Morgunblaðið - 19.09.2006, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 13
A›alfundur 2006
D A G S K R Á
1. Sk‡rsla stjórnar um starfsemi félagsins
á li›nu starfsári.
2. Ársreikningur félagsins fyrir li›i› starfsár
lag›ur fram til samflykktar ásamt
sk‡ringum endursko›anda.
3. fióknun til stjórnar ákve›in.
4. Kosning stjórnar félagsins.
5. Kosning endursko›enda félagsins.
6. Umræ›ur og atkvæ›agrei›slur um
önnur mál sem löglega kunna a› ver›a
lög› fyrir fundinn e›a fundurinn
samflykkir a› taka til me›fer›ar.
A›alfundur 2006
A›alfundur Alfesca hf. ver›ur haldinn
flri›judaginn 19. september 2006 kl.17.00
í Gullteigi á Grand Hótel Reykjavík.
Fundurinn fer fram á ensku. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á
fram á a›alfundinum, skulu hafa borist stjórninni eigi sí›ar en
sjö dögum fyrir a›alfundinn.
Dagskrá a›alfundarins, ársreikningur félagsins og endanlegar
tillögur munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til
s‡nis, sjö dögum fyrir a›alfundinn.
Atkvæ›ase›lar og fundargögn ver›a afhent vi› innganginn og
á skrifstofu félagsins a› Fornubú›um 5, Hafnarfir›i, á
fundardaginn.
Hafnarfir›i 1. september 2006
Stjórn Alfesca hf.
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
SÓLEYJARIMI - 112 RVÍK
50 ÁRA OG ELDRI!
3ja herb. á 3. hæð með stórum suðursvölum. Fullbúin
án gólfefna í góðu lyftuhúsi, gott stæði í bílageymslu.
Mjög falleg íbúð með frábæru útsýni yfir höfuðborg-
ina. VERÐ 23,9 millj.
Pantaðu skoðun:
Ingvar Ragnarsson sölufulltrúi, 822 7300
LAUS VIÐ KAUPSAMNING – SÍÐASTA ÍBÚÐIN!
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALAN hækkaði um
1,06% í Kauphöll Íslands í gær og
var lokagildi hennar 6.246,60 stig
við lokun markaða. Exista hækkaði
um 2,7%, Kaupþing og Landsbank-
inn 1,5%. Dagsbrún lækkaði um
2,7%.
Viðskipti í Kauphöllinni námu 13,2
milljörðum króna í gær. Mest voru
viðskiptin með íbúðabréf, eða fyrir
6,4 milljarða, en viðskipti með hluta-
bréf námu 5,7 milljörðum.
Krónan styrktist um 0,5% í gær,
samkvæmt upplýsingum frá Glitni.
Við upphaf viðskipta var vísitalan
123,20, en í lok dags var hún
122,6. Velta nam 6,7 milljörðum
króna. Gengi dollarans er 70,16
krónur, pundsins 131,72 og evr-
unnar 88,95.
Lífleg viðskipti
í Kauphöll Íslands
● FIMM lífeyr-
issjóðir eru á meðal
tuttugu stærstu hlut-
hafa í Exista hf. eftir hlutafjár-
útboð þess og skráningu í Kaup-
höll.
Stærsti hluthafinn er sem áður
Bakkabraedur Holding B.V. með
47,4% hlut, en félagið er í eigu
Ágústs og Lýðs Guðmundssona.
KB banki er næststærsti hlut-
hafinn með 10,5% hlut og SPRON
á 6,3% hlutafjár.
Lífeyrissjóður verslunarmanna,
Lífeyrissjóðir Bankastræti 7, Gildi
lífeyrissjóður, sameinaði lífeyr-
issjóðurinn og Frjálsi lífeyrissjóð-
urinn eiga allir hlut í Exista, og er
eignarhlutur þeirra á bilinu 0,2-
1,8%.
Fimm lífeyrissjóðir í
hópi stærstu hluthafa
● TÓLF mánaða verðbólga mun
halda áfram að lækka í október, eins
og hún gerði á milli ágúst og sept-
ember, ef spá greiningardeildar
Landsbanka Íslands gengur eftir.
Spáir deildin 0,4% hækkun vísitölu
neysluverðs á milli september og
október. Það hefði í för með sér að
tólf mánaða verðbólga muni lækka
úr 7,6% í september í 7,3% í október,
gangi spáin eftir.
Helstu liðir sem greiningardeild
Landsbankans telur til hækkunar á
vísitölu neysluverðs á milli mánaða
eru matvara, fatnaður og þjón-
ustuliðir. Á móti vegi hins vegar tölu-
verð lækkun á eldsneytisverði.
Landsbankinn spáir
lækkun verðbógunnar
● TIL STENDUR að loka verksmiðju
Actavis í Baltimore í Bandaríkjunum
og flytja starfsemi hennar til Norður-
Karólínu, að því er kemur fram á vef-
síðu Baltimore Business Journal.
Munu 240 starfsmenn verksmiðj-
unnar missa störf sín, en um er að
ræða hluta af stefnu fyrirtækisins
um endurskipulagningu starfsemi
Actavis í Bandaríkjunum.
Samkvæmt frétt BBJ veldur þessi
ákvörðun Actavis vonbrigðum yf-
irvalda á svæðinu, en verksmiðjan
hafði verið notuð sem dæmi um vax-
andi líftækniiðnað í Baltimore.
