið til aðgerða til að stemma stigu
við mannskæðum árásum víga-
manna. » 1
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
UPPSAGNIR eru í vændum á
fréttastöðinni NFS í tengslum við
skoðun stjórnenda á rekstri félags-
ins, að sögn Ara Edwald, forstjóra
365. Trúnaðarmenn NFS fengu
starfsmannafund með Ara í gær um
framtíð vinnustaðarins þar sem
hann sagðist vonast til þess að nið-
urstöðu um starfsmannamálin væri
að vænta innan einhverra daga þótt
hann setti ekki nákvæm tímamörk
þar á.
„Við munum leggja alla áherslu á
að eyða óvissu svo fljótt sem verða
má,“ sagði hann í samtali við Morg-
unblaðið í gær. „Við munum gera
einhverjar breytingar og því munu
fylgja einhverjar uppsagnir. En ég
hef líka lagt áherslu á það að við er-
um ekki bara að draga úr okkar
starfsemi heldur viljum við líka
bæta í annarsstaðar. Þessi skoðun
okkar snýst um það hvar okkar
framtaki er best fyrir komið. Við
þurfum að leggja meiri áherslu á
sumt í okkar fréttamiðlun en við
höfum verið að gera. Ég hef talað
um það að hluti af þessari skoðun er
hvernig við getum sótt fram á net-
miðlinum okkar.“
Aðspurður sagði Ari ekki hægt að
segja til um það hvort fólkið með
minnstu starfsreynsluna yrði fyrst
til að missa vinnuna.
Að sögn Sólveigar Kr. Bergmann,
trúnaðarmanns NFS, var fundurinn
boðaður að beiðni trúnaðarmanna
sem vildu vita hver framtíð stöðv-
arinnar yrði. „Það var í rauninni fátt
um svör hvað yrði, annað en það að
fyrir mánaðamót verða uppsagnir
hjá NFS,“ sagði Sólveig og bætti því
við að ekki yrði um hópuppsagnir að
ræða.
Afar óþægilegt óvissuástand
Sólveig sagði óvissuástandið vera
afar óþægilegt fyrir starfsmenn
NFS. Benti hún á að fólk yrði að
hafa það í huga að forstjóraskipti
hefðu orðið frá því að NFS fór í loft-
ið. „Forstjórinn fyrrum, Gunnar
Smári [Egilsson], sagði að það væri
pottþétt að það væri gert ráð fyrir
því að NFS fengi tvö til þrjú ár til að
sanna sig,“ sagði hún. Mikil breyt-
ing hefði þá orðið hjá starfsmönnum
fréttastofu Stöðvar 2 þegar NFS
hóf starfsemi sína. „Það voru margir
sem kannski hugsuðu sér til hreyf-
ings á þessum tíma og tóku þá
ákvörðun að vera hjá þessu félagi út
af þessu loforði Gunnars Smára.“
Uppsagnir starfsfólks
yfirvofandi hjá NFS
Hópuppsagnir ekki inni í myndinni að sögn trúnaðarmanns
Í HNOTSKURN
»Fjölmiðlafyrirtækið 365rekur sex sjónvarps-
stöðvar, m.a. Stöð 2 og fimm
útvarpsstöðvar ásamt blaða-
útgáfu.
»Fyrirtækið var stofnað íársbyrjun 2005 með sam-
runa Fréttar og Norðurljósa
og var NFS komið á lagg-
irnar í nóvember 2005.
FYRIRTAKA var í gær í máli rík-
isins gegn olíufélögunum þremur,
ESSO (Ker), Olís og Skeljungs, og
einnig í máli Strætós bs. gegn sömu
félögum vegna ólöglegs samráðs í út-
boði árið 1996. Þinghald var stutt og
stóð aðeins í um fimmtán mínútur.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, sem
sækir málið af hálfu ríkisins og
Strætós, óskaði eftir tveggja vikna
frestun og bárust engin mótmæli af
hálfu verjenda. Verða málin tekin
fyrir að nýju 9. október nk.
Í útboðinu árið 1996 var ákveðinn
afsláttur veittur frá grunnverði og
segir Vilhjálmur að sá afsláttur hafi
verið lítill í prósentum og krónum og
nánast enginn munur á boðum félag-
anna. Annað útboð fór svo fram í árs-
lok 2001 og þá var mikill munur á til-
boðum félaganna, eitt tilboðið var
langlægst og munar verulega miklu.
