Morgunblaðið - 19.09.2006, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 9
FRÉTTIR
Laugavegi 82, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
HAUST 2006
heimakjólar
Nýtt kortatímabil
Flottar peysur
stærðir 36-56
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16
Eddufelli 2,
sími 557 1730
Bæjarlind 6,
sími 554 7030
Bláu húsin Fákafeni, sími 588 4545, netfang: postulín.is
Sigurstjarnan Opiðvirka daga kl. 11-18,
lau. kl. 11-15
Hágæðavörur - Leonardo - Reganci
Einnig öðruvísi vörur frá Austurlöndum
Útsölulok 20-80% afsl.
Vaxta
lausar
léttgr
eiðslu
r
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16
Ný sending af flauelsbuxum
frá
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Full búð af flottum
haustvörum
Stærðir 38-56i
Mjódd, sími 557 5900
Nýjar vörur frá ESPRIT
Buxur, peysur, blússur, úlpur og margt fleira
Verið velkomnar
PERSÓNUVERND hefur ekki tekið
afstöðu til hugmynda um skipulag
leyniþjónustu hér á landi en fyrr í
mánuðinum kom sérfræðingahópur
frá Brussel á fund Persónuverndar
til að kynna hugmyndir sínar um
skipulag leyniþjónustu.
Hópurinn var staddur hér á landi í
boði dómsmálaráðuneytisins í því
skyni að kynna þessar hugmyndir
eins og fram hefur komið.
Í frétt Persónuverndar kemur
fram að sérfræðingahópurinn gerði
stuttlega grein fyrir rökum sem hann
telur standa til þess að stofna leyni-
þjónustu hér á landi og hugmyndum
sínum um skipulag slíkrar stofnunar,
pólitíska og stjórnunarlega ábyrgð á
störfum hennar og eftirlit með störf-
um hennar, þ.á m. meðferð hennar á
persónuupplýsingum.
„Undir lok fundarins var tekið
fram að af hálfu Persónuverndar yrði
engin afstaða tekin til þess sem hafði
verið kynnt fyrir fulltrúum stofnun-
arinnar. Slíkt var ekki talið tíma-
bært, annars vegar sökum þess að
áður þyrfti að móta umræddar hug-
myndir nánar og hins vegar vegna
þess að eingöngu var um að ræða
kynningu á hugmyndum sérfræði-
hópsins, en ekki lá fyrir hvort lagt
yrði fram hér á landi frumvarp til við-
hlítandi lagasetningar,“ segir í frétt
sem birt er á vefsíðu Persónuvernd-
ar.
Persónuvernd kynntar
hugmyndir um leyniþjónustu
TVEIR menn sæta nú ákæru fyrir
utanvegaakstur við Hagavatn fyrr í
sumar og verður réttað í máli þeirra
9. nóvember. Voru þeir á jeppum í
umrætt skipti en ekki bifhjólum eins
og mishermt var í frétt blaðsins á
laugardag.
Faðir eins ákærðu telur málatil-
búnað ákæruvaldsins afar vafasam-
an og gagnrýnir lögregluna fyrir að
fara offari í eftirlitinu þennan dag.
Mennirnir sem óku litlum jeppum,
hafi verið á greinilegri vegarslóð
sem liggur meðfram Farinu sem
rennur úr Hagavatni. Slóðin sé göm-
ul og hafi verið lengi notuð m.a. til
viðhalds á sauðfjárveikigirðingu og
smalamennsku. Getið sé um þessa
slóð í Árbók Ferðafélagsins 1980, en
Páll Arason muni hafa notað þessa
slóð með ferðamenn. Jafnframt hafi
slóðin verið notuð til að komast að
gömlum húsum nokkru sunnar.
Töldu sig í fullum rétti
„Ökumennirnir töldu sig því vera í
fullum rétti á þessari slóð og utan-
vegaakstur hafði ekki svo mikið sem
hvarflað að þeim,“ segir hann. „Þeim
sem ekur þessa slóð og sér hve
greinileg hún er dytti síst af öllu í
hug að hann væri með því að brjóta
náttúruverndarlög. Rétt er að geta
þess að það markaði ekki einu sinni í
slóðina eftir jeppana.