Actavis greiddi 810 milljónir
bandaríkjadala fyrir bandaríska lyfja-
fyrirtækið Alpharma í desember á
síðasta ári.
Starfsemi Actavis
flutt frá Baltimore
VEXTIR af almennum útlánum
Íbúðalánasjóðs verða óbreyttir, eða
4,95%. Lán sjóðsins sem eru með
sérstöku uppgreiðsluálagi verða
einnig þeir sömu og verið hefur,
eða 4,70%. Þetta er niðurstaða
stjórnar Íbúðalánasjóðs í kjölfar út-
boðs á íbúðabréfum frá því í síðustu
viku. Tilkynnt var um ákvörðun
stjórnarinnar í gær.
Alls bárust tilboð að nafnvirði
20,9 milljarðar króna í útboði
Íbúðalánasjóðs og var ákveðið að
taka tilboðum að nafnvirði 2 millj-
arðar. Vegin ávöxtunarkrafa í út-
boðinu án þóknunar er 4,30% og
4,32% með þóknun.
Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur
heimild til að ákveða vexti af útlán-
um sjóðsins með hliðsjón af fjár-
mögnunarkostnaði í reglulegum út-
boðum íbúðabréfa og með vegnum
fjármagnskostnaði vegna upp-
greiddra lána, að viðbættu vaxta-
álagi. Vegnir vextir í útboði á
íbúðabréfum í síðustu viku og af
uppgreiddum lánum Íbúðalána-
sjóðs eru 4,26%, að því er fram
kemur í tilkynningu frá sjóðnum. Á
grundvelli vaxtaálags í útboðinu
ákvað stjórn Íbúðalánasjóðs að
vextir skyldu vera 4,95%, og 0,25%
lægri af lánum með sérstöku upp-
greiðsluálagi, eða 4,70%.
Óbreyttir vextir
Íbúðalánasjóðs
Morgunblaðið/Sverrir
Eftirspurn Mikil eftirspurn var eftir íbúðabréfum í útboði Íbúðalánasjóðs.
VERÐBÓLGA var mest á Íslandi
síðastliðna tólf mánuði af löndum
Evrópska efnahagssvæðinu (EES),
samkvæmt mælingu á samræmdri
vísitölu neysluverðs.
Þetta kemur fram í nýjum tölum
frá Hagstofu Íslands. Undanfarna
mánuði hefur verðbólgan mælst
mest í Lettlandi, en nú hefur Ísland
hins vegar tekið það sæti.
Samræmd vísitala neysluverðs í
EES-ríkjunum í ágústmánuði hækk-
aði um 0,1% frá fyrra mánuði. Á
sama tíma hækkaði vísitalan fyrir Ís-
land um 0,5%.
Frá ágúst 2005 til jafnlengdar árið
2006 var verð-
bólgan, mæld
með samræmdri
vísitölu neyslu-
verðs, 2,3% að
meðaltali í ríkjum
EES og á evru-
svæðinu, en 7,1%
á Íslandi og var
það jafnframt
mesta verðbólga á EES-svæðinu á
þessu tólf mánaða tímabili.
Verðbólgan var næstmest í Lett-
landi. Hún var hins vegar var minnst
verðbólga í Finnlandi, eða 1,3%, og
næstminnst í Svíþjóð, eða 1,6%.
Minni munur á vísitölum
Helsti munurinn á samræmdri
vísitölu neysluverðs og þeirri vísitölu
sem Hagstofan reiknar út, og sem
flest langtímalán almennings og fyr-
irtækja hér á landi taka mið af, er sú,
að eigið húsnæði er ekki tekið með í
samræmdu vísitölunni.
Hækkun íbúðaverðs hefur til
þessa verið einn þeirra þátta sem
hvað mest áhrif hafa haft til hækk-
unar á neysluverðsvísitölunni hér á
landi. Nú hefur hins vegar dregið úr
hækkun íbúðaverðs og því vegur sá
þáttur minna í vísitölu neysluverðs
en áður. Því er minni munur nú á
vísitölunum tveimur.
Verðbólga mest á Íslandi af
löndum Evrópska efnahagssvæðisins
Tekur við af Lettlandi sem það land þar sem verðbólga er mest
STEFNT er að skráningu Mosaic
Fashions í Lundúnum á næsta ári,
samkvæmt frétt í Mail on Sunday, en
félagið er skráð í Kauphöll Íslands. Í
Mail on Sunday kemur fram að þeg-
ar yfirtöku á tískuvörukeðjunni
Rubicon Retail er lokið geri aðilar á
fjármálamarkaði ráð fyrir að félagið
stefni á tvöfalda skráningu með því
að skrá félagið einnig í Kauphöllinni
í Lundúnum. Með því verði auðveld-
ari leið að alþjóðlegu fjármagni.
Stærsti hluthafinn í tískuvöru-
keðjunni Mosaic Fashion er Baugur
Group með um 37% hlut. Sameinað
félag Mosaic Fashions og Rubicon
Retail rekur um 1.700 verslanir í 27
löndum og velta þess verður í kring-
um 110 milljarðar íslenskra króna. Á
meðal verslana þess eru Warehouse,
Principles, Oasis, Karen Millen,
Coast og Whistles.
Mosaic Fashions verði
skráð í Lundúnum