Morgunblaðið - 19.09.2006, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt karl-
mann á þrítugsaldri til átta mánaða fangelsisvistar
fyrir kynferðisbrot. Honum er jafnframt gert að
greiða tæpar 840 þúsund krónur í sakarkostnað en
áður hafði hann greitt fórnarlambi sínu 600 þúsund
krónur í miskabætur.
Manninum var gefið að sök að hafa í október á sl.
ári látið 12 ára stúlku hafa við sig munnmök og í
kjölfarið haft við hana samræði tvisvar sinnum. Þar
að auki fannst á tölvu mannsins nærri tveggja
klukkustunda löng hreyfimynd sem sýnir barn á
klámfenginn og kynferðislegan hátt. Ákærði við-
urkenndi brot sín en kvaðst ekki hafa talið hreyfi-
myndina hafa verið barnaklám, frekar væru stúlk-
urnar látnar líta út fyrir að vera sem yngstar. Hann
sagðist ennfremur ekki hafa vitað um aldur stúlk-
unnar. Hefði hann talið hana vera 14 til 16 ára, og
ekki komist að öðru fyrr en eftir samfarirnar.
Ákærði og stúlkan höfðu átt í samskiptum á net-
inu í nokkra mánuði og þrátt fyrir að muna lítið eft-
ir samskiptum þeirra í netheimum sagðist ákærði
þó telja sig muna að stúlkan hefði ávallt verið fljót
að leiða talið að kynferðislegum efnum. Þegar þau
mæltu sér mót keyrði ákærði á afvikinn stað, bað
stúlkuna um að eiga við sig munnmök en eftir sam-
farir þeirra hafi hann svo spurt stúlkuna um aldur
og hún sagst vera að verða 13 ára.
Stúlkan sagði fyrir dómi að sér hefði liðið illa
með ákærða og verið svolítið hrædd við hann. Hann
hefði hins vegar keypt fyrir hana sígarettur og því
hefði hún ekki kunnað við að fara í burtu. Hún
kvaðst hafa fengið send SMS-smáskilaboð, nokkr-
um dögum eftir fund þeirra, þar sem hann spurði
hvort þau ættu ekki að hittast aftur.
Dóminum þótti sannað að ákærði hefði vitað um
aldur stúlkunnar áður en þau höfðu samræði en
hann hafði m.a. sagt í samtali við hana á netinu að
sig langaði í yngri stelpu.
Ásgeir Magnússon héraðsdómari kvað upp dóm-
inn. Sigríður J. Friðjónsdóttir fulltrúi ríkislög-
reglustjóra flutti málið af hálfu ákæruvaldsins en
Herdís Hallmarsdóttir hdl. varði manninn.
Átta mánaða fangelsi fyrir
samræði við tólf ára stúlku
Í HNOTSKURN
»Ákærði hitti stúlkuna á spjalli á netinuog hafði átt í samskiptum við hana um
nokkurra mánaða skeið.
»Hann kvaðst ekki hafa vitað um unganaldur hennar en dómurinn taldi fram-
burðinn ótrúverðugan.
Kvaðst ekki hafa vitað um ungan aldur stúlkunnar fyrr en eftir samfarir þeirra
Dæmdur Héraðsdómur Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Þorkell
VÖRUFLUTNINGABÍLL frá Vörumiðlum á suðurleið
frá Skagaströnd fór út af veginum við golfvöll Blöndu-
ósinga í Vatnahverfi um kl. 17 í gær og hafnaði í
skurði hægra megin við veginn. Bílstjórinn var einn í
bílnum. Mun hann hafa sloppið með minniháttar
skrámur.
Ökumaður í bifreið sem mætti flutningabílnum þeg-
ar atvikið átti sér stað tók eftir því að flutningabíllinn
leitaði skyndilega til hægri og hafnaði ofan í skurð-
inum og er talið fullvíst að bílstjórinn hafi sofnað und-
ir stýri. Þykir mildi að ekki fór verr því ef bíllinn hefði
leitað inn á veginn þá hefði hann lent framan á aðvíf-
andi bíl úr gagnstæðri átt.
Liðsmenn björgunarsveitarinnar Blöndu voru kall-
aðir út til að bjarga farmi bílsins sem var frosinn fisk-
ur og steinull og var talið að farmurinn væri að mestu
óskemmdur. Mildi þykir að ekki urðu slys á fólki.