„Skaðabótakrafan er reiknuð út með
því að bera saman þessi tvö tilboð.
Það er gefin sú forsenda að það hefði
átt að vera hlutfallslega sami afslátt-
ur árið 1996 og 2001 ef samkeppni
hefði ríkt árið 1996,“ segir Vilhjálm-
ur en olíufélögin hafa mótmælt þessu
í greinargerðum. Ekki sé hægt að
reikna kröfuna út á þennan hátt,
skökk niðurstaða komi út. Þar sem
álagning þeirra sé í krónum á lítra þá
séu afslættir einnig í krónum á lítra.
„Þetta er eitt af því fáa sem þeir
segja alveg skýrt í greinargerðum
sínum um sína viðskiptahætti þannig
að ég sá þann möguleika að reikna
kröfuna út á þennan hátt. Ef að sú
niðurstaða verður lík hinni niður-
stöðunni styrkir það kröfuna mjög
mikið. Þarna er þá verið að reikna
kröfuna út á þeim forsendum sem fé-
lögin segja að þau beiti í sínum við-
skiptum,“ segir Vilhjálmur.
Bótakrafa reiknuð á ný
Máli ríkisins og Strætós bs. gegn stóru olíufélögunum
þremur var í Héraðsdómi Reykjavíkur frestað til 9. október
Morgunblaðið/Eyþór
Réttað Þinghald í héraðsdómi var stutt og stóð í um fimmtán mínútur.
Kynningar – Morgunblaðinu fylgir
kynningarblað frá Rannsóknamið-
stöð Íslands í tilefni af Vísindavöku
2006.
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson hefur
ákveðið að sækjast eftir 2. sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í
prófkjöri flokksins í haust.
„Ég hef unnið fyrir Reykvíkinga nú
í átta ár sem borgarfulltrúi og í fjögur
ár sem þingmaður og gegnt fjölmörg-
um trúnaðarembættum fyrir flokkinn
á þeim um það bil tuttugu árum sem
ég hef starfað í stjórnmálum. Menn
þekkja mínar áherslur. Ég hef mikið
látið mig varða málefni fjölskyldunn-
ar í víðum skilningi og komið fram
með hugmyndir í skattamálum og
húsnæðismálum.“
Guðlaugur Þór sagðist einnig hafa
látið sig varða utanríkismál, sjávar-
útvegs- og sam-
göngumál, um-
hverfis- og orku-
mál, málefni
aldraðra og ýmis-
legt fleira.
„Ég tel mörg
spennandi verk-
efni framundan og
mikilvægt að
gæta hagsmuna
Reykvíkinga í nú-
tíð og framtíð og ég tel að sú reynsla
sem ég hef á vettvangi borgarstjórn-
armála muni reynast mér vel til þess.“
Hann sagðist hafa lýst því yfir fyrir
ári síðan þegar hann hefði ákveðið að
sækjast ekki eftir efstu sætunum á
lista Sjálfstæðisflokksins við borgar-
stjórnarkosningarnar að hann myndi
sækjast eftir einu af efstu sætunum í
prófkjörinu nú. „Ég hef ekki skipt um
skoðun hvað það varðar og hef áhuga
á því að taka að mér fleiri verkefni á
sviði stjórnmálanna og aukna ábyrgð.
Ég tel það einnig gott fyrir flokkinn
að fulltrúar nýrra kynslóða verði í for-
ystusveit hans.“
Guðlaugur Þór sagði að það skipti
engu máli eftir hvaða sæti hann sækt-
ist í prófkjörinu, því hann myndi alltaf
þurfa að etja kappi við vini og sam-
herja. „Það er eðli prófkjara, en við
höfum sýnt það sjálfstæðismenn í
undanförnum prófkjörum að þessar
keppnir hafa verið drengilegar og
heiðarlegar og hafa styrkt mjög
flokkinn og ég á ekki von á því að það
verði neitt öðru vísi nú,“ sagði Guð-
laugur að lokum.
Guðlaugur Þór býður
sig fram í annað sætið
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is