Morgunblaðið - 19.09.2006, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 15
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ANGELA
Merkel, kanslari
Þýskalands, kall-
aði í gær eftir
samstarfi allra
flokka til að koma
í veg fyrir upp-
gang nýnasista,
eftir góða kosn-
ingu Lýðræð-
issinnaða þjóð-
arflokksins (NPD) í sambandskosn-
ingunum í Mecklenburg og Berlín á
sunnudag.
Þannig benti flest til að NPD hefði
tryggt sér sex sæti á þinginu í sam-
bandslandinu Mecklenburg-
Vorpommern, eftir að hafa hlotið 7,3
prósent atkvæða.
Tvö ár eru liðin frá því að flokk-
urinn fékk níu prósent atkvæða og
nokkur þingsæti í Saxlandi eftir góða
kosningu, en útkoman um helgina
þykir staðfesta að hann hafi náð góðri
fótfestu í austurhluta landsins, þar
sem atvinnuleysi er víða mjög mikið.
„Við munum verða öflug stjórn-
arandstaða og afhjúpa að fullu getu-
leysi þessa rauð-rauða stórslyss,“
sagði Udo Pastoers, leiðtogi NPD í
Mecklenburg, og vísaði þar með til
flokkslita jafnaðarmanna (SPD) og
Vinstriflokksins sem hafa meirihluta
þingsæta í Mecklenburg-Pommern
og Berlín. Fyrir utan að boða harða
stefnu í málefnum innflytjenda og úr-
sögn úr Evrópusambandinu vill NPD
taka aftur upp þýska markið.
CDU galt afhroð í Berlín
Kristilegir demókratar (CDU),
flokkur Merkels, hlutu verstu kosn-
ingu sína í Berlín frá lokum síðari
heimstyrjaldarinnar árið 1945.
Merkel segir því samstarf við jafn-
aðarmenn koma til greina til að
tryggja stöðugleika á svæðinu.
Ekki er ár liðið frá því að sam-
bandsstjórn Kristilegra demókrata
og jafnaðarmanna komst á legg og
sagði Klaus Schröder, hjá Ottu Suhr
hugveitunni í Berlín, í samtali við
AFP-fréttastofuna, kosningarnar
sína óánægju margra kjósenda.
„Kjósendur geta ekki lengur greint
muninn á SPD og CDU og hafa skilað
mótmælaatkvæðum með því að kjósa
litlu flokkana.“
Volker Kronenberg, stjórnmála-
fræðingur hjá Bonn-háskóla, tók í
sama streng. „Fólk fyllist örvæntingu
vegna vangetu helstu flokka til að
leysa vandamál landsins,“ sagði
Kronenberg í samtali við N-TV-
sjónvarpsstöðina. „Engin furða að
fylgi NPD hafi aukist mjög.“
Varar við
uppgangi
nýnasista
Merkel boðar samstarf
allra flokka í baráttunni
Angela Merkel
DÖNUM er oft sagt til hróss að þeir
kunni að gera sér glaðan dag með
litlum fyrirvara og er þá oftar en
ekki áfengi haft með um hönd. Á
bak við þessa rósrauðu mynd af
dönskum neysluvenjum býr þó öllu
dekkri staðreynd, því allt að hálf
milljón Dana stundar ofdrykkju, að
því er fram kemur í umfjöllun
danska blaðsins Jyllands-Posten.
Danmörku er þar lýst sem landi
„frístundaalkóhólista“, þar sem
hálf milljón manna veldur heilsu
sinni skaða með ofneyslu áfengis.
Hefur almenningur þannig tekið
því bókstaflega, að í lagi sé að kon-
ur drekki að hámarki sem svarar
14 rauðvínsglösum á viku en karlar
21 glas. Þvert á móti sé þetta magn
allt of mikið, ofneysla áfengis geti
m.a. aukið líkur á krabbameini.
Ofdrykkjan
mikill vandi
Nairobi. AFP. | Sameinuðu þjóðirnar og Evrópu-
sambandið fordæmdu í gær sprengjuárás sem tal-
ið var að hefði verið gerð til að bana bráðabirgða-
forseta Sómalíu, Abdullah Yusuf Ahmed. Ellefu
manns létu lífið í tilræðinu en forsetinn komst lífs
af.
Francois Fall, sérlegur sendimaður Kofis Ann-
ans, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna,
sagði að svo virtist sem markmiðið með tilræðinu
væri að torvelda friðarumleitanir.
Fimm fylgdarmenn forsetans féllu
„Við fordæmum þessa árás og hvetjum alla
Sómala til að leysa deilumálin með friðsamlegum
hætti,“ sagði Fall í yfirlýsingu fyrir hönd Samein-
uðu þjóðanna og Evrópusambandsins.
Sprengjuárás var gerð á bílalest forsetans í
Baidoa, um 250 km norðvestan við höfuðborgina,
Mogadishu, í gærmorgun. Á meðal ellefu manna
sem biðu bana í sprengingunni voru fimm fylgd-
armenn forsetans, þeirra á meðal bróðir hans. Sex
árásarmenn lágu einnig í valnum. Fregnir
hermdu að forsetinn hefði ekki særst.
Embættismenn stjórnarinnar kenndu ísl-
amistum um árásina en þeir neituðu því og for-
dæmdu hana. Íslamistar náðu Mogadishu á sitt
vald í júní eftir margra mánaða átök og síðan hef-
ur yfirráðasvæði þeirra stækkað ört. Bandaríkja-
stjórn hefur sagt að íslamistarnir tengist hryðju-
verkanetinu al-Qaeda en þeir neita því.
Aðeins Baidoa og lítið svæði í grennd við bæinn
er á valdi bráðabirgðastjórnarinnar.
Mannskæð árás fordæmd
AP
Tilræði Bílar brenna eftir sprengjuárás í Sómalíu.
♦♦♦