Lögreglan á Blönduósi hefur málið til rannsóknar.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Vöruflutningabíll valt og hafnaði í skurði
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÞAÐ er mjög
hættulegt ef
framkvæmda-
valdið ætlar að
skammta fræði-
mönnum efni til
þess að fjalla um
samtímasöguna,“
segir Sigurður
Gylfi Magnússon
sagnfræðingur,
en bréf hans um
málefni Kjartans Ólafssonar, fyrr-
verandi alþingismanns og ritstjóra,
og synjun þjóðskjalavarðar um að-
gang að gögnum um símhleranir,
hafa vakið talsverðar umræður á lok-
aðri spjallrás sagnfræðinga, Gamma-
brekku.
Í samtali við Morgunblaðið segist
Sigurður eiga bágt með að skilja rök-
in sem lágu að baki ákvörðun þjóð-
skjalavarðar um synjun og finnst
málatilbúnaður hans undarlegur.
Tekur hann fram að við fyrstu sýn
finnist sér illilega brotið á rétti
Kjartans Ólafssonar.
„Mér finnst það ekki standast að
þessi maður sem er almennur borg-
ari í landinu, eiginmaður, faðir og afi,
skuli ekki fá tækifæri til að skoða
málsgögn þar sem hann var með-
höndlaður eins og landráðamaður.
Mér finnst þjóðskjalaverði ekki
stætt á því að vísa beiðni Kjartans
frá, sérlega í ljósi þess að einum
fræðimanni hefur þegar verið veittur
aðgangur að þessum gögnum,“ segir
Sigurður og leggur áherslu á að
staða Kjartans sé þó mun sterkari
þar sem hann sé ekki aðeins sagn-
fræðingur heldur sjálfur aðili að mál-
inu.
Að sögn Sigurðar snertir málið
hagsmuni alls fræðifólks sem fjalla
vill um samtímastjórnmál og -menn-
ingu á yfirvegaðan og skynsamlegan
hátt. Bendir hann á að sagnfræð-
ingum ber samkvæmt eigin siða-
reglum skylda til að vekja athygli á
því ef opinberar stofnanir reyna að
hindra eðlilega notkun gagna og að-
gang að þeim.
Að sögn Sigurðar virðast ráða-
menn vera að reyna að þæfa málið og
hindra með þeim hætti umfjöllun um
það.
„Mér fannst í sumar mjög und-
arlegt hvernig dómsmálaráðuneytið
með dómsmálaráðherra í farar-
broddi fór með beiðni Ragnars Aðal-
steinssonar lögmanns um að fá þessi
gögn. Þegar dómsmálaráðuneytið
virtist ekki lengur hafa neitt svigrúm
til að synja honum um beiðnina þá
sendu þeir gögnin sama dag og mál
hans var afgreitt upp í Þjóðskjala-
safn. Þetta fannst mér einkennilegt,
ekki síst þar sem Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra er óbeinn aðili að
þessu máli,“ segir Sigurður og vísar
þar til þess að Bjarni Benediktsson,
faðir Björns, var einn af þeim sem
stóðu að hlerunum þegar hann var
dómsmálaráðherra.
Sagnfræðingur segir hættulegt ef framkvæmdavaldið ætlar að skammta gögn
Telur illilega brotið á Kjartani
Sigurður Gylfi
Magnússon
Í HNOTSKURN
»Í siðareglum Sagnfræð-ingafélagsins segir m.a. að
sagnfræðingar ættu að stuðla
að opnum og frjálsum aðgangi
að sögulegum heimildum.
»Mikilvægt er að sagnfræð-ingar reyni ekki aðeins að
tryggja góðan aðgang að
heimildum heldur ber þeim
skylda til að vekja athygli á ef
opinberar stofnanir reyna að
hindra eðlilega notkun þeirra
og/eða aðgang að þeim.“
HÆSTIRÉTTUR hefur hnekkt
gæsluvarðhaldsúrskurði héraðs-
dóms yfir manni sem sætir lögreglu-
rannsókn vegna nauðgunarmáls í
Reykjavík fyrr í þessum mánuði.
Hann var úrskurðaður í viku gæslu-
varðhald 14. september en Hæsti-
réttur taldi ekki að hann gæti tor-
veldað rannsókn málsins með því að
hafa áhrif á vitni og afmá ummerki á
vettvangi héldi hann frelsi sínu. Var
honum því sleppt.
