Morgunblaðið - 19.09.2006, Page 14

Morgunblaðið - 19.09.2006, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is FERENC Gyurcsany, forsætisráð- herra Ungverjalands, hefur staðfest að hljóðupptaka sem birt var á sunnudag sé ósvikin. Upptakan geymir ræðu sem forsætisráð- herrann flutti í maímánuði þar sem hann lýsti yfir því að ríkisstjórnin hefði logið að almenningi um stöðu efnahagsmála. Ríkisútvarp Ungverjalands birti á sunnudag stuttan kafla úr ræðunni en lengri kafla má nú nálgast á ung- verskum vefsíðum. Ekki er vitað hver fékk ungverska útvarpinu upp- tökuna og sérfróða greinir á um hver tilgangurinn með birtingu hennar kunni að vera. Ræðuna flutti Gyurcsany á fundi þingmanna Sósíalistaflokksins 26. maí. Þá var liðinn mánuður frá því að stjórn hans hélt velli í þingkosning- um í Ungverjalandi. Sá sigur þótti sögulegur því ríkisstjórn hafði aldrei áður haldið meirihluta sínum í kosn- ingum þar í landi frá því að komm- únisminn leið undir lok. Í ræðunni lagði forsætisráð- herrann þunga áherslu á nauðsyn þess að efnahagsumbótum yrði kom- ið á í Ungverjalandi. Og hann kvað ljóst að þær myndu reynast þjóðinni erfiðar. „Valkostir okkar eru ekki margir. Þeir eru ekki fyrir hendi vegna þess að við klúðruðum þessu. Og þetta var ekki smávægilegt klúð- ur. Ekkert Evrópuríki hefur hagað sér jafn heimskulega og við. Ljóst er að við lugum síðustu 18 mánuðina, tvö árin. Við getum ekki bent á neina ákvörðun sem ríkisstjórnin getur verið stolt af nema þá að okkur tókst að halda velli. Ekkert. Ef við ætlum okkur að gera kjósendum grein fyrir afrekum okkar síðustu fjögur árin, hvað getum við þá talið upp?“ Ræðu sína skreytti forsætisráð- herrann með margvíslegum og kröftugum blótsyrðum. Lýsti hann yfir því að efnahagur Ungverjalands hefði aðeins haldið velli sökum „guð- legrar forsjónar, ofgnóttar fjár- magns í hinu alþjóðlega hagkerfi“ og margvíslegra „bragða“ sem stjórn- málamenn hefðu gripið til. „Við lug- um að fólkinu að morgni dags, við lugum síðdegis og við lugum þegar húmaði að kveldi,“ sagði hann. Gyurcsany staðfesti á sunnudag að upptakan væri ósvikin. Sagði hann í sjónvarpsviðtali að lygarnar sem hann vísaði til væru ósannindi stjórnmálamanna sem leituðust við að sannfæra ungversku þjóðina um að hún gæti lifað í vellystingum án þess að leggja neitt á sig. „Árum saman fengum við fólk til að trúa því að það þyrfti í raun ekki að gera neitt, að við myndum færa því ham- ingjuna eins og gjöf. Tímabært er að þessum lygum verði nú hætt,“ sagði Gyurcsany. Hann tók fram að hann hygðist ekki segja af sér embætti en kröfur í þá veru komu fram strax á sunnudagskvöld. Raunar hefur Gyurcsany nú birt útskrift af ræð- unni á vefsíðu sinni. „Mistök“ að lækka skatta Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem forsætisráðherrann viðurkennir vafasama framkomu ráðamanna í aðdraganda kosninga. Í aprílmánuði sagði hann að ríkisstjórnin hefði veitt rangar upplýsingar um hallann á rekstri ríkissjóðs í því skyni að auka sigurlíkur sínar. Þá greindi Gyurcsany ennfremur frá því að stjórnin hefði gerst sek um „mistök“ er hún lækkaði skatta. Ríkisstjórnin glímir við erfiðan fjárlagahalla og hefur nú verið boðað að ríkisstarfsmönnum verði fækkað og skattheimta aukin. Þá er í ráði að innleiða gjöld í háskólum og í heil- brigðiskerfinu. Sérfræðinga um ungversk stjórn- mál greinir á um hvaða tilgangur kunni að búa að baki þeirri ákvörðun að birta ræðu forsætisráðherrans. Sumir telja augljóst að með þessu hafi hugsanlegir keppinautar hans viljað koma höggi á Gyurcsany og spilla fyrir möguleikum hans á að verða kjörinn leiðtogi Sósíalista- flokksins í kosningum sem fram fara í