Að mínu mati er hér um að ræða
valdníðslu yfirvalda gagnvart ferða-
fólki og ef þetta er ný skilgreining
lögreglu á utanvegaakstri, þá eru
skilaboðin þau að fólk ætti almennt
ekki að dirfast að aka út fyrir mal-
bikið.“
Ólafur Helgi Kjartansson sýslu-
maður á Selfossi segir gagnrýnina
ekki eiga við rök að styðjast og telur
af og frá að lögreglan hafi farið út
fyrir verksvið sitt og því síður sýnt af
sér valdníðslu og ekki farið offari.
Hlutverk lögreglu sé að halda uppi
lögum og á þeim stað sem mennirnir
voru staðnir að verki sé bannað að
aka. „Samkvæmt öllum gögnum
málsins og mælingum á vettvangi
kom í ljós að tveir ungir menn á
jeppum voru því miður staðnir að ut-
anvegaakstri nálægt Hagavatni,“
segir hann. „Slíkt er bannað sam-
kvæmt lögum og nú mun það koma
til kasta dómara að leiða málið til
lykta að loknum málflutningi.“
Sakar lögreglu um vald-
níðslu gagnvart ferðafólki
Utanvegaakstur? Faðir eins ákærðu telur vegarslóðann, sem er í nágrenni við Hagavatn, greinilegan.
NÁTTÚRUVAKTIN mótmælir
harðlega þeim áætlunum Landsnets
að leggja háspennulínur frá Hellis-
heiðarvirkjun. Þetta kemur fram í
ályktun frá stjórn Náttúruvaktar-
innar.
„Það sætir furðu að enn skuli
áformað að leggja háspennulínur
með þeirri gríðarlegu sjónmengun
sem þær valda þegar kostur er á að
leggja þær í jörðu. Náttúruvaktin
sendir jafnframt íbúum á Fljótsdals-
héraði og Fjarðabyggð samúðar-
kveðjur vegna hinna ósmekklegu
línulagna sem nú valda ásýnd lands-
ins og líðan óbætanlegu tjóni.
Sóknarfæri í ferðaiðnaði
Þá vill Náttúruvaktin koma á
framfæri mótmælum sínum gegn
fyrirhuguðum jarðvarmavirkjunum
við Hverahlíð og Ölkelduháls til þess
eins að knýja stækkanir álbræðslna
á höfuðborgarsvæðinu. Það er komið
meira en nóg af mengandi stóriðju
og tími til kominn að huga að framtíð
þessa lands.
Náttúruvaktin beinir þeim tilmæl-
um til stjórnvalda að hefja þegar
undirbúning að uppbyggingu Eld-
fjallagarðs á Reykjanesskaga sem
muni skapa mikil sóknarfæri í ferða-
og afþreyingariðnaði. Eldfjallagarð-
urinn myndi skapa nýjan vettvang
fyrir vísindi og fræðslu, sérstaklega
á sviði jarðvísinda og heilsufræða og
þannig gefa Íslandi tækifæri til að
móta sér sérstöðu, efla háskóla-
menntun og laða að fólk frá öðrum
þjóðum. Þá myndi Eldfjallasafn
vafalítið verða með fjölsóttustu söfn-
um landsins
Náttúruvaktin telur að því að Eld-
fjallagarður muni skapa mun fleiri
og fjölbreyttari störf en stóriðja og
hvetur stjórnvöld til að láta ekki van-
hugsuð skammtímasjónarmið hefta
möguleika til arðsköpunar með
skynsamlegri náttúrunýtingu í sátt
við íbúa,“ segir í ályktun stjórnar
Náttúruvaktarinnar.
Mótmæla
áætlunum
um há-
spennulínur
BORIST hefur eftirfarandi ályktun
frá stjórn FÍO/Organistadeildar
Félags íslenskra hljómlistarmanna:
„Stjórn FÍO/Organistadeildar
Félags íslenskra hljómlistarmanna
mótmælir harðlega þeirri ákvörðun
stjórnar Skálholts að segja Hilmari
Erni Agnarssyni dómorganista í
Skálholti upp störfum. Stjórnin tel-
ur að uppsögnin sé ólögmæt og í
engu samræmi við starfsmanna-
stefnu Þjóðkirkjunnar:
http://www.kirkjan.is/biskups-
stofa/?skrifstofa/starfsmanna-
stefna og nútímavenjur í starfs-
mannamálum.
Stjórn FÍO/Organistadeildar Fé-
lags íslenskra hljómlistarmanna.“
Stjórn FÍO mót-
mælir uppsögn
dómorganista