Var með mikla áverka
Í rannsóknarúrskurði er rakið að
konan hafi sagst hafa farið heim til
mannsins ásamt fleira fólki eftir
skemmtun í miðbænum. Þau hafi
farið inn í herbergi þar sem hann
hafi skyndilega ráðist á hana og beitt
hana miklu ofbeldi og síðan haft við
hana harkalegt samræði gegn vilja
hennar.
Hún var flutt á neyðarmóttöku
fyrir þolendur kynferðisofbeldis og
var með mikla áverka. Kærði hún at-
burðinn til lögreglu sem yfirheyrði
manninn. Sagðist hann hafa haft
samræði við konuna með hennar
samþykki en var úrskurðaður í
gæsluvarðhald grunaður um alvar-
legt og gróft kynferðislegt ofbeldi.
Úr haldi
í nauðgun-
armáli
VALGERÐUR
Sverrisdóttir, ut-
anríkisráðherra,
hélt í gær á 61.
allsherjarþing
Sameinuðu þjóð-
anna. Skv. upp-
lýsingum utan-
ríkisráðuneyt-
isins mun
Valgerður í ferð-
inni eiga tvíhliða
fundi með fjölda ráðherra, m.a. til að
kynna framboð Íslands til setu í ör-
yggisráði SÞ á árunum 2009–2010. Í
tengslum við allsherjarþingið mun
utanríkisráðherra m.a. sitja fundi ut-
anríkisráðherra Atlantshafsbanda-
lagsríkja og utanríkisráðherra
Norðurlanda. Ráðherra mun einnig
sitja hádegisverðarfund ráðherra
Atlantshafsbandalagsins og Evrópu-
sambandsins.
Einnig hefur ráðherra þegið boð
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
um þátttöku í hringborðsumræðum
um það hvernig auka megi völd
kvenna og þátttöku þeirra á hinum
ýmsu sviðum samfélagsins.
Kynnir
framboð
Íslands
Valgerður
Sverrisdóttir
Situr fund utanríkis-
ráðherra NATO
♦♦♦
ÖSSUR Skarp-
héðinsson var
kjörinn formaður
þingflokks Sam-
fylkingarinnar í
stað Margrétar
Frímannsdóttur,
sem ekki gaf kost
á sér embættið á
fundi þingflokks-
ins í gær.
Össur sagði að
félagar hans í þingflokknum hefðu
leitað mjög ákveðið eftir því að hann
tæki að sér starfið, eftir að Margrét
ákvað að hætta.
„Ég vil vera traustur liðsmaður
fyrir Samfylkinguna og tókst á
herðar þær skyldur sem þessu
fylgja. Ég hef alltaf átt mjög gott
samstarf við alla mína félaga í þing-
flokknum og hef sama markmið og
þeir að Samfylkingunni vaxi ásmegin
og við ávinnum okkur nægilegt
traust meðal kjósenda til þess að
taka við landstjórninni að loknum
kosningum,“ sagði Össur.
Hann bætti því við að þetta undir-
strikaði að Samfylkingin væri ein
liðsheild og að öll sár væru gróin sem
hugsanlega kynnu að hafa myndast í
þeim hörðu formannsátökum sem
hefðu verið í flokknum.
„Þannig má draga þá ályktun að
Samfylkingin sé að stilla upp því liði
sem hún telur sterkast til þess að
takast á við það erfiða verkefni sem
blasir við í vetur að fella þessa rík-
isstjórn og ná fram langþráðum
skiptum í landstjórninni. Ég fyrir
mitt leyti hef aldrei skorast undan
því að gera allt sem ég get til þess að
vinna mínum flokki vel. Ég var fyrsti
formaður hans og fyrir utan mína
nánustu fjölskyldu er það ekkert
sem hrærir eins strengi væntum-
þykju í brjósti mínu og þessi hreyf-
ing sem ég er stoltur af að hafa átt
örlítinn þátt í að byggja upp með
góðum félögum, eins og Margréti
Frímannsdóttur sem ég sé senn á
bak og öðrum,“ sagði Össur.
Hann sagði að það væri löngu
tímabært að jafnaðarstefnan hefði
meiri áhrif á Íslandi og hann hefði
það sterklega á tilfinningunni að það
yrðu söguleg kaflaskipti í vetur og í
þingkosningunum í vor.
Samfylk-
ingin er ein
liðsheild
Össur
Skarphéðinsson