febrúarmánuði. Aðrir telja for- sætisráðherrann hafa ákveðið að ræðunni yrði „lekið“ í fjölmiðla í því skyni að sannfæra þjóðina um nauð- syn þess að gripið verði til efnahags- aðgerða. Logið allan sólarhringinn AP Bellibragð Ferenc Gyurcsany forsætisráðherra fagnar ásamt eiginkonu sinni sigri í þingkosningunum sem fram fóru í Ungverjalandi 9. apríl. Í HNOTSKURN »Stjórn Sósíalistaflokksinshélt velli í kosningum í Ungverjalandi í aprílmánuði. »Ferenc Gyurcsany, 45 áramilljónamæringur, tók við embætti forsætisráðherra í ágústmánuði 2004. »Gyurcsany hefur nú við-urkennt að réttum upplýs- ingum um stöðu efnahagsmála hafi ekki verið miðlað til kjós- enda í aðdraganda kosning- anna. Forsætisráðherra Ungverjalands viðurkennir lygar Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is JACQUES Chirac Frakklandsfor- seti hvatti í gær til þess að fram færu frekari viðræður við ráðamenn í Íran um kjarnorkuáform stjórn- valda þar. Lagði forsetinn áherslu á að ekki bæri að vísa kjarnorkudeil- unni til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna á meðan slíkar viðræður færu fram. Afstaða forsetans geng- ur gegn stefnu Bandaríkjastjórnar í máli þessu og spá ýmsir því nú að ný deila Frakka og Bandaríkjamanna kunni að vera í uppsiglingu. Frakklandsforseti sagði í útvarps- viðtali að ríkin sex sem átt hafa við- ræður við ráðamenn í Teheran ættu að sameinast um að vísa málinu ekki til öryggisráðsins að sinni. Leita ætti eftir frekari viðræðum. Á móti bæri Írönum að lýsa yfir því að ekki yrði unnið að auðgun úrans á meðan slík samtöl færu fram. Ríkin sex sem Chirac vísaði til eru þau fimm sem eiga fastafulltrúa í öryggisráði Sam- einuðu þjóðanna og Þýskaland. Chirac fór ekki dult með þá skoð- un sína að hann teldi að refsiaðgerð- ir gagnvart Írönum væru ekki heppilegur leikur í stöðunni. „Ég trúi ekki á að lausn finnist án við- ræðna,“ sagði forsetinn m.a. Kvaðst hann telja að enn bæri að reyna samningaleiðina. „Ég er ekki svartsýnismaður. Ég tel Írana vera stórmerkilega þjóð og að við getum náð samkomulagi.“ Forsetinn tók fram að með þessu vildi hann ekki útiloka að gripið yrði til refsiaðgerða gegn Írönum á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna. Hann kvaðst hins vegar engin dæmi þess þekkja að slíkar ráðstafanir hefðu skilað tilætluðum árangri. Chirac hélt í gær til New York í Bandaríkjunum til að sitja upphafs- fund allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Þar mun hann m.a. eiga fund með George W. Bush Banda- ríkjaforseta sem hvatt hefur til þess að alþjóðasamfélagið taki af fullri hörku á kjarnorkuáformum klerka- stjórnarinnar í Íran. Bandaríkja- menn vilja að öryggisráðið hóti Írön- um refsiaðgerðum falli stjórnvöld ekki frá kjarnorkuáætluninni og hætti auðgun úrans. Kínverjar, Rússar – og nú einnig Frakkar – sem hafa neitunarvald í öryggis- ráðinu hafa ekki viljað fylgja þessari forskrift Bandaríkjaforseta. Íranar segja að kjarnorkuáætlun- in sé borgaraleg í eðli sínu og fallin til þess eins að framleiða orku. Bandaríkjamenn og fleiri þjóðir halda því á hinn bóginn fram að stjórnvöld í Íran hafi ákveðið að koma sér upp gereyðingarvopnum. Víst þykir að kjarnorkudeilan og ástandið í Írak verði ofarlega á baugi á þingi allsherjarþingsins í New York. Mohammed ElBaradei, forstjóri Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar, kveðst enn vongóður um að unnt verði að efna til samningaviðræðna Írana og fulltrúa ríkjanna sex. Hann hefur hins vegar bent á að 31. ágúst hafi runnið út frestur sá sem Írönum hafði verið gefinn til að hætta auðg- un úrans. Ráðamenn í Íran segja ekki koma til álita að verða við þeirri kröfu. Ríkin sex hafa hins vegar sett sem skilyrði fyrir viðræðum og margvíslegum ívilnunum á sviði við- skipta að stjórnvöld í Teheran lýsi yfir því með afdráttarlausum hætti að auðgun úrans hafi verið hætt. Chirac andvígur aðgerðum gegn Íran Hvetur til viðræðna um kjarnorkudeiluna Reuters Bjartsýnismaður Jacques Chirac Frakklandsforseti hefur nú tekið undir málflutning Rússa og Kínverja sem hafa efasemdir um ágæti þess að vísa umdeildum kjarnorkuáformum stjórnvalda í Íran til öryggisráðs SÞ. Róm. AFP. | Afsökunarbeiðni Bene- dikts XVI páfa frá því á sunnudag virtist í gær ekki ætla að nægja til að sefa reiði í garð hans í fjölmörgum múslímaríkjum. Íslamskir leiðtogar sem og vestrænir hafa hvatt til still- ingar vegna orða sem páfi lét falla í heimsókn sinni til Þýskalands í lið- inni viku og túlkuð hafa verið á þann veg að þar hafi hann tengt saman ísl- amstrú og ofbeldisverk. Hundruð manna komu saman í Basra í suðurhluta Íraks í gær til að mótmæla orðum páfa. Brúða í líki páfa var brennd sem og fánar Þýska- lands og Bandaríkjanna. Kröfðust mótmælendurnir þess að páfi yrði leiddur fyrir alþjóðlegan dómstól sökum orða sinna. Ýmsir vopnaðir hópar múslíma í Írak höfðu í gær í hótunum við Páfagarð. Al-Qaeda-hryðjuverkanetið birti í gær á vefsíðu yfirlýsingu þess efnis að blásið yrði til heilags stríðs, jihad, gegn „þjónum krossins“ og Vestur- löndum. Var því heitið að krossinn yrði „malaður mélinu smærra“. „Trúleysingjar og harðstjórar“ Vesturlanda yrðu sigraðir. Talsmaður klerkastjórnarinnar í Íran sagði í gær nauðsynlegt hafa verið af hálfu páfa að biðjast afsök- unar. Hann hefði á hinn bóginn ekki verið nógsamlega skýrmæltur í yf- irlýsingu sinni. Hvatti talsmaður- inn páfa til að við- urkenna að hann hefði gerst sekur um mistök. Ali Khameini, æðsti maður klerka- stjórnarinnar, sagði orð páfa „nýjustu hlekkina“ í samsæri Ísraela og Bandaríkjamanna sem leituðust við að blása í glæður trúarlegra átaka. Sendiherrum Páfagarðs í íslömsk- um ríkjum hefur verið falið að kynna afstöðu Benedikts páfa til íslamstrú- ar. Fullyrða talsmenn Páfagarðs að orð páfa í Þýskalandi hafi verið rifin úr réttu samhengi. Í ræðunni í Þýskalandi vísaði páfi í samræðu keisara austrómverska ríkisins á 14. öld og persnesks menntamanns. Í þeirri samræðu er haft eftir keisar- anum að Múhameð spámaður hafi aðeins kynnt til sögu „illa hluti og ómennska á borð við þá skipun að boða trúna með brugðnum brandi“. Í ræðu sinni tók páfi fram að um til- vitnun væri að ræða en ekki hans eigin orð. Boða heilagt stríð gegn „krossinum“ Benedikt páfi sætir harðri gagnrýni. Peking. AFP. | Stjórnvöld í Kína hafa ákveðið að leggja fram aukinn liðs- styrk til friðargæslu í Líbanon. Alls munu 1.000 friðargæsluliðar starfa þar. Þetta kom fram í máli Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, í gær. Boðaði hann einnig að Kínverjar hygðust auka efnahagsaðstoð við Líbana. Nú eru 2.000 friðargæsluliðar í Líbanon undir merkjum Sameinuðu þjóðanna. Um 240 þeirra koma frá Kína. Samkvæmt ályktun öryggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna verða 15.000 hermenn sendir til landsins í því skyni að koma í veg fyrir frekari átök. Kínverjar hafa fram til þessa lítt látið til sín taka á vettvangi friðar- gæslu. Þykir ákvörðunin sem opin- beruð var í gær til marks um aukinn metnað kínverskra ráðamanna á sviði alþjóðamála. Kína er nú fjórða stærsta hagkerfi í heimi hér og ráða- menn í Evrópu og Bandaríkjunum hafa ítrekað hvatt stjórnvöld til að leggja sitt af mörkum í samræmi við stærð og efnahagsgetu ríkisins. Eitt þúsund Kínverjar verða sendir til Líbanons

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.